Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
Indíana Rós Ægisdóttir, afmælisbarn og sálfræðinemi, er stödd áÞjóðhátíð í Eyjum um helgina. Þar er hún ásamt dyggum vina-hópi að halda upp á afmælið. Ekki spillir gleðinni að nokkur þús-
und aðrir Íslendingar hafa einnig gert sér ferð til Vestmannaeyja um
helgina.
Hún hefur stundað úti- og bæjarhátíðir grimmt í sumar. Aðspurð
um hverjar eru fremstar meðal hátíða segir hún það vera Á góðri
stundu í Grundarfirði og svo Þjóðhátíð. „Ég bjó í Grundarfirði, það er
það sem dregur mig þangað, að fara á æskuslóðirnar. Ég á þar ömmu
og afa og svoleiðis.“ Utan landsteinanna er stefnan tekin á Ítalíu þar
hún dvelur í tólf daga seinna í sumar. Þar hittir hún aftur fjölskyld-
una sem tók við henni þegar hún var skiptinemi.
Indíana er formaður Mentes, félags sálfræðinema við Háskólann í
Reykjavík. Að loknu sálfræðináminu stefnir hún í framhaldsnám í
kynfræði. „Þetta er góður grunnur fyrir það nám,“ segir Indíana.
Hún er þó ekki við eina fjölina felld í félagsmálum en hún er jafnframt
ritari KynÍs, Kynfræðifélags Íslands. KynÍs heldur ráðstefnu í októ-
ber og er Indíana verkefnastjóri fyrir hana. „Ráðstefnan er á vegum
Norðurlandasamtaka í kynfræði og er haldin árlega. Yfirskrift ráð-
stefnunnar er „Kynferðisleg tjáning og nautn“ en þetta er þverfagleg
ráðstefna kynfræðinga, hjúkrunarfræðinga og fleiri stétta sem tengj-
ast málefninu.“
Ljósmynd/Indíana Rós Ægisdóttir
Félagsmálatröll Indíana er formaður Mentes og ritari KynÍs.
Þjóðhátíð lögð und-
ir afmælisfagnaðinn
Indíana Rós Ægisdóttir 23 ára í dag
H
aukur fæddist á Akur-
eyri 3.8. 1955, og ólst
þar upp, fyrst á Rán-
argötunni til þriggja
ára aldurs og síðar á
Ásvegi 25: „Það var góð stemming í
Ásveginum sem þá var hluti af nýju
íbúðarhverfi á Ytri-Brekkunni.
Þarna var fjöldi barna og góðir ná-
grannar.“
Snemma beygist krókur
„Þarna var ýmislegt brallað.
Bítlaæðið gekk í garð og góður ná-
granni minn í næsta húsi, Sævar
Benediktsson, stofnaði Bravó-
bítlana er hann var 12 ára, en sú
hljómsveit er reyndar enn við lýði.
Annar góður nágranni, Sæmundur
Pálsson, sigldi 12 ára til Bretlands
með togara og kom heim með alla
nýjustu bítlatónlistina.
Ég og ýmsir æskufélagar mínir
vorum svo ekki nema 14-15 ára er
við hófum að halda diskótek og tón-
leika. Við fengum t.d. Mána frá Sel-
fossi til að spila fyrir fullu húsi en
reksturinn gekk bara vel eins og
Haukur Tryggvason framkvæmdastjóri – 60 ára
Synir og sonarsonur Haukur og Hólmfríður, ásamt þeim Hringi, Styrmi og Hauki Leó í sumarblíðunni nýverið.
Hóf tónleikahald 14 ára
Focusmenn Haukur og tveir úr Focus sem lék á Græna hattinum í sumar.
Reykjavík Sara Davíðsdóttir fæddist 25. ágúst
2014 kl. 22.21. Hún vó 3.360 g og var 48 cm löng.
Foreldrar hennar eru Kolbrún Edda Aradóttir og
Davíð Einarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í grein sem birtist í
blaðinu um Merkan
Íslending, Jóhannes
Jósefsson, þann
28.7. sl., láðist að
geta um seinni
konu hans. Hún hét
Brynhildur Sigurð-
ardóttir, f. 7.3.
1913, d. 8.2. 1981,
húsfreyja. For-
eldrar hennar voru
Sigurður Björgólfs-
son, ritstjóri og
kennari á Siglufirði,
og k.h., Svava
Björgólfs húsfreyja.
Ættingjar eru
beðnir velvirðingar
á þessum leiðu mis-
tökum.
LEIÐRÉTTING
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is