Morgunblaðið - 01.08.2015, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Gullhálsmen
Handsmíðað 14K, 2 iscon
26.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Gullhringur
Handsmíðaður 14K, 2 iscon
45.700,-
Morgungjafir í miklu úrvali
!"#
!$
"#
$$
""$
!#$
#%"
%"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!
!##
! %$
"%!#
$$%
"%
!%#
##
%!"
!"
!!$
"%
"
$"
"$
!#
#%%
%$
!$ $
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Halli var á vöruskiptum Íslands við
útlönd um 5,9 milljarða króna á fyrri
árshelmingi, reiknað á fob-verðmæti,
samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Ís-
lands. Á fyrri helmingi síðasta árs voru
vöruskiptin óhagstæð um 9,8 milljarða.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 3,9 millj-
örðum króna hagstæðari á fyrstu sex
mánuðum þessa árs en í fyrra, reiknað
að gengi hvors árs.
Frá janúar til júní voru fluttar út vörur
fyrir rúma 332,4 milljarða króna sem er
61,3 milljörðum eða 22,6% hærra en á
sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur
voru 54,0% alls útflutnings og var verð-
mæti þeirra 29,9% hærra en á sama
tíma árið áður, aðallega vegna útflutn-
ings á áli. Sjávarafurðir voru 42,1%
vöruútflutnings og var verðmæti þeirra
23,2% hærra en á sama tíma árið áður,
einkum vegna útflutnings á fiskimjöli.
Vöruskipti 4 milljörðum
betri á fyrri árshelmingi
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ávöxtun eigna lífeyrissjóðanna á
árinu 2014 gekk vel og nam meðal-
tals raunávöxtun þeirra 8,7%. Eignir
þeirra jukust um 264 milljarða milli
ára. Í árslok 2014 námu eignir þeirra
2.925 milljörðum króna. Sé litið til
eignastöðu sjóðanna í árslok 2008
höfðu eignir þeirra aukist um 83% í
krónum talið þegar árið 2014 var á
enda runnið. Í árslok 2008 námu
eignir sjóðanna 1.598 milljörðum en
hæst höfðu þeir farið fram að því árið
2007 og námu þá 1.697 milljörðum.
Séu eignirnar hins vegar færðar á
fast verðlag nemur hækkunin á þess-
um sjö árum 33,7%.
Bestum árangri á árinu 2014 náði
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitar-
félaga en eignir sjóðsins jukust um
13,4% á árinu. Fast á hæla hans
komu svo Lífsverk lífeyrissjóður
með 12,3% aukningu og Lífeyris-
sjóður verslunarmanna (LV) en
eignir hans jukust um 12,2% á árinu.
Að meðaltali jukust eignir sjóðanna
um slétt 10% á árinu 2014.
Stærðarmunur og samþjöppun
Mikil samþjöppun hefur orðið á
vettvangi lífeyrissjóðanna á síðustu
árum. Frá árinu 2008 hefur þeim
fækkað um 11. Í lok þess árs voru
þeir 37 en eftir að Lífeyrissjóður
Vestfirðinga rann inn í Gildi í árs-
byrjun 2015 eru þeir orðnir 26 tals-
ins. Þeim hefur því fækkað um tæp-
lega 30% á síðustu átta árum.
Mikill stærðarmunur er á sjóðun-
um. Þannig hafa tveir stærstu sjóð-
irnir í vörslu sinni ríflega 1.000 millj-
arða en það svarar til tæplega 36% af
heildarstærð kerfisins. Það eru Líf-
eyrissjóður starfsmanna ríkisins og
LV. Eignir tíu minnstu sjóðanna,
samanlagt, ná hins vegar ekki 10% af
heildarstærð kerfisins. Langminnst-
ur þeirra er Eftirlaunasjóður starfs-
manna Útvegsbanka Íslands með
24,3 milljónir í hreina eign en þar á
eftir kemur Eftirlaunasjóður
Reykjanesbæjar en hrein eign hans
nemur 3,7 milljörðum króna.
