Morgunblaðið - 01.08.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.08.2015, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín - góð næring fyrir dýrin þín - Ekkert hveiti, soja eða maís Engin erfðabreytt matvæliEngin aukaefni Enginn sykur eða mjólkurafurðir 2.054. - kr. Verð fr á REGAL hunda- og kattafóður AMH | Akranesi | Sími 431-2019 Það er ekki óalgengt þegarsetið er að tafli og óveð-urskýin hrannast upp fyrirfram kóngsstöðuna að á menn sæki löngun til að flýja vett- vang. Frægt dæmi um slíkan flótta má finna í viðureign Inga R. Jó- hannssonar við Vlastimil Hort á Ól- ympíumótinu í Lugano í Sviss árið 1968. Ingi Randver kallaði nú ekki allt ömmu sína en þegar peðastorm- sveit tékkneska stórmeistarans var að nálgast kónginn sá hann þann kost vænstan að flýja með hann yfir á drottningarvænginn. Þar var skjól betra og Ingi vann að lokum! Færri dæmi finnast um það er kóngurinn flanar beinustu leið inn í herbúðir andstæðingsins. Byrj- endum er kennt að það kunni ekki góðri lukku að stýra. Um daginn sátu að tafli á stórmótinu í Biel í Sviss, þar sem Frakkinn Vachier LaGrave sigraði, Tékkinn David Navara og Pólverjinn Radoslaw Wojtazek. Kóngur Navara lagði upp í ferðalag inn fyrir víggirðingu svarts - lóðbeint frá f2 til f8. Fæstir áttu von á því að kóngsi slyppi það- an. En Navara hélt ró sinni. Hann hafði séð fyrir að þetta var eina leið- in til að halda vinningsmöguleikum vakandi, hafði nokkur tromp á hendi t.d. riddara tvo sem þvældust fyrir sóknaraðgerðum svarts. En kannski ríkti eitthvert ógnarjafnvægi í stöð- unni. Skákreiknar gátu a.m.k. ekki fundið neinn vinning fyrir Pólverj- ann en sennilega átti hann jafntefli. Erfiðustu miðtaflsstöðurnar eru þær þegar staðan á borðinu verður teflendum slík ráðgáta að ekki er hægt að styðjast við nein þekkt kennileiti og það sem verra er: út- reikningar leiða ekki til neinnar nið- urstöðu. Biel 2015; David Navara – Wojtazek Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. h3 Nýr snúningur í stöðunni. „Enska árásin“ hefst með leiknum 8. f3. 8. … Be7 9. g4 d5 10. exd5 Rxd5 11. Bg2 Rxe3 Annar kostur var 12. … Rxc3 en eftir 13. Dxd8+ Bxd8 14. bxc3 vega áhrif biskupsins á g2 upp veikleik- ana í peðastöðunni. 12. Dxd8+ Bxd8 13. fxe3 Bh4+ 14. Kf1 Rc6 15. Rc5 Bc4 16. Kg1 O- O-O 17. b3 Hvítur hafði greinilega bundið vonir sínar við þennan leik. Hörfi biskupinn til e6 kemur 18. Rxe6 fxe6 19. Bxc6! bxc6 20. Re4 með yfir- burðastöðu. 17. … Bg5 18. He1 Bh4 19. Hb1 Bg5 20. Kf2!? Bh4+ 21. Kf3!? Eftir þetta verður ekki aftur snú- ið. 21. … e4+! 22. Kf4 g5 23. Kf5 Hhe8 24. Hhd1 Eini leikurinn. Ekki dugar 24. bxc4 vegna 24. … Hd6! sem hótar 25. He5 mát. 24. … He5+ 25. Kf6 Hg8 26. bxc4 Hg6+ 27. Kxf7 He7+ 28. Kf8 Ótrúleg staða. Hér mæla „skák- reiknarnir“ með 28. … Heg7 29. Re6! Hg8+ 30. Kf7 Re5+ 31. Ke7 Rc6+ en hvítur getur þá gefið manninn til baka og leikið 32. Kd6. 28. … Hf6+ 29. Kg8 Hg6+ 30. Kh8 Hf6 30. … Bg3 liggur beinast við en hvítur á svarið 31. Hd5! 31. Hf1 Bf2 32. Hxf2 Hxf2 33. Hf1! Bráðsnjallt. Hvítur gefur mann- inn til baka en nær frumkvæðinu. 33. … Hxg2 34. Hf8+ Kc7 Ekki 34. … Rd8 35. Rd5! o.s.frv. 35. Rd5+ Kd6 36. Rxe7 Kxc5 37. Hf5 Kxc4 38. Rxc6 bxc6 39. Hxg5 Hg3? Hróksendataflið er aðeins betra á hvítt og hér var betra að leika 39. … Hxc2, c6-peðið skapar færi í enda- taflinu. 40. h4 h6 41. Hg6 Hxe3 42. Kg7 Hg3 43. Kxh6 e3 44. Kg5 Kd5 45. Kf4 Hh3 46. h5 c5 47. Hg5 Kd4 48. He5! - og svartur gafst upp. Hann á ekkert svar við hótuninni 49. He4+. Kóngur á flótta Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Það er heitt … þó að margir inn- fæddir hér í Tansaníu kvarti yfir kulda og fari í jakka þegar það er skýjað, ég hef ekki farið í jakka ennþá, mér finnst 28 gráður og skýjað bara fínt. Kosningaskjálfti er kominn í landsmenn, forseta- kosningar eru í október og flokk- arnir hafa byrjað að kjósa sér næsta frambjóðanda og því fylgir spilling þar sem fram fara kaup og sala á atkvæðum, einn frambjóð- andi