Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 35

Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 35
síðar meir á Græna hattinum. Á sumrin var ég sendur á Litlu- tjörn í Ljósavatnsskarði sem þá var sumardvalarstaður fyrir hressa stráka. Ég var svo næstu tvö sumur á Einarsstöðum í Reykjadal. Þar var Einar Jónsson miðill, góður karl og eftirminnilegur.“ Haukur var í „Barnaskóla Ís- lands“ sem var nú reyndar Barna- skóli Akureyrar, var í „gagganum“ Gagnfræðaskóla Akureyrar, stund- aði nám við myndlistarskóla á Ak- ureyri næstu tvo vetur, stundaði síðan nám við Hótel- og veitinga- skóla Íslands, lærði til þjóns í Naustinu í Reykjavík og lauk próf- um 1977. Haukur var á vertíð í Sandgerði veturinn 1973 en megin tilgangur ferðarinnar var þó að fylgja eftir hljómsveitinni Trúbrot. Að námi loknu starfaði Haukur í Naustinu og í Sigtúni um skeið, flutti síðan aftur til Akureyrar og var þjónn á Hótel KEA 1979-81. Hann var síðan þjónn í Smiðjunni 1981-86 en þá fór hann aftur yfir KEA eftir viðamiklar breytingar þar og var þar veitingastjóri til 1998. Haukur tók við rekstri veitinga- hússins Við tollinn 1998 og starfaði þar til 2003. Þá tók hann við rekstri Græna hattsins í Hafnarstræti 96. Þann stað hefur hann starfrækt síð- an. Staðurinn var fyrstu tvö árin dansstaður en frá 2005 hefur hann eingöngu verið tónleikastaður: „Þegar ég breytti staðnum í tón- leikastað var kominn annar dans- staður hér og bærinn bar ekki báða staðina. Tónleikahaldið fór rólega af stað en hefur aukist jafnt og þétt og nú er Græni hatturinn einn þekkt- asti tónleikastaður landsins þar sem haldnir hafa verið á annað þúsund tónleikar.“ Haukur kenndi á matvælabraut VMA í sex ár. Hann stofnaði, ásamt Bergþóri Erlingssyni og Bessa Skírnissyni, sundfélagið Gretti árið 1986, en þeir félagarnir hafa stund- að morgunsund klukkan sjö á morgnana frá sama tíma. Hann hef- ur starfað í Oddfellowreglunni frá 1986 og sat í prófnefnd Hótel- og veitingaskólans í 20 ár. Haukur hefur allt tíð haft áhuga á tónlist og myndlist: „Þessi tónlist- aráhugi hefur alltaf farið saman með áhuga mínum á tónleikahaldi, en tónlistarsmekkurinn er mjög fjölbreyttur.“ Fjölskylda Sambýliskona Hauks er Hólm- fríður Sigurðardóttir, f. 8.9. 1966, heilsunuddari. Foreldrar hennar eru Sigurður Jósefsson, f. 21.9. 1927, fyrrv. bóndi á Torfufelli í Eyjafirði, og Svava Friðjónsdóttir, f. 22.5. 1927, d. 3.3. 2015, húsfreyja þar. Fyrrverandi kona Hauks er Steinunn Jónsdóttir, f. 29.12. 1951, hárgreiðslumeistari, en sonur þeirra er Styrmir Hauksson, f. 7.12. 1983, upptökustjóri, en kona hans er Rósa Björk Bergþórsdóttir kynjafræðingur og sonur þeirra Haukur Leó Styrmisson, f. 2015. Sonur Hauks og Hólmfríðar er Hringur Hauksson, f. 14.9. 2010. Synir Hólmfríðar eru Gísli Guð- mann, f. 7.8. 1990, en sambýliskona hans er Guðrún Hanna Sigurjóns- dóttir, Logi Guðmann, f. 26.9. 1994, og Gauti Guðmann, f. 8.3. 1998. Systur Hauks eru Gunnhildur, f. 15.2. 1953, bankastarfsmaður í Reykjavík, og Þorgerður Ása, f. 2.7. 1960, keramikhönnuður í Reykjavík. Foreldrar Hauks: Tryggvi Sæ- mundsson, f. 12.5. 1923, d. 17.3. 1991, byggingameistari, og Svan- fríður Guðmundsdóttir. f. 17.7. 1930, verslunarmaður. Úr frændgarði Hauks Tryggvasonar Haukur Tryggvason Sigríður Kristjánsdóttir húsfr. í Bitru Magnús Tryggvason b.