Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Side 37
Fólk 37Vikublað 25.–27. nóvember 2014 „Minna fólk á að líta ekki undan“ n Tjarnargatan gerði mynbandið Örugg borg n Elísabet Ronaldsdóttir aðstoðaði við klippingu V ið vildum færa þessa óhugn- anlegu upplifun nær ein- hverju sem flestir geta tengt við,“ segir Einar Ben hjá framleiðslufyrirtækinu Tjarnargatan ehf. en fyrirtækið vann mynbandið Örugg borg fyrir herferð UN Women sem ýtt var úr vör í síðustu viku. Þar á Einar við það þegar einhver nýtir sér varnarleysi einstaklings til að vinna honum mein á einhvern hátt. Um er að ræða alþjóðlegt verk- efni UN Women, en borgaryfirvöld átján landa hafa heitið því að gera borgirnar sínar öruggari fyrir alla. Eins og staðan er í dag upplifa átta af hverjum tíu ís- lenskum konum sig óöruggar í mið- borg Reykjavíkur að næturlagi. Hjálpa með því að ýta á takka Einar bendir á að blessunarlega hafi færri en fleiri lent í því að fá pillu í glasið sitt eða að verða fyrir árás að næturlagi. En flestir þekki það að verða hræddir, óöruggir og ósjálfbjarga í ákveðnum aðstæðum. Hugmyndin er að sýna fram á hvern- ig þessar ákveðnu aðstæður fram- kalla þessar tilfinningar. En mynd- bandið sýnir hvernig karlmenn nýta sér varnarleysi kvenna, við aðstæð- ur þar sem þær ættu undir eðlileg- um kringumstæðum að vera öruggar. Í kjölfarið eru konurnar ýmist sýnd- ar detta, að drukkna eða innilokað- ar. Áhorfendur geta hins vegar kom- ið þeim til hjálpar með því að ýta á ákveðinn takka á lyklaborðinu. Leituðu í reynslu kvenna Einar segir þetta hafa verið verðugt verkefni að takast á við. „Við þurftum að leggjast undir feld, hugsa og vinna mikið. Við vorum kölluð að borðinu til að koma með óhefðbundna upp- lifun á aðstæð- um og til að vekja athygli á erfiðum og alvarlegum málstað, sem þarft er að vekja athygli á. Eftir töluvert langan tíma þá komumst við að þessari niðurstöðu, að tengja við þessar tilfinningar raun- verulega. Við leituðum meðal annars í reynslubanka kvenna innan fyrir- tækisins sem könnuðust undantekn- ingarlaust allar við að upplifa vafa- samar aðstæður í þessu samhengi,“ útskýrir Einar. Dýrmætt að passa upp á hvert annað Hann segir þau strax hafa lagt upp með gagnvirka hugmynd þar sem fólk gæti á einhvern hátt lagt hönd á plóg- inn og hjálpað til. „Hugmyndin okkar þar er að margt smátt gerir eitt stórt. Bara með því að byrja á litlu hlutun- um, til dæmis með því að bregðast við þegar einhver segir eitthvað óvið- eigandi, eða segja frá því ef þú veist af óviðeigandi hegðun gagnvart ein- hverjum.“ Hugmyndin er að sýna fram á það á huglægan hátt að með mörgum litl- um skrefum getur unnist stór sigur. „Með því að ýta á þennan takka þá ertu að hjálpa. Svo í lokin sýnum við fram á hvernig þú getur raunverulega hjálpað með því að leggja þessu mál- efni lið. Við viljum líka minna fólk á að líta ekki undan og halda að næsti maður komi til hjálpar. Það er mjög dýrmætt að við pössum upp á hvert annað. Vildi leggja sitt af mörkum Elísabet Ronaldsdóttir, færasti klipp- ari landsins, lagði þeim hjá Tjarnar- götunni lið við gerð myndbandsins. Einar segir það hafa verið mikinn happafeng fyrir fyrirtækið að njóta starfskrafta hennar á lokametrun- um. Sjálf vildi Elísabet leggja bar- áttunni fyrir bættu öryggi kvenna lið með þessum hætti. „Ég á börn sem eru úti á lífinu og auðvitað skipt- ir það mig máli að þau séu örugg. Óöryggið liggur frekar þar en hjá mér sjálfri,“ segir Elísabet aðspurð hvort hún upplifi sig óörugga í mið- borg Reykjavíkur að næturlagi. „Mér finnst líka mikilvægt að við útilokum ekki þann möguleika að það séu börnin okkar sem hugs- anlega brjóta gegn öðrum. Þetta er ekki einstefna. Við þurfum að reyna að halda börnunum okkar öruggum og innprenta í þau gildi sem gera það að verkum að það hvarflar ekki að þeim að brjóta gegn öðrum.“ El- ísabet tekur þó skýrt fram að hún sé ekki að varpa ábyrgðinni á foreldra. „Þetta er bara samfélagsleg ábyrgð okkar allra og mín aðkoma að þessu myndbandi er að mér gefst færi á þennan hátt að leggja mitt að mörk- um og geri það með glöðu geði.“ n „Við leituðum með- al annars í reynslu- banka kvenna innan fyr- irtækisins sem könnuðust undantekningarlaust allar við að upplifa vafa- samar aðstæður í þessu samhengi. Leggðu þitt af mörkum Hægt er að leggja verkefninu lið með því að fara inn á síðuna oruggborg.is eða senda sms-skilaboð með textanum oruggborg í númerið 1900. