Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Síða 26
Vikublað 25.–27. nóvember 201426 Sport Þegar njósnastarfið skilar góðum árangri n Njósnarar gegna ótrúlega mikilvægu hlutverki n 12 dæmi um njósnastarf sem heppn- Ö ll stærstu knattspyrnufélög heims leggja mikið upp úr því að koma upp góðu njósn­ aneti til að tryggja sér unga og hæfileikaríka leikmenn á góðu verði. Starf þessara njósnara er mikilvægt enda geta þeir tryggt vinnuveitendum sínum hundruð milljóna, ef ekki milljarða, ef þeir veðja á réttan hest. Breska blaðið Tele­ graph tók á dögunum saman nokkur dæmi þar sem bent er á hversu mikilvægt það er að hafa góða njósnara á sínum snærum. Margir þessara leikmanna voru keyptir fyrir hálf­ gerða skiptimynt en margfölduðu síðan verðmæti sitt á skömmum tíma. n  Yohan Cabaye Keyptur til: Newcastle Keyptur frá: Lille Upphæð: 3,6 milljónir punda Forsagan: Graham Carr, yfirnjósnari Newcastle, fékk það verkefni að finna hæfileikaríka leikmenn utan Englands. Þetta hljómar einfalt en skilyrðið var að þessir leikmenn gerðu ekki kröfu um of há laun og væru nálægt því að klára samning sinn hjá félagsliðum sínum svo hægt væri að fá þá ódýrt. Eigandi Newcastle, Mike Ashley, dáðist að starfi Arsene Wenger hjá Arsenal sem ósjaldan hef- ur gert einmitt þetta; keypt unga og efnilega leikmenn fyrir lítinn pening og selt þá síðan fyrir stórfé nokkrum árum síðar. Carr fékk veður af stöðu Cabaye sem var lykilmaður í velgengni Lille sem varð Frakk- landsmeistari tímabilið 2010/2011. Cabaye, sem á þessum tíma var á barmi þess að komast í landsliðið, stóð í stappi um nýjan samning hjá Lille en samkvæmt honum fékk hann einungis sex þús- und pund á viku, 1,1 millj- ón á núverandi gengi. Newcastle bauðst til að þrefalda launin hans og fór svo að Newcastle og Lille komust að samkomulagi um kaupverð sem hljóðaði upp á 3,6 milljónir punda, um 700 milljónir króna. Hvað svo? Cabaye sló strax í gegn í enska boltanum og varð mikilægasti leikmaður Newcastle-liðsins sem endaði í 5. sæti deildarinnar. Cabaye hafði fengið þau skilaboð frá forsvarsmönnum Newcastle að með góðri frammistöðu myndi hann vekja athygli stærri liða. Hann varð ekki sáttur þegar Tottenham bar víurnar í hann og Newcastle neitaði. Þá fór hann í eins konar verkfall þegar tilboði frá Arsenal var neitað. Cabaye komst í sitt besta form aftur og það leiddi til þess að Paris St. Germain keypti kappann og borgaði 19 milljónir punda, tæpa fjóra milljarða króna, í janúar á þessu ári. Cabaye hefur þó ekki tekist að vinna sér fast sæti í Parísarliðinu og gæti mögulega snúið aftur til Englands áður en langt um líður.  Simon Mignolet Keyptur til: Sunderland Keyptur frá: Sint-Truden Upphæð: 1,6 milljónir punda Forsagan: Markvarðaþjálfari Sunderland, Nigel Spink, var í fríi í Belgíu þegar hann ákvað að skella sér á leik með Sint-Truden í belgísku 2. deildinni. Frammistaða markvarðarins Simons Mignolet vakti athygli Spinks sem lét þáverandi stjóra, Steve Bruce, strax vita að hann hefði mögulega rambað á demant. Spink ákvað að halda áfram að fylgjast með Mignolet sem átti stóran þátt í því að Sint-Truden komst upp í úrvalsdeildina þetta tímabil. Spink sannfærði Bruce um að þetta væri rétti maðurinn til að standa á milli stanganna hjá Sunderland-liðinu og árið 2010 gekk hann í raðir félagsins. Hvað svo? Mignolet var fljótur að vinna sér fast sæti í Sunderland-liðinu og var valinn maður leiksins í sínum fyrsta leik sem var gegn Birmingham. Næstu þrjú tímabil á eftir átti Mignolet eftir að verða jafnbesti leikmaður liðsins, fyrst undir stjórn Bruce og svo Martins O'Neill. Hann var valinn í landsliðið eftir fína frammistöðu með Sunderland og var svo seldur til Liverpool á síðasta ári fyrir níu milljónir punda.  