Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Qupperneq 36
Vikublað 25.–27. nóvember 201436 Fólk
Fræga fólkið sem
gifti sig ungt
Það er ósjaldan sem fréttir berast af brúkaupum fræga fólksins. En yfirleitt er það
eins og annað fólk og hleypur því stundum til í unglingsástaræði og giftir sig með
misgóðum afleiðingum.
Macaulay Culkin og
Rachel Miner Macaulay Culkin og
Rachel Miner giftu sig þegar þau voru 18 ára. Hjóna-
bandið entist ekki lengi og voru þau skilin að borði og
sæng tveimur árum síðar. Tveimur árum eftir það gekk
löglegur skilnaður í garð. Culkin byrjaði því næst með
Milu Kunis og entist það samband í átta ár.
Demi og Freddy
Moore Demi Moore fékk eftir-
nafnið sem hún er þekkt fyrir með fyrsta
hjónabandi sínu. Hún giftist Freddy Moore
aðeins 18 ára en hann var þrítugur. Eftir
fjögur ár skildu þau. Hún giftist svo og skildi
við Bruce Willis og Ashton Kutcher.
LeAnn
Rimes
og Dean
Sheremet
LeAnn Rimes var aðeins
19 ára þegar hún giftist
einum dansaranum
sínum, Dean Sheremet,
eftir eins árs samband.
Hjónabandið entist þó
í átta ár. Árið 2009 fór
á kreik orðrómur um að
hún héldi við hinn kvænta
Eddie Cibrian og hún og
Sheremet skildu. Árið 2011
giftist LeAnn Eddie.
Drew Barrymore
og Jeremy Thomas
Þegar Drew Barrymore var sextán ára var hún
með hugann við brúðkaup þar sem hún var
trúlofuð, en hún ákvað á endanum að hætta
við allt saman. Hins vegar lét hún verða af
því, 19 ára, að giftast Jeremy Thomas eftir
sex vikna samband. Það hjónaband entist
ekki lengi því einum mánuði síðar skildu þau.
Milla
Jovovich
og Shawn
Andrews
Milla Jovovich var
aðeins sextán ára
þegar hún hljópst á
brott með kærasta
sínum og meðleikara úr
Dazed and Confused,
Shawn Andrews og
giftist honum í Vegas.
Móður Millu hins vegar
leist ekki á blikun og
fékk giftinguna ógilta
tveimur mánuðum
síðar.Kim Kardashian og Damon Thomas
Fyrsta brúðkaup Kim Kardashian var ekki eins yfirgengilegt og hin tvö sem fylgdu í kjölfar-
ið. Árið 2000, þá aðeins 19 ára, giftist hún Damon Thomas í Vegas. Það hjónaband entist
lengst af öllum hennar hjónaböndum, eða í fjögur ár.
Bo og John Derek
Leikkonan Bo Derek byrjaði með John Derek
þegar hún var 16 ára og hann 28 ára. Þau
neyddust til að flytja til Þýskalands til að
koma í veg fyrir að John yrði kærður fyrir
nauðgun, því hún var undir lögaldri. Tveimur
árum síðar, eða árið 1976, voru þau gift og
voru það allt þar til John lést árið 1998.
Melanie Griffith
og Don Johnson
Þegar Melanie Griffith var 18 ára, árið 1976,
giftist hún Don Johnson. Þau skildu stuttu
seinna en tóku saman einhverjum árum
seinna og giftust á ný árið 1989. Hins vegar
entist hjónabandið ekki í seinna skiptið
heldur og þau skildu á ný árið 1996.
Olivia
Wilde
og Tao
Ruspoli
Olivia Wilde giftist Tao
Ruspoli í skólabíl árið 2003
þegar hún var 19 ára. Hann
er tónlistarmaður og sonur
ítalsks prins. Hún sagði
síðar að þau hefðu valið
þennan stað því hann var
sá eini þar sem þau voru
alein. Aðeins prestur og
tvö vitni voru viðstödd.
Þau skildu árið 2011.
Elizabeth Taylor
og Nicholas
Conrad Hilton Jr.
Elizabeth Taylor giftist átta sinnum yfir
ævina og þar af giftist hún Richard Burton
tvisvar. En hennar fyrsta brúðkaup átti sér
stað þegar hún var 18 ára og giftist Nicholas
Conrad Hilton Jr. og entist sambandið í eitt ár.
Solange
Knowles
og Daniel
Smith
Sautjánda ár Solange
Knowles, systur
Beyoncé, var
nokkuð annasamt.
Hún eignaðist sitt
fyrsta barn og
giftist mennta-
skólaástinni sinni,
Daniel Smith. Því
miður entist sam-
bandið ekki og þau
voru skilin þegar
Solange varð
19 ára.
Marilyn Monroe og
James Dougherty
Þegar Marilyn Monroe var 16 ára og hét enn
Norma Jean, giftist hún James Dougherty.
Sögur segja að umsjónamaður hennar hafi
komið þessu í kring svo hún færi ekki á mun-
aðarleysingjahæli. Þau skildu fjórum árum
síðar, árið 1946, eftir fjögurra ára samvistir.
Loretta og Oliver
Vanetta Lynn Kántrísöngkonan
Loretta Lynn giftist Oliver Vanetta Lynn þegar hún var
15 ára og þau aðeins búin að vera saman í einn mánuð.
Þau eignuðust sex börn saman og voru gift í næstum
fimmtíu ár, eða þar til Oliver lést. Lynn hefur sagt að
samband þeirra hafi tíðum verið mjög erfitt, Oliver
hélt fram hjá henni einu sinni í mánuði og fór einu sinni
frá henni á meðan hún var að eignast eitt barnið.