Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 25

Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 ✝ Sigríður Ólafs-dóttir fæddist í Holtahóum á Mýrum í Horna- firði 13. desember 1928. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjólgarði Höfn 23. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin í Holtahólum, Anna Pálsdóttir, f. 16.3. 1888, d. 14.11. 1974, og Ólafur Einarsson, f. 26.2. 1885, d. 25.3. 1952. Systkini Sigríðar voru sjö: Vilborg, f. 24.3. 1911, d. 26.1. 1998, Páll, f. 22.3. 1912, d. 5.2. 3.3. 1898, d. 1.10. 1997. Sigríður og Guðmundur tóku við búi í Holtahólum 1952 eftir lát Ólafs föður Sigríðar, þau bjuggu í Holtahólum allt til ársins 1988 er þau brugðu búi og fluttu á Höfn. Sigríður vann á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði eftir að hún flutti á Höfn. Börn Sigríðar eru: Ólöf Anna, f. 15.8. 1952, maki hennar er Steinþór Torfason, þau eru búsett á Hala í Suð- ursveit. Stúlka, f. 10.6. 1954, d. 10.6. 1954, Einar Bjarni, f. 23.1. 1956, býr á Höfn, Víðir, f. 6.6. 1959, býr í Holtahólum, Lucia Sigríður, f. 15.8. 1963, maki Hannes Lange, þau búa í Hafnarfirði. Barnabörn Sigríð- ar eru sjö og langömmubörnin átta. Útför Sigríðar fer fram frá Brunnhólskirkju í dag, 1. ágúst 2015, kl. 13.30. 1982, Guðrún, f. 8.1. 1914, d. 18.8. 2010, Einar, f. 17.1. 1915, d. 7.6. 1952, Rósa, f. 31.3. 1917, d. 21.12. 1995, Ásta, f. 30.5. 1921, d. 9.7. 1995, Anna, f. 29.3. 1925, d. 20.4. 1989. Eiginmaður Sig- ríðar var Guð- mundur Bjarnason frá Við- borðsseli, f. 9.7. 1927, d. 6.11. 2001, foreldrar hans voru Bjarni Þorleifsson, f. 20.8. 1892, d. 23.8. 1977, og Lússía Sigríður Guðmundsdóttir, f. Nú hefur mamma kvatt þetta tilverustig, ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið hjá henni síð- ustu vikurnar hennar, hún átti það svo sannarlega skilið. Mamma flutti seint að heiman, ef svo má segja, en hún bjó í Holtahólum fyrstu sextíu æviárin sín, uns þau pabbi hættu búskap, ef frá er talinn einn vetur sem hún var í vist í Reykjavík ásamt Höllu, vinkonu sinni, sem seinna varð mágkona hennar. Mamma var afar hæglát kona sem vann sín verk í hljóði, það hefur verið í mörg horn að líta að sinna búi og börnum og oft voru auka börn sumarlangt í sveitinni. Aldrei lét hún styggðaryrði falla um nokkra manneskju. Hún unni sveitinni sinni af heil- um hug, ég man eftir sem lítið stelpuskott að hafa setið með mömmu upp við Kíl og horft á óð- inshanahjón synda á vatninu og sýna okkur sinn flottasta vatna- dans sem ég hef séð. Hún saumaði og prjónaði á sitt fólk eins og gert var á þeim tíma, ég átti sko örugglega flottasta jólakjólinn í heiminum, kjól með gullþræði og gyllta jólaskó, en stiginn í gamla húsinu var brattur og litla stelpuskottið rann á rass- inum niður stigann í jóladressinu fína með tilheyrandi óhljóðum, sérstaklega vegna sannfæringar minnar um að gullskórnir væru rispaðir, kannski bara ónýtir en mömmu tókst að sefa grátinn fljótt og vel og sannfæra mig um að skórnir og kjóllinn fíni væri í góðu lagi. Eitt sinn að sumarlagi var mamma beðin um að taka kisu í tímabundið