Þjóðmál - 01.06.2008, Blaðsíða 76
74 Þjóðmál SUmAR 2008
fólks.í.síldarplássunum.eða.því.fólki,.sem.til.
þeirra.kom.í.vinnu .
Það. voru. skemmtilegir. karlar,. margir.
síldarspekúlantarnir,. og. lék. um. þá. suma.
hina. stærstu. mikill. ævintýraljómi,. og. þeir.
urðu. sögufrægar. persónur,. en. þeir. voru.
menn.síns.tíma ..Það.á.aldrei.að.dæma.fyrri.
tíðar. menn. með. nútíma. hugsunarhætti .. Á.
sínum.tíma.voru.margir.síldarspekúlantanna.
mikilsmetnir. menn. og. fólki. fannst. ekkert.
óeðlilegt.við.hegðan.þeirra ..Þetta.var.gangur.
síldarlífsins .
Og.síldin.bjó.ekki.aðeins. til. síldarspekúl-
anta.heldur.einnig.síldarsjómenn,.sem.gekk.
illa. að.finna. sig. í.þorskpuðinu.eftir. að.hafa.
alizt. upp. og. lifað. í. hinu. áhættusama. og.
spennandi. síldveiðilífi,. og. landverkafólk,.
sem.ólst.upp.og.lifði.í.síldarvinnu.og.fjörugu.
síldarmannlífi .
Á. Austfjörðum. lágu. þorskveiðar. í. dróma.
um.aldir.vegna.þess,.sem.fyrr.er.lýst,.að.þar.
var. ekki. á. árabátaöldunum. hægt. að. stunda.
nema. sumarróðra. sökum. hinna. stríðu.
strauma,. en. á. sumrum. mátti. hinn. mikli.
sveitabúskapur. eystra. ekki. missa. vinnuafl.
til. róðra .. Vermennska,. eins. og. sú,. sem.
Norðlendingar.stunduðu,.var.Austfirðingum.
óhagstæð,. meðan. fara. þurfti. landveginn. í.
verið.syðra,.hann.var.bæði.langur.og.illfær .
Það.var.síldin,.sem.loks.hleypti.lífi.í.sjávar-
útveg.á.Austfjörðum.og.bjargaði.útveginum.
undan.landbúskapnum,.og.það.risu.upp.sjáv-
arpláss,.en.þau.urðu.fyrst.og.fremst.síldarpláss,.
og.þau.urðu.fjölmenn ..Í.hálfa.öld,.eða.síðustu.
þrjá.áratugi.19du.aldar.og.fyrstu.tvo.áratugi.
núaldar,. stunduðu. og. lifðu. Austfirðingar. í.
sjávarplássunum.á.síldveiðum .
... ... ... .
Aðalsteinn.Jónsson.er.maður.síldarinnar.í. sér,. og. það. er. auðvitað. síld,. sem.
hann.þráir.mest,.eins.og.aðrir.Austfirðingar,.
en.hann. verður.nú.mikið. að.hugga. sig. við.
loðnuna .. Ef. loðnuskip. rennir. inn. fjörðinn,.
þá.uppljómast.útgerðarmaðurinn.eins.og.sól.
komi.í.hús.hans .
–. Heldurðu. þú. hefðir. ekki. orðið. síldar-
spekúlant,. ef. þú. hefðir. verið. uppi. á. fyrri.
hluta. aldarinnar. á. blómaskeiði. síldar-
spekúlantanna?
–. Nei,. ég. veit. alveg. hvernig. þeir. karlar.
höguðu.sér,.áttu.það.til.að.skilja.allt.eftir.í.rusli.
og.kveðja.hvorki.kóng.né.prest.á.haustin .
–.Þetta.var.nú.aldarandinn,.og.þessir.menn.
voru.engir.bandíttar,.oft.mestu. sómamenn,.
stundum.svoldið.kvensamir.og.drykkfelldir,.
en.ágætir.náungar .
–.Það.getur.verið,.en.ég.hefði.þá.orðið.að.
gera.út.í.einhverjum.öðrum.stað.en.Eskifirði,.
þar.sem.ég.er.fæddur.og.uppalinn ..Ég.hefði.
aldrei. stungið. af. með. aurana. eitthvað. útí.
lönd.og.skilið.allt.mitt.fólk.eftir.í.reiðileysi,.
bókstaflega.ekki.getað.það .
–.Þú.ert.líklega.öðrum.þræði.þorskútgerð-
armaður. í. þér,. þorskinum. fylgir. ábyrgðar-
tilfinning,.ekki.síldinni ..Þorskurinn.er.stabíll.
fiskur .
–.Ég.spyr.nú.ekki.að.því.með.ykkur.þessa.
Vestfirðinga,.þið.eruð.fæddir.í.þorski.og.lifið.
og.hrærist.í.þorski,.og.allt.ykkar.líf.er.þorsklíf ..
Það.er.ekki.hægt.að.tala.um.neitt.annað.við.
ykkur.en.þorsk .
–. Þorskurinn. hefur. reynzt. okkur. vel. og.
ekki.lakar.en.ykkur.síldin,.við.erum.þó.alltaf.
á.jörðinni.frá.degi.til.dags,.ekki.annan.daginn.
uppí.skýjunum.og.hinn.niðri.í.jörðinni .
–. Já,. hér. verður. að. tengja. þetta. saman,.
það. er. ekkert. vit. í. öðru,. þorskmiðin. okkar.
eru.ekki.jafngjöful.og.vestra.og.syðra,.en.við.
eigum. góð. síldar-. og. loðnumið. og. notum.
eðlilega.hvorttveggja .
–.Dreymir.þig.síld.eða.loðnu.á.nóttum?
–.Ég.ætla.nú.ekki.að.fara.að.rekja.fyrir.þér.
drauma. mína,. það. er. nóg. að. hafa. þig. hér.
spyrjandi.um.hugsanir.mínar .
Úr bókinni Lífið.er.lotterí,
saga.af.Aðalsteini.Jónssyni.og.Alla
ríka (1984) eftir Ásgeir Jakobsson.