í Bitru í Kræklingahlíð Jónína Magnúsdóttir húsfr. á Akureyri Guðmundur Baldvinsson verkam. á Akureyri Svanfríður Guðmundsdóttir verslunarm. á Akureyri Jónína Kristjana Helgadóttir húsfr. á Sólborgarhóli Baldvin Einarsson b. á Sólborgarhóli í Kræklingahlíð Margrét Magnúsdóttir húsfr. í Bragholti Konráð Konráðsson b. í Bragholti í Arnarneshreppi Þorgerður M. Konráðsdóttir húsfr. á Hjalteyri Sæmundur T. Kristjánsson sjóm. íÆgisgarði á Hjalteyri Þórir Tryggvi Sæmundsson byggingameistari á Akureyri Þórey Jónsdóttir vinnuk. í Pálmholti Kristján Hallgrímsson vinnum. í Pálmholti Vinir Haukur, Bessi og Bergþór. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Rafn fæddist í Bakkakoti íSkagafirði 3.8. 1918. For-eldrar hans voru Pétur Jóns- son, verkstjóri á Sauðárkróki, og k.h., Ólafía Sigurðardóttir. Pétur var son- ur Jóns Jónssonar, bónda á Kimba- stöðum, og Guðrúnar Eggertsdóttur, en Ólafía var dóttir Sigurðar Ólafs- sonar frá Ketilseyri í Dýrafirði og Dagbjartar Helgu Jónsdóttur. Rafn kvæntist 1946 Karólínu Júl- íusdóttur en hún lést 1994. Sonur Karólínu er Árni Júlíusson húsasmið- ur. Dóttir Rafns er Bergljót. Börn Rafns og Karólínu eru Júlíus fram- kvæmdastjóri; Pétur Ólafur verk- efnastjóri; Kjartan tæknifræðingur; Auður skrifstofumaður og Dröfn, kennsluráðgjafi. Rafn lærði skipasmíði á Akureyri, stundaði nám við Iðnskólann á Ak- ureyri og lauk sveinsprófi 1942. Hann lauk námi í fiskvinnslu hjá Fiskmati ríkisins, var síldar- og fiskmatsmaður frá 1950, stundaði skipasmíði á Ak- ureyri 1937-45, var yfirsmiður við skipasmíðastöð Eggerts Jónssonar í Innri-Njarðvík 1945-54 og frysti- hússtjóri þar 1950-54 og síðar hjá Haraldi Böðvarssyni & Co. á Akra- nesi 1954-60, framkvæmdastjóri og eigandi Fiskiðju Flateyrar hf. 1960- 68, verkstjóri hjá Fosskrafti við byggingu Búrfellsvirkjunar 1968-69, fulltrúi Landsbanka Íslands við Út- gerðarstöð Guðm. Jónssonar í Sand- gerði 1969-70. Þá stofnaði hann og rak frystihúsið R.A. Pétursson hf. í Njarðvík 1970-88 og var þá braut- ryðjandi í útflutningi á ferskum fiski með flugi. Rafn sat í prófnefnd skipasmiða á Suðurnesjum 1945-54, í stjórn FUS á Suðurnesjum, í hreppsnefnd Njarð- víkurhrepps fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1946-50 og 1954, sat í bæjarstjórn Akraness fyrir Sjálfstæðisflokkinn og í útgerðarráði 1958-60, var for- maður Sjálfstæðisfélags Önundar- fjarðar 1961-67, í hreppsnefnd og oddviti Flateyrarhrepps 1962-66, í stjórn Iðnaðarmannafélags Flat- eyrar, í stjórn félags fiskvinnslu- stöðva á Vestfjörðum, í stjórn SH 1962-68 og var varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Vestfjarða- kjördæmi 1963-67. Rafn lést 6.12. 1997. Merkir Íslendingar Rafn A. Pétursson Laugardagur 90 ára Sigurbjörg S. Kristjánsdóttir 85 ára Einar Hjálmtýsson Guðbjörg Ármannsdóttir Sigurður Bárðarson Sverrir V. Kjærnested Sæmundur Guðmundsson 80 ára Guðný Lilja Jóhannsdóttir Helga Auðunsdóttir Una Ásgeirsdóttir 75 ára Aðalsteinn Ingi Aðalsteinsson Auður Guðvinsdóttir Elsa Þórhildur Axelsdóttir Eyvindur Sigurfinnsson Gísli Kristinn Valdimarsson Guðrún Bjarnadóttir Jóhanna S. Borgþórsdóttir María Jakobsdóttir Sigmundur Hermundsson Teresa Nijakowska- Szpulinska Þóranna E. Sigurjónsdóttir 70 ára Edda