Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Blaðsíða 21
Vikublað 25.–27. nóvember 2014 Umræða 21
Forsætisráðherra, drullusokkar og væluskjóður
F
orsætisráðherra hefur kveink-
að sér undan umræðunni að
undanförnu með hefðbundn-
um hætti. Nú segir hann að
það þurfi að eyða „hatrinu“ sem
einkennir umræðu eftirhrunsár-
anna og að þjóðin ætti að temja
sér að ræða samfélagsmálin af yfir-
vegun og með rökum. Í samtali við
Morgunblaðið sagði hann: „Ég held
að það sé ástæða fyrir alla til þess að
hafa áhyggjur af því hvernig þjóð-
félagsumræðan hefur þróast. Hún
er auðvitað afleiðing af ákveðnum
tíðaranda sem hefur verið ríkjandi
undanfarin ár.“ Þá sagði forsætis-
ráðherra á fundi Framsóknar-
flokksins um helgina að umræðan
hefði „líklega sjaldan eða aldrei náð
því marki sem við sjáum nú.“ Nei-
kvæðni og heift hefðu fengið meiri
athygli en eðlilegt gæti talist og því
væri tíðarandinn slíkur að þessi
„brenglaða sýn“ næði athyglinni og
gæfi tóninn fyrir umræðuna.
Brengluð sýn og hatur. Það er
eins og að forsætisráðherra hafi
brugðið upp spegli og séð sjálfan
sig og eigin málflutning í gegnum
tíðina. Því það er ekki eins og for-
sætisráðherra hafi úr háum söðli
að detta, hann er ekki Aristóteles
endurfæddur eða móðir Teresa
þjóðmálaumræðunnar.
Agnar Kristján Þorsteinsson
birti fróðlegan pistil árið 2012 um
umræðuhefð Sigmundar Davíðs
sem var þá í stjórnarandstöðu. Þá
var hann svo yfirvegaður að hann
líkti málflutningi ríkisstjórnar-
innar við málflutning kommún-
ista millistríðsáranna, hann var
svo rökfastur að hann sagði Ís-
land minna orðið á Austur-Þýska-
land, hann var svo jákvæður að
hann setti valdatöku kommún-
ista í Ungverjalandi í samhengi
við stjórnlagaráð og hann var svo
ákveðinn í að auka trú á framtíð
landsins að hann setti samansem-
merki milli stjórnarskrársákvæð-
is um þjóðareign á auðlindum og
stefnu Sovétríkjanna. Og hatur og
brengluð sýn var auðvitað víðs-
fjarri þegar hann sakaði fjölmiðla
um McCarthy-isma. Þessi sami
Sigmundur virðist nú kunna þá
ræðu eina að þjóðfélagsumræðan
sé ósanngjörn og skorti yfirvegun
og rök! Það er þetta með bjálkann
og flísina.
Og af þessu tilefni rifjast upp
fyrir mér ummæli föður forsætis-
ráðherra sem uppnefnir fólk
drullusokka og væluskjóður. Það
er þetta með eplið og eikina. n
Misheppnuð ráðning
L
ekamálið er dæmi um mis-
heppnaða ráðningu starfs-
manns í starf hjá hinu op-
inbera, þar sem hann á fyrst
og fremst að aðstoða ráðherra við
að vinna störf sem snúa að al-
mannahagsmunum. Störf þing-
manna og ráðherra eiga að snúast
um almannahagsmuni. En það er
svo margt sem er gjörsamlega al-
veg á hvolfi í íslensku samfélagi
og kannski ekki skrýtið að fólk sé
reitt og pirrað, að það nánast fyrir-
líti stjórnmálamenn, sem ásamt
bankamönnum njóta minnst
trausts í samfélaginu samkvæmt
könnunum.
Fara þeir einstaklingar sem
ráðnir eru sem aðstoðarmenn ráð-
herra t.d. í svokölluð ráðningar-
viðtöl? Mér er ekki kunnugt um
það. Eins og þetta blasir við mér,
þá eru þeir einfaldlega handvald-
ir af viðkomandi ráðherra, burtséð
frá hæfni þeirra, menntun og eða
almennum hæfileikum til starfa
sinna.
Svo virðist vera að „mótívið“
í glæpnum hafi verið að sverta
mannorð hælisleitandans Tonys
Omos, koma af stað og ýta undir
illt umtal um hann og þess hátt-
ar, með því að leka hinu umrædda
skjali til fjölmiðla. Þetta hljóm-
ar því miður eins og tilraun til
mannorðsmorðs. Viðbótarupp-
lýsingarnar sem Gísli Freyr set-
ur í skjalið undirstrika þetta enn
frekar.
Aðstoðarmenn ráðherra eru
ekki ráðnir til að standa í svona
skítverkum. Hér má svo lesa ágæt-
an pappír um aðstoðarmenn ráð-
herra og hlutverk þeirra. Lekamál-
ið hlýtur að ýta undir umræðu um
„gæði“ aðstoðarmanna ráðherra.
