Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 32
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201432 Fólk Viðtal Hefði kálað sér Eftir fimm mánaða einangrun í Síðumúlafangelsi og fjórtán mánaða viðdvöl í fangelsinu við Skólavörðu- stíg 9 fór Bjarni inn á réttargeðdeild, fyrst í Svíþjóð, svo að Sogni í Ölfusi. „Ég er lokaður samanlagt inni í átta og hálft ár og eftir það fer að verða svona stígandi í mínu lífi. Ég hafði nægan tíma til þess að endurmeta sjálfan mig í innilokuninni. Mér veitti ekkert af þessum tíma,“ seg- ir Bjarni sem er í djúpum þönkum, og næstum eins og hann sé að tala við sjálfan sig: „En djöfull er þetta nú samt nöturlegt. Að ég hafi frels- að sjálfan mig á þennan hátt, með manndrápi. En það má að nokkru leyti segja það. Ég veit að ef það hefði ekki gerst þá hefði ég kálað sjálfum mér innan árs – ég veit það núna.“ Bjarni segist sjá mikil líkindi með sjálfum sér og Sævari Raf- ni Jónassyni, 59 ára manni sem skotinn var til bana af sérsveitar- mönnum í Hraunbæ í desember síðastliðnum, en það hefur verið gagnrýnt að kerfið hafi ekki brugð- ist við þegar ljóst mátti vera að hann var orðinn hættulegur sjálfum sér og umhverfi sínu. „Mér finnst það svona vera hin hliðin á samlokunni við mig, þetta Hraunbæjardráp. Þarna er maður í svipaðri stöðu og ég, kominn alveg út á ysta enda með sitt líf. Það grípur enginn inn í. Það gerir enginn það rétta. Og hann er stjörnuvitlaus þarna inni, með paranoju og brjálaður í geð- rofsástandi, alveg innikróaður og lokaður af. En lögreglan var fyrri til að drepa hann áður en hann drap einhvern annan.“ Tóm tékkhefti Bjarni hefur ekki fengið geðklofak- ast í sjö ár eða síðan árið 2007. „Ég er á ákveðnum skammti af geðlyfj- um sem ég nota sem öryggisventil. Það er allt undir og ég veit að ég er á mínum síðasta séns. Ég er búinn að taka út alla innistæðu, skrifa út allt tékkheftið. Það er bara eitt blað eft- ir í tékkheftinu – bara eitt blað. Nei. Sýran krumpar mig ekki lengur. Hún er alltaf í mér samt, hún kem- ur fram í málverkunum mínum og því sem ég skrifa. En ég er kannski orðinn menntaðari sýruhausahöf- undur í dag en ég var í gamla daga.“ Bjarni segist vinna ákaflega mikið í dag og afkasta miklu. „Það er skýtið og ég hugsa oft um það, þar sem ég er hingað kominn og lít til baka, að þrátt fyrir allt, þá sé ég hugsanlega á besta stað í líf- inu. Þrátt fyrir að ég hafi þurft bera þennan þunga kross til þess að komast hingað þá vildi ég ekki skipta á neinu öðru hlutverki en því sem ég er í í dag. Líf mitt er ákaf- lega innihaldsríkt og gefandi og ég er mjög hamingjusamur. Ég lifi fyr- ir listina. Ég lifi fyrir bókmenntirn- ar og myndlistina. Ég á mér ekk- ert borgaralegt líf þannig. Það má segja að ég sé múraður inni í þess- um heimi.“ Bjarni segist líta á það sem sitt hlutverk að skapa, mála og skrifa fyrir framtíðina, „af því að maður slær ekkert í gegn í þessu lífi, það er greinilegt. Maður gerir engan stór- kostlegan söksess þannig.“ Hann kveðst þó ekki vera alveg búinn að gefa upp alla von um að hann verði uppgötvaður í lifanda lífi, „en það eru hverfandi líkur,“ segir hann, skellir upp úr, og bætir kíminn við að hann veðji á framtíðina í þess- um efnum, næstu hundrað ár jafn- vel. „Ég veit að ég er góður málari og ég er góður rithöfundur. Ég veit það sjálfur. Þó er þetta ekki sagt af neinum hroka eða yfirdrepsskap. Ég er bara vel dómbær á það hvað er góð list og ég sé að mín list er góð.