Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Page 58

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Page 58
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201458 Fólk J arvis Cocker, söngvari Pulp og þáttastjórnandi Wireless Nights á BBC Radio 4, gerði tvo hálftíma langa þætti um sum- arnætur á Íslandi. Þættirnir eru hluti af seríu þar sem söngvarinn kannar allar mögulegar hliðar næt- urinnar. Jarvis, ásamt föruneyti, hafði samband við rithöfundinn Andra Snæ Magnason og bað um aðstoð hans við gerð þáttarins. Andri sem staddur var á Melrakkasléttu bauð teyminu þangað til þess að ræða um, Bláa hnöttinn og gömlu íslensku kvöldvökuna. Ferðalagið að miðju jarðar Fyrsti þátturinn var fluttur í bresku útvarpi í upphafi vikunnar og má nálgast upptökuna á vef BBC. Í þættinum blandar Cocker saman íslenskri sagnahefð við sögu Jules Verne um ferðalagið að miðju jarð- ar. Hann skoðar sig um á Snæfells- nesi og virðir fyrir sér sögufræga staði, hittir fyrir kynjaverur og kemst inn í hulda heima í föruneyti ís- lensku sauðkindarinnar. Þá ræðir hann einnig stuttlega við Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoða um kveð- skaparhefð. Hlutur Andra Snæs í þættinum er þá einnig drjúgur. Andra var falið að halda utan um kvöldvöku fyr- ir útvarpsfólkið. Það gekk þó ekki átakalaust fyrir sig greinir Andri frá á bloggsíðu sinni. „Nánast enginn í mínum ættlegg fyrir norðan kann að syngja og vindur snerist í norðan- átt eftir einmuna blíðu og svo að helstu söngspírur ættarinnar frest- uðu norðanför,“ segir hann. Fráfall ættmóðurinnar útvarpað Andri gafst þó ekki upp og fékk til liðs við sig söngna ábúendur næsta bæjar og til stóð að halda kvöldvöku að kvöldi 31. júlí síðastliðinn. Um morguninn sama dag bár- ust þó vestur sorgartíðindi en amma Andra hafði þá látist fyrir sunnan. „Amma var sólin sjálf, ættmóðirin og miðpunkt- ur alls norður á Sléttu – en hvað skyldi gera við BBC og kvöldvökuna? Við ákváðum að halda henni til streitu og breytt- um kvöldvökunni í minningarstund um ömmu í gamla bænum að Odd- stöðum á Melrakkasléttu,“ segir Andri. Hlutirnir atvikast þá þannig að söngvarinn knái úr Pulp, poppgoð- ið sjálft, útvarpaði broti af minn- ingarstund um ömmu Andra Snæs. Spurður hvað honum hafi þótt um þáttinn segist Andri hæstánægður. „Frábær þáttur og mjög skemmti- legur,“ segir hann og bætir við að honum hafi fundist hann allt í senn „fríkaður, uppá- tækjasamur og einlægur. Mamma er þarna, pabbi og dóttir mín. Sjálfur heyrist ég syngja smá, sem er verra.“ n Cocker gerir útvarpsþátt um Ísland Poppgoðið útvarpaði meðal annars kyrrðarstund til minningar um ömmu Andra Snæs María Lilja Þrastardóttir maria@dv.is „Nánast enginn í mínum ættlegg fyrir norðan kann að syngja Myrkra- höfðinginn Andri Þáttastjórn- endur vildu fá Andra til að ræða um myrkr- ið á Íslandi. Húsið þar sem kvöldvakan var haldin Andri Snær Magnason bauð Jarvis Cocker að koma til sín á Melrakkasléttu. Mynd bbc rAdio 4 H vort sem fólki líkar betur eða verr þá er hrekkjavaka kom- in til að vera. Hrekkjavöku- viðburðum hefur fjölgað síð- ustu árin og mun Páll Óskar halda á ný alvöru hrekkjavökuball í Rúbín næstkomandi laugardag milli 23 og 4. Hann mun klæðast þremur mis- munandi búningum um kvöldið en einnig verður boðið upp á förðun fyrir þá sem kaupa sér hressingu á barnum milli 23 og 2. Silfur frá hvirfli til ilja „Ég ætla að byrja kvöldið frekar ró- lega í mjög „glamúrös“ skarti. Ég mun draga fram allt það skart