Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 1
Stofnað 1913 211. tölublað 103. árgangur
M I Ð V I K U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 1 5
HVAÐ GERIR
SJÁLFSÆVISÖGUR
SPENNANDI? BARNEIGNIR REYNA Á
HVERSDAGSLEIKI
LIFNAR VIÐ Í
LITLU GALLERÍI
VINKONUR MEÐ RÁÐGJÖF 10 EYGLÓ Á GRENIVÍK 14
Ljósmynd/NOAA
Krabbi Hann getur orðið 10 kíló að þyngd.
Búi Vilhjálmur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Eldisrannsókna,
segir undirbúning hafinn að kónga-
krabbaeldi á Hauganesi. „Þetta er
allt saman í ákveðnu ferli og er nú
unnið hörðum höndum að því að
skila inn umsóknum um tilskilin
leyfi,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið.
Um er að ræða afar stóra krabba-
tegund og geta krabbarnir orðið
allt að 10 kíló að þyngd. Kónga-
krabbi getur valdið talsverðri rösk-
un á lífríki sjávar og gilda um eldið
strangar reglur. Hefur dýrateg-
undin meðal annars valdið usla við
Norður-Noreg. Búi Vilhjálmur seg-
ir stefnt að því að flytja mestan
hluta framleiðslunnar á markaði
erlendis, en framleiðsluferlið tekur
um 4 ár. »15
Undirbúa ræktun
kóngakrabba á
Hauganesi
Aðgerðir boðaðar
» Auka á framlög til heilbrigð-
ismála um 1,6 milljarða.
» Lækka á skattbyrði vegna
tekna af húsaleigu úr 14% í
10% til að lækka leiguverð.
» Launaliður hækki um 9,5%
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
,,Við erum með hallalaus fjárlög á
næsta ári, þriðja árið í röð,“ sagði
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, er hann kynnti
fjárlagafrumvarp ársins 2016 í gær.
Frumvarpið er lagt fram með 15,3
milljarða kr. afgangi og segir ráð-
herrann að útlit sé fyrir stöðugan
bata á afkomu ríkissjóðs á komandi
árum.
Bjarni boðaði verulega lækkun
skulda ríkisins á næsta ári, lækkun
skatta á einstaklinga, afnám tolla og
aukin útgjöld til velferðarmála.
Hreinar skuldir ríkissjóðs lækka á
næsta ári og vaxtagjöldin minnka
um 8,1 milljarð á árinu.
Fram kom í máli fjármálaráð-
herra að launaliður ríkisins hefði
aldrei hækkað jafnmikið á milli
fjárlagaára í kjölfar kjarasamninga
og er um 29 milljarða hækkun að
ræða. Heildarútgjöld ríkisins hækka
um 22 milljarða frá áætlaðri útkomu
á yfirstandandi ári og heildartekjur
aukast um 16,2 milljarða en dragast
þó saman sem hlutfall af landsfram-
leiðslu.
Útlit fyrir stöðugan bata
Hreinar skuldir ríkisins lækka Stefnt að 15,3 milljarða afgangi Vaxtagjöld
minnka um 8,1 milljarð Launaliðurinn hækkar um 29 milljarða á milli ára
M 15,3 milljarða afgangur »6
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, varaði við því, í ávarpi við
þingsetningu í gær, að breytt yrði
ákvæðum stjórnarskrár, einkum
hvað snertir fullveldi Íslands. Hann
varaði sérstaklega við því að breyt-
ingum yrði flýtt þannig að hægt yrði
að kjósa um þær samhliða forseta-
kosningunum í vor.
„Um þessar mundir er hins vegar
boðað í nafni nefndar, sem ræðir
stjórnarskrána, að hið nýja þing
þurfi á næstu vikum að breyta þess-
um hornsteini íslenskrar stjórnskip-
unar; tíminn sé naumur því nýta
þurfi vegna spar-
semi og hagræðis
forsetakosningar
á næsta vori.