Morgan Schneiderlin Keyptur til: Southampton Keyptur frá: Strasbourg Upphæð: 1,2 milljónir punda Forsagan: Schneiderlin var aðeins átján ára þegar hann gekk í raðir Southampton fyrir tilstuðlan Georges Prost, fyrrverandi þjálfara í akademíu Southampton. Prost hafði reyndar látið fleiri vita af hæfileikum Schneiderlins en stjórnarformaðurinn Rupert Lowe sá sér leik á borði og var fyrstur til að bregðast við. Þetta var sumarið 2008 en þá var Sout- hampton á slæmum stað, glímdi við fjárhags- erfiðleika og lék í neðri deildunum. Þá var gott að geta fengið ungan en efnilegan – og algjörlega óþekktan – leikmenn fyrir lítið fé. Hvað svo? Morgan Schneiderlin hefur skipað sér sess meðal bestu miðjumanna ensku úrvalsdeildar- innar með frábærri frammistöðu. Southampton hefur komið allra liða mest á óvart á tímabilinu og Schneiderlin á stóran þátt í þeirri velgengni. Fjölmörg stórlið vilja kaupa kappann en næsta víst er að hann verður langt í frá ókeypis.  Nicolas Anelka Keyptur til: Arsenal Keyptur frá: Paris St. Germain Upphæð: 500.000 pund Forsagan: Eins og allir vita hefur Arsene Wenger, stjóri Arsenal, alltaf verið lunkinn við að finna unga, ódýra en stórefnilega leikmenn – sérstaklega frá Frakklandi. Þegar Wenger var tiltölulega nýtekinn við Arsenal-liðinu fékk hann ungan Frakka til liðsins, Nicolas Anelka, sem sýnt hafði lipra takta með unglingaliði Paris St. Germain. Anelka var ekki alls óþekktur enda hafði hann vakið athygli með yngri landsliðum Frakklands. Svo fór að Wenger keypti leik- manninn í febrúar 1997 og greiddi Arsenal- liðið aðeins hálfa milljón punda fyrir. Hvað svo? Anelka skoraði níu mörk tímabilið 1997– 1998 og 19 mörk tímabilið 1998–1999. Eftir það tímabil var hann seldur til Real Madrid fyrir 22,3 milljónir punda sem þótti stórfé á sínum tíma. Anelka hefur verið á talsverðu flakki síðan þá og leikið með Liverpool, Manchester City, Fenerbache, Chelsea, Bolton og West Brom svo dæmi séu tekin.  Seamus Coleman Keyptur til: Everton Keyptur frá: Sligo Rovers Upphæð: 60 þúsund pund Forsagan: Mick Doherty, njósnari Everton, kom auga á Seamus Coleman í írsku deildinni þar sem hann lék með Sligo Rovers. Seamus var lærisveinn Pauls Cook, sem á sínum tíma lék með Wolves og Tranmere. Það kann að hljóma ótrúlegt en sannleikurinn er sá að forsvarsmenn Sligo íhuguðu alvarlega að rifta samningnum við Coleman. Hann var ungur að árum og að mati félagsins var ólíklegt að hann myndi ná langt. Þetta breyttist þegar Cook tók við og undir hans stjórn tók Colemen miklum framförum. Cook lét kollega sína hjá Liverpool og Everton vita af stráknum. Þó svo að ljóst væri að hægt yrði að fá Coleman fyrir hálfgerða skiptimynt var það aðeins Everton sem ákvað að líta betur á leikmanninn. Þetta var árið 2009 og leist njósnurum Everton ágætlega á leikmanninn. Félagið ákvað loks að festa kaup á Coleman og greiddi 60 þúsund pund fyrir, tæpar 12 milljónir króna. Hvað svo? Coleman er í dag einn besti hægri bakvörður úrvalsdeildarinnar. Hann er fastamaður í liði Everton og frábær bæði í vörn og sókn. Coleman er í dag líklega metinn á yfir 15 milljónir punda. Þá er hann fastamaður í írska landsliðinu. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is  Raheem Sterling Keyptur til: Liverpool Keyptur frá: QPR Upphæð: 1 milljón punda Forsagan: Þegar Sterling var 14 ára fékk hann tækifæri til að láta ljós sitt skína með 18 ára liði QPR. Mark Anderson, njósnari Liverpool, var á umræddum leik og var furðu lost- inn. „Ég trúði ekki mínum eigin augum. Hann var einn besti ungi leikmaður sem ég hafði séð,“ sagði Anderson síðar. Tottenham og Fulham höfðu einnig augastað á Sterling en það varð lokum Liverpool sem hafði betur í kapphlaupinu. Sterling samdi við Liverpool rétt fyrir 15 ára afmæli sitt. Hvað svo? Sterling lék með unglingaliði Liverpool fyrst um sinn þar sem hann vann meðal annars vel í að auka líkamlegan styrk sinn. Hann var þó ekki lengi að brjóta sér leið inn í aðalliðið og á síðustu leiktíð blómstraði þessi stórefnilegi leikmaður í kringum leikmenn eins og Luis Suarez, Daniel Sturridge og Steven Gerrard. Sterling er í dag lyk- ilmaður í liði Liverpool þrátt fyrir að vera ekki orðinn tvítugur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.