Morgunblaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Söfn • Setur • Sýningar Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal Bláklædda konan- Ný rannsókn á fornu kumli í Horni I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal Fólkið í bænum á Veggnum Að lesa blóm á þessum undarlega stað – Vestur-Íslendingar í Stríðinu mikla 1914-1918 á Torginu Hið íslenska biblíufélag 200 ára á 3. hæð Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús Sýningin Nesstofa-Hús og saga í Nesstofu við Seltjörn, opið þriðjudaga til sunnudaga frá 13-17 Húsasafn Þjóðminjasafnsins opið víða um land nánar á http://www.thjodminjasafn.is/minjar-og-rannsoknir/husasafn/ Listasafn Reykjanesbæjar Huldufley, skipa- og bátamyndir Kjarvals „Klaustursaumur og Filmuprjón“ Textíll í höndum kvenna. Byggðasafn Reykjanesbæjar Konur í sögum bæjarins. Brot úr sagnaþáttum Mörtu Valgerðar. Bátasafn Gríms Karlssonar 6. júní – 23. ágúst Opið alla daga 12.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS SAGA - ÞEGAR MYNDIR TALA 22.5. - 6.9. 2015 HÁDEGISTÓNLEIKAR - ÍSLENSKI FLAUTUKÓRINN - föstudag kl. 12:10 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst 2015 SUMARTÓNLEIKAR - þriðjudag kl. 20.30 - Alexandra Chernyhova sópran, Ásgeir Páll Ágústsson barítón, Jónína Erna Arnardóttir píanó og Guðrún Ásmundsdóttir sögumaður. Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015 Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Enginn staður – íslenskt landslag Íslensk náttúra séð með augum átta samtímaljósmyndara. Keramik – úr safneign Opið 12-17, fim. 12-21 lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Veitingahúsi Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands SAFNAHÚSIÐ Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið daglega frá kl. 10-17. Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Opið daglega frá 10-17 GEYMILEGIR HLUTIR Að safna í söguna Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is AF LISTUM Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is Eitt af því sem alltaf er á dag-skrá hjá mér er að fara oft-ar í Bíó Paradís. Kvikmynd- in sem í síðustu viku togaði mig loksins til paradísar kvikmyndaunn- enda heitir Violette og er frönsk mynd frá árinu 2013. Myndin er sannsöguleg og fjallar um skáldkon- una Violette Leduc og kynni hennar við Simone de Beauvoir á fyrri hluta 20. aldar. Í byrjun myndarinnar er Leduc gift karlmanni sem reynir eftir bestu getu að vinna fyrir þeim með skrifum sínum en það gengur brös- uglega. Ekki gengur hjónabandið heldur vel, því eiginmaður Leduc er samkynhneigður og ekki fær um að elska konu sína á þann hátt sem hún þráir. Hann hvetur hana hins vegar til skrifta, nokkuð sem mun reynast henni gulli betra þegar fram í sækir.    Kvikmyndin var áhrifarík.Hún er dramatísk á köflum en jafnframt er yfir henni ljóðræn kyrrð sem rímar vel við söguþráð- inn – kona uppgötvar sjálfa sig og kemst að því að hún er önnur en hún hélt. Yfirborðið er kyrrt en í huga hennar leika sér spánnýjar hug- myndir sem neistar frá og brakar í. Sjálf verður hún neistafluginu næst- Löngunin til einveru og barnleysis Violette Stilla úr kvikmyndinni, sem fjallar um kynni tveggja skáldkvenna. um að bráð og dansar um tíma á mörkum heilbrigðis og geðveiki. Barátta Leduc við að fella sitt sanna sjálf saman við eigið kynferði verð- ur ofsafengin og áhorfandinn spyr sig hvort stríðið hafi hugsanlega tapast, áður en það hófst. Hversu langt kemst kona frá hugmyndum samtímans um hana, án þess að týn- ast í gjánni milli sjálfrar sín og sam- félagsins – og missa þar vitið? Le- duc vill ekki eignast börn. Hún neitar að bjarga manni sínum frá Þýskalandi og horfir fremur upp á hann drepinn. Hún verður ástfangin af Simone de Beauvoir, hugfangin, jafnvel heltekin – en ást hennar er óendurgoldin. Hún tekur sér elsk- huga og stendur blákalt á sama þótt hann sé kvæntur. Hún leitar uppi gamla ástkonu, tekur hendur henn- ar í lófa sína og sér þar merki um hlekki hjónabandsins – vinnulúnar hendur eftir áratugalöng heim- ilisverk giftrar konu. Hún ferðast ein. Hún leggst út í móa og lætur þar hendur renna í skaut sér. Hún skrifar. Minnisstætt er mér atriði úr myndinni þegar Leduc samþykkir að leika hlutverk í kvikmynd sem vinir hennar í París eru að reyna að koma saman. Fullorðinn félagi hennar, karlmaður á miðjum aldri, leikur ungbarn í vagni en Leduc leikur móður þess. Í miðri senu fær Leduc nóg, hleypur gráti nær út í skóg og vinur hennar á eftir. Hann skilur fátt en hún útskýrir fyrir hon- um að tengingin við móðurhlut- verkið sé henni óbærileg – hún geti ekki hugsað sér að leika móður. Vin- ur hennar bregst vel við og segist skilja en hún neitar því. „Þú getur ekki skilið – þú ert ekki kona.