fóstur, ég var óheyrilega hrædd við ketti og til- kynnti það að ég ætlaði sko ekki að eiga heima í sama húsi og ein- hver köttur, ég myndi sko bara flytja út í tjald. Mamma lét þetta upphlaup mitt sér í léttu rúmi liggja og sagði að hún væri búinn að lofa því að taka Kleópötru í einhverjar vikur, en þetta virðu- lega nafn bar kisan. Mamma hef- ur eflaust vitað að stelpuóhemjan tæki Kleópötru í sátt með tíman- um og það stóð heima, þegar dvöl kisu lauk og ég bar mig upp við mömmu að ég saknaði nú eigin- lega Kleópötru, þá brosti hún og sagði „ já ég vissi það að þú tækir hana í sátt“. Mamma hafði yndi af lestri góðra bóka sér til fróðleiks og yndisauka þegar stund gafst til. „Þorir þú í eina,“ heyrðist gjarnan á mínu æskuheimili en það var boð um að spila Kasínu, keppnisskap foreldra minna var ósvikið í spilamennskunni, sem spillti þó ekki spilagleðinni. Kleinurnar hennar mömmu voru einstaklega góðar, eitt síðsumar hittumst við pabbi í Vík í Mýrdal en hann var að skila vinnumann- inum eins og hann orðaði það. Vinnumaðurinn var Elmar, sonur minn, þá ekki meira en 5-6 ára, en hann átti alltaf skjól hjá afa og ömmu í sveitinni og ekki síður eft- ir að þau fluttu á Höfn, það var glaðklakkalegur strákur sem veifaði kleinupokanum frá ömmu, þær voru gullsígildi. Mikið var hún glöð að fá Lindu Dögg og Ægi Leví, barnabörnin mín, í heimsókn nú fyrir skömmu. Mamma bjó í skjóli Einars bróð- ur eftir lát pabba. Einar á ómet- anlegar þakkir skildar fyrir um- hyggju í hennar garð. Hún dvaldi á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn síðustu árin og naut þar umönnunar starfsfólksins sem er einstakt, sannur mannauður á Skjólgarði. Um undrageim, í himinveldi háu, nú hverfur sól og kveður jarðarglaum; á fegra landi gróa blómin bláu í bjartri dögg við lífsins helgan straum. (Benedikt Gröndal) Lucia Guðmundsdóttir. Nú þegar hún Sigga í Holta- hólum hefur kvatt þennan heim langar mig að setja á blað örfá orð til að þakka allt sem hún var mér í æsku. Hún hefur verið rétt rúm- lega tvítug þegar ég kom fyrst á heimilið með Ástu móður minni, sem fór í sveitina á sumrin með börnin sín að heimsækja foreldra sína og til að hjálpa til við hey- skapinn. Seinna fór ég ein í sveit- ina þegar ég þóttist geta gert eitt- hvert gagn, en þá höfðu Sigga og Guðmundur tekið við búskapn- um. Það var alltaf mikil tilhlökk- un að koma í sveitina, minnisstæð tilfinning þegar loksins sást í þetta reisulega hús koma í aug- sýn og spennan mikil að hitta fólkið, mest þó ömmu og Siggu og svo börnin þegar þeim fjölgaði. Það var ekki lítið ferðalag að fara austur í Hornafjörð í þá daga, fyrst með flugi, svo beðið á Höfn eftir fari yfir fljótin. Alltaf fékk ég sömu hlýju viðtökurnar hjá Siggu og ég man heldur aldrei til að hún hafi sýnt mér annað en hlýju alla tíð, hvað sem á gekk, það var öllu tekið með sömu hægðinni sem einkenndi hana svo mjög. Það hefur ekki verið auðvelt verk að vera húsmóðir í sveit þessi ár. Það finnst konu sem hleypur í búðina í innkaup fyrir hvert mál. Ég var aldrei sérlega liðtæk inni við, en gat þó snúið skilvindu og