Að lokum vil ég svo vitna í pistil
sem Gísli Freyr skrifaði síðasta
sumar, þegar hann gegndi starfi
blaðamanns á Viðskiptablaðinu
og rétt áður en hann var ráðinn
sem aðstoðarmaður Hönnu Birnu,
en þar segir í upphafi:
„Ríkið á ekki að haga sér eins og
ástrík móðir og forða þegnunum
frá því að fara sér að voða. Sú ríkis-
stjórn sem nú er tekin við völdum
hefur fjölmörg tækifæri til auka
hagsæld hér á landi og ekki síður
til að breyta og bæta andrúmsloft-
ið í þjóðfélaginu.
Það eitt ætti í raun að vera auð-
velt nú þegar Jóhanna Sigurðar-
dóttir hefur hætt afskiptum af
stjórnmálum.
En það eru fleiri tækifæri sem
eru til staðar. Það eru tækifærin
til að minnka reglur og fækka lög-
um í þeim tilgangi að auka frelsi
einstaklinganna.“
Svo mörg voru þau orð. n
„Það er eins og
að forsætisráð-
herra hafi brugðið upp
spegli og séð sjálfan sig
og eigin málflutning í
gegnum tíðina.
„Aðstoðarmenn
ráðherra eru ekki
ráðnir til að standa í
svona skítverkum.
Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
Af blogginu
Guðmundur Hörður
Af blogginu
1 „Að lenda á sakaskrá fyrir slíkt er eiginlega
bara fráleitt“ „Þetta er augljóslega
eitthvað sem hann er að nota sjálfur.
Hann er ekki að selja,“ segir afbrota-
fræðingurinn Helgi Gunnlaugsson í
samtali við DV um átján ára pilt sem var
tekinn með 0,2 grömm af marijúana á
Menningarnótt í sumar. Fjallað var um
mál drengsins í helgarblaði DV en hann
þurfti að greiða háa sekt til ríkissjóðs
og er brotið komið á sakaskrá piltsins.
Sagði Helgi að það að lenda á sakaskrá
fyrir slíkt brot sé „fráleitt“.
30.222 hafa lesið
2 „Ég er ekki hluti af heildinni í lögreglunni“
Eyrún Eyþórsdóttir, lögreglufulltrúi í
kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, vakti mikla athygli á
dögunum þegar hún ritaði grein í Frétta-
blaðið sem bar heitið Fleiri löggur – færri
byssur. Aðspurð, í viðtali í helgarblaði
DV, hvort hún hefði upplifað einelti eða
kynferðislega áreitni á vinnustað, sagði
hún: „Ég hef upplifað það mjög sterkt að
ég er ekki hluti af heildinni í lögreglunni.“
20.696 hafa lesið
3 Ekki má miða við 0% verðbólgu samkvæmt
EFTA: „Sigur fyrir íslenska
neytendur „Þetta er stór og mikill
sigur fyrir íslenska neytendur,“ segir
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, í samtali við DV.is
vegna ráðgefandi álits EFTA-dómstóls-
ins vegna máls sem Sævar Jón Gunnars-
son höfðaði gegn Landsbankanum.
Er það mat EFTA-dómstólsins að það
samrýmist ekki tilskipun Evrópusam-
bandsins að miða samningsskilmála á
verðtryggðum lánum við núll prósent
verðbólgu.
7.386 hafa lesið
4 Reynir Jónsson hættur Reynir Jónsson er hættur sem
framkvæmdastjóri Strætó. Þetta kemur
fram í tölvupósti sem sendur var á
starfsmenn Strætó á mánudag. Ástæð-
an mun vera samskiptaörðugleikar við
stjórn Strætó bs.
6.625 hafa lesið
5 Þetta er ástæðan fyrir því að þú ættir aldrei að
borða foie gras Íslenska ham-
borgarafabrikkan hefur í ljósi ábendinga
frá viðskiptavinum og dræmrar sölu
ákveðið að taka foie gras, eða franska
andalifur, af matseðli sínum. Þetta
segir Jóhannes Ásbjörnsson, eigandi
Fabrikkunnar, á Facebook-síðu veitinga-
staðarins. Þessi ákvörðun var tekin
eftir að viðskiptavinur birti myndband
á Facebook-síðu Fabrikkunar sem sýndi
skelfilega meðferð á gæsum og öndum.
5.260 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is
Myndin Tónlistarkennarar mótmæla „Ætlið þið að kviksetja tónlistarkennsluna á ykkar vakt, ráðamenn Reykjavíkur?“ var yfirskrift mótmælagöngu tónlistarkennara síðdegis á mánudaginn. Tónlistarkennarar hafa verið í verkfalli síðan 22. október síðastliðinn. Mynd siGTryGGur ari
Ég er kona
með skoðanir
Eyrún Eyþórsdóttir lögreglukona lætur í sér heyra. – DV
Þetta kann
að hafa áhrif
Bjarni Ben um niðurstöðu EFTA-dómstólsins. – mbl.is
Hann er algjör
goðsögn
andy Lonergan, leikmaður Bolton, vill spila með Eiði Smára. – fotbolti.net