Fréttablaðið - 10.05.2016, Side 8
Ferðaþjónusta Matvælastofnun
veit ekki nákvæmlega hversu
margar hestaleigur eru fyrir í land-
inu þrátt fyrir að eiga að sinna eftir-
liti með velferð hrossanna. Hesta-
leigum og aðilum sem bjóða upp á
hestaferðir fyrir ferðamenn hefur
fjölgað gríðarlega meðfram fjölgun
ferðamanna.
MAST vinnur nú að því að kort-
leggja stöðu hestatengdrar ferða-
mennsku og hefur haldið fundi
með félagi hrossabænda og völdum
ferðaþjónustuaðilum í geiranum til
að ná utan um starfsemina hér á
landi.
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hjá MAST, segir stofnunina vinna að
þessu til að tryggja velferð íslenska
hestsins.
„Bæði er það í verkahring Mat-
vælastofnunar samkvæmt nýjum
lögum að sinna eftirliti með velferð
hrossanna í þessum hestaleigum.
Einnig erum við að brýna fyrir
hestaleigum þörfina á því að kynna
viðskiptavinum þeirra reglur um
smitvarnir við bókanir ferða og
ganga úr skugga um að ferðamenn
fylgi þeim reglum við komuna til
landsins,“ segir Sigríður.
„Nú erum við að biðla til hesta-
leiga að skrá sig á vef stofnunar-
innar svo hægt sé að halda utan
um fjöldann. Þó við vitum ekki
nákvæmlega hversu margar hesta-
leigurnar eru í landinu erum við þó
með nokkuð góða mynd af stöð-
unni.“
Samkvæmt Ferðamálastofu eru
146 hestaleigur í landinu sem hafa
sótt um og eru með rekstrarleyfi
frá stofunni. Hefur þeim fjölgað
gríðarlega í takt við fjölgun ferða-
manna sem hingað koma til lands-
ins. Hestaleigur sem slíkar hafa ekki
með sér samtök né sameiginlegan
málsvara en unnið er að því að búa
til þau regnhlífarsamtök, greininni
til hagsbóta.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
framkvæmdastjóri Íshesta, segir fyr-
irtækið skrá ítarlega notkun á hverju
hrossi til að tryggja velferð þeirra.
„Við erum með um 120 hross og
verðum að hafa yfirsýn yfir notkun
og hreyfingu okkar hesta. Bæði
hvað varðar að nýta hross sem og
að ofbrúka þau ekki. Þannig skráum
við hreyfingu hvers hross sem MAST
getur svo skoðað og farið yfir,“ segir
Skarphéðinn Berg.
sveinn@frettabladid.is
Reyna að ná utan um fjölda hestaleiga
Matvælastofnun á samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma að hafa eftirlit með velferð hrossa í hestaleigum. Unnið er að því að skrásetja
allar hestaleigur landsins. Alls eru 146 leigur með rekstrarleyfi frá Ferðamálastofu. Fjölgun gríðarleg í takt við fjölgun ferðamanna.
Matvælastofnun veit ekki nákvæmlega hversu margar hestaleigur eru starfandi í landinu. Fréttablaðið/SteFán
Skarphéðinn
berg Steinarsson,
framkvæmdastjóri
Íshesta
Sigríður
björnsdóttir, dýra-
læknir hjá MaSt
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka
Íslands hf. verður haldinn miðvikudaginn 25. maí nk.
kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá
• Skýrsla stjórnar
• Kynning á ársreikningi
• Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
• Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
• Kosning eins varamanns
• Kjör endurskoðanda
• Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins
• Laun stjórnarmanna
• Önnur mál
Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast
stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins
hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Ársfundur Lífeyrissjóðs
starfsmanna
Búnaðarbanka Íslands
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6-
15
17
Frá yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis
Til væntanlegra frambjóðenda í forsetakosningum
25. júní 2016
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis kemur saman til fundar í Menningar-
húsinu Hofi, v/Strandgötu, Akureyri, nánar tilgreint í Setbergi, fundarsal á 2.
hæð, föstudaginn 20. maí nk. kl. 13:00, til þess að gefa vottorð um með-
mælendur forsetaefna samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945, um framboð og kjör
forseta Íslands.
Þess er óskað að frambjóðendur skili meðmælendalistum til yfirkjörstjórnar,
Menningarhúsinu Hofi, v/Strandgötu, Akureyri, Setbergi, fundarsal 2. hæð,
þriðjudaginn 17. maí nk., milli kl. 9 og 14, til þess að unnt verði að undirbúa
vottorðsgjöf yfirkjörstjórnar.
Vakin er sérstök athygli á að afhenda skal yfirkjörstjórn frumrit meðmæl-
endalista. Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis gefur eingöngu vottorð um
meðmælendur úr eigin kjördæmi.
Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til þess að meðmælendalistar
verði skráðir með rafrænum hætti á þar til gerðu vefsvæði á www.Ísland.is
áður en þeim er skilað til yfirkjörstjórnar.
Þá skal og fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum hverjir tveir menn séu
umboðsmenn viðkomandi framboðs..
Akureyri, 22. apríl 2016.
Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis,
Gestur Jónsson oddviti
Inga Þöll Þórgnýsdóttir
Ólafur Rúnar Ólafsson
Katý Bjarnadóttir
Páll Hlöðvesson
DanMÖrK Helmingur íbúa Árósa
í Danmörku er andvígur byggingu
stórrar mosku í borginni, að því er
niðurstöður nýrrar skoðanakönn-
unar sýna.
Könnunin var gerð eftir að fulltrúar
nokkurra flokka í borgarstjórninni
kváðust vilja hætta við sölu lóðar
undir moskuna. Borgarfulltrúarnir
lýstu þessu yfir í kjölfar heimildar-
þáttar í danska sjónvarpinu þar sem
meðal annars var greint frá því að í
fjórum moskum í Árósum væru þau
sjónarmið uppi að kona mætti ekki
neita manni sínum, sem ætti rétt á að
eiga fleiri en eina konu, um kynlíf. – ibs
Andvígir stórri
mosku
nOreGur Eitt af hverjum ellefu
börnum í Noregi, eða alls 85 þús-
und börn, býr við bágan efnahag.
Heilsufar fátæku barnanna er oft
verra en hinna, að því er könnun á
vegum norsku lýðheilsustofnunar-
innar sýnir.
Rúmlega fimmta hvert fátæku
barnanna býr í Ósló. Meirihlutinn
er börn innflytjenda frá Sómalíu,
Írak og Afganistan.
Bent er á að samhengi sé á milli
tekna og skólagöngu foreldra og
þátta eins og ofþyngdar, hreyfing-
ar, mataræðis, tóbaksnotkunar og
neyslu vímuefna. – ibs
Heilsa fátækra
barna lélegri
1 0 . M a í 2 0 1 6 þ r I ð j u D a G u r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a B L a ð I ð
1
0
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
6
0
-5
5
1
8
1
9
6
0
-5
3
D
C
1
9
6
0
-5
2
A
0
1
9
6
0
-5
1
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K