Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 54
54 Menning Sjónvarp Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014 Bergnuminn í fjögur ár É g hef verið bergnuminn í næstum því fjögur ár. Þegar ég hugsa til baka á ég í erf- iðleikum með að ímynda mér hvernig lífið var eigin- lega fyrir þennan tíma. Hvað var ég eiginlega að gera í ósköpunum? Áttaði ég mig ekki á því að lífið var bara einvítt en ekki þrívítt? Lífið var gott en það var ekki í fullum blóma. Svo kom frumbarn okkar hjóna og allt breyttist. Þá varð allt í einu svo skært ljós sem blessar lífið og er alltumlykjandi æ síðan – og svo kom barn númer tvö líka: „Hughrif bliksins heiminn prýða, Hallgrím okkur síðar bless- ar. Barnsins nautnin breytir tilvist, berar hugans víddir þriðju. For- tíð okkar fánýt jarðvist, færir anda lífsins miðju.“ Svona reyndi ég í fyrravor að ná utan um þá tilfinningu að hafa eignast barn. Ég sat fyrir utan skrifstofu sýslumanns í iðnað- arhverfinu í Kópavogi og beið eftir því að stökkva inn og sækja vega- bréfið mitt. Ég var með gamlan Parker-penna sem ég hafði fundið og kassakvittun sem ég reyndi að pára á hughrif mín í bundnu máli. Ætli ég hafi ekki staðið í þeirri trú að andinn hafi komið yfir mig og úr varð atlaga að ljóði í fjórum er- indum. Við fjölskyldan vorum að flytja til útlanda. Ég var ekki búinn að sjá tæplega árs gamla dóttur mína og eiginkonu í nokkra daga því þær voru farnar út en sonur minn var með mér á Íslandi. En auðvitað eru slíkar tilraunir til að ná utan um eitthvað sem er svo stórkostlegt heldur vonlausar hjá flestum mönnum. Sérstaklega ef maður er ekki Jónas Hallgríms- son, Jóhann Sigurjónsson eða Jón Helgason. Enn frekar auðvitað ef maður kann ekki bragfræði nema kannski upp á tæplega 1. Æ, en samt: Tilraunir til að fanga það besta og stórkostlegasta í lífinu ganga yfirleit ekki upp. Þótt ég væri bragsnillingur myndi ég sjálfsagt grípa í álíka tómt þegar ég reyndi að ná utan um hug minn til barna minna. Líka ef ég reyndi að segja frá tilfinningunni í óbundnu máli. Sumt er eiginlega ekki hægt að segja. Dýpstu tilfinningar mannsins og líðan hans á bestu stundum eru ósegjanlegar. Hvernig leið þér þegar þú eign- aðist fyrsta barnið þitt? Við reyn- um að segja það en við getum ekki einu sinni byrjað að koma tilf- inningunum í orð og þess vegna sleppum við því yfirleitt bara vegna þess við viljum ekki segja ófullkomin orð um eitthvað svo fullkomið. Þá er kannski betra að þegja bara og leyfa minningunum að lifa fullkomnum í huganum frekar en að skrumskæla þær með takmörkuðum orðum sem ná ekki markmiði sínu. Immanuel Kant hefði líklega talað um upplifun á „hinu fagra“ eða upplifun á „hinu fagra sjálfu“. En ég er nú samt á því að við eigum alltaf að reyna að segja hug okkar frekar en að fela hann í þögninni. Það fallegasta við að eignast barn eða börn er samt svo eigin- lega hverdagsleikinn sem fylgir í kjölfar þeirra töfra sem fæðingin sjálf er og tilkoma barnsins í heiminn. Hversdagslegu stundir- nar þegar maður les fyrir börnin sín, gefur þeim vatn að drekka fyr- ir svefninn, kyssir þau góða nótt, knúsar þau svo inn í drauma- landið og horfir á þau sofa. Þess- ar mundir verða svo miklu meira en hverdagslegar af því maður á þær með börnunum sínum og maka. Þær verða magískar; hver- dagsleikinn verður að galdri - „hinu fagra“. Eilífðin er að svæfa börnin sín. Ég finn fyrir því að þegar ég sé börnin mín ekki í nokkra klukku- tíma – ég tala nú ekki um nokkra daga – er eins og dimmi yfir mér og þrívíð tilveran með þeim verð- ur aftur einvíð. Það vantar eitt- hvað; það vantar víddirnar. Svo hitti ég börnin aftur og þá spr- ingur maður út eins og blóm sem baðar sig í vætu og