Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Síða 42
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201442 Sport Þ að tekur örugglega haustið að komast niður á jörðina aftur,“ segir Harpa Þor- steinsdóttir, nýkrýndur Íslands- og bikarmeist- ari með Stjörnunni. Þessi 28 ára gamla kona er ekki aðeins marka- hæst knattspyrnukvenna í Pepsi- deildinni á tímabilinu, heldur langmarkahæst. Hún skoraði alls 27 mörk með Stjörnunni í sum- ar, heilum 15 mörkum fleiri en Shaneka Gordon, sem leikur með ÍBV, og er næstmarkahæst. Það er ekki hjá því komist að heillast af þessum árangri, en blaðakona DV heyrði í Hörpu og spjallaði við hana um íþróttina, ferilinn, lífið og jafnrétti í fótboltanum. Lét engan vita „Ég var svona sjö, átta ára þegar ég rambaði inn á æfingu hjá Þrótti í Reykjavík,“ segir Harpa um byrj- unina á knattspyrnuiðkun sinni. Harpa var að eigin sögn úti að leika sér og lét engan vita þegar hún fór á sína fyrstu fótboltaæfingu. Eftir æfingu kom hún heim og tilkynnti að hún væri byrjuð að æfa fót- bolta. „Þannig að mér hefur örugg- lega þótt mjög gaman,“ segir Harpa hlæjandi, spurð hvernig henni lík- aði íþróttin í byrjun. Þegar Harpa var ellefu til tólf ára gömul flutti hún í Garðabæ- inn með fjölskyldu sinni og fór þá frá Þrótti yfir til Stjörnunnar. Að hennar sögn er hún uppalin í Stjörnunni, eins og er gjarnan sagt um íþróttafólk og þeirra svoköll- uðu uppeldisfélög. Hefur hún æft og spilað með Stjörnunni síðan þá, ef frá eru talin þrjú ár sem hún var í Breiðablik, á árunum 2008 til 2011. Þá fór hún einnig að láni til breska félagsins Charlton í nokkra mánuði árið 2007 og Stjarnan fékk sömuleiðis lánskonu frá Charlton, en liðin voru í samstarfi á þeim tíma. „Kemur ekki orðum að því“ Óhætt er að segja að mikil upp- bygging hafi átt sér stað innan Stjörnunnar á undanförnum árum en liðið hefur orðið Íslandsmeist- ari núna tvö ár í röð, en það hafði ekki unnið titilinn fyrr en í fyrra. Hafandi æft með Stjörnunni síð- an hún var barn hefur Harpa upp- lifað stigvaxandi velgengni liðsins og óhætt er að segja að hún hafi átt sinn þátt í henni. „Það er náttúrulega bara æðislegt og maður kemur eigin- lega ekki orðum að því. Þegar ég byrjaði í yngri flokkunum var ég í rauninni í mjög sterkum árgangi og við vorum að lenda kannski í efstu sætunum í mínum flokki, þegar ég var á eldra ári, það er að segja. En liðið var ekki að vinna marga titla, hvorki í yngri flokkum, né nátt- úrlega í meistaraflokkum. Þannig að þetta var kannski svolítið fjar- lægt markmið, að geta náð svona árangri með Stjörnunni, en það er alveg æðislegt og eru búnar að vera gríðarlega miklar breytingar á þeim tíma sem ég hef verið,“ segir Harpa. Beðið eftir knattspyrnuhöll í Garðabæ Harpa byrjaði að spila með meist- araflokki Stjörnunnar þegar hún var fjórtán til fimmtán ára, þá fóru æfingar fram á malarvelli. „Það er búið að gerast svo mikið í fótbolta á Íslandi á þessum tíma. Þannig að það er gaman að sjá upp- bygginguna sem er búin að eiga sér stað. Ég meina, allt svæðið í Garða- bæ hefur breyst rosalega mikið á þessum tíma. Við vorum alltaf bara með graskeppnisvöll og svo vorum við með malarvöll. Svo vorum við með lítið svona búr, svona sem við köllum þetta, eins og gamla týpan af gervigrasi var. Svona sandgras í rauninni. Það var í rauninni að- staðan. Svo æfðum við á veturna og mölin náttúrlega frosin. Þannig að við æfðum innanhúss á veturna, á parketi. Ég meina, ég var að byrja að æfa þannig í meistaraflokki, þannig að það er búið að breytast,“ segir Harpa. „Að fara úr því í aðstöðuna sem er í Garðabænum, það er mjög gaman að sjá og taka þátt í. Núna erum við komin með marga gervigrasvelli og mjög gott yngri flokkastarf og bara bíðum eftir knattspyrnuhöll í Garðabænum, það er bara tímaspursmál hvenær við fáum það í gegn.