Fréttablaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 20
Síðustu dagar hafa verið annasam- ir hjá Gretu. Dagarnir þétt skip- aðir. Í gær var dómararennsli sem er ákaflega mikilvægt fyrir kepp- endur þar sem stigin frá dómur- unum gilda helming á móti sjón- varpsáhorfendum. „Ég finn ekki fyrir kvíða heldur miklu fremur tilhlökkun,“ sagði Greta í samtali við blaðið í gær, rétt fyrir dóm- ararennslið. „Við erum tilbúin og hlökkum mikið til að koma þessum góða boðskap okkar á framfæri. Við erum búin að undirbúa okkur eins vel og við getum,“ segir hún. Á sunnudag var haldin heljar- innar veisla til að bjóða keppend- ur velkomna til Stokkhólms. Kepp- endur gengu eftir rauðum dregli í veisluna þar sem mikill mann- fjöldi hafði safnast saman til að fylgjast með. Greta segir að þetta hafi verið mjög skemmtileg veisla og gott andrúmsloft. „Við byrjuð- um á stað sem er kallaður Euro Fan Club þar sem keppendur, fréttamenn og fleiri komu saman til að blanda geði. Síðan var farið í ráðhús borgarinnar þar sem var gríðarlega flott móttaka og marg- ir frábærir listamenn komu fram. Það var létt yfir þessu og mjög góð stemning,“ segir hún. Greta hefur ekki haft tíma til að skoða borgina en segist vera með frábært útsýni úr hótelherberginu. „Ég næ eiginlega að skoða borgina út um gluggann þegar ég vakna á morgnana,“ segir hún. Óútreiknanleg keppni Greta vildi ekki spá hvort við fengjum að sjá hana á laugardag líka. „Það er eiginlega ómögulegt að segja til um það. Eurovision- keppnin er óútreiknanleg og erfitt að spá um hvernig atkvæðin falla. Vonandi náum við að koma boð- skap okkar til skila en það hefur verið stefna mín frá upphafi að ná því. Keppnin er góður vettvangur fyrir boðskapinn í laginu.“ Greta segir að keppnin hafi stækkað og breyst töluvert frá því hún steig síðast á svið árið 2012 en það var í Bakú í Aserbaídsan. Þá söng Greta með Jónsa lagið Never forget sem komst í aðalkeppnina. „Það er ótrúlega gaman að sjá hversu mikil fjölbreytni er í þess- ari keppni núna. Mér finnst vera sérstaklega jákvætt andrúms- loft yfir keppninni og gaman að taka þátt aftur. Það eru tveir aðrir flytjendur í þessari keppni sem voru með mér í Bakú, Kaliopi frá Makedóníu og Donny Mont ell frá Litháen. Síðan sér maður ótrúlega mörg andlit sem virðast fylgja keppninni hvar sem hún er haldin. Mér finnst æðislegt að sjá svona kunnugleg andlit úti um allt. Ég hef kynnst mörgum hér og suma hafði ég hitt á Eurovision-kvöldum í Amsterdam og London áður en ég kom hingað. Það léttir mikið á and- rúmsloftinu að hafa hitt keppend- ur áður. Hér eru allir vinir,“ segir Greta. Æðri tilgangur Dönsku keppendurnir eru á sama hóteli og Greta. „Keppendur frá Norðurlöndum héldu sameigin- lega veislu og þar hitti ég aðra nor- ræna keppendur en gott samband hefur verið á milli okkar. Ég var með minn eigin blaðamannafund þar sem var létt og góð stemning. Þar var mikið talað um boðskap lagsins sem var ánægjulegt. Menn höfðu greinilega kynnt sér texta lagsins áður en þeir komu á fund- inn.“ Textann má sjá hér á síðunni. Greta segist upplifa svakalega tilhlökkun fyrir kvöldinu. „Ég held að það sé einhver æðri tilgangur með þessu lagi, ekki bara keppni heldur boðskapur sem skipt- ir máli. Svo er ég með fimm frá- bærar bakraddir, Pétur Örn Guð- mundsson og Gísla Magna Sig- ríðarson, sem voru með mér í Bakú, og síðan Hafstein Þórólfs- son, Kristján Gíslason og Lilju Björk Runólfsdóttur. Þau leika stórt hlutverk í sýningunni. Ég er á svo mikilli hreyfingu þannig að góðar bakraddir eru gríðarlega mikilvægar. Við erum samhentur og góður hópur. Raddirnar eru ekki einungis lag heldur líka listaverk. Ég hef fund- ið mjög góðan stuðning að heiman og ég held að allir geti hlakkað til kvöldsins.“ Greta Salóme á rauða dreglinum ásamt Jónatan Garðarssyni. Úti dansa skuggar og þeir skríða á eftir mér. Læðast inn í huga minn og leika sér. Og yfir svarta sandana við stígum hægt. Svo ég heyri þegar kallað er, segir í lagi Gretu, Raddirnar, en boðskapurinn hefur vakið athygli. Raddirnar Úti dansa skuggar o g þeir skríða á eftir mér Læðast inn í huga m inn og leika sér Og yfir svarta sanda na við stígum hægt Svo ég heyri þegar k allað er Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ó, leiðið okkur að lo kum heim Og yfir auðnina, og inn í nóttina Leiðið okkur að loku m heim Ó … ó … Nístir inn að beini, n apur vindur þenur s ig Og það er sama hva ð ég reyni, ó, hann fangar mig Og yfir svarta sanda na við stígum hægt Svo ég heyri þegar k allað er Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ó, leiðið okkur að lo kum heim Og yfir auðnina, og inn í nóttina Leiðið okkur að loku m heim Ó … ó … Ó, ég heyri, ég heyri raddirnar, ó … Ó, ég heyri, ég heyri raddirnar, ó … Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ég heyri raddirnar, é g heyri Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ég heyri raddirnar, þ ær eru alls staðar Ó leiðið okkur að lok um heim (Og yfir auðnina, og inn í nóttina) Leiðið okkur að loku m heim Allt sem þú þar ... Skv. prentmiðlakönnun Gallup, janúar–mars 2016 íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.* 59,5% Sá öldi myndi fara langt með að fylla sæti Laugardalsvallar tíu sinnum. 59,5% lesa Fréttablaðið 28,6% lesa Morgunblaðið ÚtGefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSJónaRmaðUR aUGLýSinGa Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyRGðaRmaðUR Svanur Valgeirsson VeffanG visir.is eUROVíSiR Kynningarblað 10. maí 20162 1 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 6 0 -5 E F 8 1 9 6 0 -5 D B C 1 9 6 0 -5 C 8 0 1 9 6 0 -5 B 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.