Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 1
Verður frúforseti?
EITT ÁR ER ÞA
SUNNUDAGUR
GUÐRÚN SÓLEYHEFUR FLOTTAN STÍL
HEIMATILBÚNIR LEIKIR
GÖTUVEISLA ÍGARÐABÆ
DR. RONALD MOY 14
TÍSKA 34
FJÖLSKYLDAN 30
MATARBOÐ 26
VÍSINDIN Á BAKVIÐ EGF DROPANA
2. ÁGÚST 2015
SÓLNÝ PÁLSDÓTTIR Á FIMM DRENGI OG ER SÁ YNGSTI MEÐ DOWNS-HEIL-
KENNI. HÚN TEKST Á VIÐ LÍFIÐ MEÐ ÆÐRULEYSI OG MYNDAVÉL AÐ VOPNI 40
*
MEÐ ELLEFUVERNDARENGLA
L A U G A R D A G U R 1. Á G Ú S T 2 0 1 5
Stofnað 1913 179. tölublað 103. árgangur
ÁNÆGÐUR MEÐ
TÍU RÁÐSKONUR
OG MÖRG BÖRN
LÖG UM
RAUNVERULEGA
ATBURÐI
PLATAN ÓÐUR 39LJÓN NORÐURSINS 10
Morgunblaðið/Einar Falur
Fyrirhöfn Veiðimaðurinn á hlaupum og
fylgdarmaðurinn lyftir línunni yfir skerið.
„Þessi er miklu erfiðari,“ sagði
ástralskur stangveiðimaður um
samanburðinn við 35 punda lax sem
hann fékk í Noregi í fyrra, þar sem
hann glímdi við nýgenginn tuttugu
punda hæng í Selá í Vopnafirði í
vikunni. Laxinn lét hafa fyrir sér,
veiðimaðurinn þurfti að elta hann
eina 350 metra niður eftir ánni áð-
ur en leiðsögumaðurinn náði að
renna háfnum undir lúsugan stór-
laxinn. Veiðimaðurinn, O’Neil að
nafni, hélt upp á 76 ára afmælið
með þessari æsilegu viðureign. Og
hefur áður náð fleiri stórum í
Vopnafirði á afmælisdaginn. Í Selá
var góð veiði í vikunni en hvergi þó
betri en í Blöndu. Þar höfðu á mið-
vikudagskvöld veiðst 2.264 laxar og
þar af veiddust 625 í síðustu viku á
fjórtán stangir. »16
Eftirminnileg glíma
við stórlax í Selá
á afmælisdaginn
Morgunblaðið/Ásdís
Mæðgin Hilmir er sáttur í fanginu á
móður sinni, Sólnýju Pálsdóttur.
Þegar Sólný Pálsdóttir ljósmyndari
átti fjóra syni og tvær stjúpdætur
kom laumufarþegi sem breytti öllu,
en yngsti sonurinn, Hilmir, er með
Downs-heilkenni. Hún trúir að hann
hafi átt að fæðast og segir innihalds-
ríkt að ala hann upp en viðurkennir
að hafa verið verulega brugðið.
Sólný vill auka vitund í þjóðfélag-
inu um fatlaða.
„Til þess að það verði þarf að auka
fræðslu því við erum oft hrædd við
það sem við þekkjum ekki, eins og
kom í ljós hjá mér þegar ég átti
Hilmi. Ef ég hefði vitað meira um
þetta heilkenni hefði ég ekki haldið
að heimurinn væri að hrynja. Mikið
held ég að lífið væri litlaust og leið-
inlegt ef allir væru eins. Ég get ekki
hugsað mér lífið án Hilmis, ekki
frekar en hinna barnanna minna,“
segir hún.
Í samtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins segir hún lífið fullt
af verkefnum og hún sé þakklát fyrir
að hafa eignast hann. Hún ræðir um
áföllin í lífinu af einlægni, um lífið
með fötluðu barni, um andlegt gjald-
þrot, foreldramissi og þá ákvörðun
að breyta lífi sínu.
