Fréttablaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 30
Hér er tvenns konar popp sem
gaman er að prófa fyrir Eurovision-
kvöldið.
Karamellupopp
3 msk. olía
1/4 bolli poppbaunir
6 msk. ósaltað smjör, skorið
í bita
1/3 bolli ljós púðursykur
3 msk. ljóst kornsíróp
1 tsk. vanilludropar
1/4 tsk. salt
Stillið ofninn á 150 gráður.
Hitið olíuna í stórum potti á miðl-
ungshita. Setjið poppbaunirnar í
og poppið þar til tvær til þrjár sek-
úndur líða á milli popphljóðsins.
Setjið poppið í stóra skál. Blandið
saman í potti smjöri, sykri og korn-
sírópi. Hitið við miðlungshita og
hrærið oft þar til blandan kraum-
ar og verður ljósari að lit (um 3-5
mínútur). Blandið vanillu og salti
út í. Hellið yfir poppið og bland-
ið vel. Setjið poppið nú á bökunar-
plötu með bökunarpappír og hitið í
ofninum í 30-35 mínútur. Hrærið í
einu sinni á þessum tíma.
Popp með smjöri og parmesan
Poppkorn poppað í potti
3 msk. ósaltað smjör
3 msk. rifinn parmesanostur
1/4 tsk. salt
Brúnið smjörið í potti yfir meðal-
hita. Hrærið þar til smjörið fer að
freyða og takið þá af hitanum. Um
leið og það verður gullinbrúnt að
lit er því hellt yfir poppið. Dreifið
síðan parmesanostinum og salti
yfir og hristið vel.
Poppið er
ómissandi
Eurovision-keppnin er tilefni til mann-
fagnaða af ýmsu tagi og eru fáir sem láta
sig vanta í fjölskyldu- eða vinapartí þegar
úrslitakvöldið rennur upp. Það er tilval-
ið að gera sem mest úr kvöldinu og efna
til keppni á milli gesta. Þá er um að gera
að fá fólk til að mæta í búningi og láta til
dæmis hvern og einn velja uppáhaldsflytj-
anda fyrr og síðar til að herma eftir. Eins
má hvetja gesti til að koma með veiting-
ar í stíl við landið sem það heldur með.
Til dæmis sænskar kjötbollur, svissneskt
súkkulaði eða pólskan vodka svo dæmi
séu nefnd.
Undirbúningur fyrir Eurovision-
keppnina í Stokkhólmi hófst árið
2015. Í júlí á síðasta ári var ákveð-
ið að keppnin skyldi haldin í Globen-
höllinni í Stokkhólmi. Allnokkrar
breytingar voru gerðar í kringum
Globen vegna þessa viðburðar. Í
febrúar var búið að teikna upp hvern-
ig sviðið kæmi til með að líta út.
Kynnar kvöldsins voru ákveðnir í
desember en það verða Petra Mede
og Måns Zelmerlöw.
Ástralía verður með í keppn-
inni í annað skiptið á laugardag en
lag Ástrala hafnaði í fimmta sæti í
Vín í fyrra. Það verður Guy Sebast-
ians sem syngur fyrir Ástralíu lagið
Tonight again.
Ákveðið var að 43 lönd myndu
keppa til úrslita í ár en þar sem Rúm-
enía datt út verða lögin 42. Miðasala
fyrir Eurovision hófst í nóvember.
Globe-höllin í Stokkhólmi er
stærsta viðburðahús í Skandinavíu.
Yfir tvær milljónir manna heimsækja
Globe á ári hverju. Þar fara fram
ýmiss konar sportviðburðir og tón-
leikar. Síðar í þessum mánuði verður
Rod Stewart með tónleika þar.
Langur
undirbúningur
www.ora.is
Við erum á Facebook
Prófaðu
að nota túnfisk í
karrísósu ofan á brauð,
með fersku salati og
harðsoðnum eggjum, en
það er líka gott að
borða hann beint
upp úr dósinni.
Túnfiskur í
Chillisósu er ekki
síður framandi,
kröftugur og hentar
mjög vel í matargerð.
Túnfiskur
NÝTT
LaufLétt sPuriningaKePPni
Hér eru nokkrar tillögur að spurningum sem má dreifa til
gesta í upphafi kvölds. Þeim þarf að skila inn til dómara
áður en stigagjöf hefst.Hvaða lönd lenda í 1.-5. sæti
Í hvaða sæti lendir Ísland?
Hvað gefa Danir Íslendingum mörg stig?
Hvað gefa Íslendingar Svíum mörg stig?
Hverjum gefa Serbar 12 stig?
Hverjum gefa Armenar 12 stig?
Hverjum gefa Grikkir 12 stig?
Hvernig verður stigakynnir Spánar klæddur?
Hvort er stigakynnir Norðmanna karl eða kona?
Hvað verða margir flytjendur í hvítum fötum?
Hvað skipta kynnar kvöldsins oft um föt?
Eurovísir Kynningarblað
10. maí 201612
1
0
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
6
0
-6
3
E
8
1
9
6
0
-6
2
A
C
1
9
6
0
-6
1
7
0
1
9
6
0
-6
0
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K