strokknum. Þvottar voru oft stórmál, stundum í vatnslitlum árum þurfti að fara að skola þvottinn í Baulutjörn og þó að börnum hafi þótt það sport hef ég oft hugsað til þessa erfiðis fyr- ir húsmóður. Í minningu minni var Sigga alltaf vinnandi, það voru ekki að- eins þessir miklu og reglulegu matar- og kaffitímar, heldur farið í fjósið kvölds og morgna og alltaf þegar færi gafst var hún úti við heyskapinn. Það var ekki mikið um ferðalög á þessum árum, mér eru minnisstæðastar berjaferð- irnar inn að Haukafelli, sem kost- uðu að sjálfsögðu undirbúning húsmóðurinnar til að allir nytu sín vel. Sigríður Ólafsdóttir var hlé- dræg kona í eðli sínu og hæglát, en gat verið skemmtileg og kát. Hún var mjög minnug og því var oft gaman að heyra hana segja frá einhverju frá liðnum dögum. Ég er þakklát henni fyrir margar bestu stundir æskunnar í sveitinni hennar og líka fyrir góð- ar móttökur sem við alla tíð feng- um hjá henni eftir að hún var komin á Höfn. Ég votta börnunum hennar og fjölskyldu innilega samúð. Anna Ólafsdóttir. Sigga móðursystir mín var yngst átta systkina í Holtahólum á Mýrum í Hornafirði og kveður nú síðust þeirra. Þegar hún fór að búa í Holtahólum með manni sín- um, Guðmundi Bjarnasyni frá Viðborðsseli, árið 1952 voru að verða straumhvörf í búskap í landinu. Fornir búskaparhættir voru að kveðja og vélaöld að hefj- ast. Þótt Mýrarnar eystra væru einangruð sveit og efni heimila óvíða rífleg lá fyrir að stækka bú og rækta jarðir. Sveitarandi var góður, samvinna mikil um búskap milli bæja, enda frændfólk á flest- um bæjum. Sá sem þetta ritar fékk að vera snúningastrákur í Holtahólum hjá þeim hjónum og það var gott hlutskipti. Þau gættu þess að sanngjarnt jafnvægi væri á milli leiks og starfa og ábyrgð óx með aldri og hverju sumri. Þegar kún- um var hleypt út á vorin var það látið óátalið þótt ég færi í sveita- símann og hringdi á Holtabæina – og kynnti mig sem kúasmala – til að skipta því á milli bæja að sækja kýrnar í haga allt sumarið. Minnisstætt trúnaðarstarf um sláttinn var að færa engjafólki há- degismat. Fyrst þurfti ég að finna klárinn, ná honum úr hafti og hnýta því upp í hann og ríða heim. Hefði ég orðið seinn fyrir kom Sigga á móti mér með matinn í tvískiptum poka sem hægt var að leggja á herðakambinn á klárn- um. Ef tími gafst beislaði hún hann með einföldu beisli en auð- vitað reið ég berbakt. Síðustu fyr- irmæli hennar voru svo: „Vertu nú fljótur og ríddu ekki hart.“ Starf einyrkjabænda hefur alltaf verið fjölbreytt en erfitt. Verkaskipting hjónanna í Holta- hólum var hefðbundin en þó ná- tengd. Sigga var röskleikakona sem gekk hratt að hverju verki og kunni handtökin. Öll inniverk voru á hennar ábyrgð en hún veigraði sér ekki við að taka til hendinni úti, svo sem í heyskap. Þá gilti mannshöndin áður en vél- ar breyttu bændum í vélstjóra. Sigga frænka mín var hógvær og hlédræg eins og var háttur hinna gömlu Skaftfellinga og þannig var hún alin upp. Hún var minnug á atburði, fólk og málefni og var svo heppin að fá að halda minni til hins síðasta. Minningar mínar um Siggu eru samtvinnaðar