sem ég á og treð því á mig. Ég mun svo þeyta skífum rólega og þægilega á meðan fólk kemur sér inn í hús. Þegar kjöt- ið er komið í hús byrjar fjörið. Ég mun breyta mér í Pál Óskar en þar eru hæg heimatökin. Ég þarf nefni- lega að breyta mér í hann líka og eyði stundum gríðarlega miklum tíma í að breyta mér í þessa manneskju. Í þeim ham verð ég og dansararnir klæddir í silfur frá hvirfli til ilja. Þegar það er allt búið, er ég venjulega svo sveittur að ég verð að fara úr þeim galla. Þá mun ég breyta mér í hrafn. Ég verð í sérsaumuðum jakka sem er þakinn svörtum fjöðrum, en Coco, klæðskerinn minn, gerði hann. Ég ætla mér alla leið með þetta partí. Þessi sérviðburður er það skemmti- legasta sem ég geri fyrir utan júró- visjónböllin, það er ofsalega sérstök orka í þessu öllu.“ nýársdagur ákveðin útgáfa af Halloween Páll Óskar er sáttur við að Íslendingar eru farnir að taka upp hrekkjavökuna hér á landi og segir að nýársdagur sé ákveðin útgáfa af halloween. „Upp- runalega var hrekkjavaka fyrst og fremst náttúruhátíð. Haldið var upp á að náttúran væri að leggjast í dvala. Laufin falla og náttúran fer að sofa. Talið var að skilin milli hins and- lega heims og veraldlega yrðu óskýr þann 31. október. Þá gat fólk feng- ið sér göngu í andlega heiminum og þeir sem búa þar komið til okkar. Við eigum okkar eigin pælingu á bak við nýársdag þar sem álfar og huldu- fólk flytur búferlum og maður á kost á að hitta þau á krossgötum. Siðirn- ir smitast inn í hver annan. En mér finnst aðallega gaman að dressa mig upp. Það koma dagar þar sem mig langar bara að vera Barbarella og þá er frábært að hafa stökkpall til þess,“ segir Páll Óskar að lokum. n helgadis@dv.is „Stundum vil ég bara vera Barbarella“ Páll Óskar heldur hrekkjavökuball Páll Óskar Söngvar- inn leggur mikið upp úr búningunum sínum og mun hann vera í þremur mismunandi búningum á ballinu. Mikil ánægja með sambandið Tónlistarmaðurinn Snorri Helga- son og leikkonan Saga Garðars- dóttir opinberuðu samband sitt í vikunni á Facebook. Féll sú tilkynning í mjög góðan jarð- veg meðal Facebook-vina þeirra og yfir 330 manns hafa „lækað“ hana. Þá skapaðist mjög áhuga- verður og heimspekilegur um- ræðuþráður við tilkynninguna, allt að því ljóðrænn á köflum. Með þeim fyrstu sem skildu eftir athugasemd við færsluna var systir Snorra, Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar. Sagðist hún hafa verið stödd á kjúklingastaðnum í Suðurveri þegar fjallað var um stórtíðindin á útvarpsstöðinni FM 957. Þá skildu Jakob Frímann Magnússon, Logi Bergmann og Bubbi Morthens einnig eftir athugasemdir. Var hinn síðastnefndi ansi ljóðrænn: „Saga er nær stjörnum himins en Snorri og Snorri er nær Sögu en stjörnur himins.“ Svekktur yfir að vera ekki í skýrslunni Rapparinn Erpur Eyvindarson, sem kallar sig Blaz Roca, var frekar svekktur yfir því að vera ekki nafngreindur í búsáhalda- skýrslunni, sem kom út í síð- ustu viku, ef marka má orð hans á Facebook. „Ekkert um mig þarna :( enda var ég að mótmæla í Kópavogi,“ skrifaði rapparinn á síðuna sína og var þá vænt- anlega búinn að lesa skýrsluna spjaldanna á milli. Þegar lögreglan afhenti fjöl- miðlum skýrsluna í síðustu viku var ekki gengið úr skugga um að viðvæmar persónuupplýsingar hefði verið fjarlægðar til fulls. Lit- að hafði verið yfir nöfn og kenni- tölur 75 einstaklinga með svörtum lit, en þar sem liturinn var mun ljósari en letur skýrslunnar sást allt í gegn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.