Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Blaðsíða 6
Vikublað 25.–27. nóvember 20146 Fréttir
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Skertum að-
gangi að skólum
mótmælt
Kennarar í Verkmenntaskólanum
á Akureyri mótmæla harðlega
þeim áformum ríkisstjórnarinn-
ar og menntamálaráðherra að
skerða aðgang nemenda eldri en
25 ára að bóknámi í framhalds-
skólum. Þetta kemur fram í álykt-
un sem kennararnir sendu frá sér
og Vikudagur á Akureyri vitnar í í
frétt á vef sínum.
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs
er gert ráð fyrir að fækka ársnem-
endum í framhaldsskólum um
tæplega þúsund, meðal annars
með því að meina eldri nemend-
um um aðgang að skólunum.
„Menntun er mikilvæg leið
að bættum hag og betri líðan
einstaklinga á öllum aldri og fjár-
festing í menntun, hvort sem
nemandinn er tvítugur eða þrí-
tugur, skilar sér margfalt til baka
til samfélagsins. Kennarar skora
því á menntamálaráðherra að
draga þessar tillögur sínar þegar
í stað til baka og hvetja Alþingi
til að sjá til þess að frelsi allra Ís-
lendinga til náms verði tryggt,“
segir ályktuninni.
Maðurinn
í lífshættu
Karlmaðurinn, sem stunginn var
með hnífi á Hverfisgötu á sunnu-
dagskvöld, liggur þungt haldinn
á gjörgæsludeild Landspítalans.
Hann er í lífshættu, þegar þetta
er skrifað. Lögreglan handtók
fjóra menn grunaða um verkn-
aðinn. Fram hefur komið að
þolandinn og árásarmennirnir
þekkist en lögregla hefur varist
frétta af málinu.
„Ég er enn
Á
stæðan fyrir því að ég er enn
í Reykjavík er sú að ég vil ekki
fara heim. Ég er enn í upp-
námi,“ segir erlendur maður
á fertugsaldri sem hefur kært
starfsmenn lögreglunnar á Vestfjörð-
um til ríkissaksóknara fyrir húsbrot
og líkamsárás. Þá hefur vinur hans
einnig kært lögreglumann fyrir hót-
un en sá segir lögreglumann hafa
dregið skammbyssu úr slíðri og beint
henni að honum þannig að hann ótt-
aðist um líf sitt. Lögreglan á Vestfjörð-
um sendi frá sér tilkynningu á mánu-
dag þar sem hún neitaði því að byssur
hefðu verið teknar úr slíðrum og sagði
aðgerðina réttmæta.
Umræddir atburðir áttu sér stað
á Ísafirði aðfaranótt mánudagsins
17. nóvember síðastliðinn. Aðdrag-
andinn var með þeim hætti að mað-
urinn hafði greint umræddum vini
sínum frá því að hann væri í sjálfs-
vígshugleiðingum, en hann hefur
glímt við þunglyndi og kvíða og tek-
ið við því lyf. „Vinur minn hafði sam-
band við lögregluna og bað hana um
aðstoða mig. Ég var á slæmum stað
andlega á þessum tíma og í tilfinn-
ingalegu uppnámi. Þegar lögreglan
mætti á vettvang vildi ég ekki hleypa
henni inn á heimili mitt því hún hafði
ráðist á mig áður,“ segir hann.
Til Reykjavíkur í aðgerð
Hann sakar lögreglumennina um að
hafa farið inn á heimili hans án heim-
ildar þegar hann reyndi að loka dyr-
unum. Lögreglumennirnir úðuðu þá
piparúða í tvígang á andlit hans og
slógu hann með kylfum í höndina með
þeim afleiðingum að hann slasaðist illa.
Hann þurfti að undirgangast skurðað-
gerð í Reykjavík vegna áverkanna þar
sem sett var málmplata, sex skrúfur og
tveir pinnar í handlegg og fingur hans.
Vinur hans hefur kært lögregluna
fyrir hótun en hann sakar annan lög-
reglumannanna um að hafa dregið
skammbyssu úr slíðri og beint henni
að honum þannig að hann óttað-
ist um líf sitt. „Hann spurði lögreglu-
manninn hvort hann ætlaði að skjóta
hann,“ segir maðurinn sem segir
lögregluna hafa í kjölfarið slíðrað
byssuna og beðið vin hans um að leita
skjóls en vinur hans náði að sannfæra
manninn um að koma út.
„Ég opnaði því dyrnar og sagði
lögreglunni að ég ætlaði að koma út.
Þeir handjárnuðu mig og fóru með
mig á stöðina þar sem ég dvaldi í sex
tíma með brotinn handlegg og fing-
ur,“ segir hann. Lögreglan á Vestfjörð-
um sagði í tilkynningu um málið að
læknir hefði verið kallaður til strax.
Maðurinn segir svo vera en sá læknir
hefði ekki gert að áverkum hans held-
ur einungis tekið blóðprufu. Seinna
meir kom læknir á lögreglustöðina á
Ísafirði og skoðaði áverka hans og mat
það svo að hann væri brotinn á hand-
legg og fingrum. Maðurinn segist
hafa síðan verið settur aftur í klefann
áður en hann var fluttur á sjúkrahús.
