Morgunblaðið - 01.08.2015, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur bara þakkað sjálfum/sjálfri
þér fyrir hluta af þeirri gæfu er hendir þig.
Vertu frekar barnslega hvatvís eins og áður.
20. apríl - 20. maí
Naut Á næstu vikum er upplagt að setja sér
takmark og velta fyrir sér leiðum til þess að
ná því. Láttu ekki litla hluti koma þér úr jafn-
vægi heldur bregstu við og leystu málin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú sleppur ekki auðveldlega í dag
en seinna meir verður þú því fegin/n. Farðu í
bókabúð, á safn eða eitthvað annað sem þú
ert ekki vanur/vön að fara.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þess að vera ekki of yfirþyrm-
andi yfir einhverju sem þig langar til þess að
gera í dag. Mundu að það skiptir mestu að
vera saman og hlusta hvort á annað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Með hjálp annarra ljóna, hrúta og bog-
manna ertu að ryðja úr vegi þeim hindrunum
sem voru í vegi fyrir þér á leið þinni að mark-
miði þínu. Hristu af þér slenið og haltu
ótrauð/ur áfram.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú veist ekki hlutinn fyrir víst fyrr en
þú tekur á. Ekki örvænta. Safnaðu í þig kjarki
og dug til að ganga frá málum. Þú hefur mun
meiri áhrif á umhverfi þitt en þú heldur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur allt þitt á hreinu og veist alveg
hvert þú stefnir í lífinu. Mundu samt að ekk-
ert fær staðist til eilífðar. Reyndu að hafa op-
inn hug.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur verið gott að fá ráð
hjá einhverjum eldri. Leitaðu uppi fólk með
svipað lífsviðhorf og þú og njóttu fjörlegra
samræðna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þér þyki lofið gott má of
mikið af öllu gera. Drífðu þig af stað. Vertu
bara sátt/ur við sjálfa/n þig og undirbúðu þig
vel og vandlega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er aldrei til góðs að eyða fé
fyrirhyggjulaust, jafnvel þótt tímarnir séu
góðir. Hafðu í huga máltækið: Aðgát skal
höfð í nærveru sálar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Metnaður þinn er vakinn og verð-
ur mikill næstu sex vikurnar. Brjóttu upp
gráma hversdagsins og settu lit á dag þinna
nánustu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Til þess að fá að spila með meisturum
þarf áhuginn beinlínis að gneista af þér. Þú
þekkir ekki alla málavexti um ákveðið mál svo
farðu varlega.
Síðasta laugardagsgáta var semendranær eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Prýða þykir brækur best.
Brött og hraðstreym alda.
Hljóta má af byltu brest.
Breyskir fyrir það gjalda.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Fínar með brotin í buxum
í brotsjóum aldrei við slugsum.
Ein datt um steininn, fékk fótbrot,
og fór í steininn með afbrot.
Gæðastund er með gátu að hugs’ um!
Árni Blöndal svarar:
Eggslétt skulu buxna brot.
Brotsjór rís með öldufald.
Falla menn og fá þá brot.
Fyrir afbrot greiða gjald.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Brotið fínt á buxum er.
Brot á sjónum falla.
Brotið hlýst af byltu hér.
Brotamenn þá kalla.
„Þá er það svarið,“ segir Helgi R.
Einarsson:
Brot er buxum á,
brot um víðan sjá,
handleggsbrotin há,
hraðabrot menn fá.
Helgi Seljan svarar:
Flott eru í buxum brot með sann,
brotsjór mörgum veitti grand.
Ýmsum bylta brotið vann,
brotamenn hér flýðu land.
Sjálfur gefur Guðmundur upp
þessa lausn:
:
Prýða brotin brækurnar.
Brot er hraðskreið alda.
Brot er afleiðing byltunnar.
Brotlegir synda gjalda.
Og lætur limru fylgja:
Er Skúli Birgittu bað,
að bragði hún sló á það,
í Má var hún skotin,
en Skúli hryggbrotinn
skaut sig í hjartastað.
Síðan kemur gátan:
Langvarandi leiður er.
Líta í flekk hann megum vér.
Þekkt ein kona þaðan var.
Þar sér undu stúdentar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Beinbrot eða brotabrot?
Í klípu
„FELDU ÞJÖLINA Í EINNI AF GLÚTEN-
LAUSU KÖKUNUM ÞÍNUM, ANNARS BORÐA
VERÐIRNIR HANA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AUÐVITAÐ ÞYKIR MÉR VÆNT UM ÞIG.
PENINGAR OG ÚTLIT ER EKKI ALLT
SAMAN, ÞÚ SKILUR!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sulla ekki tómat-
sósu yfir lostætið sem
hún var að elda.
ODDI, FARÐU, ÞÚ
TRUFLAR MIG.
ÉG BÝST VIÐ AÐ ÉG
HAFI ÁTT ÞETTA
SKILIÐ...
HRÓLFUR, ÞESSI MAÐUR
SAGÐI AÐ ÞÚ OG HANN HAFIÐ
ÆTLAÐ AÐ SKIPULEGGJA ÁRÁS
Í DAG...
Ó, JÁ... SENDU
HANN INN...
ÞÚ ÆTTIR
FREKAR AÐ
HITTA HANN
FYRIR UTAN...
1978 – Snæfellsnes. Ekið fyrirHraunsfjörð. Langbylgjan í loft-
inu. Ég er á leiðinni syngur Brunalið-
ið í þætti Ástu Ragnheiðar Jóhannes-
dóttur. Verslunarmannahelgi.
x x x
1984 – Galtalækjarskógur. Spaug-leikarar og Óli Gaukur og Svan-
hildur skemmta á stóra sviðinu. Nú
hljómar lagið Vertu ekki að plata mig
sem Sigga Beinteins syngur.
x x x
1988 – Vestmannaeyjar. Brenna ogflugeldasýning. Árni Johnsen
stjórnar brekkusöng. Komdu og
skoðaðu í kistuna mína, syngur þing-
maðurinn og þúsundirnar taka undir
svo Dalurinn ómar.
x x x
1989 – Kerlingafjöll. Flækingur ogslark á Suðurlandssléttunni. Svo
berst leikurinn inn í Kerlingafjöll,
þangað sem flækst var á gamalli
Lödu. Ferð án fyrirheits.
x x x
1996 – Akureyri. Halló heitir hátíðinog kaupmenn búast við ofsagróða
og segjast ganga með gullglampa í
augunum. Sumt fer samt ekki eins og
ætlað er. Bús og aðrar birgðir í Rík-
inu klárast. Lemstraðir unglingar
leita vars á slysadeild. Umfjöllun í
sjónvarpi um drykkju setur allt á
annan endann í kjölfar hátíðar, sem
ekki var haldin aftur.
x x x
2002 – Reykjavík. Ritstjórnarvakteftir róstusama helgi. Banaslysa-
fréttir, eins og svo oft eftir þessa
miklu ferðahelgi.
x x x
2010 – Kjalarnes. Umferð út úrbænum er farin að þyngjast. Í
sjónvarpinu er bein útsending frá
suðurmunna Hvalfjarðarganganna
þar sem Árni Friðleifsson mótor-
hjólalögga fer með sína hefðbundnu
rullu.
x x x
2014 – Landeyjar. Flogið yfir flæð-armáli þar sem þúsundir bíla eru
geymdir. Stríðdans í Herjólfsdal.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig
styrkan gerir.
Filippíbréfið 4:13
- með morgunkaffinu