Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 2

Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Kúba Beint flugmeð Icelandair 23.–30. nóv. Verð frá *á mann í tvíbýli með öllu inniföldu á Melia Varadero hótelinu. Verð án Vildarpunkta 279.900 kr. 269.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar Flogið með Icelandair Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Júlímánuður var mjög kaldur víð- ast hvar á landinu. Sérlega kalt var norðaustan- og austanlands, en hiti nærri meðallagi suðvestanlands. Óvenjuþurrt var um landið norð- vestanvert í mánuðinum. Þetta kemur fram í bráðabirgða- yfirliti Trausta Jónssonar veður- fræðings Meðalhiti í Reykjavík í júlí var 11,4 stig og er það 0,8 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en -0,9 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhit- inn 8,4 stig, -2,1 stigi undir með- allagi áranna 1961 til 1990 en -3,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti júlímánuður á Akureyri síðan 1993. Sérlega þurrt var um landið norðvestanvert. Úrkoma í Stykkis- hólmi mældist ekki nema 5,1 milli- metri. Er það aðeins 12 prósent af meðallagi og hið minnsta í júlí síð- an 1939, litlu meiri úrkoma mæld- ist þó í júlí 1974. Í Reykjavík mældist úrkoman 34,2 millimetrar og er það um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu. Á Akureyri var úr- koman í meðallagi, mældist 32,4 millimetrar Sólarmetið var ekki í hættu Sólskinsstundir voru fleiri en í meðalári í Reykjavík. Sólarmetið í höfuðborginni var langt í frá í hættu – hátt í 100 stundir vantaði í það. Sólarstundir á Akureyri voru langt undir meðallagi, segir Trausti. sisi@mbl.is Kaldur júlí hefir kvatt  Kaldasti júlí á Akureyri í 22 ár  Lítið rigndi í Hólminum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Kappklæddir ferðamenn settu svip sinn á bæinn í júlí. Alcan hefur sótt um undanþágu Yfirvinnubann starfsmanna í ál- veri Rio Tinto Alcan í Straums- vík hófst á mið- nætti. Ólafur Teitur Guðnason, talsmaður Alcan, segir að sótt hafi verið um undan- þágu til þess að bregðast við því ef einhver frávik verða í starfseminni. „Við höfum sótt um undanþágu til að bregðast við ef við sjáum að miklar truflanir verði. Það fer því svolítið eftir því hvernig reksturinn gengur hver áhrifin af yf- irvinnubanninu verða,“ segir Ólafur. Að sögn hans geta komið upp tafir í framleiðslunni og bilun sem erfitt er að gera við svo dæmi séu nefnd. Í slíkum tilfellum þyrfti að geta kallað til starfsfólk til að sinna verkefnum. Yfirvinnubannið nær til allra al- mennra starfsmanna álversins, en ekki til verkstjóra, sérfræðinga og millistjórnenda. Að sögn hans voru verkalýðsfélögin enn að skilgreina aðstæður þar sem undanþága væri leyfileg og því ekki búið að taka af- stöðu til undanþágubeiðni fyrirtæk- isins í gærkvöldi. Næsti fundur í kjaradeilunni er á þriðjudaginn. vidar@mbl.is Straumsvík Yfir- vinnubann hafið.  Yfirvinnubann hófst á miðnætti Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Grafið hefur verið óslitið í Vaðlaheiðargöng- um síðan gröftur hófst aftur seint í maí síð- astliðinn. Aðeins er grafið Eyjafjarðarmegin og gengur gröfturinn býsna hægt en heita vatnið sem er að finna í sprungum fjallsins orsakar það að mikil vinna þarf að fara fram við bergþéttingar í göngunum sem er tíma- frekt verk. Ákveðið var að bergþétta frekar meira heldur en að taka áhættu á því að heita vatnið færi að leka á nýjan leik. Búist er við að slíkar varúðarráðstafanir muni flýta