“ Ekki keyptur titill Harpa hlær þegar henni er bent á að það sé ljóst að hún er búin að vera mikilvægur hlekkur í Stjörnunni í gegnum árin. „Já, ég allavega vona það,“ segir Harpa. „Það hefur alltaf verið metnaður fyrir því að vera með gott meistara- flokkslið í Stjörnunni. En það hef- ur kannski vantað rétta umgjörð og markmiðasetningu. Það líka tekur tíma að byggja upp svona gott lið sem að nær svona árangri í svona langan tíma, eins og við erum búin að gera núna. Förum frá því að Stjarnan hafi aldrei unnið tit- il og núna upp í að taka fimm titla á þremur árum. Þú gengur ekki að því, þetta eru allt leikmenn sem eru búnir að spila fyrir Stjörnuna í mörg, mörg ár. Það er kannski það sem er flottast við þetta. Það er ekki eins og, eins og maður talar um, ekki eins og þetta sé keyptur titill. Það var ekki lélegt lið sem ákvað að kaupa tíu góða leikmenn, það er búin að vera mikil uppbygging í gangi og sömu leikmennirnir og sami kjarninn í mjög langan tíma,“ segir Harpa um félagið sitt. Karlaliðið að spila vel Í ár fetaði karlalið Stjörnunn- ar í knattspyrnu í fótspor kvenna- liðsins og varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti eftir dramatískan sig- ur á FH í Kaplakrika í haust. Lang- þráður draumur stuðningsmanna liðanna hefur ræst á undanförnum tveimur árum og skiptir varla máli hvort fólk styðji félagið almennt, slíkri velgengni og uppbyggingu í starfi er auðvelt að samgleðjast. „Nú er líka karlaliðið að spila rosa- lega vel og það er alltaf gaman að sjá svona nýtt félag vera að skila ár- angri. Að það séu ekki alltaf sömu félögin sem eru að gera það vel eða að taka þessa titla. Þannig að það er líka mjög ánægjulegt,“ seg- ir Harpa. Leit upp til Olgu og Ásthildar Talið berst að fyrirmyndum og hlutverki Hörpu sem fyrirmynd, sérstaklega fyrir ungar stúlkur sem eru að hefja sinn feril í knattspyrnu. Harpa segist finna fyrir því að litið sé upp til hennar, að hennar sögn er það hluti af því að ganga vel. „Þá hlýtur maður líka að vera að gera eitthvað rétt og maður man það al- veg þegar maður var lítill að mað- ur leit alveg upp til þeirra sem voru að standa sig vel í að spila. Mað- ur leit upp til Olgu og Ásthildar og þessara sem voru hvað bestar þegar ég var svona í þriðja flokki. Svona á þessum árum sem maður byrjar að fylgjast eitthvað með af alvöru í meistaraflokki,“ segir hún. Harpa segist reyna að gefa af sér í starfið hjá félaginu, til að mynda með því að hvetja stelpurnar og mæta á leiki. Mesta umbunin í verkinu sjálfu Spurð hvaða merkingu fótboltinn hafi fyrir Hörpu almennt í hennar lífi segir hún mesta umbun felast í verkinu sjálfu. Þótt það sé gam- an að fá og hún sé þakklát fyrir all- ar viðurkenningar sem hún hefur hlotið þá sé meiri umbun sem fylgi verkinu sjálfu. „Það er miklu meiri umbun í því að spila vel og þegar liðinu gengur vel og maður finn- ur að maður nær að leggja sitt af mörkum í eitthvert verkefni sem á sér í rauninni stað í miklu lengri tíma en bara í lokaleikjunum, þegar kannski hvað mesta umfjöll- unin er um liðið. Það er gríðarlega mikið sem maður leggur á sig yfir vetrartímann og í rauninni frá því maður byrjaði þá er maður búinn að setja sér ákveðið markmið. Það sem stendur upp úr eru einmitt þessir leikir þar sem maður hef- ur einhvern veginn lagt allt undir og fengið eitthvað til baka. Það er „Aldrei minnst á konurnar“ n Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnukona er ósátt við Stöð 2 sport n Var langmarkahæst í Pepsi- Erla Karlsdóttir erlak@dv.is „Ég er mjög ósátt við Stöð 2 sport, hvernig þeir bara virð- ast „kötta“ algjörlega á kvennaboltann. „Ætli það lýsi mér ekki mjög vel líka, ég er mjög upptekin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.