Svavarsdóttir Hrafnhildur Ólafsdóttir Ólína M. Jónsdóttir 60 ára Guðlaugur Leósson Guðmundur Þ. Einarsson Guðrún Björnsdóttir Hrafnhildur Jóhannsdóttir Jóna Kristín Halldórsdóttir Sigurður Á. Þráinsson Sigurður Bjarni Gylfason Sigurður V. Benediktsson Sigurjón Sölvi Jóhannsson Sveinn Halldórsson Tadeusz Henryk Zurawka Þorsteinn M. Kristjánsson Þórarinn V. Sólmundarson 50 ára Benjamín Gunnarsson Dagný E. Dómhildardóttir Eðalrein M. Sæmundsdóttir Fanney Einarsdóttir Haraldur Hákonarson Magðalena K. Jónsdóttir Rebekka Guðmundsdóttir 40 ára Hrund G. Guðjónsdóttir Megumi Nishida Milaim Veseli Nanna Dísa Sveinsdóttir Valgerður K. Sverrisdóttir Valur Hafsteinsson Wesam Adel Kathir 30 ára Anna Lísa Finnbogadóttir Ari Bent Ómarsson Bjarni Sigurðsson Dorota Machomet Hafþór Ægir Þórsson Helga Sigríður Aradóttir Hermann Örn Sigurðsson Necla Koca Petrúnella Skúladóttir Ragna Dögg Marinósdóttir Ragnhildur L. Helgadóttir Salbjörg Ólafsdóttir Sigurður K. Sigurðsson Smári Gunnarsson Smári Helgason Sólveig Ólafsdóttir Steinunn Gunnsteinsdóttir Þorgils Ólafur Einarsson Sunnudagur 95 ára Fanney Ófeigsdóttir Hanna Stefánsdóttir 90 ára Auður Á. Sæmundsdóttir Sigrún Stefánsdóttir 85 ára Björg J. Benediktsdóttir Fanney Björnsdóttir Guðni Brynjólfsson Helga Ingólfsdóttir María Bæringsdóttir Ólöf Hjartardóttir Salóme S. Gestsdóttir Selma Sigurjónsdóttir Steinvör Bjarnadóttir 80 ára Kristján S. Jóhannsson María Möller Ríkharður Valtingojer Sigrún G. Óskarsdóttir 75 ára Erna Guðmarsdóttir Karólína Guðnadóttir María Eyþórsdóttir Tómas Hinrik Bartlett 70 ára Aðalsteinn H. Guðnason Ágústa Lúthersdóttir Ásbjörn Eggertsson Bryndís Baldursdóttir Einar Guðbjartsson Eydís Arnviðardóttir Guðmundur Þórðarson Gunnar Gunnarsson Ingibjörg Þórhallsdóttir Jón Steinar Hermannsson Ólafur Eggertsson Ólafur Thors 60 ára Andrea K. Guðmundsdóttir Einar Jón Ólafsson Erla Sveinsdóttir Hanna B. Hálfdánardóttir Hanna J. Guðmundsdóttir Hildur Petersen Jakobína H. Einarsdóttir Petrína Þ. Óskarsdóttir Sigríður Ketilsdóttir Soffía Katrín Sigurðsson 50 ára Ásgeir Erlendur Ásgeirsson Baldur Pálsson Bertrand Jouanne Bragi Ólafsson Guðmundur Þorsteinsson Halla Kristín Björnsdóttir Hulda Dögg Sigurðardóttir Hulda Harðardóttir Ingibjörg M. Aadnegard Sigurður Jón Hansson Stefán Þórir Birgisson Sveinn Guðfinnsson 40 ára Arunas Bujanauskas Eva Gunnarsdóttir Guðbjörg Lárusdóttir Hörður Sveinsson Jónína G. Þorvaldsdóttir Krystyna Grazyna Raducka Lárus Ómar Guðmundsson Pétur Björnsson Stefán Halldór Magnússon Svandís Þorsteinsdóttir Þorleifur Sigurbjörnsson 30 ára Barbara Motta Einar Þór Stefánsson Erna Stefnisdóttir Ewelina Anna Zielinska- Jarosz Hafdís Guðlaugsdóttir Jón Ágúst Gunnarsson Ólöf Ragnarsdóttir Pétur Arnórsson Rebecca Sackey-Mensah Sigrún Þorsteinsdóttir Soffía Rut Gísladóttir Vera Knútsdóttir Til hamingju með daginn duxiana.com Hryggjarstykkið í góðum nætursvefni D U X® ,D U XI A N A® an d Pa sc al ® ar e re gi st er ed tr ad em ar ks ow ne d b y D U X D es ig n A B 20 12 . Stuðningur við hrygginn er grundvallaratriði fyrir góðum nætursvefni. DUX rúmið með sýnu einstaka fjaðrakerfi styður hann svo sannarlega. DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950 SUMARTILBOÐ 12 -17% Afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.