systkinum hennar og fjölskyldu. Þau kættust inni- lega þegar þau hittust, ekki síst yfir minningum um gott og skemmtilegt fólk sem þau þekktu ung. Þá gat borgað sig að leggja við hlustir! En harmar börðu líka að dyrum hjá þeim sem öðrum og þau syrgðu mjög Einar bróður sinn sem alltaf átti heima í Holta- hólum en dó þar á besta aldri. Sigga og Guðmundur brugðu búi og fluttu á Höfn og eftir lát hans hélt hún lengst af heimili með Einari Bjarna, syni sínum. Sem fyrr var hún góð heim að sækja og mér varð ljósara en áð- ur að með hennar hjálp gat ég skyggnst inn í horfna tíð sem tengdist fólkinu okkar á Mýrun- um. Best var að hitta hana heima en löng símtöl gerðu sitt gagn. Þægilegt var að finna eðlislæga spaugsemi hennar endast þótt ár- in færðust yfir og minnti það á móður mína og mörg ættmenni þeirra. Að lokum þakka ég henni fyrir ævilanga vináttu og sendi börnum hennar samúðarkveðjur. Bjarni Ólafsson. Sigríður Ólafsdóttir Elsku mamma, nú ertu loks- inns laus úr viðjum þessa hræði- lega sjúkdóms sem hefur hrjáð þig undanfarin ár og komin í faðminn hjá pabba. Þegar þú kvaddir þetta jarðlíf þá var eitt það fallegasta sólarlag sem að ég hef séð í allt sumar og er ég al- veg viss að þú fékkst góða heim- komu. Það er búið að vera erfitt að koma og heimsækja þig vit- andi það að þú þekktir mann ekki, en kannski gerðir þú þér grein fyrir því að maður var eitt- hvað sem þú áttir. Mikið var gaman að koma með barnabörn- in til þín en þá naust þú þín til fulls. Ekki ætla ég að hafa ein- hverja tölu um þitt líf, það gera aðrir. Ég syrgi stundum pabba minn og mömmu því máttur þeirra beggja sem lífsins bjarmi er, þau burtu héðan fóru fyrir skömmu, Jóhanna Björnsdóttir ✝ JóhannaBjörnsdóttir fæddist 26. maí 1940. Hún lést 16. júlí 2015. Útför Jóhönnu fór fram 25. júlí 2015. Fyrir mistök birtist rangt æviá- grip með greinum um Jóhönnu í blaðinu sl. fimmtudag, 30. júlí. Greinarnar eru birtar aftur hér og biðst Morgunblaðið alla hlut- aðeigandi innilega afsökunar. það finnst mér alla vega innst í hjarta mér. Hér hef ég hlotið lífs- ins vænsta vinning; hin veraldlegu gæði og ástúð víst ég fékk. Nú birtist sagan eins- og endurminning; allt yndislega fólkið sem með mér veginn gekk. Í stórum hóp er lífsglatt fólk á labbi í ljúfum hugarheimi um sumarbjartan veg. Og fremst þar fara mamma mín og pabbi og myndin sem mér birtist, hún er dásamleg. Ég þrái helst að eignast þetta aftur; þær unaðslegu gjafir sem forðum hjartað hlaut, því þar er falinn einhver undrakraftur, sú orka sem styður á langri lífsins braut. Svo sé ég það sem hjartað stundum hylur; þá hamingju sem pabbi og mamma sýndu mér þá brosi ég, því heiðskír hugur skilur að hlýja þeirra beggja í sálu minni er. (Kristján Hreinsson) Þín dóttir, Sigþrúður. Einhvers staðar segir að góð- ur vinur sé gulli betri og það er alveg rétt því í áratugi áttum við hjónin þannig gull hinum megin við götuna okkar, þar sem Jó- hanna og Fúsi voru. Nú eru þau bæði farin og eftir eru dýrmætar minningar um liðnar samveru- stundir þar sem margt var brall- að og glaðst. Kunningskapur okkar hófst fljótlega