Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 43
Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014 Sport 43
„Aldrei minnst á konurnar“
sama hvað það er í lífinu, hvort það
er vinna eða íþróttir eða fjölskylda
eða hvað sem það er. Þegar mað-
ur leggur eitthvað á sig og fær eitt-
hvað út úr því til baka og nýtur þess
að gera það sem maður er að gera,
það er það sem skiptir öllu máli,“
segir hún án þess að hika.
Að hennar sögn væri hún ekki í
fótboltanum nema henni liði eins
og hún væri að fá eitthvað út úr því.
„Líða vel og finnast gaman, það
er kannski einna helst sú merk-
ing sem þetta hefur fyrir mér. Það
er þessi umbun sem fylgir þessu
verki,“ segir Harpa.
Er utan við sig
Frá því að ræða hvaða merkingu
fótboltinn hafi fyrir Hörpu yfir í
að spyrja hana hvernig hún myndi
lýsa sjálfri sér. Harpa hlær og seg-
ir spurninguna erfiða. Fyrsta lýs-
ingarorðið sem hún notar er metn-
aðarfull, enda væri hún annars ekki
búin að ná þeim árangri sem hún
hefur náð. Þá setji hún sér háleit
markmið. Sjálfslýsingin stendur ei-
lítið á sér þangað til Harpa segir frá
sínum helsta galla, að hún sé mjög
óstundvís, að eigin sögn.
„Ég myndi alltaf vilja taka það
fram þannig að fólk haldi ekki að ég
sé ómeðvituð um þetta vandamál.
Þannig að alltaf þegar ég er beðin
um að lýsa sjálfri mér þá finnst mér
ótrúlega mikilvægt að taka það
fram að ég átta mig á þessum galla
og það er svona fyrsta skrefið í að
vinna að því að bæta þetta. Það er
allavega svona minn helsti löstur
þessa stundina,“ segir Harpa. Þá
heldur hún áfram. „Ég myndi segja
að ég væri góður vinur, góð móð-
ir, fjölskyldumanneskja, utan við
mig,“ segir Harpa, en hún býr í
Kópavogi ásamt manni sínum,
Jóhannesi Karli Sigursteinssyni,
þriggja ára syni þeirra og átta ára
stjúpdóttur. Þá er hún í fullu starfi
á leikskóla, er með BA-gráðu í upp-
eldis- og menntunarfræði og er í
meistaranámi í lýðheilsuvísindum.
Það er því nóg að gera hjá fótbolta-
konunni. „Eins og ég segi, ég set
mér háleit markmið – ég segi ekki
að ég myndi endilega ná þeim öll-
um,“ segir Harpa.
„Ætli það lýsi mér ekki mjög
vel líka, ég er mjög upptekin. Og
skipulögð, af því að það þarf að
vera það ef maður er með þessa
dagskrá. Það er kannski þess
vegna sem ég er alltaf sein, af því
ég er alltaf að detta úr einu í ann-
að,“ segir hún, en dregur úr þeim
fullyrðingum. „Nei, ég tek þetta til
baka. Ég vildi að það væri af því að
ég er alltaf ógeðslega upptekin. En
ég fæddist held ég bara fimm mín-
útum of seint.“
Jafnréttisstefnu innan klúbba
Í gegnum árin hefur verið áberandi
hversu lítið er fjallað um íþrótt-
ir kvenna í fjölmiðlum, miðað við
karla, og er knattspyrnan þar engin
undantekning. Kvennaboltan-
um hefur iðulega verið gerð verri
skil en karlaboltanum. Harpa seg-
ir jafnrétti kynjanna í fótbolta vera
eitthvað sem þurfi alltaf að vera
að tala um, annars batni hlutirn-
ir ekki. Tónninn breytist og verður
alvarlegur.
„Það er bót á ýmsum málum,
hvað varðar jafnrétti kynjanna í
þessu, eins og svo mörgu öðru. Ég
myndi segja að klúbbarnir þyrftu
að skoða sín mál alvarlega, eins
og hvað varðar jafnréttisstefnu.
Það eru mjög fáir klúbbar, held ég,
sem eru með skýra stefnu hvað það
varðar, í meistaraflokki. Án þess
að ég sé nokkuð búin að rannsaka
það, það er bara svona mín upp-
lifun og mín tilfinning,“ segir hún.
Jafnréttisstefnu Stjörnunnar má
nálgast á heimasíðu félagsins, en
þar segir að stefna félagsins sé að
vinna gegn því að fordómar, einelti
og hvers kyns ójafnrétti þrífist inn-
an félagsins. Þá eru tilteknar leið-
ir til þess að stuðla að jafnrétti og
sporna við fordómum og einelti.