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Aðstoðaði við klippingu Elísab et vildi leggja verkefninu lið. MynD ELíSAbET RonALDSDóTTiR Gerir grín að Omaggio- vasaþörf Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson gerði í síðustu viku grín að þeim sem biðu í biðröð fyrir utan verslunina Modern til að kaupa svokallaðan Omaggio- vasa frá Kähler. Smartland greindi frá því að 200 stykki af vasanum hefðu selst upp á stundinni, en verslunin var opnuð klukkan sex að morgni til að svala vasaþörf viðskiptavina sem beðið höfðu óþreyjufullir eftir sendingu af þessum vinsælu vösum. „Hvernig gengur? Eru bara all- ir á landinu með Omaggio vasa, í nike free skóm að dást að Tolla verkinu sínu?“ Skrifaði Guð- mundur á Facebook-síðu sína og birti tengil á frétt Smartlandsins. Eins og sjá má gerði hann jafn- framt grín að fleiri tískubylgjum sem gripið hafa landann á síðustu misserum. Verðugt verkefni Við gerð myndbandsins var meðal annars leitað í reynsluheim kvenna hjá Tjarnargötunni. MynD SigTRygguR ARi P rófið var bara að detta í hús fyrir nokkrum mínútum,“ segir Bald- ur Kristjáns ljósmyndari sem á mánudaginn fékk bifhjóla- réttindi. En hann var nánast að stíga af mótorhjólinu í verklega prófinu þegar blaðamaður náði tali af honum. „Ég kláraði bóklega prófið klukkan níu í morgun og svo fór ég beint í það verk- lega.“ Baldur rúllaði báðum prófunum upp og er nú handhafi prófskírteinis sem hann gleymdi þó næstum á próf- staðnum af spenningi, að eigin sögn. Hálfflökurt eftir sígarettuna Að bón móður sinnar tók Baldur mynd af sér við hjólið eftir prófið og birti á Instragram. Hann fékk lánaða sígarettu til að hafa í munnvikinu á myndinni til að gera sig vígalegri, en leðurjakkann vantaði. „Leðurjakk- inn er tilbúinn heima en ég mátti ekki vera í honum í prófinu,“ útskýrir Baldur. Hann tekur líka fram að hann reyki ekki, heldur hafi verið um hálf- gerðan einkahúmor að ræða. „Mér er eiginlega hálfflökurt eftir þessa myndatöku,“ segir Baldur hreinskil- inn. „Leðurjakkinn var samt alveg það fyrsta sem ég græjaði. Það var al- gjört forgangsatrði,“ bætir hann kím- inn við. Reykingarnar ætlar hann hins vegar að láta eiga sig. Ætlar að hjóla með pabba Faðir Baldurs er á mótorhjólaferða- lagi um heiminn og ætlar Baldur að hitta hann í Suður-Ameríku eftir ára- mót og ferðast með honum í eina til tvær vikur. Það var ein helsta ástæð- an fyrir því að hann dreif sig í að taka prófið núna. Aðspurður hvort það sé langþráður draumur að aka um á mótorhjóli segir Baldur svo ekki vera. „Þetta er frekar nýtilkom- ið. Eftir að hafa séð gamla karlinn fá svarta fiðringinn og fylgst með hon- um, þá kveikti þetta í mér,“ segir Bald- ur og þar á sjálfsögðu við föður sinn. „Ég ákvað þetta fyrir mjög stuttu og er búinn að vera alla daga í nettöku- skóla að gera allt á síðustu stundu.“ Hann segir mjög heppilegt hve hlýtt hafi verið í veðri, annars hefði hann líklega ekki náð að taka prófið núna. Næsta skref hjá Baldri er svo að fá sér mótorhjól. „Ég fæ mér alveg hundrað prósent hjól. Ég er bara að fara með prófgögnin til sýslumanns og svo skoða ég þetta. Jafnvel bara á eftir eða síðar í vikunni,“ segir Baldur að lokum. n solrun@dv.is „Prófið var bara að detta í hús“ baldur Kristjáns fékk bifhjólaréttindi í vikunni og ætlar að fá sér hjól Vígalegur Baldur fékk lánaða sígarettu fyrir myndatökuna. Hann reykir hins vegar ekki og var hálfflökurt eftir myndatökuna. Úfinn borgarstjóri Hinn hárprúði borgarstjóri, Dag- ur B. Eggertsson, er orðinn mun hárprúðari en venjulega og hár- ið er nokkuð úfnara en fólk á að venjast. Á því er einföld skýring. Dagur neitar að hirða um hár sitt fyrr en konan hans, Arna Dögg Einarsdóttir, hefur tök á að klippa það. Tilkynnti hann vinum sín- um þetta á Facebook um helgina. „Hef gripið til örþrifaráða – og ákveðið að hirða ekki um hár mitt fyrr en Arna klippir mig – hún verður að sætta sig við að búa með Bobby í Dallas þangað til!“ Færslan vakti eðlilega mikla lukku á Facebook en henni fylgdi mynd af mjög úfnum borgar- stjóra. Á fimmta hundrað manns lýstu velþóknun á færslunni og margir tjáðu sig um hárið. Einn Facebook-vinur benti Degi á að safna bara hári og skarta falleg- um slöngulokkum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.