eftir að þau fluttu á Mýrarbrautina með börnin sín fjögur. Vináttan varð svo traustari með árunum og varla leið svo dagur að ekki væri rölt yfir götuna í kaffisopa og spjall. Jóhanna var afskaplega glaðlynd og það gustaði oft af henni þegar hún kom í heimsókn og lá mikið á hjarta. Hún hafði mjög gaman af að hlusta á tón- list – sérstaklega sönglög, ýmist kórsöng eða einsöng, sjálf söng hún mikið og kunni ógrynni af lögum, stundum kallaði hún á mig yfir til að hlusta á lög sem henni hafði áskotnast eða hún hafði heyrt í útvarpinu. Þannig heyrði ég til dæmis fyrst Undir dalanna sól, sem Jóhanna hélt mikið upp á. Hún hafði mjög gaman af blómum og þó garð- urinn hennar væri ekki stór þá nostraði hún við hann og hann var afar fallegur og þar átti hún ýmis sjaldgæf blóm og flutti í garðinn sinn villt blóm því hún þekkti með nöfnum flest villt ís- lensk blóm. Það var mjög gest- kvæmt hjá þeim hjónum og það kom enginn að tómum kofanum hjá Jóhönnu minni, alltaf hlaðið borð af kræsingum. Hún kenndi mér að baka brúna lagköku. Eft- ir óteljandi misheppnaðar til- raunir mínar, meira að segja prófaði ég hennar eigin uppskrift en ekkert gekk, þá kom Jóhanna og fylgdist með mér baka og þá kom náttúrlega í ljós að hún fór alls ekki eftir uppskrift heldur var það alúðin sem hún lagði í baksturinn sem gerði gæfumun- inn. Og þannig var hún, hjálp- söm og lagði alúð og umhyggju í hvað sem hún gerði. Þegar svo heiðarævintýrið okkar hófst hnýttust vináttuböndin enn fast- ar því þar áttum við öll sameig- inlegt áhugamál sem var ást okkar á heiðinni og allri nátt- úrunni. Við skiptum með okkur sumrunum við vörslu á Eyvind- arstaðaheiðinni í mörg ár og svo voru farnar pílagrímsferðir á vorin um leið og snjóa leysti og svo á haustin eftir göngur. Þá var farið vítt og breitt um heið- ina og fram tungurnar, þessar ferðir eru ógleymanlegar því bæði Jóhanna og Fúsi kunnu svo vel að segja skemmtilega frá ýmsu sem þarna hafði gerst í ár- anna rás, bæði höfðu þau átt á heiðinni ótal spor áður en þau fluttu á Blönduós. Við þetta starf kynntumst við mörgu skemmti- legu fólki og á veturna varum- ræðuefnið oft ýmis ævintýri sumarsins, sem voru ófá. Fyrir mörgum árum fór að bera á alz- heimer-sjúkdómnum hjá Jó- hönnu og þegar Fúsi veiktist fluttist hún á Héraðssjúkrahúsið þar sem henni leið vel og þar hvarf hún okkur smátt og smátt. Þó eftirsjáin sé mikil þá er hugg- un í því að hún fékk að fara til Fúsa áður en sjúkdómurinn lék hana alltof grátt, því enn hélt hún glaðværð sinni og gat knús- að vini sína þó ekki myndi hún nöfnin. Elsku Jóhanna mín, betri vin- konu hefði ég ekki getað kosið mér, hjartans þakkir fyrir sam- veruna, við hittumst svo síðar og þá skoðum við aðrar heiðar eins og við töluðum stundum um. Guð blessi þig vinkona. Elsku Sigþrúður, Birna, Guð- mundur, Sibba, Arnar og fjöl- skyldur, okkar dýpstu samúðar- kveðjur.Guð veri með ykkur. Halla og Ari.                           Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19  210 Garðabær sími 842 0204  www.harpautfor.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.