Iðjuþjálfinn - 01.12.2000, Qupperneq 22

Iðjuþjálfinn - 01.12.2000, Qupperneq 22
Gróska í fræðslustarfi IÞI I sumar sem leið voru haldin tvö stór námskeið á vegum fræðslunefndar Iðjuþjálfafélags íslands. Iðjuþjálfar létu sig ekki vanta þrátt fyrir að sól væri hátt á lofti og sumarleyfistím- inn í algleymingi. Gróska í fræðslustarfi IÞÍ í sumar sem leið voru haldin tvö stór nám- skeið á vegum fræðslunefndar Iðjuþjálfa- félags íslands. Iðjuþjálfar létu sig ekki vanta þrátt fyrir að sól væri hátt á lofti og sumar- leyfistíminn í algleymingi. Matstæki fyrir iðjuþjálfa Námskeið um matstæki fyrir iðjuþjálfa var haldið dagana 29. og 30. júní. Fyrirlesari var Dr. Wendy Coster en hún er yfirmaður náms í iðjuþjálfun við Háskólann í Boston. Coster er einn af höfundum þeirra mats- tækja sem kynnt voru á námskeiðinu. Nám- skeiðið var haldið í samvinnu við Endur- menntunarstofnun Háskóla íslands og um- sjónarmaður var Berglind Asgeirsdóttir fyrir hönd fræðslunefndar IÞI. Þátttaka var góð en alls sóttu 30 iðjuþjálfar og iðjuþjálfa- nemar námskeiðið. Iðjumiðað mat hjá börnum Á námskeiðinu fjallaði Coster um þá hug- myndafræði og nálgun sem liggur að baki iðju- miðuðu mati hjá bömum. Nú eru að ryðja sér til rúms matstæki sem hafa það að markmiði að meta færni við iðju í ýmsum aðstæðum. Það sem gerir þessi matstæki frábrugðin hefð- bundnum þroskaprófum er að tilgangur þeirra er að meta fæmi í daglegu umhverfi. Þeir sem vinna með börnum með sérþarfir þekkja vel hvernig bilið breikkar milli þeirra og barna sem ekki eru með frávik í þroska, eftir því sem barnið eldist. Við vitum að börn með fötlun víkja frá „meðalbarninu" í þroska og þekkjum þroskamynstur ýmissa hópa bama með sér- þarfir vel, en þurfum matstæki sem gefa okkur upplýsingar um hvemig færni einstakra barna breytist með tímanum. Þannig er unnt að varpa skýrara ljósi á hvað það er sem hindrar barnið og veita markvissari ílilutun. Coster kynnti tvö matstæki á námskeiðinu og nánar er fjallað um þau hér á eftir. PEDI færniprófið „Pediatric Evaluation of Disability Inventory" (PEDI) er staðlað matstæki sem nýtist við að meta fæmi barna við daglegar athafnir. Megin tilgangurinn er að finna frávik og mæla breyt- ingu á færni fatlaðra bama við iðju. PEDI er hannað með ung börn með hreyfihömlun í huga eða á aldrinum 6 mánaða til 7;5 ára, en einnig er hægt að nýta það með eldri börnum ef fyrirséð er að geta þeirra er undir getu 7;5 ára ófatlaðra barna. Ennfremur hefur það sýnt sig að matstækið nýtist vel við að meta fæmi hjá fleiri hópum bama með þroskafrávik. Metin er færni barnsins annars vegar og sú aðstoð sem það fær hins vegar. Eirrnig er þörf fyrir sérbúnað og hjálpartæki athuguð. Prófið er byggt upp sem spurningalisti og tekur til þriggja megin sviða: Eigin umsjár, að fara um og flytja sig, og til félagsfærni. Höfundar PEDI koma úr ýmsum fræðigreinum þ.e. sjúkra- þjálfun, iðjuþjálfun, sálfræði og tölvunarfræði. Matsækið kom út árið 1992 og er gefið út af PEDI Research Group, New England Medical Center Hospital í Boston. Um nokkurra ára skeið hafa verið notuð drög að íslenskri þýð- ingu á þeim vinnustöðum iðjuþjálfa sem starfa með börnum. Þess má geta að unnið er að íslenskri þýðingu og staðfæringu á spuminga- lista og hluta handbókar og er það samstarfs- verkefni faghópa innan iðju- og sjúkraþjálf- unar. SFA skólafæmisathugun „School Function Assessment" (SFA) er mark- bundið próf sem ætlað er að meta skólafæmi bama. Matstækið nýtist við mat á þátttöku og fæmi 6-12 ára grunnskólanemenda með sér- þarfir. Það saman stendur af spurningalistum sem fylltir eru út af einum eða fleiri fag- mönnum er vel þekkja til frammistöðu nem-

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.