Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 56
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201456 Fólk
n Sumir hafa aldrei jafnað sig n Nokkrir hafa valdið
banaslysi með glæfra- eða ölvunarakstri
Dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi
Árið 2003 fannst Lana Clarkson látin á heimili
Phils Spector en hún hafði verið skotin til
bana. Spector var kærður fyrir morðið og árið
2009 var hann fundinn sekur og dæmdur í 19
ára til lífstíðarfangelsis.
Lentu í alvarlegu bílslysiÞegar Matthew Broderick og þáverandi kærasta hans, Jennifer Grey, voru í sumarfríi á Írlandi árið 1987 lentu þau í alvarlegu bílslysi. Broderick ók bíl sínum röngum megin sem varð til þess að hann keyrði á bíl sem kom á móti. Bílstjóri og farþegi í hinum bílnum létu báðir lífið. Grey hafði nýlega leikið í Dirty Dancing og þótti ein frambærilegasta leikkona Hollywood. Atvikið hafði hins vegar mikil áhrif á hana. „Ég jafnaði mig aldrei eftir slysið. Ég missti allan metnað,“ sagði Grey sem sagði skilið við leiklistina þegar hún var 27 ára.
Var sýknaður
Rapparinn Snoop Dogg og lífvörður
hans voru ákærðir fyrir morð á meðlimi
óvinagengis. Johnny Cochran varði
Snoop í dómsal og eftir nokkurra ára
baráttu var rapparinn sýknaður.
Stjörnur sem
hafa mannslíf
á samviskunni
Stakk
kærustuna
Sid Vicious, bassaleikari Sex
Pistols, stakk kærustu sína,
Nancy Spungen, til bana árið
1978. Fyrst sagðist bassaleikar-
inn hafa fundið Spungen látna en
viðurkenndi síðar að hafa stungið
hana en þvertók fyrir að hafa
ætlað að drepa hana. Hann var
ákærður fyrir morð en lést af of
stórum eiturlyfjaskammti áður
en málið var dómtekið.
Skaut eiginkonuna
Leikarinn Robert Blake var fundinn sekur um að skjóta
eiginkonu sína, Bonnie Lee Bakley, til dauða árið 2002.
Hann var síðar sýknaður.
Keyrði á 9 ára stúlku
Árið 2001 keyrði leikkonan Rebecca Gayheart á níu ára stúlku
sem lést á sjúkrahúsi af völdum áverkanna. Leikkonan
hvarf í fjögur ár úr sviðsljósinu. Í dag er hún gift leikaranum
Eric Dane, sem er best þekktur sem dr. Mark Sloan úr Grey's
Anatomy, og á með honum tvær dætur.
Með tvö
mannslíf á
samviskunni
Boxgoðsögnin Don King hefur tvö
mannslíf á samviskunni. Fyrri mann-
inn drap hann í sjálfsvörn eftir að
sá hafði brotist inn til hans. Í seinna
skiptið stappaði hann ofan á höfði
manns sem skuldaði honum 600
Bandaríkjadali með þeim afleiðingum
að maðurinn lést.
Lenti í
bílslysi
Árið 2006 lenti söng-
konan og America's
Got Talent-dómarinn
Brandy Norwood í
bílslysi með þeim
afleiðingum að einn
maður lést.
Keyrði
inn í
bakarí
Bollywood-ofurstjarnan
Salman Khan bíður nú
dóms eftir að hafa keyrt
inn í bakarí árið 2002.
Einn maður lét lífið og þrír
slösuðust í bakaríinu.
Bekkjar-
félagi lést
Þegar Laura Bush var í háskóla
láðist henni að stoppa við
stöðvunarskyldu sem varð til
þess að hún keyrði á annan bíl.
Í slysinu lést Michael Dutton
Douglas, vinur hennar og
bekkjarfélagi.
Fær enn
martraðir
Leikarinn Michael Massee,
sá sem óvart skaut og myrti
Brandon Lee við tökur á The
Crow, fær enn martraðir um
atvikið.
Harður
árekstur
Árið 2010 ók Melrose Place-leik-
konan Amy Locane bíl sínum á
þreföldum leyfilegum hámarks-
hraða og lenti í árekstri við ann-
an bíl. Í árekstrinum lést sextug
kona, Helene Seeman, auk þess
sem eiginmaður hennar, Fred,
slasaðist alvarlega. Locane var
dæmd í þriggja ára fangelsi.
Myrti eldri konu
Árið 2012 braust leikarinn Johnny Lewis, sem var
frægastur fyrir að leika í Sons of Anarchy, inn á
heimili hinnar 81 árs Catherine Davis, rændi hana
og myrti. Vitni segja leikarann hafa dottið ofan af
þaki eftir innbrotið en fallið varð honum að bana.
Leikarinn hafði átt við eiturlyfjafíkn að stríða en
engin efni fundust í blóð hans þegar hann lést.
Drukkinn
undir stýri
Vince Neil, frontur Motley Crue,
settist drukkinn undir stýri árið
1984 sem varð til þess að farþegi
hans, Nicholas „Razzle“ Dingley,
lést. Tveir aðrir farþegar hlutu
alvarlega höfuðáverka. Áfeng-
ismagn í blóð Neils mældist 0,17
en samt dvaldi hann aðeins í 15
daga á bak við lás og slá.
Keyrði fram
af brú Árið 1969 keyrði
Ted Kennedy bíl sínum niður af
Chappaquiddick-brúnni. Bíllinn end-
aði í vatninu og þótt Ted tækist að
synda í land var farþegi hans ekki svo
heppinn. Mary Jo Kopechne komst
ekki út úr bílnum og drukknaði. Ted
flúði af slysstað og beið í níu klukku-
stundir með að tilkynna slysið.