“    Kvikmyndin Violette minntimig á bók sem ég byrjaði að lesa í vor en hafði enn ekki klárað, Spinster – Making a Life of One‘s Own, eftir Kate Bolick. Ég hreiðraði um mig með bókina um leið og heim var komið úr kvikmyndahúsinu og kláraði hana þá um kvöldið. Í sem stystu máli fjallar bók Bolick um kvenrithöfunda, þar á meðal hana sjálfa, sem ekki vilja giftast og vilja heldur ekki eignast börn. Þær ótt- ast að barnið taki líf þeirra yfir og þær týndu sjálfum sér í ást sinni á barninu – mjög raunhæfur ótti og á kannski eitthvað skylt við þá tilfinn- ingu sem greip Leduc þegar hún lék móður í kvikmynd vina sinna. „Í dag segjum við ungum stúlk- um að þær geti fullorðnast og orðið eða gert hvað sem þær langar til. En menningarlegur þrýstingur um að kona verði á einhverjum tíma móðir er enn mjög sterkur. Sú kona er vandfundin sem aldrei leiðir hug- ann að því hvort hún muni sjá eftir því að hafa ekki eignast börn, fari svo að hún verði barnlaus,“ skrifar Bolick. Konur sem raunverulega taka þá ákvörðun að festa ekki ráð sitt eru oft afskrifaðar sem „klikkaðar“, „skrýtnar“ eða jafnvel „hættulegar fjölskyldueiningunni“. Bolick út- skýrir löngunina til einveru hins vegar vel og hún snýst alls ekki um það að sjálfskipaðar piparjónkur (e. spinsters) séu afhuga ástinni, líkt og sumir virðast halda. „Fantasía mín um að vera ein á hugsanlega einmitt rætur í því hversu mikla merkingu og þægð ég finn í ástarsamböndum mínum – hún sprettur ekki upp af því að ég vilji ekki slík sambönd, heldur af því að mig langar líka að finna sjálfa mig og merkingu með lífinu á annan hátt.“ »Hversu langtkemst kona frá hug- myndum samtímans um hana, án þess að týnast í gjánni milli sjálfrar sín og samfélagsins – og missa þar vitið? Oft er flagð undir fögruskinni, segir máltækið ogþað má vissulega heim-færa upp á ansi marga. Það sem virðist slétt og fellt á yf- irborðinu er oft meira en gruggugt þegar betur er að gáð. Paula Hawkins endur- speglar þennan ískalda veruleika á áhrifamikinn hátt í skáldsög- unni Konunni í lestinni og tekst sérlega vel upp. Sögusviðið er að mestu lítill bær skammt fyr- ir utan London á Englandi fyrir um tveimur árum en gæti þess vegna verið hvar sem er hvenær sem er. Fjallað er um að því er virðist ósköp venjulegt fólk á venjulegum stað en þegar blaðran springur verður fjandinn laus með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Sagan er sögð út frá sjónarhorni helstu kvensögupersóna, Rachel, Megan og Önnu, og lesandinn fær þannig skýra mynd af þeim en líka af helstu körlunum, sem höfundur lýsir svo vel í gegnum konurnar. Skemmdu fræin leynast víða, per- sónurnar eiga í mikilli innri baráttu og sálarflækjum, en sjálfsblekk- ingin er mikil og þá vefst lygin ekki fyrir fólki. Hún er samt oftast falskt haldreipi og upp komast svik um síðir. Konan í lestinni er margslungin glæpasaga, þar sem spilað er á strengi sálfræðinnar og mannlega bresti. Fléttan er úthugsuð og vel gerð, spennan eykst jafnt og þétt og fyrir vikið er erfitt að leggja bókina frá sér fyrr en að loknum lestri sögunnar. Flækjur í vef lyga Konan í lestinni bbbbn Eftir Paulu Hawkins. Bjarni Jónsson ís- lenskaði. Kilja. 377 bls. Bjartur 2015. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Rithöfundur Paula Hawkins heillar lestrarhesta heimsins. Konan í lestinni. Laufáskirkja fagnar um helgina 150 ára afmæli sínu. Í dag hefst hátíð- ardagskrá í tilefni afmælisins klukkan 14:00. Þar mun Björn Ingólfsson, fv. skólastjóri á Grenivík og nú sjálfstætt starfandi fræðimaður, fjalla í erindi um klerka í Laufási, Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir, fyrrum prestsfrú og staðarhaldari í Laufási, flytur valin kvæði eftir kennimenn er setið hafa staðinn og Petra Björk Pálsdóttir organisti mun stýra söng félaga úr eldri- borgarakórnum ,,Í fínu formi“ og Engilbert Ingvarsson syngur einsöng. Á morgun, sunnudag, verður einnig heilmikið um að vera. Haldin verður hátíðarguðþjónusta klukkan 14:00 þar sem kirkjukór Laufáss- og Greni- víkursóknar syngur. Boðið verður upp á messukaffi en kvennfélagið Hlín sér um veitingar. Almennur söngur verður í messukaffinu og munu þau Petra Björk og Valmar Valljots stýra honum. Afmælisgestir fá veglegan afmælisbækling í hendur þar sem fjallað er um kirkju og stað í máli og myndum. Hátíðardagskrá um helgina í tilefni af 150 ára afmæli Laufáskirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.