Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Tenging [þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar] við for- setakosningar næsta vor skiptir í þessum efnum litlu og er jafnvel ólýðræðisleg í eðli sínu,“ sagði Ólaf- ur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í ávarpi við setningu Alþingis í gær. Hann lét ekki uppihvort hann hygð- ist bjóða sig fram við forsetakosn- ingarnar. Forsetinn ræddi um mikilvægi óskerts fullveldis þjóðarinnar. Bar- áttan fyrir því hefði varað í heila öld. Það hefði verið hornsteinn í sjálf- stæðiskröfum Íslendinga og í átök- um um útfærslu landhelginnar. Full- veldisrétturinn hefði einnig verið úrslitavopn þegar „bandalag Evr- ópuríkja reyndi að þvinga Íslendinga til að axla skuldir einkabanka“. Ekki vísað í þjóðarheill Þetta var inngangur hans að um- ræðu um breytingar á fullveldis- ákvæðum stjórnarskrár. „Um þess- ar mundir er hins vegar boðað í nafni nefndar sem ræðir stjórnarskrána að hið nýja þing þurfi á næstu vikum að breyta þessum hornsteini ís- lenskrar stjórnskipunar. Tíminn sé naumur því nýta þurfi, vegna spar- semi og hagræðis, forsetakosning- arnar á næsta vori. Efnisrökin eru hvorki tilvísun í þjóðarheill né ríkan vilja landsmanna, heldur almennt tal um alþjóðasamstarf, lagatækni og óskir embættismanna,“ sagði Ólafur Ragnar og benti á að Íslendingum hefði tekist að vera í margvíslegu al- þjóðasamstarfi án þess að þörf hefði verið á að breyta fullveldisákvæðum lýðveldisins. Ef þingið hygðist hreyfa við full- veldisréttinum bæri að vanda þá vegferð, gaumgæfa orðalag og allar hliðar málsins og efna til víðtækrar umræðu um afleiðingar slíkrar breytingar. Hann sagði að tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslur og þjóð- areign á auðlindum landsins hvíldu aftur á móti á viðtækri lýðræðislegri umfjöllum. „Ég hef lengi talið að greinar um þjóðareign og atkvæða- greiðslu ættu erindi í stjórnarskrá en jafnframt ítrekað, bæði áður og aftur nú, að samning þeirra er vandaverk. Hvorki þröng tímamörk né sparnaðarhvöt mega stofna gæð- um verksins í hættu,“ sagði forsetinn og varaði við tengingu við forseta- kosningar í vor. Ítrekaði hann fyrri varnaðarorð sín um að Alþingi þyrfti að tryggja að þjóðin vissi með vissu hver staða forsetans væri í stjórn- skipan landsins þegar hún gengi að kjörborðinu í vor. Bætti við að Ís- lendingar væru ekki svo fátækir að ekki væri hægt að veita þjóðinni, með aðgreindum kosningum, sjálf- stæðan rétt til að ákveða nýskipan stjórnarskrár og kjósa sérstaklega forseta lýðveldisins. Kvaddi þingheim Þetta er síðasta þingsetning á kjörtímabili forsetans. Hann kvaddi þingmenn en sagði ekki frá áformum sínum. „Þegar ég nú, samkvæmt um- boðinu sem þjóðin fól mér, set Al- þingi í síðasta sinn, flyt ég þinginu í senn djúpa virðingu mína og einlæg- ar þakkir,“ sagði Ólafur Ragnar og minntist fjölmargra samstarfs- manna sinna í þinginu, bæði í núver- andi stöðu og áður. Tenging við kosningar ólýðræðisleg  Forseti Íslands hvetur þingmenn til að vanda til verka við breytingar á fullveldisrétti lýðveldisins  Vill ekki blanda saman atkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar og kosningu forseta Íslands Morgunblaðið/Árni Sæberg Þingsetning Þingmenn voru heldur alvörugefnir við þingsetninguna í gær, enda mörg verkefni framundan. