Morgunblaðið - 09.09.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 09.09.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra sagði í setningarræðu sinni við upphaf 145. löggjafarþings Alþingis framlög verða aukin til allra mikilvægustu málaflokka ríkisins þrátt fyrir að ríkið yrði rekið með af- gangi. „Framlög til heilbrigðismála hafa aldrei verið jafn mikil, það sama á við um framlög til nánast allra vel- ferðarmála, félagsmála og almanna- trygginga,“ sagði Sigmundur í ræðu sinni. Hrein aukning framlaga til heil- brigðis- og félagsmála á kjör- tímabilinu nema 26 milljörðum króna að því er fram kom í máli hans í gær. „Þetta samsvarar því að hálfur Landspítali hafi bæst við velferðar- útgjöldin á kjörtímabilinu. Allar lík- ur eru á því að svigrúm verði til að gera betur á næstu árum,“ sagði hann. Breytt nálgun á stjórnmálin Rauði þráðurinn í umræðum sem fylgdu á eftir um ræðu forsætisráð- herra var breytt pólitískt umhverfi á Íslandi og hvernig Alþingi þyrfti að fylgja þeirri þróun. Höfðu formenn flokanna hver sína sýn á málin. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og viðskipta- og efnahagsráðherra, sagði til að mynda að lítið traust landsmanna til Alþing- is væri tilkomið vegna lítils trausts Alþingis til landans. „Við erum ekki enn farin að treysta fólki til samræmis við það sem fólk telur að það eigi að fá frá þinginu,“ sagði Bjarni. Sagði hann stærstu framfaraskref sögunnar hafa verið stigin þegar ákvarðanir um aukið frelsi til fólks í landinu hefðu verið stigin á Alþingi. Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar, sagði stjórn- málaflokkana vera á síðasta séns hjá þjóðinni og vísaði hann þar til nýrrar stjórnarskrár. „Ef ekkert verður nú einn ganginn enn úr, er hætt við að vonbrigðin með þá flokka sem eiga hér fulltrúa verði enn meiri,“ sagði hann. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði tíma „koll- steypustjórnmála liðinn“ jafnframt því sem hún benti á að núverandi rík- isstjórn legði ofurkapp á að snúa öllu við sem sú síðasta gerði, án neinnar hugsunar um langtímasjónarmið. Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, sagði flokkinn vilja gera gagn og standa fyrir umbótum. Búið væri að sóa miklum tíma á þingi í mál sem ekki var haft samráð um, t.d. að- ildarviðræður við ESB og tillögu um virkjanir framhjá Rammaáætlun. „Það myndaðist engin sátt um þessi mál, hvorki inni á þingi né í þjóð- félaginu. Það var ekki gerð tilraun til þess að ná um þau sátt og það var aldrei möguleiki á neinni sátt. Sátt og traust er ekki eitthvað sem hægt er að panta eða heimta,“ sagði Ótt- arr. Eins og hálfur Landspítali  Aukning framlaga til heilbrigðis- og félagsmála á kjörtímabilinu 26 milljarðar  Miklum tíma sóað í mál án samráðs, segir formaður Bjartrar framtíðar Morgunblaðið/Styrmir Kári Stefnuræða Forsætisráðherra sagði að framlög yrðu aukin til allra mikilvægustu málaflokka ríkisins. Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra, sagði frá því í færslu á heimasvæði sínu á Facebook að hann hefði greinst með krabbamein um miðjan júlí og væri að berjast við það þessa dagana og vikurnar. Hann mætti því ekki til þings næstu vikur. „Ég treysti á að Alþingi standi sig í erfiðum störfum framundan, leggi áherslu á afkomu þeirra sem minnst hafa og gæti hags barna, öryrkja og eldri borgara. Þá leggi þingið áherslu á aukið samstarf stjórnar- og stjórn- arandstöðu, en ég minni á að sam- starf þýðir að leita saman að bestu lausnum, en ekki að meirihlutinn einn ráði,“ skrifaði Guðbjartur meðal ann- ars í færslu sinni. Ólína Þorvarðardóttir, varaþing- maður í Norðvesturkjördæmi og áður alþingismaður til margra ára, sest á þing í veikindaleyfi Guðbjarts. Tveir nýir taka fast sæti á þingi Sigríður Á. Andersen hefur nú tek- ið fast sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæð- isflokkinn, eftir fráfall Péturs H. Blöndal. Hún hefur verið varaþing- maður undanfarin ár og nokkrum sinnum tekið sæti á þingi. Þá er Ásta Guðrún Helgadóttir orðin þingmaður fyrir Pírata í Reykjavík. Hún tekur sæti Jóns Þórs Ólafssonar, sem lýsti því yfir í vor að hann myndi ekki taka sæti á Alþingi í haust. Ásta Guðrún hefur verið vara- þingmaður hans og tekið nokkrum sinnum sæti á Alþingi. helgi@mbl.is Guðbjartur Hannesson Ólína Þorvarðardóttir Guðbjart- ur í veik- indaleyfi  Ólína Þorvarðar- dóttir leysir hann af Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pír- ata og fyrrverandi kapteinn flokks- ins, hóf ræðu sína í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á því að gagnrýna forseta Íslands vegna ummæla sem hann hafði um kosn- ingar um stjórnarskrá samhliða forsetakosningum. Sagði hún Ólaf Ragnar Grímsson hafa fært sig inn á „háskalegar og gerræðislegar brautir gagnvart þingræðinu í [gær]dag“, þegar hann hefði „látið í veðri vaka að ekki sé vandað til verks“ við gerð nýrrar stjórn- arskrár. Því næst sagði hún óskhyggju- lega barnagælu hafa komið sér í hug þegar hún las ræðu forsætis- ráðherra. „Ég skal mála allan heiminn, elsku Íslendingur,“ sagði Birgitta um ræðuna sem henni þótti endurspegla teiknimynd þar sem lita á yfir aðkallandi vandamál með fallegum orðum og litum. Birgitta sagði það vera gott að vera óskrifað blað, líkt og hún sagðist vera að mati margra vald- hafa. „Við Píratar ætlum að halda áfram að feta þá braut að fjalla um róttækar breytingar og leggja til lausnir í anda 21. aldarinnar,“ sagði Birgitta. Lausnir í anda 21. aldarinnar BIRGITTA JÓNSDÓTTIR GAGNRÝNDI ÓLAF RAGNAR Á undanförnum tveimur árum hef- ur 1.700 m.kr. verið varið til vernd- ar og uppbyggingar á ferðamanna- stöðum í gegnum Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Aldrei hafa jafn miklir fjármunir verið settir í mála- flokkinn. Tæpar 500 milljónir hafa komið frá gistináttaskatti en 1.230 milljónir hafa komið í gegnum sér- stakar úthlutanir ríkisstjórnarinn- ar árin 2014 og 2015. Við undirbúning fjárlagafrum- varpsins varð ljóst að 1.200 millj- ónir liggja enn óhreyfðar í Fram- kvæmdasjóðnum og hefur ekki verið ráðstafað í þau verkefni sem úthlutað hefur verið til. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá Atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytinu. Unnið hefur verið að því í sumar að kortleggja ástæður þess og eru þar ýmsar skýringar á. „Þar má nefna að skipulagsvinnu er ólokið, undirbúningur og hönnun ýmiskon- ar hefur tekið lengri tíma, ágrein- ingur um eignarhald svæða hefur tafið framkvæmdir og ýmislegt fleira,“ segir meðal annars. „Meta þarf í kjölfarið hversu háum fjárhæðum stjórn Fram- kvæmdasjóðs ferðamannastaða geti endurúthlutað þar sem ekki sé lengur þörf fyrir fjármunina í þau verkefni sem þeim var upprunalega úthlutað til. Staða Framkvæmda- sjóðsins sýnir glögglega að skortur á fjármagni er ekki stærsta hindr- unin í uppbyggingunni þar sem vel yfir helmingi verkefna sem út- hlutað hefur verið til er enn ólok- ið,“ segir í tilkynningunni. benedikt@mbl.is Hæg uppbygging á ferðamannastöðum Morgunblaðið/Eggert Nóg til Peningaskortur er ekki stærsta hindrun fyrir uppbyggingu.  