sólskini. Og eitt það fallegasta við þetta allt saman er að flestir geta upp- lifað það að eignast barn. Flestar manneskjur, af öllum kynþáttum, í öllum löndum og af öllum þjóð- félagsstéttum - auðvitað eru sumir sem af líkamlegum ástæðum eru ófærir um að eignast börn og enn aðrir sem af einhverri ástæðu vilja það hreinlega ekki. En almennt séð geta flestir menn upplifað það sem er best í heimi. Eiginlega er það dásamleg tilhugsun að það besta í heimi skuli vera flestum mönnum fært. Þannig geta svo margir orðið bergnumdir. Svo heldur tilfinningin bara áfram að vera í brjósti manns, alla daga og alltaf, eftir því sem börn- in hækka og stækka, byrja að tala og fá greinanlegan persónuleika sem styrkist alltaf og styrkist. Þau eru viðvarandi ljós, á endanum auðvitað það sem skiptir öllu og mestu máli, og þau næra mann og gefa manni svo óendanlega mikið. Þessi pistill er enn ein tilraun mín til að ná utan um hið ósegj- anlega sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa um börnin mín. Ég veit að það hefur mistek- ist. Ég veit samt nú hvað ég hafði ekki prófað áður en ég og konan mín eignuðumst börnin okkar: Það besta í heimi - sem líka er því miður ósegjanlegt. En ég tel mig vita að flestu fólki líði á svipað- an hátt á mér - þessi ósegjanlega fegurð fæðingarinnar og lífsins sem fylgir - og það er svo fallegt að svo margir fái að upplifa slíkar kenndir því þetta besta í heimi er sannarlega ókeypis sem slíkt. n „Og eitt það fallegasta við þetta allt saman er að flestir geta upplifað það að eignast barn. Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport N ý þáttaröð af skemmtiþættin- um Orðbragð hefur göngu sína á RÚV á sunnudaginn, en alls verða þættirnir sex talsins. Orðbragð er í umsjón Brynju Þorgeirsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar og slógu þættirnir ræki- lega í gegn á síðasta ári. Í þáttun- um er fjallað um íslenskt málfar á skemmtilegan hátt og nýjar hliðar uppgötvaðar á tungumálinu, sem er er teygt og togað, faðmað, knúsað og blásið í lífi, eins og segir í lýsingu á þáttunum. Í þáttaröðinni verður fjallað um bullmál, leynimál, kynjað mál, unglingamál, hvernig íslenska var töluð við landnám, innihalds- laus orð og orð á merkingarflótta, svo dæmi séu tekin. Fyrirmynd þáttanna eru skandinavískir þættir af svipuð- um toga, til að mynda norski þáttur- inn Typisk norsk, þar sem fjallað er um norska tungu. Til að hita upp fyrir þáttinn hef- ur verið samið nýtt lag sem heit- ir S.T.A.F.R.Ó.F., en myndbandið við lagið var frumsýnt í Kastljósi hinn 18. september síðastliðinn. Lagið mun vera það fyrsta sem samið er sérstak- lega fyrir íslenska stafrófið og flutt af þeim Ágústu Evu Erlendsdóttur og Óttari Proppé. Höfundur lags og texta er að sjálfsögðu Bragi Valdi- mar. Fyrsti þátturinn verður sýndur a sunnudaginn, líkt og áður sagði, og hefst klukkan 20.15. n Tungumálið verður togað og teygt, knúsað og faðmað Orðbragð hefur göngu sína á ný Sunnudagur 2. nóvember Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 07.00 Morgunstundin okkar 07.01 Smælki (5:26) 07.04 Kalli og Lóla (23:26) 07.15 Tillý og vinir (33:52) 07.26 Kioka (50:52) 07.33 Pósturinn Páll (9:13) 07.48 Ólivía (35:52) 07.59 Vinabær Danna tígurs 08.10 Kúlugúbbarnir (9:26) 08.34 Tré-Fú Tom (26:26) 08.56 Um hvað snýst þetta allt? (39:52) 09.00 Disneystundin (43:52) 09.01 Finnbogi og Felix (13:13) 09.24 Sígildar teiknimyndir 09.30 Nýi skólinn keisarans 09.53 Millý spyr (64:78) 10.00 Chaplin (12:50) 10.06 Undraveröld Gúnda 10.20 Fisk í dag e (3:8) 10.30 Óskalög þjóðarinnar e (3:8) (1964 - 1973) 11.25 Hraðfréttir e 11.45 Nautnir norðursins 888 e (8:8) (Noregur - seinni hluti) 12.15 Djöflaeyjan 888 e (5:27) 12.45 Trúin flytur fjöll e (Leap of Faith) 14.30 Svipmyndir frá Noregi (Norge rundt) 14.35 Hringfararnir - Aron, Gaui og Bjöggi e 15.10 Challenger: Lokaflug e (Challenger - Final Flight) 16.40 Táknmálsfréttir (63) 16.50 Forkeppni EM í handbolta karla (Ísland - Svartfjalla- land) Bein útsending frá leik Íslands og Svartfjallalands í handbolta karla sem fram fer í Laugardalshöll. Leik- urinn er annar leikur íslenska karlalandsliðsins í forkeppni EM í handbolta sem fram fer í Póllandi 2016. 