Uppi á sjúkrahúsi segist hann hafa
tjáð starfsfólkinu að hann vildi ekki
fara aftur niður á stöð. „Ég var virki-
lega hræddur við að fara aftur niður á
stöð,“ segir maðurinn en þangað var
hann hins vegar fluttur aftur og tek-
inn í skýrslutöku.
Veitti sjálfum sér áverka
Í tilkynningunni sem lögreglan á
Vestfjörðum sendi frá sér á mánu-
dag kemur fram að lögreglumennirn-
ir hefðu reynt að hjálpa honum en
hann hefði verið vopnaður hnífi og
bæði hótað og reynt að ítrekað að
veita lögreglumönnunum áverka
með hnífnum. Hann segir það vissu-
lega vera rétt að hann hafi verið með
hníf í höndinni en hefði notað hann
til veita sér sjálfum áverka. Þegar lög-
reglan kom á vettvang óttaðist hann
að hún myndi beita hann ofbeldi og
því hefði hann reynt að varna lög-
reglumönnunum inngöngu.
„Í skýrslutökunni var ég sakaður
um að hafa ráðist á lögregluna en ég
sagði: „Þið komuð inn á mitt heim-
ili af því vinur minn hafði sagt ykkur
að ég þyrfti á hjálp að halda og sjá-
ið ástandið á mér,“ segir hann og vís-
ar þar til áverkanna sem lögreglu-
mennirnir höfðu veitt honum.
Hann segist hafa spurt lögregluna
hvers vegna hún hafi ráðist á hann: „Ég
spurði hvort það væri út af því að ég
væri samkynhneigður. Þeir sögðust ekki
geta svarað því. Þá spurði ég hvort það
væri af því ég væri útlendingur en þeir
sögðust ekki geta svarað því heldur.“
Tognaði á handlegg í sumar
Auk þess að hafa verið í tilfinninga-
legu uppnámi sökum sjálfsvígshug-
leiðinga segist hann hafa verið að
reyna að varna lögreglunni inngöngu
því hann óttaðist að hún réðist á hann
en hann segist áður hafa orðið fyrir
harkalegum aðgerðum lögreglu.
Hann segir lögregluna hafa bank-
að upp á hjá honum fyrr í sumar og
beðið um að fá að tala við vin hans.
Hann segist hafa hleypt lögreglu-
mönnum inn en þegar þangað var
komið fóru þeir fram á að fá að gera
húsleit. „Ég neitaði því og bað um
ástæðu. Ég spurði hvort þeir hefðu
til þess leitarheimild en þeir sögðust
ekki þurfa á henni að halda. Ég fór þá
fram á að hringja í lögmanninn minn
en þeir leyfðu mér það ekki og sögð-
ust geta leitað á heimili mínu núna
eða handtekið mig og gert í kjölfarið
húsleit. Um það leyti missti einn lög-
reglumannanna þolinmæðina, skellti
mér í gólfið og handjárnaði mig. Ég
varð að fara á sjúkrahús það kvöld því
ég tognaði á handleggnum og ég gat
ekki rétt úr honum í nokkra mánuði,“
segir hann.
„Verð að fara aftur heim“
Staðan á málinu er sú að hann hef-
ur kært lögreglumennina til ríkissak-
sóknara fyrir húsbrot og líkamsárás
og vinur hans hefur kært lögreglu-
mann fyrir hótun. Lögreglan á Vest-
fjörðum segir málið frá sinni hlið vera
statt þannig að rannsókn þess sé á
lokastigi og verði síðan sent til ríkis-
saksóknara til meðferðar. Lögreglu-
stjórinn á Vestfjörðum telur aðgerð-
irnar hafa verið réttmætar miðað við
aðstæður en harmar meiðsli manns-
ins og vonar að hann nái sér að fullu.
Lögreglan segir hegðun mannsins
hafa verið óboðlega, stórháskalega
og hættulega lífi og heilsu lögreglu-
manna á vettvangi og eins hans eig-
in lífi.
Líkt og kom fram í upphafi greinar
þá segist maðurinn ekki vilja fara aft-
ur til Ísafjarðar eftir þennan atburð.
„Ég verð þó að fara aftur heim. Ég á
hús þar og er með vinnu en get þó
ekki unnið næstu þrjá mánuðina sök-
um áverka.“ n
n Kærir lögreglu fyrir húsbrot og líkamsárás n Lögreglan neitar sök
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
„Ég var á
slæmum
stað andlega
á þessum tíma
og í tilfinninga-
legu uppnámi
í uppnÁMi“
Málmplötur og skrúfur
Maðurinn þurfti að fara til
Reykjavíkur í aðgerð vegna
áverkanna sem hann hlaut í
átökum við lögreglumenn á
Ísafirði. Læknar neyddust til
að koma fyrir málmplötu, sex
skrúfum og tveimur pinnum
í handlegg hans vegna bein-
brotsins. Mynd SigTRygguR ARi