1,2 milljarðar króna liggja óhreyfðir Þórunn Guðmundsdóttir, formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, mun ekki tjá sig um orð Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, um að stjórnendur Seðlabankans eigi að sæta ábyrgð, en mál Seðla- bankans á hendur stjórnendum Samherja hefur verið fellt niður. „Ég er búin að láta bankaráðið vita að ég er vanhæf í þessu máli og mun víkja sæti þegar þetta kemur upp á fundi bankaráðs. Samherji er viðskiptavinur lögmannsstofu minn- ar og þó ég hafi aldrei unnið fyrir fyrirtækið mun ég víkja og ekki fjalla um málið,“ segir Þórunn en hún á hlut í lögmannsstofunni Lex. Tjónið gríðarlegt Fyrir helgi felldi embætti sérstaks saksóknara niður mál á hendur Þor- steini og nokkrum starfsmönnum Samherja er varðaði meint brot á lögum og reglum um gjaldeyrismál. Már Guðmundsson, seðlabanka- stjóri, var ekki í aðstöðu til að tjá sig um orð Þorsteins, þegar blaðið náði tali af honum í gær. Þorsteinn Már sagði meðal annars í bréfi sínu til starfsmanna Samherja á sunnudag „Löngu tímabært er að æðsta stjórn bankans axli ábyrgð með því að grípa inn í og stöðva þessa misbeitingu valds og kalli menn til ábyrgðar til að tryggja að svona lagað endurtaki sig ekki. Ég hyggst senda bankaráði opið bréf þess efnis á næstu dögum,“ skrifaði Þorsteinn og bætti við. „Mér er ekki efst í huga fjárhagslegt tjón heldur hvernig þessar skipulögðu ofsóknir hafa spillt orðspori okkar um allan heim.“ Vanhæf og víkur í Samherja-máli  Formaður banka- ráðs Seðlabankans fjallar ekki um málið Morgunblaðið/Ómar HS Orka áformar að reisa um 9 MW rennslisvirkjun í efri hluta Tungu- fljóts í Biskupstungum, Brúarvirkj- un, og hefur Mannvit lagt fram til- lögu að matsáætlun fyrir hönd fyrirtækisins. Orkuöflun HS Orku hefur til þessa að mestu byggst á jarðvarma- virkjunum, það er orkuveri í Svarts- engi og Reykjanesvirkjun. Þær eru grunnaflsvirkjanir sem starfræktar eru nálægt málafli allt árið þar sem þær henta síður til að fylgja breyti- legu álagi, segir í tillögunni. Fyrir- tækið hefur í seinni tíð gert samn- inga um kaup á orku frá litlum vatnsaflsvirkjunum til að styrkja stöðu sína á raforkumarkaði og með Brúarvirkjun er fetað áfram þá slóð. HS Orka hyggst virkja í Tungufljóti Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma í gær að taka á móti flótta- fólki. Bæjarstjóra var falið að koma afstöðu bæjarins á framfæri og vinna að frekari undirbúningi í samvinnu við ráðuneyti, félags- málastjóra og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. „Kópavogsbær vill sýna ábyrgð og telur eðlilegt að bærinn, sem næst stærsta sveitarfélag landsins, bjóði flóttafólki aðstoð, í hlutfalli við stærð sína,“ segir í ályktun. Kópavogur vill taka á móti flóttafólki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.