Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 16

Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ég hef aldrei misst lax svona langt niður í baklínu,“ sagði ástralski stangveiðimaðurinn Graham O’Neil undrandi þar sem hann hljóp móður eftir grýttum bakka Selár í Vopna- firði fyrr í vikunni. Löng tvíhendan í höndum hans sveigðist í átt til hafs og línan dróst enn af miklum krafti út af hjólinu. Á hinum enda hennar var lax sem enn hafði ekki sýnt sig, án efa stór. Sveinn Björnsson leið- sögumaður var jafnhliða laxinum og reiðubúinn að vaða út í strauminn ef þyrfti að losa línuna af grjóti. Þegar laxinn hægði á sér eftir um 250 metra langa roku, náði O’Neil að vinna línu inn á hjólið. „Í fyrra landaði ég 35 punda laxi í Alta-ánni í Noregi – þessi er miklu erfiðari,“ sagði hann undrandi. Þetta var afmælisdagur veiði- mannsins, hann varð 76 ára og hélt að vanda upp á hann við veiðar í Selá. Hann átti neðsta svæðið þenn- an morgun og var skiljanlega spenntur, lax var að ganga af krafti. Han byrjaði að kasta í Narra, lítinn streng neðan við brúna á þjóðveg- inum, en hann er gjöfull á þessum tíma; laxinn virðist hinkra þar á göngunni upp ána eftir að hafa rennt sér upp straumharðar grynn- ingar. „Ég trúi ekki að staðurinn sé fisk- laus,“ sagði O’Neil undrandi eftir allmörg köst og gætti vonbrigða í rómnum. En í næsta kasti tók hann. Rek línunnar hætti, veiðimaðurinn lyfti stönginni, fiskurinn fann fyrir spennunni en rauk síðan fyrir- varalaust af stað niður úr þessum litla hyl. Og O’Neil fann að ekki var um neinn smálax að ræða. Enda þurfti hann að hlaupa og út af hjól- inu rann lengri baklína en nokkru sinni á löngum veiðmannsferli. Sá stærsti í sumar „Reynum að háfa hann hérna,“ sagði O’Neill við Svein þar sem lax- inn safnaði kröftum fyrir framan klapparsker í ánni. Allir móðir eftir hlaupin. Sveinn var til í að reyna, þótt þar væri grunnt, og veiðimað- urinn fór að reyna að mjaka laxinum nær. En sá var ekki til í að gefa sig og brunaði af stað, þvert yfir ána, og ætlaði sýnilega niður handan skers- ins. Sveinn sá í hvað stefndi, vissi að þá gæti taumurinn skorist, óð út á klettinn, greip línuna og lét hana renna milli vísifingurs og löngutang- ar sem hann hélt hátt á loft. Sigur- merkið á lofti – of snemma. Enn héldu hlaupin áfram, um 100 metra til, og þá tókst veiðimann- inum smám saman að ná valdi á fiskinum og lempa hann inn í lygnu við næsta veiðistað, Bleikjupoll. „Þetta er meiri krafturinn,“ sagði O’Neil þar sem hann mjakaði fisk- inum í átt að Sveini sem beiti reynslu við að koma honum í háfinn. „Hvað haldið þið að hann sé lang- ur?“ spurði hann. Málbandið eitt gat dæmt um það og fékk blaðamaður að halda í annan endann. „100 cm!“ sagði Sveinn síðan eftir að allir höfðu rýnt á það. „Tuttugu pund samkvæmt kvarðanum, sá stærsti úr Selá í sumar.“ En án efa þyngri, þessi gríðarþykki nýrenningur. „Til hamingju með afmælið,“ sagði Sveinn þar sem O’Neil stillti sér upp með þungan laxinn fyrir mynd. „Þetta er að verða hefð.“ „Hvað þá?“ spyr blaðamaður. „Á afmælinu í fyrra fékk hann enn stærri fisk, 102 cm langan.“ Ekki amalegar afmælisgjafir það. 100 sentimetra afmælislax  Veiðimaður fær að hlaupa eftir öflugum nýrenningi  Kröftugar laxagöngur í Selá þessa dagana Morgunblaðið/Einar Falur Sporðaköst Veiðimaðurinn tekur á því og laxinn færist með sporðaköstum nær háfi Sveins Björnssonar. Hann tók við þjóðvegarbrúna í fjarska. Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is* Tölur liggja ekki fyrir Blanda (14) Miðfjarðará (10) Norðurá (15) Ytri-Rangá & Hólsá (20) Þverá-Kjarrá (14) Langá (12) Haffjarðará (6) Laxá á Ásum (12) Grímsá og Tunguá (18) Eystri-Rangá (8) Hítará (8) Laxá í Kjós (18) Laxá í Aðaldal (6) Víðidalsá (8) Elliðaárnar (6) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Á sama tíma í fyrra Á sama tíma 2013 Staðan 29. júlí 2015 1388 639 670 534 747 190 490 454 245 877 233 285 407 260 327 1929 1552 2450 1317 2107 1392 1370 561 864 1170 * 560 457 370 792 2263 1883 1880 1685 1241 1216 916 620 580 556 546 534 492 478 442 Vænn „Ég hef aldrei þurft að hafa jafn mikið fyrir laxi,“ sagði Graham O’Neil um þennan hrausta og grálúsunga 100 cm nýrenning. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ökumaður vöruflutningabifreiðarinnar sem valt í Ártúnsbrekku síðastliðinn laugardag, hafði ekki ökuréttindi til að stjórna henni. Bifreiðin sem um ræðir er vörubifreið með festivagni en til þess að aka slíkri bifreið þarf meirapróf. Ökumaðurinn var fæddur árið 1995 og hafði hefðbundin ökuréttindi, en til að öðlast meiraprófið þarf ökumaður að vera orðinn 21 árs. Ökumaður vöruflutn- ingabifreiðarinnar hafði því heldur ekki ald- ur til að öðlast meirapróf. Óhappið varð þegar bílstjórinn kom úr beygju af Reykjanesbraut á Vesturlandsveg við Ártúnsbrekku. Kvaðst hann hafa verið á lítilli ferð og ekki vitað fyrr en bifreiðin var komin á hliðina á miðjum Vesturlandsveg- inum. Bílstjórinn hlaut minniháttar meiðsl við slysið en var fluttur á slysadeild til aðhlynn- ingar. Kenndi hann sér eymsla í mjöðm og á höfði. Ártúnsbrekku lokað í þrjá tíma Miklar umferðartafir urðu í nágrenni Ár- túnsbrekkunnar, en margir lögðu leið sína út úr bænum á níunda tímanum, þegar óhappið varð. Mestar urðu tafirnar á Breið- holtsbraut, Stekkjarbakka og upp að Suður- landsvegi. Ártúnsbrekka var lokuð fyrir um- ferð til austurs í þrjár klukkustundir á meðan bifreiðinni var komið á réttan kjöl og tildrög óhappsins voru rannsökuð. Umfangs- mikið hreinsunarstarf fór fram, en bifreiðin flutti talsvert magn af möl sem dreifðist yfir veginn. Áætlanir Strætó riðluðust einnig, en margir strætisvagnar aka um Ártúns- brekku. Ökumaðurinn var ekki með meirapróf  Ökumaður flutningabifreiðarinnar sem valt er fæddur árið 1995  Hlaut minniháttar meiðsl Morgunblaðið/Árni Sæberg Ártúnsbrekka Möl úr flutningabílnum dreifðist um Ártúnsbrekku, en hún var lokuð í um þrjár klukkustundir á meðan hreinsunarstarf fór fram. Miklar umferðartafir urðu í höfuðborginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.