stjórnarflokksins varð uppvís að því að taka við milljónum dollara frá fyrirtæki og ætlaði að nota þá til að tryggja sér sigur sem fram- bjóðandi stjórnarflokksins og vænt- anlega verða næsti forseti Tansan- íu, viðkomandi fyrirtæki mundi síðan innheimta greiðann … það er önnur og skuggalegri hlið á kosn- ingaskjálftanum en það er hjátrú og trú á galdra, hámenntað fólk er ekki undanskilið hjátrú og notar galdramenn óspart til að aðstoða sig. Galdramenn ráða menn til að ræna og drepa albinóa eða höggva af þeim útlimi sem þeir síðan nota í galdra sína, útlimir albínóa eru sagðir laða að kjósendur. Það er alltaf efnameira fólk sem kaupir út- limi, skinn eða jafnvel höfuð (fer allt eftir tegund galdurs) því lík- amspartar kosta þúsundir dollara svo það er augljóst að almenningur mundi aldrei hafa efni á því þar sem algengt mánaðarkaup er um 10.000 íslenskar. Spillingin hér er svo sem ekkert meiri en annars staðar, kannski bara opnari og augljósari. Til dæmis er ég stund- um stöðvuð af umferð- arlögreglunni og hald- ið fram að ég hafi keyrt of hratt eða bara til að tilkynna mér að lögreglumenn séu illa launaðir og að viðkomandi hafi ekki borðað neinn morg- unmat í morgun og sé ákaflega svangur, það er ekki gott að vera svangur lögreglumað- ur, hvort ég eigi nú ekki aflögu fyrir morgunmat … og auðvitað á ég 50 kr. fyrir morg- unmat … það bara gleður mig að bjóða lögreglunni í morgunmat! Lífið hér getur verið dásamlega skrítið og skemmtilegt, á hverjum degi rekst ég á eitthvað sem kemur mér til að brosa, maður á gömlu hjóli með tuttugu hæðir af eggja- bökkum aftan á bögglaberanum, fest á með einni teygju, lítil kona með túbusjónvarp á hausnum, lítið barn á bakinu, tösku í annarri hendi og haldandi á síma í hinni, talandi í hann um leið og hún arkar áfram, mótorhjól með heilli fjölskyldu á, pabbi, mamma og tvö börn, höfuðstöðvar vatnsveitunnar um- flotnar vatni og starfs- menn að bretta upp buxurnar til að komast í vinnuna, flestir bílar á götunum eru „almost new“ þó mér finnist tuttugu ár ansi gamalt fyrir bíl, þá er enginn bíll hér of gamall til að vera lagaður, lakkaður og skreyttur aðeins, það þykir flott að eiga bíl, alveg sama hversu ljótur hann er, kon- urnar hér eru allar alltaf í skraut- legum og fallegum kjólum, sumar með slæðu sumar ekki, eða allskyns fallega hatta. Fæ aldrei nóg af að horfa á allt þetta fallega fólk sem byggir þetta fallega og friðsama land sem er í fremstu röð hvað varðar umburðarlyndi gagnvart öðrum trúarbrögðum. Hér eru 50% íbúa múslimar og 50% kristin, held að það sé góð undirstaða fyrir friði og umburðarlyndi þó að ýmislegt eigi þeir eftir að læra og fræðast um albínisma, en það stendur til bóta með fræðsluherferð stjórn- valda um að það sé ekkert göldrótt við albínóa bara vöntun á lit- arefnum, fræðsla er nauðsynleg um málefni albínóa sérstaklega þar sem í Tansaníu er einn af hverjum 1.400 albínói en annars staðar er hlutfallið einn af hverjum 20.000. Tansaníubúar eru snilldarkokkar og er maturinn blandaður arab- ískum, indverskum og afrískum áhrifum, hef alltaf fengið góðan mat nema einu sinni og það var inn- yflakássa, reyndar var bragðið ágætt en tilhugsunin ekki og til- hugsunin vann svo ég kláraði ekki af diskinum sem olli undrun hús- freyjunnar sem hafði eldað þetta „delicatess“ sérstaklega fyrir mig. Með bestu kveðjum frá Tansaníu. Það er heitt! Með kveðju frá Tansaníu Eftir Þorgerði Sigurðardóttur » Það er alltaf efna- meira fólk sem kaup- ir útlimi, skinn eða jafn- vel höfuð Þorgerður Sigurðardóttir Höfundur er listakona. Ljósmynd/Þorgerður Sigurðardóttir Veitingastaður Hann ber nafnið The Rock. Kaupfélagið Hér er hægt að kaupa ýmislegt fallegt. Hvítur sandur Ein af mörgum dásamlegum ströndum Tanzaníu. Stór og sjaldgæfur pálmi fæst gef- ins. Upplýsingar í síma 5674327. Velvakandi Svarað í síma 569- 1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Gefins Blómvöndur Blóm fegra heimili þitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.