Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Blaðsíða 36
Vikublað 25.–27. nóvember 201436 Fólk Fræga fólkið sem gifti sig ungt Það er ósjaldan sem fréttir berast af brúkaupum fræga fólksins. En yfirleitt er það eins og annað fólk og hleypur því stundum til í unglingsástaræði og giftir sig með misgóðum afleiðingum. Macaulay Culkin og Rachel Miner Macaulay Culkin og Rachel Miner giftu sig þegar þau voru 18 ára. Hjóna- bandið entist ekki lengi og voru þau skilin að borði og sæng tveimur árum síðar. Tveimur árum eftir það gekk löglegur skilnaður í garð. Culkin byrjaði því næst með Milu Kunis og entist það samband í átta ár. Demi og Freddy Moore Demi Moore fékk eftir- nafnið sem hún er þekkt fyrir með fyrsta hjónabandi sínu. Hún giftist Freddy Moore aðeins 18 ára en hann var þrítugur. Eftir fjögur ár skildu þau. Hún giftist svo og skildi við Bruce Willis og Ashton Kutcher. LeAnn Rimes og Dean Sheremet LeAnn Rimes var aðeins 19 ára þegar hún giftist einum dansaranum sínum, Dean Sheremet, eftir eins árs samband. Hjónabandið entist þó í átta ár. Árið 2009 fór á kreik orðrómur um að hún héldi við hinn kvænta Eddie Cibrian og hún og Sheremet skildu. Árið 2011 giftist LeAnn Eddie. Drew Barrymore og Jeremy Thomas Þegar Drew Barrymore var sextán ára var hún með hugann við brúðkaup þar sem hún var trúlofuð, en hún ákvað á endanum að hætta við allt saman. Hins vegar lét hún verða af því, 19 ára, að giftast Jeremy Thomas eftir sex vikna samband. Það hjónaband entist ekki lengi því einum mánuði síðar skildu þau. Milla Jovovich og Shawn Andrews Milla Jovovich var aðeins sextán ára þegar hún hljópst á brott með kærasta sínum og meðleikara úr Dazed and Confused, Shawn Andrews og giftist honum í Vegas. Móður Millu hins vegar leist ekki á blikun og fékk giftinguna ógilta tveimur mánuðum síðar.Kim Kardashian og Damon Thomas Fyrsta brúðkaup Kim Kardashian var ekki eins yfirgengilegt og hin tvö sem fylgdu í kjölfar- ið. Árið 2000, þá aðeins 19 ára, giftist hún Damon Thomas í Vegas. Það hjónaband entist lengst af öllum hennar hjónaböndum, eða í fjögur ár. Bo og John Derek Leikkonan Bo Derek byrjaði með John Derek þegar hún var 16 ára og hann 28 ára. Þau neyddust til að flytja til Þýskalands til að koma í veg fyrir að John yrði kærður fyrir nauðgun, því hún var undir lögaldri. Tveimur árum síðar, eða árið 1976, voru þau gift og voru það allt þar til John lést árið 1998. Melanie Griffith og Don Johnson Þegar Melanie Griffith var 18 ára, árið 1976, giftist hún Don Johnson. Þau skildu stuttu seinna en tóku saman einhverjum árum seinna og giftust á ný árið 1989. Hins vegar entist hjónabandið ekki í seinna skiptið heldur og þau skildu á ný árið 1996. Olivia Wilde og Tao Ruspoli Olivia Wilde giftist Tao Ruspoli í skólabíl árið 2003 þegar hún var 19 ára. Hann er tónlistarmaður og sonur ítalsks prins. Hún sagði síðar að þau hefðu valið þennan stað því hann var sá eini þar sem þau voru alein. Aðeins prestur og tvö vitni voru viðstödd. Þau skildu árið 2011. Elizabeth Taylor og Nicholas Conrad Hilton Jr. Elizabeth Taylor giftist átta sinnum yfir ævina og þar af giftist hún Richard Burton tvisvar. En hennar fyrsta brúðkaup átti sér stað þegar hún var 18 ára og giftist Nicholas Conrad Hilton Jr. og entist sambandið í eitt ár. Solange Knowles og Daniel Smith Sautjánda ár Solange Knowles, systur Beyoncé, var nokkuð annasamt. Hún eignaðist sitt fyrsta barn og giftist mennta- skólaástinni sinni, Daniel Smith. Því miður entist sam- bandið ekki og þau voru skilin þegar Solange varð 19 ára. Marilyn Monroe og James Dougherty Þegar Marilyn Monroe var 16 ára og hét enn Norma Jean, giftist hún James Dougherty. Sögur segja að umsjónamaður hennar hafi komið þessu í kring svo hún færi ekki á mun- aðarleysingjahæli. Þau skildu fjórum árum síðar, árið 1946, eftir fjögurra ára samvistir. Loretta og Oliver Vanetta Lynn Kántrísöngkonan Loretta Lynn giftist Oliver Vanetta Lynn þegar hún var 15 ára og þau aðeins búin að vera saman í einn mánuð. Þau eignuðust sex börn saman og voru gift í næstum fimmtíu ár, eða þar til Oliver lést. Lynn hefur sagt að samband þeirra hafi tíðum verið mjög erfitt, Oliver hélt fram hjá henni einu sinni í mánuði og fór einu sinni frá henni á meðan hún var að eignast eitt barnið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.