“ Grautarpotturinn Ísland Ég spyr Bjarna hvort honum finn- ist erfitt að vera alltaf neðan- jarðarlistamaður. „Nei. Ég er sem betur fer ekki froðulistamaður. Ég vildi ekki vera það. Froðan er mik- il plága í okkar þjóðfélagi. Froður- itmennt og -tónlist og -myndlist er það sem stjórnar menningunni í dag. Krimmarnir, sem eru mikl- ar vinsældabókmenntir í dag, eru til dæmis froðumenning. Markað- urinn er stór hluti af þessu, þetta óargadýr sem vill gleypa hverja sál í landinu. Hér ríkir bara flatneskjan. Þetta snýst svona hringinn í kring- um einhvern grautarpott sem heitir Ísland sem ekkert er í nema einhver ... sætsúpa,“ segir Bjarni og skellir upp úr: „Engar sveskjur í súpunni – það eru engar sveskjur í súpunni. Alvöru listamennirnir, þeir eru undir, þeir eru neðanjarðar.“ Og þannig hefur það nú kannski alltaf verið? „Já. Og þeirra hlutverk er kannski ekki í deginum sem þeir lifa. Svo greinir sagan og tíminn í sundur. Greinir kjarnann frá hism- inu. Hlutverk alvörulistamanna er ekki í samtímanum, það heldur áfram á meðan froðan kemur og fer, stanslaust, ný og ný. Svo gleymast líka höfundar, þeir rykfalla.“ Bjarni veltir því upp hvort það vanti raun- verulega hættu í líf íslenskra rithöf- unda. „Ég held að þjóðfélag eins og okkar geti ekki gefið af sér neinar stórkostlegar bókmenntir. Það sé orðið það sterilíserað innan frá, gelt og hugmyndasnautt. Veistu það, ég sá góða ljóðabók í fyrra, sem hann Mazen vinur minn Maarouf frá Palestínu gaf út, og þá varð mér hugsað: Þurfa menn virkilega að standa andspænis byssukjöftun- um til þess að kalla fram góða bók- menntir? Þurfa menn að lifa hættu- legu lífi? Verður góð list einungis til þegar ákveðin hætta steðjar að lífi manns?“ Fær ekki ritlaun Bjarni hefur gefið út um 15 ljóða- bækur frá árinu 2003 en ekki fengið ritlaun þrátt fyrir ítrekaðar umsókn- ir. „Ég fékk ritlaun í gamla daga, þegar ég var að gefa út rugluðu sýr- hausabækurnar, en ekki núna. Ég tók auðvitað út minn dóm með inn- ilokun en hvort verið sé að leggja á mig einhverja aukarefsingu veit ég ekki.“ Hann hefur gagnrýnt þetta opinberlega en segir engan hjá Launasjóði rithöfunda hafa svarað gagnrýni hans. „Ég vildi gjarnan fá svar en á ekki von á því. Það þýðir ekkert að segja mér að ég skrifi svo vondar bókmenntir að ég eigi ekki skilið ritlaun. Ekki þess vegna. Hver er þá ástæðan?“ spyr Bjarni. „Mín list, mínar bókmenntir, þær koma þessu manndrápsmáli ekkert við. Ég er búinn að gefa þessari þjóð mikið af fallegum ljóðum, mikið af fallegum bókmenntum.“ Bjarni hefur staðið á horni Aust- urstrætis og Pósthússtrætis allt frá árinu 2003 og selt ljóðin sín. „Ég varð að taka mér þessa stöðu og selja bækurnar mínar sjálfur. Ég sá að það var útlit fyrir að það átti ekki að gefa mér séns. Það var einu sinni maður sem sagði við mig: „Heyrðu, Bjarni minn, ég held að það sé eitt- hvert þegjandi samkomulag um að það verði ekkert farið að ræða þínar bókmenntir eða ljóð fyrr en þú ert dáinn.“ Minn glæpur var svo hrika- legur að það verður aldrei fyrirgef- ið. Hins vegar sagði ég við sjálfan mig: Ég verð einhvern veginn að finna út úr þessu og þá tók ég mér því þessa stöðu á horninu. Og ég sagði líka: Þetta fátæka land, and- lega snauða, holaða land, það þarf á mér að halda. Þjóðin, hún getur ekki án mín verið, mín rödd þarf að heyrast, sagði ég við sjálfan mig, og hún skal gera það þó ég þurfi að standa úti og selja bækurnar mín- ar.“ „Ég trúi á lífið“ Bjarni er ekki hættur að skrifa þó að hann hafi lagt ljóðið á hilluna – að minnsta kosti í bili. Hann vinnur nú að ævisögu sinni, Hin hálu þrep, og stefnir á að gefa hana út í vor. „Þetta verður alveg fanta bók, alvöru bók, ekkert meðalmennskumoð eins og yfirleitt með íslenskar bókmenntir.“ Hann segist vera búinn að taka ótal vinkla í sínu lífi, fara inn á margar blindgötur, hliðar- og öngstræti. „En ég varð að fara þessa leið. Það má segja að ég hafi þrætt í gegnum lífið á hárfínan hátt. Trú- in er kannski grunnurinn að þessu öllu. Ég er mjög trúaður. Ekki samt eins og trúin er skilgreind eft- ir ákveðnu skipulagi Krists, Mú- hameðs og Búdda. Ég hef eins kon- ar frumtrú. Ég trúi á lífið sem er óskrifað blað og lífsleiknin felst í því að skrifa þetta blað. Einhvern veg- inn þá hefur mér auðnast að þræða mig í gegnum þetta – ég hef dansað við örlaganornirnar með ákveðnum hremmingum – og það má segja að ég sé búinn að vinna mig algjör- lega frá fortíðinni þannig að hún er ekki að bögga mig. Í dag er ég ekki að dragast með fortíðardrauga. Ég verð samt var við það að þetta morð hangir einhvers staðar í loftinu – alltaf. Ég hef sagt að eini maðurinn sem er frjáls frá þessu manndrápi er ég sjálfur.