fyrir vatns- klæðningarvinnu á seinni stigum verksins að sögn Valgeirs Bergmann, framkvæmdastjóra Vaðlaheiðarganga hf. Fnjóskadalsmegin í göngunum er enn töluvert vatnsstreymi þó að það dragi jafnt og þétt úr því. Valgeir segir að verið sé að undirbúa og skipuleggja hvernig skuli takast á við það verkefni. Tvær leiðir eru til skoðunar Uppi eru tvær meginsviðsmyndir, annars vegar sú að vatninu sé dælt út Fnjóskadals- megin, annar bor fenginn og göngin verði kláruð með tvö borgengi. Hins vegar að halda áfram og ljúka við göngin með einu borgengi Eyjafjarðarmegin en það gæti tafið verkið að einhverju leyti. Endanleg ákvörðun verður tekin í haust um hvaða leið skuli fara en m.a. þarf að hafa samráð við fjárlaganefnd Alþing- is um fjárhagshliðina. Allt lítur út fyrir að göngin muni fara a.m.k. 1.500 milljónum fram úr kostnaðaráætlun. Það sem af er af sumri hefur verið grafið um 23,8 metra að meðaltali á viku hverri. Til samanburðar hefur tekist að grafa allt að 81,5 metra á viku í sumar í Norðfjarðargöngum en að meðaltali um 65,6 metra í sumar. Þar hefur nánast ekki dropi af vatni orðið á vegi verk- takanna að sögn Gísla Eiríkssonar, forstöðu- manns jarðgangadeildar Vegagerðarinnar, þó að öll göng hafi sín vandamál og áskoranir. Búist er við gegnumbroti í Norðfjarðargöng- um í september og að þau verði tilbúin til notkunar sumarið 2017. Gengur hægt í Vaðlaheiðinni  Næstum þrisvar sinnum meiri yfirferð er í Norðfjarðargöngum  Ákvörðun tekin í haust um hvað verður gert Fnjóskadalsmegin  Gegnumbrot í Norðfjarðargöngum í september Ljósmynd/Valgeir Bergmann Vaðlaheiðargöng Gangagröfturinn hefur gengið hægt í sumar í Vaðlaheiðinni. Opnuð hafa verið tilboð í endurlögn 6,7 kílómetra kafla Kjósarskarðs- vegar frá Fremri-Hálsi að Þingvalla- vegi. Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægsta tilboðið barst frá Þrótti hf. á Akranesi, rúmlega 214 milljónir króna. Hæsta tilboðið var frá Ístaki- Ísland, rúmar 287 milljónir. Áætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 215 milljónir króna. Ríkisstjórnin ákvað fyrr á árinu að verja 1,8 milljörðum króna til brýnna framkvæmda á vegakerfinu. Lengi hafi staðið til að hrinda sumum þess- ara verkefna í framkvæmd, en þeim ítrekað verið frestað. Tilgangurinn var að auka umferðaröryggi, bregð- ast við slæmu ástandi vega og koma til móts við þarfir landsmanna og ferðamanna vegna stóraukinnar um- ferðar. Kjósarskarðsvegur tengir Þingvelli við Hvalfjörð og Vestur- land. Á vefsíðu innanríkisráðuneyt- isins segir að endurbygging vegarins hafi lengi verið brýn og vegna fjár- veitingarinnar verði hægt að flýta henni um eitt ár frá því sem áður var áætlað. Með uppbyggingunni sé hægt að dreifa betur álagi vegna ferða- manna. Þá muni vegurinn þjóna bet- ur byggð á svæðinu, en byggð í Kjós- inni hefur aukist talsvert undanfarin ár. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2016. sisi@mbl.is Lægsta tilboðið 214 milljónir  Kjósarskarðs- vegur endurbættur Andamanna í Vesturbænum var á ferð eftir Garða- stræti í átt að Tjörninni. Var hún með átta unga í eftir- dragi ásamt fylgdarliði sem sá til þess að fjölskyldan kæmist á leiðarenda. Fylgdarliðið virðist yfir sig hrifið af fjölskyldunni sem lætur sér fátt um finnast þar sem hún fetar sig eftir malbikinu. Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson Andamamma leiðir hópinn sinn Fylgdarlið sá til þess að andafjölskylda kæmist á leiðarenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.