Af sjóðunum 26 er 21 sjóður sem
ekki nýtur sérstakrar ábyrgðar
launagreiðanda og getur því aðeins
byggt greiðslur sínar til uppfyllingar
réttinda á eignum sínum og ávöxtun.
Í árslok 2014 voru 7 þessara sjóða
með jákvæða tryggingafræðilega
stöðu eða jafn margir og á árinu
2013. Hins vegar hafði þeim sjóðum
sem höfðu neikvæða stöðu sem nam
5-10% fækkað úr 3 í 1. Eftir það eru
14 sjóðir sem eru með neikvæða
stöðu sem nemur allt að 5% halla.
Þeir sjóðir sem hafa bakábyrgð
ríkis og sveitarfélaga búa hins vegar
við mikinn halla og nam hann í árslok
2014 réttum 623 milljörðum króna.
Eignir lífeyrissjóða hafa aukist
um þriðjung frá bankahruni
Heildareignir íslenskra lífeyrissjóða
Á verðlagi hvers árs í milljörðum kr.
Heimild: Fjármálaeftirlitið
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
0
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
1.
69
7
1.
59
8
1.
77
5
1.
91
0
2.
0
98 2
.3
95 2
.6
61 2.
92
5
Sjóðunum hefur fækkað um 30% frá árinu 2008 26 sjóðir starfandi í landinu
Eignir sjóðanna
» Verðbréf með ríkisábyrgð
eru 36% eigna sjóðanna.
» Sjóðirnir hafa fjárfest 31%
eigna sinna í hlutabréfum.
» 8% af eignum sjóðanna
voru í innlánum.
» Fasteignaveðtryggð skulda-
bréf eru 7% af eignasafninu.
» Hlutdeildarskírteini eru 6%
af eignum sjóðanna.
» 6% af eignum sjóðanna eru
skilgreindar sem önnur verð-
bréf.
Nýjar tölur um verðbólgu í evruríkj-
unum ollu töluverðum vonbrigðum í
gær og benda til þess að enn sé
hætta á verðhjöðnun á svæðinu.
Verðbólga reyndist 0,2% í júlí í evru-
ríkjunum nítján samkvæmt tölum
evrópsku hagstofunnar Eurostat, en
verðbólgumarkmið Evrópska seðla-
bankans er um 2,0%. Lítil verðbólga
kom markaðsgreinendum ekki á
óvart en hún veldur áhyggjum í ljósi
þeirra umfangsmiklu aðgerða sem
Evrópski seðlabankinn kynnti fyrr á
árinu til þess að örva efnahagslífið og
auka verðbólgu.
Undirliggjandi verðbólga, án
orkuverðs og annarra sveiflu-
kenndra þátta, var hins vegar 1,0%
og jókst um 0,2% frá fyrri mánuði,
einkum vegna þess að veikari evra
hefur stuðlað að lækkandi verði í
ýmsum vöruflokkum. Verðfall á olíu
og öðrum orkugjöfum um 5,6% í júlí
hélt hins vegar verðbólgunni nánast
við núllið.
Eurostat greindi einnig frá því að
atvinnuleysi á evrusvæðinu hefði
verið 11,1% í júní og hélst óbreytt á
milli mánaða. Atvinnuleysi í júní-
mánuði í fyrra var 11,6% svo breyt-
ingin á milli ára er óveruleg.
Evrópski seðlabankinn kynnti í
mars umfangsmestu örvunaraðgerð-
ir sem ráðist hefur verið í, þegar
greint var frá því að bankinn hygðist
dæla um þúsund milljörðum evra inn
í fjármálakerfi evrusvæðisins með
magnkaupum á skuldabréfum með
svokallaðri magnbundinni íhlutun.
Markmið þeirrar aðgerðar er fyrst
og fremst það að koma í veg fyrir
vítahring verðhjöðnunar sem hvetur
neytendur til þess að fresta kaupum
í von um lækkandi verð og dregur
þannig úr neyslu og eykur atvinnu-
leysi.
AFP
Evrusvæðið Lækkun olíuverðs dregur úr áhrifum íhlutunar seðlabankans.
Óttast verðhjöðn-
un á evrusvæðinu
Enn gætir lítið áhrifa magnaðgerða