“ Fegurð til framtíðar Sem fyrr segir ætlar Bjarni nú að einbeita sér að málverkinu. „Ég er með milljón hugmyndir. Það er nú sagt að málverkið sé dautt, að það sé búið að mála allt saman, en það er ekkert satt. Svo lengi sem mað- urinn lifir þá þarf hann að skapa og yrði ég 700 ára gamall þá gæti ég málað öll þessi ár, ekki málið, nýjar myndir. Ég skynja að þetta er óþrjótandi brunnur, ég hef tilfinn- gu fyrir ómáluðum myndum fyr- ir framan mig og það nær langt út fyrir grafarbakkann.“ Bjarni tekur þó fram að hann viti ekki hvað framtíðin beri í skauti sér. „Annars veit maður ekk- ert, Jón. Ég veit ekkert hvaða vink- ill verður í minni vitund. Ég get sprottið upp einhvern tíma seinna sem ljóðskáld,“ segir hann, puffar pípuna og flissar. „Það er eitthvað annað sem stjórnar þessu heldur en maður sjálfur. Það eru einhverj- ir kraftar þarna á bak við. Annars held ég að maður sé ekki annað en sendiboði í allífinu. Maður er að koma verkum áfram inn í fram- tíðina og ég lít þannig á að mitt hlutverk sé að mála og skrifa fyr- ir framtíðina. Við eigum að bæta heiminn. Við eigum að leggja heiminum til fegurð. Það er okkar skylda. Og ég lít þannig á það að ég sé að auðga lífið og auðga heiminn af fegurð sem börn framtíðar geta kannski notið.“ n Á horninu Bjarni Berharður hefur selt ljóðabækur sínar á horni Pósthússtrætis og Aðalstrætis allt frá árinu 2003. Mynd SiGTryGGur Ari Korn Við erum korn í brauðdeigi auðvaldsins sem hefast drýgindalega fyrir baksturinn í glóandi ofni frjálshyggjunnar stökk skorpan er vitundarbyltingin sem aldrei varð í morgunsárið er brauðunum raðað snyrtilega í rekkana og seld ýmist sneidd eða heil á verði við hæfi. Við erum kornin í brauði auðvaldsins sem hinir lystugu gæða sér á. Augnablikin Á spunahjóli tímans birtast augnablikin á vængjum ljóssins augnablik sem fletta blöðum í bók veruleikans. Hin hálu þrep Sýnishorn úr ævisögu Bjarna Bernharðs, Hin hálu þrep, sem hann vinnur nú að: Svo kom höggið, hið ófyrirsjáanlega högg, hið þunga högg sem í einni svipan svipti hann vegabréfinu að borgaralegri tilveru, högg sem feykti upp öllum hurðum veruleikans svo nístingskaldir vindar næddu um sálarheiminn. Hann hafði þrætt einstigi myrkursins inn að fordyri vítis í leitinni að eigin lífi, lífi sem hann hafði misst sjónar á í skarkala tilverunnar. Hann hafði allt sitt líf verið að „knýja á“, knýja á án þess að dyrnar upplykjust honum. Enginn jarðneskur kraftur gat stöðvað hann í leitinni að uppsprettunni, í leitinni að hinni einu réttu leið út úr völundarhúsi tómleika og tryllings. Það gerðist á sama augnabliki að hann fann leiðina og að skuggamættið svipti hann frelsinu. Lausnin sem lá á borði veruleikans var blátt áfram hrollköld og djöfulleg. Þarna var það, óskapnaður sem glotti sínum dýrskjafti – hann sjálfur! Leitin hafði þá borið hann að innstu rökum, að vængja- hurð tveggja tíma þar sem hann hitti fyrir sjálfan sig í dýrslíki. Og hið blikandi hnífsblað myrkursins, hnífsblað tveggja tíma sem í einni svipan fletti sundur augnablikinu þannig að á borðinu lágu tveir helmingar, hvor um sig hálft augnablik – sjáöldur tímans. „Ég lít þannig á það að ég sé að auðga lífið og auðga heiminn af fegurð sem börn framtíð- ar geta kannski notið. „Þarna var geð- klofinn kominn á það harðan snúning að ég réði ekki neitt við neitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.