18.30 Stundin okkar (5:28) 19.00 Fréttir 19.20 Íþróttir 19.35 Veðurfréttir 19.40 Landinn 888 (8) 20.10 Óskalögin 1964 - 1973 (1:5) 20.15 Orðbragð (1:6) Skemmti- þáttur um tungumálið á reiprennandi íslensku. Við höldum áfram að uppgötva nýjar hliðar á íslenskunni, þessu sérviskulega og kröftuga máli. Umsjón: Brynja Þorgeirsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason. 20.50 Downton Abbey 8,8 (3:8) Breskur myndaflokkur sem gerist upp úr fyrri heimsstyrjöld og segir frá Crawley-fjölskyldunni og þjónustufólki hennar. Meðal leikenda eru Maggie Smith, Hugh Bonneville, Shirley MacLaine, Elizabeth McGovern, Jessica Brown- Findlay, Laura Carmichael og Michelle Dockery. 21.40 Innrás frá tunglinu (Iron Sky) Ævintýra- og gaman- mynd frá 2012. Árið 1945 komu nasistar sér fyrir í fel- um á myrka hluta tunglsins og skipuleggja heimsyfirráð árið 2018. Aðalhlutverk: Jul- ia Dietze, Christopher Kirby og Götz Otto. Leikstjóri: Timo Vuorensola. 23.10 Afturgöngurnar e (5:8) (Les revenants) 00.05 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 10:30 UEFA Champions League 12:10 Þýsku mörkin 12:40 Dominos deildin 2015 14:10 NBA (Sounds of the Finals) 15:00 NBA 2014/2015 16:50 Meistaradeild Evrópu 17:20 League Cup Highlights 17:50 Spænski boltinn 14/15 19:30 Formula 1 2014 22:30 Spænski boltinn 14/15 00:10 Spænski boltinn 14/15 08:20 Premier League 10:00 Premier League 11:40 Premier League (Newcastle - Liverpool) 13:20 Premier League (Man. City - Man. Utd.) 15:50 Premier League (Aston Villa - Tottenham) 18:00 Premier League (Man. City - Man. Utd.) 19:40 Premier League (Aston Villa - Tottenham) 21:20 Premier League (Chelsea - QPR) 23:00 Premier League (Everton - Swansea) 00:40 Premier League 07:20 One Fine Day 09:10 Big 10:55 Airheads 12:25 Bridges of Madison County 14:40 One Fine Day 16:30 Big 18:15 Airheads 19:45 Bridges of Madison County 22:00 42 00:05 Sherlock Holmes: A Game of Shadows 02:10 Anonymous 04:20 42 16:00 The Carrie Diaries 16:45 World Strictest Parents (5:6) 17:45 Friends With Benefits (11:13) 18:10 Guys With Kids (17:17) 18:35 Last Man Standing (13:18) 19:00 Man vs. Wild (4:13) 19:45 Bob's Burgers (16:23) 20:10 American Dad (5:20) 20:35 The Cleveland Show (18:22) 21:00 Allen Gregory (1:7) 21:30 The League (10:13) 21:55 Almost Human (10:13) 22:40 Mind Games (2:13) 23:25 Graceland (9:13) 00:05 The Vampire Diaries (16:23) 00:45 Man vs. Wild (4:13) 01:30 Bob's Burgers (16:23) 01:55 American Dad (5:20) 02:20 The Cleveland Show (18:22) 02:45 Allen Gregory (1:7) 03:10 The League (10:13) 03:35 Almost Human (10:13) 17:20 Strákarnir 17:45 Friends (12:24) 18:10 Arrested Development 3 (1:13) 18:35 Modern Family (22:24) 19:00 Two and a Half Men (18:22) 19:25 Viltu vinna milljón? (6:19) 20:15 Suits (8:12) 21:00 The Mentalist (8:22) 21:40 The Tunnel (3:10) 22:30 Sisters (1:24) 23:15 Hunted 00:15 Viltu vinna milljón? (6:19) 01:05 Suits (8:12) 01:50 The Mentalist (8:22) 02:30 The Tunnel (3:10) 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Strumparnir 07:25 Könnuðurinn Dóra 07:50 Latibær 08:00 Algjör Sveppi 08:05 Doddi litli og Eyrnastór 08:15 Ben 10 08:40 Elías 08:50 Grallararnir 09:10 Lukku láki 09:35 iCarly (22:25) 10:00 Villingarnir 10:25 Kalli kanína og félagar 10:35 Ævintýraferðin 10:45 Ozzy & Drix 11:05 Tommi og Jenni 11:25 Scooby-Doo! 11:45 Töfrahetjurnar (6:10) 12:00 Nágrannar 12:20 Nágrannar 12:40 Nágrannar 13:00 Nágrannar 13:20 Nágrannar 13:45 Stelpurnar (6:10) 14:10 The Big Bang Theory (2:24) 14:35 Heilsugengið (4:8) 15:05 Um land allt (2:12) 15:40 Louis Theroux: Miami Mega Jail Magnaður heimildarþáttur með Louie Theroux þar sem hann heimsækir eitt alræmdasta og hættulegasta fangelsi í Miami í Bandaríkjunum. 