Iðjuþjálfinn - 01.12.2000, Síða 4
IÐJUÞJALFINN
fagblað iðjuþjálfa
Pósthólf 4159
124 Reykjavík
www.islandia.is/idjuthjalfun
idjuthjalfun@islandia.is
Efnisyfirlit
Viðhorf iðjuþjálfa á Islandi til
sjálfræðis og forræðis
- í tengslum við umönnun aldraðra......6
Ráðstefna um iðjuþjálfun í íslensku samfélagi . 15
Geysir gýs í Reykjavík
- klúbburinn á Ægisgötunni.................16
Norrænn formannafundur 2000 ...............20
Gróska í fræðslustarfi IÞÍ.................22
Stjóni IÞÍ
Kristín Sigursveinsdóttir, formaður
Sigríður Pétursdóttir, varaformaður
Oddrún Lilja Birgisdóttir, gjaldkeri
Þóra Leósdóttir, ritari
Berglind Bára Bjarnadóttir, meðstjórnandi
Ritnefnd:
Erla Björk Sveinbjörnsdóttir
Guðný Katrín Einarsdóttir
Soffía Haraldsdóttir
Þóra Leósdóttir
Ritstjóri:
Þóra Leósdóttir
Prófarkalestur:
Guðbjörg Kr. Amardóttir
Þóra Leósdóttir
Hönnun og umbrot:
Prentmet ehf
Prentun:
Prentmet ehf.
Skeifunni 6,108 Reykjavík
Pökkun og frágangur:
Iðjuþjálfun Geðdeildar Landspítala
Háskólaskjúkrahúss, Kleppi
Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta
og færa mál til betri vegar.
Vitna má í texta blaðsins ef heimildar er getið.
Ritstjórnarspjall
Nú er Vetur konungur mættur og seinna
tölublað Iðjuþjálfans árið 2000 sprengfullt
af ýmis konar efni. Gott er að hafa Iðju-
þjálfann við hendina til að glugga í á síðbúnum
vetrarkvöldum. Meðal efnis að þessu sinni er grein
um niðurstöður rannsóknar á viðhorfum íslenskra
iðjuþjálfa til sjálfræðis og forræðis í tengslum við
umönnun aldraðra. Fréttir af norrænu samstarfi
iðjuþjálfafélaga eru á sínum stað auk þess sem
fræðslustarfi IÞI á undanförnum misserum eru
gerð skil. Ritnefnd brá sér á kreik á haustdögum
og tók starfandi iðjuþjálfa tali, afraksturinn birist
hér í máli og myndum.
Á næsta ári eru tímamót í starfi Iðjuþjálfafélags
íslands sem þá fagnar 25 ára afmæli sínu. Ýmislegt
er á döfinni, þar á meðal verður haldin ráðstefna á
Akureyri í júní og er það fyrsta íslenska ráðstefnan
um iðjuþjálfun. Um er að ræða samstarfsverkefni
IÞI og Heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri og
má finna fróðleikskorn um ráðstefnuna hér í
blaðinu.
Að lokum vill ritnefnd þakka þeim fjölmörgu sem
lögðu hönd á plóginn, ekki síst þeim auglýsendum
og styrktaraðilum sem komu við sögu við útgáfu
þessa haustblaðs. Við óskum lesendum Iðjuþjálf-
ans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
ritstjóri
4 IÐJUÞJÁLFINN 2/2000