Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
Árni Páll Árnason glímir viðrisavaxinn vanda í eigin
flokki. Vandinn fer ekki mjög leynt
þó að Árni Páll neiti honum opin-
berlega.
En viðbrögð eins-atkvæðisfor-
mannsins við vand-
anum koma á óvart.
Hann hefur ekki,
eins og ýmsir aðrir
heittrúaðir Evrópu-
sambandssinnar,
reynt að draga úr
ástarjátningum til evrunnar og
ESB. Þvert á móti ritar hann nú
greinaflokk þar sem ástarjátning-
arnar eru ítrekaðar strax í upphafi.
Árni Páll fjallar um vandaGrikklands og evrusvæðisins,
viðurkennir að hann sé „mikill og
margþættur, en hann stafar á eng-
an hátt af aðild Grikklands að
ESB“.
Hann bætir við: „Sumir gangasvo langt að telja vandann
dauðadóm yfir evrópskri samvinnu
og að í honum felist áfellisdómur
yfir þeim hér á landi sem horft hafa
til aðildar að Evrópusambandinu
sem kosts fyrir íslenska þjóð. Fátt
er fjær sanni.“
Og svo hefst sama talið og áðurum hve gölluð krónan sé og
hve nauðsynlegt Íslendingum sé að
taka upp evruna og komast þannig
undir stjórn seðlabanka hennar og
Brussel.
Stefnufesta er í sjálfu sér góð.Þegar allar forsendur stefn-
unnar hrynja hlýtur þó að mega
ætlast til þess að menn endurmeti
hana. En þó að þessi þrákelkni sé
gagnrýniverð, er að minnsta kosti
virðingarvert að Árni Páll skuli
upplýsa kjósendur um að hann hafi
ekkert lært og engu gleymt.
Árni Páll
Árnason
Ekkert lært og
engu gleymt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 31.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 9 alskýjað
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 20 heiðskírt
Dublin 16 skýjað
Glasgow 12 skúrir
London 21 heiðskírt
París 22 heiðskírt
Amsterdam 18 heiðskírt
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 31 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 31 léttskýjað
Aþena 31 léttskýjað
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 23 skýjað
New York 30 heiðskírt
Chicago 28 léttskýjað
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:35 22:34
ÍSAFJÖRÐUR 4:18 23:01
SIGLUFJÖRÐUR 3:59 22:45
DJÚPIVOGUR 3:59 22:09
„Við hringdum í alla fyrirliðana í
dag og þeir voru mjög ánægðir með
þetta fyrirkomulag,“ segir Jón Páll
Hreinsson einn skipuleggjenda
Evrópumeistaramótsins í mýrar-
bolta en mótinu hefur verið frestað
fram á sunnudag. Spár gera ráð
fyrir að kuldabylgja muni ganga
yfir á Ísafirði í dag og það muni
rigna duglega. Á sunnudaginn
muni sú gula hins vegar skína
skært. Ráðlegra þótti því að breyta
skipulaginu og láta allt mótið fara
fram á sunnudaginn. Viðmælandi
Morgunblaðsins á Ísafirði segir að
tjaldbúar hafi í gærkvöldi leitað
skjóls hjá íbúum bæjarins og ein-
hverjir m.a. fengið að tjalda í bíl-
skúrum. Í stað mýrarboltans verð-
ur í dag haldið svokallað Ullar-
sokkarisaboltamót í íþróttahúsinu í
Bolungarvík. Isak@mbl.is
Frestuðu
mýrarbolta
Morgunblaðið/Eva Björk
Mýrarbolti Keppendur verða að
bíða í einn dag eftir drullunni.
„Það er skiljanlegt að fólk reyni að
stækka sín hús en okkur finnst það
ósanngjarnt að nágrannar séu að
passa upp á götumyndina, en ekki
kjörnir fulltrúar eða Minjastofnun,“
segir Ragnhildur Zoëga, íbúi í Sjafn-
argötu 5.
Við hliðina á húsi Ragnhildar, í
húsi númer 3, hafa staðið yfir fram-
kvæmdir að undanförnu. Í fyrra-
haust samþykkti skipulagssvið
Reykjavíkurborgar að leyfa þar
steinsteypta viðbyggingu með þak-
svölum og verönd.
Að sögn þeirra íbúa sem Morgun-
blaðið hefur rætt við voru gerðar at-
hugasemdir við grenndarkynningu á
sínum tíma, en þær voru ekki teknar
til greina. Hafa íbúarnir nú stofnað
íbúasamtök vegna framkvæmdanna
en yfir 30 manns eru félagar í sam-
tökunum sem kenna sig við Sjafn-
argötu og Freyjugötu. Samtökin
hafa sent borgaryfirvöldum athuga-
semdir og krafist deiluskipulags
fyrir hverfið en húseigendur
Sjafnargötu 3 hafa óskað eftir frek-
ari stækkun á húsinu, þó þannig að
hún sjáist ekki frá götunni. Ragn-
hildur segir að hún hafi ekki gert ráð
fyrir því að borgaryfirvöld og Minja-
stofnun myndu samþykkja beiðni
eigenda hússins númer 3 á sínum
tíma, því stækkun hússins geri það
að verkum að götumyndin breytist
og húsið sé nú úr samhengi við önn-
ur hús götunnar vegna risastórra
svala.
Þó segir hún að svalir sé einnig að
finna á húsinu við Sjafnargötu 11 og
þar hafa staðið yfir framkvæmdir í
nokkur ár. ash@mbl.is
Samtök stofnuð gegn viðbyggingu
Morgunblaðið/Baldur Arnarson
Sjafnargata 3 Íbúar segja að götu-
mynd breytist með viðbyggingu.