Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 24
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201424 Fréttir Erlent Unga fólkið yfirgefur Obama n Kjósendur óánægðir með forsetann n Stefnir í stórsigur repúblikana Á þriðjudaginn ganga Banda- ríkjamenn til þingkosninga. Að þessu sinni er kosið um öll 435 sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem kjörtímabil þingmanna er tvö ár og 36 af 100 öldungadeildarþingmönn- um sem eru kosnir til sex ára í senn. Auk þess er kosið til allra ríkisþinga Bandaríkjanna og um 36 ríkisstjóra. Svart útlit fyrir demókrata Nú, þegar fáeinir dagar eru til kosninga er útlitið mjög svart fyr- ir Demókrataflokkinn, því fyrir- séð er að repúblikanar vinni sig- ur í kosningunum. Yfirleitt gengur flokki forsetans illa í svokölluðum „mid-term elections“, eða miðkjör- tímabilskosningum, þingkosning- um þegar ekki er kosið til forseta, því kjósendur sem eru ósáttir við frammistöðu forsetans eða vilja refsa honum fyrir ástand mála, eru yfirleitt líklegri til að mæta á kjör- stað. Ástandið er hins vegar óvenju slæmt fyrir demókrata að þessu sinni. Samkvæmt síðustu könnun NBC-fréttastöðvarinnar meðal lík- legra kjósenda vildu 52 prósent að repúblikanar hefðu þingmeirihluta, meðan demókratar nutu ekki stuðn- ings nema 41 prósents. Minnkandi vinsældir Obama Vaxandi óvinsældir forsetans vega hér þungt, en 53 prósent Bandaríkjamanna eru ósáttir við frammistöðu Obama. Það þýðir að andstæðingum forsetans hefur fjölgað og þeir ákveðnari í að mæta á kjörstað, en líka, að margir kjós- endur demókrata munu sitja heima. Það hefur vakið sérstakar áhyggj- ur meðal demókrata að ungir kjós- endur, sem voru lykillinn að sigri Obama 2008 og 2012, virðast hafa snúið baki við flokknum. Þannig sýnir könnun á vegum Harvard að 51 prósent ungra kjósenda, sem eru líklegir til að mæta á kjörstað, að þeir ætli sér að kjósa repúblikana. Ef ungir kjósendur eru að snúa baki við flokknum er mikil hætta á að flokkurinn eigi á brattann að sækja í forsetakosningunum að tveimur árum liðnum. Ástæður óvinsælda Obama eru margar, annars vegar eru margir kjósendur demókrata óánægðir með hve litlu hann hafi í raun breytt, og hefðu viljað sjá mun róttækari uppskurð á heilbrigð- iskerfinu og að harðar yrði tekið á Wall Street, auk þess sem margir eru ósáttir við að utanríkisstefna hans hafi verið of herská. Á hægri vængn- um hafa menn sakað Obama um hið gagnstæða. Óánægja með þróun mála Gremja flestra Bandaríkjamanna virðist þó fyrst og fremst beinast að stjórnvöldum í Washington al- mennt. Óánægja og reiði yfir þróun mála og almennu ástandi er mikil. Þannig sýnir nýleg könnun CNN að 68 prósent Bandaríkjamanna segj- ast reiðir yfir þróun mála. Í huga margra ber Obama líka ábyrgð á því þrátefli sem ríkir í Washington, en þingið hefur verið nánast óstarfhæft vegna harðvítugra deilna repúblik- ana og demókrata. Af því leiðir að traust á Bandaríkjaþingi er nú nærri sögulegu lágmarki, en samkvæmt Gallup eru aðeins 15 prósent kjós- enda ánægð með störf þingsins. Það vekur athygli að heilbrigðis- frumvarp Obama, „Obamacare“, sem repúblikanar töldu fyrirfram að yrði mikilvægasta kosningamál- ið í ár, virðist ekki leika neitt hlut- verk. Kannanir sýna að þótt al- menningur sé enn fullur efasemda um frumvarpið þá hefur stuðningur við það aukist og mjög fáir vilja að lögin verði með öllu afnumin, líkt og repúblikanar hafa boðað. Ástæð- an er ekki síst sú að umbæturnar eru þegar farnar að bera árangur, og dómsdagsspár fólks eins og Söruh Palin og annarra andstæðinga þeirra hafa ekki ræst. Hversu stór verður sigurinn? Enn er þó óvíst hversu stór sig- ur repúblikana verður. Ljóst er að flokkurinn mun bæta við sig sætum í báðum deildum þings- ins, en þó er ekki víst að þeim tak- ist að ná meirihluta af demókröt- um í öldungadeildinni, en til þess þurfa þeir að bæta við sig sex sæt- um. Lengi vel bjuggust stjórnmála- skýrendur við að það verk yrði auð- sótt, því demókratar þurfa að verja fleiri ótrygg sæti en repúblikanar. Þá hafa repúblikanar verið heppn- ir með frambjóðendur að þessu sinni. Í síðustu tveimur kosningum lenti flokkurinn í alvarlegum vand- ræðum vegna öfgafullra og furðu- legra ummæla sumra umdeildari frambjóðenda flokksins. Öruggt er talið að repúblikanar vinni sæti í Montana, Suður-Dakóta og Vest- ur-Virginíu, og mjög líklegt talið að þeir vinni að auki í Arkansas, Loisi- ana og Alaska, en sigur í þessum ríkjum myndi duga til meirihluta í öldungadeildinni. Að auki gætu repúblikanar