Efnisrökin eru
hvorki tilvísun í
þjóðarheill né rík-
an vilja lands-
manna, heldur al-
mennt tal um
alþjóðasamstarf,
lagatækni og ósk-
ir embættismanna. Íslandi hefur þó
allt frá lýðveldisstofnun tekist vel að
stunda fjölþætt alþjóðasamstarf á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna,
Norðurlandaráðs, NATO, EFTA og
fleiri bandalaga, eiga gjöful og marg-
þætt tengsl við ríki, stór og smá, í öll-
um álfum án þess að þörf væri að
breyta fullveldisákvæðum lýðveldis-
ins; hinum helga arfi sjálfstæðisins,“
sagði Ólafur Ragnar.
Kvaddi þingmenn
Þetta er síðasta þingsetning á
kjörtímabili forsetans. Hann kvaddi
þingmenn en sagði ekki frá því hvort
hann hygðist hætta í vor eða bjóða
sig fram á ný. »4
Varar við breytingum
Ekki verði kosið um stjórnarskrá um leið og forseta
Ólafur Ragnar
Grímsson
Strákarnir á dragnótabátnum Ólafi Bjarnasyni
SH slógu ekki slöku við í gær og sóttu björg í bú.
Veður var enn bærilegt þegar komið var til
Ólafsvíkur síðdegis og ljósmyndaranum var
fagnað með sveiflu sem minnti á kvikmyndina
Titanic. Mikil úrkoma mældist víða á Snæfells-
nesi í gær og Veðurstofan segir að búast megi
við vexti í ám á Suður- og Vesturlandi fram á
fimmtudag með aukinni hættu á skriðuföllum.
Enn er varað við vatnsveðri
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Með sveiflu á leið í heimahöfn í Ólafsvík
Þeim sem
horfa á útsend-
ingar af leikjum
íslenska karla-
landsliðsins í
knattspyrnu hef-
ur farið stigfjölg-
andi undanfarin
misseri. Rúmlega
helmingur þjóð-
arinnar horfði á
allar mínúturnar
af útsendingu frá leik Íslands og
Kasakstan að meðaltali.
„Almennt eru þetta miklu hærri
tölur en gerist annars staðar,“ seg-
ir Valgeir Magnússon, markaðs-
rannsóknastjóri á RÚV. »4
Miklu hærri tölur en
gerist annars staðar
Áhorf Margir horfa
á landsleiki Íslands.
JÓN GNARR Á BÓKMENNTAHÁTÍÐ 30
Mynd Jóhannesar Kjarval, Birtu-
skil í hrauni, var dýrasta mynd
Listmunauppboðs Gallerís Foldar í
gær en myndin var seld á 3,9 millj-
ónir með öllum gjöldum. Var það
erlendur maður sem gekk inn í gall-
eríið klukkan 17.30 og kolféll fyrir
myndinni. Verðmat myndarinnar
var þrjár til fjórar milljónir.
Húsfyllir var þegar uppboðið fór
fram en að þessu sinni var boðið
upp tvö kvöld, mánudag og þriðju-
dag. Þar var að finna úrval verka
samtímalistamanna sem og fjölda
verka eftir gömlu meistarana.
Jóhann Ágúst Hansen, fram-
kvæmdastjóri hjá Galleríi Fold,
segir að kvöldin hafi gengið vel þó
verð í gær hafi verið nær verðmat-
inu. „Það er töluvert um að fólk sé í
símanum þegar uppboðið hefst,
þannig að það er ekki endilega í
salnum þegar það er að bjóða. Um
þriðjungur af verkunum er seldur í
gegnum síma og í gegnum vefinn,“
segir hann.
Myndir eftir Nínu Tryggvadótt-
ur, Louisu Matthíasdóttur og Krist-
ínu Jónsdóttur voru einnig slegnar
yfir verðmatinu. benedikt@mbl.is
Féll fyrir Kjarval og
borgaði 3,9 milljónir