16:45 60 mínútur (5:52) 17:30 Eyjan (10:20) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (62:100) 19:10 Ástríður (12:12) Ætlar Davíð í alvöru að láta verða af því að flytja til Danmerkur? Skilur hann ástina eftir eða munu þau á endanum ná saman? 19:35 Sjálfstætt fólk (6:20) 20:10 Neyðarlínan (7:7) 20:40 Rizzoli & Isles (15:16) 21:25 Homeland 8,5 (5:12) Fjórða þáttaröð þessarra mögnuðu spennuþátta þar sem við höldum áfram að fylgjast Með Carrie Mathieson, starfsmanni bandarísku leyniþjónustunnar. Líf henn- ar er alltaf jafn stormasamt og flókið, föðurlandssvikarar halda áfram að ógna öryggi bandarískra þegna og hún og Sal takast á við erfiðasta verkefni þeirra til þessa. 22:15 Shamelsess 8,7 (2:12) Fjórða þáttaröðin af þessum bráðskemmtulegu þáttum um skrautlega fjölskyldu. Fjölskyldufaðir- inn er forfallinn alkóhólisti, mamman löngu flúin að heiman og uppátækjasamir krakkarnir sjá um sig sjálfir. 23:05 60 mínútur (6:52) 23:55 Eyjan (10:20) 00:40 Brestir (2:8) 01:10 Outlander (3:16) 02:05 Legends (7:10) 02:50 Boardwalk Empire (8:8) 03:40 The Devil Wears Prada 05:25 Neyðarlínan (7:7) 05:55 Fréttir 06:00 Pepsi MAX tónlist 10:45 The Talk 11:25 The Talk 12:05 The Talk 12:45 Dr.Phil 13:25 Dr.Phil 14:05 Survivor (4:15) 14:50 Kitchen Nightmares (6:10) 15:35 Growing Up Fisher (7:13) 16:00 The Royal Family (7:10) 16:25 Welcome to Sweden (7:10) 16:50 Parenthood (6:22) 17:35 Remedy (6:10) 18:20 Reckless (9:13) Bandarísk þáttaröð um tvo lög- fræðinga sem laðast að hvort öðru um leið og þau þurfa að takast á sem and- stæðingar í réttarsalnum. 19:05 Minute To Win It Ísland (7:10) 20:05 Gordon Ramsay Ultima- te Cookery Course (18:20) Frábærir þættir þar sem Gordon Ramsey snýr aftur í heimaeldhúsið og kennir áhorfendum einfaldar aðferðir við heiðarlega heimaeldamennsku. 20:30 Red Band Society (4:13) Allir ungu sjúklingarnir í Red Band Society hafa sögu að segja og persónuleg vanda- mál að yfirstíga. Vandaðir og hugljúfir þættir fyrir alla fjölskylduna. 21:15 Law & Order: SVU (12:24) 22:00 Fargo (6:10) 22:50 Hannibal 8,6 (6:13) Önnur þáttaröðin um lífs- nautnasegginn Hannibal Lecter. Rithöfundurinn Thomas Harris gerði hann ódauðlegan í bókum sínum og kvikmyndir sem gerðar hafa verið, hafa almennt fengið frábærar viðtökur. Þótt erfitt sé að feta í fótspor Anthony Hopkins eru áhorfendur og gagnrýnendu á einu máli um að stórleikarinn Mads Mikkelsen farist það einstaklega vel úr hendi. Heimili fjöldamorðingins, mannætunnar og geðlæknirisins Hannibals Lecter er á SkjáEinum. Lík borgarfulltrúa finnst og aðstæður benda til þess að morðæði Rippers sé í fullum gangi. 23:35 Ray Donovan 8,2 (9:12) Vandaðir þættir um harðhausinn Ray Donovan sem reynir að beygja lög og reglur sem stundum vilja brotna. Ray segir Bridget að hún verði að ljúga til um hvar hún var þegar skotárásin átti sér stað. 00:25 The Tonight Show 01:05 Fargo (6:10) 01:55 Hannibal (6:13) 02:40 Pepsi MAX tónlist Leikið með tungumálið Ný þáttaröð af Orðbragði hefur göngu sína á RÚV á sunnudaginn klukkan 20.15. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Helgarpistill

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.