unnið ný þingsæti í Colorado, Iowa, Norður-Karólínu og New Hampshire. Alls gætu því tíu öldungadeildarsæti sen nú eru í höndum demókrata skipt um hend- ur. Demókratar eiga hvergi raun- hæfa möguleika á að vinna sæti af repúblikönum. Skoðanakannanasérfræðingur- inn Nate Silver spáir nú 64 pró- sent líkum á að repúblikanar nái meirihluta í öldungadeildinni, og hann fái 52 eða 53 sæti. Demókrat- ar binda nú helst vonir við að snúa taflinu við í Alaska, þar sem demókratinn Mark Begich, sitjandi öldungadeildarþingmaður, hefur verið að vinna á að undanförnu. Ef demókrötum tekst að halda Alaska verður umtalsvert erfiðara að fella meirihluta þeirra. Stóru tíðindin kunna að koma frá Kansas Áhugaverðustu kosningarnar eru hins vegar í Kansas, sem hefur um árabil verið eitt öruggasta vígi Repúblikanaflokksins og höfuðvígi kristinna íhaldsmanna. Nú er hins vegar útlit fyrir að öldungadeildar- þingmaður repúblikana, Pat Ro- berts, gæti tapað fyrir Paul Davis. Þótt Davis hafi ekki gefið upp hvor- um stóru flokkanna hann myndi starfa með nái hann kjöri, telja flest- ir að hann muni sækjast eftir sam- starfi við demókrata. Kosningar til ríkisstjóra í Kansas eru ekki síður spennandi. Núver- andi ríkisstjóri, Sam Brownback, sem er í miklu uppáhaldi meðal kristinna íhaldsmanna, hefur fylgt mjög róttækri hægristefnu síðan hann tók við embætti 2011. Þannig hefur Brownback þrengt mjög að aðgengi kvenna að fóstureyðingum í ríkinu og þá hefur hann barist fyr- ir því að sköpunarsaga biblíunnar verði kennd í líffræði í barnaskól- um. Fyrirmynd eða viðvörun Það sem hefur grafið undan fylgi Brownback er hins vegar efnahags- stefna hans, en hann hét því að stórfelldur niðurskurður fjárlaga og stærstu skattalækkanir í sögu þess myndu rétta við efnahag ríkis- ins. Aðgerðir Brownback hafa not- ið mikilla vinsælda meðal repúblik- ana. Þannig hefur Grover Norquist lýst því yfir að önnur ríki og alrík- ið ættu að taka sér skattastefnu Brownback til fyrirmyndar. En þótt ýmsar hugveitur og þrýstihópar á hægri væng bandarískra stjórn- mála hafi lofsungið efnahagsstefnu Brownback og lýst honum sem mest „business friendly“ allra ríkisstjóra Bandaríkjanna hafa aðgerðir hans ekki náð að bæta kjör almennings í ríkinu. Þvert á móti hefur fátækt aukist, fjárhagur ríkisins er í molum og almenn óánægja er meðal kjós- enda með ástand mála. Samkvæmt síðustu könnun NBC var Paul Dav- is, frambjóðandi Demókrataflokks- ins, með 1 prósent forskot á Brown- back. Fréttaskýrendur vestanhafs hafa bent á að tap Brownback og Roberts í Kansas myndi vekja alvar- legar spurningar um hversu langt repúblikanar geti gengið til hægri, jafnvel í íhaldssömustu ríkjunum. Ráðast úrslitin 2016 í ríkis- stjórakosningum nú? Það er í ríkjunum sem demókrat- ar eygja helst vonarglætu í þess- um kosningum. Þótt útlit sé fyrir að repúblikanar vinni á í ríkisþingun- um, gætu demókratar bætt við sig ríkisstjórum og jafnvel fellt nokkra umdeildustu ríkisstjóra repúblik- ana. Auk Sam Brownback stendur Scott Walker, ríkisstjóri Wiscons- in, mjög tæpt, auk Rick Scott í Flór- ída. Walker hefur verið nefndur sem hugsanlegur forsetaframbjóðandi repúblikana 2016. Ósigur Walker væri að auki alvarlegt áfall fyrir te- boðshreyfinguna og Koch-bræður, sem hafa fjármagnað ris hans. Sigur í ríkisstjórakosning- um kann einnig að styrkja stöðu demókrata fyrir forsetakosningarn- ar að tveimur árum liðnum, því rík- isstjórar hafa umsjón með kosn- ingum og líkt og reynslan í Flórída í forsetakosningunum árið 2000 sýndi getur það skipt sköpum hvor flokkurinn fer með framkvæmda- valdið í ríkjum þar sem mjótt er á mununum. Ljóst er að repúblikanar leggja mikla áherslu á að Rick Scott sigri í Flórída og Scott Walker í Was- hington, því eins og Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey og formað- ur Ríkisstjórasambands repúblik- ana, benti á í ræðu á fundi samtak- anna þá myndi það skipta flokkinn öllu í forsetakosningunum 2016 hvort ríkisstjórar úr röðum hans eða demókrata hefðu umsjón með kosningunum. n Magnús Sveinn Helgason Sagnfræðingur og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum Dvínandi vinsældir Vaxandi óvinsældir forsetans vega þungt þegar kemur að kosningunum. „53 prósent Bandaríkja- manna eru ósáttir við frammistöðu Obama. Stór tíðindi í Kansas? Pat Roberts gæti tapað fyrir Paul Davis. Vinsæll meðal íhaldsmanna Núver- andi ríkisstjóri, Sam Brownback, er í miklu uppáhaldi meðal kristinna íhaldsmanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.