Engir „slúðurpakkar“
um konurnar
Harpa segir stöðuna sem kon-
ur í fótbolta eru í vera erfiða hvað
umfjöllun um leikina þeirra varð-
ar. „Auðvitað er ógeðslega leiðin-
legt af því að maður er stelpa og
er í fótbolta þá fær maður minni
pening og það er fjallað minna um
það sem maður gerir, inni á vellin-
um og utan hans, og allt það. Mað-
ur fær minni umbun þannig, fyr-
ir það sem maður er að gera,“ segir
hún og víkur máli sínu að hlutverki
fjölmiðla. Hún segir erfitt að fara
fram á það að umfjöllun fjölmiðla
um karla- og kvennaboltann sé ná-
kvæmlega eins, því eins og staðan
sé núna er karlaboltinn vinsælli. En
auðvitað megi alltaf gera betur.
Harpa segir umfjöllunina í sum-
ar oft hafa verið á öðrum nótum um
kvennaboltann en um karlabolt-
ann. Farið sé yfir helstu atriðin úr
kvennaboltanum en víðtækari um-
fjöllun fari fram um karlaboltann.
Til að mynda hafi komið nokkr-
ir „slúðurpakkar“ um karlabolt-
ann, en þar er farið yfir orðróm um
hvaða leikmenn og þjálfarar eru
líklegir til hreyfings eftir tímabilið.
Slúðurpakkar eru ekki skrifaðir um
kvennaboltann, að Hörpu sögn.
„Sumir eru að gera þetta mjög vel,
þannig að ég vil ekki tala illa um
það þannig en maður finnur fyr-
ir mismuninum og það er bara
þannig, einhvern veginn. En það
eru margir að reyna að gera vel,“
segir hún.
„Mjög ósátt við Stöð 2 sport“
Þá gagnrýnir Harpa 365 miðla fyrir
að hafa barist fyrir því að fá réttinn
til þess að sýna frá leikjum Pepsi-
deildarinnar í sumar, en leggja
nánast eingöngu áherslu á að sýna
frá karlaboltanum. Hún segir Stöð
2 sport hafa sýnt frá leikjum allra
umferða í karlaboltanum en fáa
sem enga leiki í kvennaboltanum.
„Svo var verið að gera upp allar
umferðir í sjónvarpinu um Pepsi-
deildina. Það eru frekar miðl-
ar eins og Fótbolti.net og 433 og
Sport TV náttúrlega sem eru búin
að gera frábæra hluti í sumar, búin
að sýna leik úr hverri umferð. Það
eru svona netmiðlarnir einna helst.
Ég er mjög ósátt við Stöð 2 sport,
hvernig þeir bara virðast „kötta“
algjörlega á kvennaboltann,“ segir
Harpa. „Það einhvern veginn virð-
ist öllum vera sama um það, sem er
mjög leiðinlegt.“
„Aldrei minnst á konurnar“
Spurð hvort ekkert hafi farið fyr-
ir því að þetta hafi verið rætt seg-
ir Harpa að það sé eins og fólk sé
búið að sætta sig við hlutina. „Þetta
var tekið upp fyrir tveimur árum og
þá var öllu fögru lofað og svo líður
veturinn og kemur sumar og þá er
ekkert gert,“ segir Harpa. „Þetta er
mjög leiðinlegt af því að það var al-
veg verið að gera upp hverja ein-
ustu umferð [í karlaboltanum].
Það er Messan og það eru Pepsi-
mörkin í sjónvarpinu og allt þetta.
Það er aldrei minnst á konurnar –
ekki einu sinni farið yfir stöðurnar
í leikjunum,“ segir hún.
„Þegar RÚV var með umfjöllun
á föstudögum um kvennaboltann,
áður en Stöð 2 sport vildi kaupa
þetta, voru þeir alveg með marka-
þátt og voru að sýna úr leikjum og
svona. Það er mjög gaman fyrir þá
sem eru að fylgjast með kvenna-
bolta, þó að þeir sem fylgjast með
karlabolta séu kannski miklu stærri
hópur,“ segir hún.
Fínt að slappa af
Harpa hefur uppskorið ríkulega
eftir tímabilið, enda sáði hún vel.
Sem fyrr segir var hún langmarka-
hæst kvenna í Pepsi-deildinni,
þá var hún valin besti leikmað-
ur Pepsi-deildar kvenna í lokahófi
Knattspyrnusambands Íslands sem
fór fram 20. október síðastliðinn, af
öðrum leikmönnum deildarinnar.
En nú tekur við ögn rólegri tími hjá
markaskoraranum mikla, sem tek-
ur haustinu fagnandi. „Það er líka
alveg fínt eftir svona tímabil að ná
að slappa aðeins af,“ segir Harpa. n
deild kvenna eftir tímabilið n Sagði engum frá því þegar hún fór á fyrstu fótboltaæfinguna„Líða vel og finn-
ast gaman, það
er kannski einna helst sú
merking sem þetta hef-
ur fyrir mér. Það er þessi
umbun sem fylgir þessu
verki.
Á Pæjumóti Harpa byrjaði að æfa með Stjörnunni þegar hún var ellefu til tólf ára. Hér er
hún á Pæjumóti í Eyjum, með 5. flokki félagsins. Harpa er lengst til hægri. Mynd Úr EinkASAFni
Sigursæl Harpa hefur sannarlega verið sigursæl með Stjörnunni að undanförnu og var nýverið valin besti leikmaður Pepsi-deildar í lokahófi KSÍ.