Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 11

Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 11
Morgunblaðið/Kristín Heiða Trukkurinn Fanndal Hann heitir eftir föður Jónasar, Skafta Fanndal Jónassyni, og er klár til fleiri ferðalaga. Byrjaði með pensilstroku Gestir Jónasar koma frá öllum heimshornum, eins og sjá má inni á kaffihúsinu þar sem þeir hafa málað nöfn sín og heimalönd á veggina: Ástralía, Rússland, Indland, Afríka, Mexíkó, Brasilía, Færeyjar, Ame- ríka, Katalónía, Króatía, Frakkland, Qubek og ótal fleiri lönd. „Þessar myndskreytingar byrj- uðu á því að ein afastelpan mín var hér hjá mér og ég átti afgangs máln- ingu og við fórum með pensil eftir veggnum. En svo hefur þetta þróast smátt og smátt og sífellt bætast við myndir svo það er ekki mikið pláss eftir á veggjunum. Sumir gestirnir eru mikið listafólk, til dæmis sú sem málaði hreindýrið og fuglana fljúg- andi, það er hún Ósk Vilhjálmsdóttir. Afar flink frönsk stelpa málaði sjáv- ardýrin. Þetta gerir kaffihúsið per- sónulegt og sérstakt,“ segir Jónas og bætir við að hann hafi gaman af því að kynnast fólki frá ólíkum löndum og þeim verði oft vel til vina. „Fólk spjallar og hefur líka gaman af kettinum mínum henni Bellu, við þurfum oft að stilla okkur upp fyrir myndatöku. Hingað koma bæði erlendir og íslenskir gestir á öllum aldri og af báðum kynjum. Út- lendingarnir eiga ekki orð yfir nátt- úrufegurðina á Íslandi.“ Frumstæðar aðstæður og kamarinn var aftan á Jónas hefur til margra ára starf- að með ferðamönnum, hann byrjaði árið 1986 að keyra útlendinga í lang- ferðir um hálendið og var til margra ára í því starfi. „Ég var alltaf á mínum bílum með þessa hópa, á trukkinum Fann- dal og rútunni Sólu, þó ferðirnar væru á vegum Arena og Úlfars Jak- obsen. Á þessum upphafsárum slíkra ferða voru þetta frumstæðar að- stæður, það voru eldhúsbílar með í för og kamarinn var aftan á. Hver ferð gat verið í hálfan mánuð og stundum þrjár vikur. Þetta voru mest Þjóðverjar og Frakkar og gríð- arlega skemmtilegar ferðir. Ég var í þessu allt þar til fyrir fjórum árum, þegar ég fór í síðustu ferðina, en það var einkaferð með danska vini mína.“ Fanndal og Sóla eru enn í góðu lagi og gangfærar bifreiðar, en Sóla fékk nafn sitt frá fyrsta leiðsögu- manni Jónasar. „Trukkurinn hefur enn hlutverk hér á gistiheimilinu, því þegar marg- ir gista þá er oft þröngt í eldhúsinu og þá opna ég trukkinn fyrir fólki svo það geti notað eldhúsið sem er inni í honum.“ Hefur haft tíu ráðskonur Jónas ætlar að halda áfram með kaffihúsið og gistinguna þó hann sé orðinn 74 ára, enda gengur vel og hann fær hjálp frá sínum nánustu þegar mest er að gera. Hann hefur lifað ævintýrlegu lífi, er fjórgiftur og á samtals sjö börn. „Ég lenti í þeirri lífsreynslu að verða einstæður faðir með þrjú elstu börnin mín þegar þau voru mjög ung, því þáverandi kona mín sneri sér að öðru. Elsta barnið var ekki nema fjögurra ára og þá byrjaði svo- lítið basl hjá mér, ég þurfti að vinna fyrir heimilinu og börnunum og varð að ráða til mín ráðskonur. Ég ól börnin mín upp með þessum ráðs- konum sem urðu tíu talsins yfir margra ára tímabil og ég eignaðist fjögur börn í viðbót. Þetta gekk ótrú- lega vel því það þekktist ekki um miðjan sjöunda áratuginn að feður tækju börnin að sér við viðskilnað hjóna. Ég fór á vertíðir til Grindavík- ur, sigldi á bát frá Skagaströnd og skildi ráðskonuna eftir hjá börn- unum mínum, ég var með hrikalegar áhyggjur af þeim, það var erfitt að fara frá þeim svona lengi, ég var ekki nema 25 ára. Enda gránaði ég snemma, hef verið gráhærður undanfarin 40 ár. “ Jónas var í siglingum um tíma og kom við í Grimsby, Rotterdam og Danmörku, og segir það hafa verið dásamleg ár. Hann prófaði að búa í Sandgerði og um tíma í Þorlákshöfn en síðan sneri hann aftur heim á Skagaströnd. „Árið 1982 flutti ég svo hingað á Blönduós. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er og það hefur verið gam- an að þessu, ég er sáttur við mitt lífs- hlaup, þó skipst hafi á skin og skúrir, eins og gengur.“ Tók lagið Jónas spilaði Tvær úr Tungunum fyrir blaðamanninn. Ljón norðursins Leó Árnason Sérstakur maður sem fór sínar eigin leiðir. Fyrir þá sem vilja gista hjá Jón- asi á Blöndubóli er heimasíðan: www.osinn.is og síminn er 464 3455 og 892 3455 DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Ekki kæra sig allir um að fara í úti- legu eða vera í miklum fólksfjölda þó svo að hin víðfræga verslunarmanna- helgi sé skollin á með miklum þunga. Sumir vilja hafa það notalegt í róleg- heitum þegar löng fríhelgi er fram- undan og þá er margt sem hægt er að gera sér til dundurs. Sumir leggjast í bóklestur eða bíómyndagláp á meðan aðrir kjósa að hekla, prjóna eða föndra. Eitt af því sem gaman er að gera saman í góðra vina hópi er að spila, hvort sem það eru gömlu góðu spilin með háspilum og lágspilum eða einhver borðspil. Mörg borðspil bjóða upp á mikið sprell, fyrir þá sem vilja hamast og skemmta sér við spilamennskuna, til dæmis þegar leika á orð eða eitthvað í þeim dúr. Skrafl er einstaklega skemmtilegt borðspil fyrir tvo eða fleiri, þar sem reynir á hugmyndaauðgi í orðasmíð. Fyrir þá sem eru einir er hægt að spila netskrafl, fara þá á vefsíðuna netskrafl.is og skemmta sér með því að spila ýmist við tölvu eða aðra leik- menn. Leikreglurnar eru hinar sömu og í hefðbundnu borðskrafli. Skraflað, heklað, lesið og spilað Morgunblaðið/Kristinn Orðaleikur Það er ótrúlega gaman að keppast um að smíða orð í skrafli. Margt er hægt að gera annað en að fara í útilegu um helgina ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Réttu tækin fyrir verktaka Wacker Neuson Beltavagnar upp í 3 tonn og hjólavagnar (dumperar) upp í 10 tonn. Allt sem viðkemur jarðvegsvinnu. Wacker Neuson Smágröfur og beltagröfur frá 800 kg upp í 15 tonn. Hjólagröfur upp í 10 tonn. Erummeð sýningarvélar í sýningarsal okkar að Krókhálsi 16 í Reykjavík. Kíkið við - sjón er sögu ríkari!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.