Heimurinn hrundi ekki
Á fimm drengi og er sá yngsti með Downs-heilkenni
Samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar höfðu tæp-
lega 23 þúsund bílar farið um Sandskeið og Kjal-
arnes um klukkan átta í gærkvöldi. Gera má ráð
fyrir að flestir þeirra hafi verið á leið frá höfuð-
borginni. Eins og sjá má á mynd sem tekin var á
Vesturlandsvegi seinnipartinn í gær mátti vart
stinga títuprjóni á milli bíla á leið frá borginni,
svo þétt var umferðin. Til borgarinnar var hins
vegar greið leið enda færri að fara í þá átt.
Bílaröð svo langt sem augað eygir
Morgunblaðið/Eggert
Margir voru á leið frá höfuðborginn í gær
Lárus Sigfús-
son, fyrrverandi
bóndi og ráð-
herrabílstjóri,
lætur ekki ald-
urinn stöðva sig,
en hann varð 100
ára í febrúar.
Síðast fóru sögur
af honum í
blaðinu þegar
hann skipti síðasta bílnum út fyrir
rafskutlu. Hann keypti bíl í vikunni
og ekkert er því til fyrirstöðu að
hann leggi aftur út á göturnar,
enda skírteinið klárt sem hann hef-
ur haldið samfleytt í áttatíu ár. »4
Tíræður hætti við að
hætta og keypti bíl
Lárus Sigfússon
Eignir lífeyrissjóðanna hérlendis
hafa vaxið um þriðjung að raunvirði
frá árinu 2008. Þannig hafa eignir
þeirra aldrei mælst meiri en í árslok
2014 þegar þær námu 2.925 milljörð-
um króna. Í árslok 2008 voru eign-
irnar metnar á 1.598 milljarða og
höfðu þá rýrnað töluvert frá fyrra ári
þegar þær námu 1.697 milljörðum
króna.
Starfandi lífeyrissjóðir í landinu
eru 26 og hefur þeim fækkað um einn
frá fyrra ári. Lífeyrissjóður Vestfirð-
inga rann inn í Gildi lífeyrissjóð um
liðin áramót. Stærðarmunur er mikill
milli sjóðanna og þannig halda tveir
stærstu sjóðirnir á rúmlega 1.000
milljörðum. Þá ná samanlagðar heild-
areignir 10 minnstu sjóðanna ekki 5%
af heildarstærð kerfisins.
Ávöxtun eigna sjóðanna gekk vel á
árinu 2014. Raunávöxtun þeirra nam
7,1% að meðaltali. Til samanburðar
nam raunávöxtun þeirra árið á undan
5,3% að meðaltali. Sé litið fimm ár aft-
ur í tímann hefur raunávöxtun sjóð-
anna að meðaltali verið 5,1%. Tíu ára
meðaltalsávöxtun er hinsvegar 2,3%
og þar ræður miklu það mikla högg
sem kerfið tók á sig á árinu 2008. »18
Lífeyriskerfið hefur
vaxið hratt frá hruni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Á fyrri hluta þessa árs keyptu bíla-
leigur 5.321 nýja bifreið og er það
19,2% meira en allt árið í fyrra. Þá
seldust 4.462 nýir bílar til bílaleiga.
Er nú svo komið að bílaleigur kaupa
meirihluta nýrra bíla sem seldir eru
á Íslandi.
Á fyrri hluta ársins seldist 4.151
bifreið á almennum markaði. Árið
2009 seldust 1.909 bifreiðar á al-
mennum markaði, 1.400 árið 2010,
2.966 árið 2011, 4.723 árið 2012 og
4.791 2013.
Úr tölum Hagstofunnar má finna
út samanlagt verðmæti innfluttra
fólksbíla, þ.m.t. bíla með fjórhjóla-
drifi, vöru- og sendibíla, annarra bíla
og fjórhjóla. Verðmæti ökutækja í
þessum fjórum flokkum sem flutt
voru inn árið 2010 var 2.889 milljónir
fyrstu fimm mánuði ársins 2010.
Salan jókst svo í 12.624 milljónir á
þessu tímabili 2014 og jókst svo enn
frekar í 17.823 milljónir á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs. Það þýðir
að innflutningsverðmætið á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs var ríflega
41% meira en sömu mánuði í fyrra.
Bílalaleigurnar stórtækar
Keyptu 5.321 nýjan bíl fyrra hluta ársins 19,2% fleiri bílar en allt árið 2014
Bílaleigurnar hafa keypt mun fleiri bíla en seldust á almennum markaði
MMeirihluti sölunnar »4Morgunblaðið/Kristinn