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ávarp Ólafur Ragnar Grímsson. Forseti Alþingi, Einar K. Guðfinnsson, gerði vinnu við endurskoðun á þingsköpum Alþingis að umtalsefni í þingsetningarræðu. Starfið hefði orðið tafsamara en hann hugði. Það þyrfti þó ekki að vera alslæmt. Vegna þess að vinnan stæði enn yfir gæfist þingmönnum tækifæri til að læra af reynslunni, ekki síst reynslu síð- asta þings. Þá mundi reyna á málið í vetur. Hann sagði að sá munur sem væri á þinghaldi hér og í nágrannalöndunum hefði verið sér talsvert umhugs- unarefni á síðustu mánuðum og allir hlytu að velta honum fyrir sér. „Þau þingsköp sem við búum við eru ekki ósvipuð þeim sem gilda í þeim ríkjum sem við ber- um okkur helst saman við, svo sem á Norðurlöndunum. Það er því býsna mikið umhugsunar- efni að þinghaldið hjá okkur er oft á tíðum frábrugðið því sem þar tíðk- ast. Skýringanna hlýtur því að vera að leita annars staðar en í leikregl- unum sem við höfum leitt í lög,“ sagði Einar. Hann boðaði að forsætisnefnd hygðist á næstu vikum flytja frum- varp um breytingar á lögum um rannsóknarnefndir Alþingis og end- urflytja frumvörp um ný heildarlög fyrir ríkisendur- skoðun og siðareglur fyrir þingmenn. Skýringarnar aðrar en leikreglurnar STÖRF ÞINGSINS FORSETA ALÞINGIS UMHUGSUNAREFNI Einar K. Guðfinnsson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Almennt eru þetta miklu hærri töl- ur en gerist annars staðar og segir okkur að Íslendingar eru óðir í að horfa á fótbolta þegar vel gengur,“ segir Valgeir Vilhjálmsson, mark- aðsrannsóknarstjóri á RÚV, um áhorfendatölur á landsleiki Íslands sem sjá má á meðfylgjandi töflu. Þar má sjá áhorf á leiki íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í síð- ustu tveimur undankeppnum. Hefur meðaláhorf á allar mínútur leiksins aldrei verið meira en í leiknum gegn Kasakstan á sunnudag síðasta þegar það fór yfir fimmtíu prósent. „Fótboltaleikir eru þetta langir, jafnvel yfir 100 mínútum þegar upp- hitun og uppbótartími er talinn með. Að fá meðaláhorf á hverja mínútu sem er yfir fimmtíu prósentum er ótrúlega mikið og mjög sjaldgæft. Ég sendi þessi gögn til UEFA, Sporting intelligence og Sportfive í Evrópu og þeir eiga ekki til orð yfir þetta áhorf,“ segir Valgeir og bætir við að einn þeirra sem hann sendi gögnin á hafi sent til baka Vá! þegar hann sá tölurnar. Ótrúlegar áhorfendatölur  Horft á allar mínútur leiksins við Kasakstan Sjónvarpsáhorf á landsleiki Íslands *Áhorf lengur en í 5 mínútur Leikur Úrslit Áhorf allantímann í % Uppsafnað áhorf í %* Ísland - Noregur 2-0 29,4 55,3 Kýpur - Ísland 1-0 16,6 35,0 Albanía - Ísland 1-2 32,9 46,1 Ísland - Sviss 0-2 14,5 38,4 Slóvenía - Ísland 1-2 11,1 28,3 Ísland - Slóvenía 2-4 26,8 53,4 Sviss - Ísland 4-4 20,2 43,7 Ísland - Alabanía 2-1 34,8 61,6 Ísland - Kýpur 2-0 29,7 58,0 Noregur - Ísland 1-1 36,7 66,5 Ísland - Króatía 0-0 45,1 78,7 Króatía - Ísland 2-0 48,0 77,6 Ísland - Tyrkland 3-0 (1-0) 25,8 50,5 Lettland - Ísland 0-3 (0-0) 25,9 48,1 Ísland - Holland 2-0 (2-0) 35,9 60,0 Tékkland - Ísland 2-1 (1-1) 41,2 65,0 Kasakstan - Ísland 0-3 (0-2) 20,3 40,1 Ísland - Tékkland 2-1 (0-0) 29,9 53,8 Holland - Ísland 0-1 (0-0) 47,9 66,3 Ísland - Kasakstan 0-0 51,9 66,0 Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri, telur jákvætt að ráðherrar séu farnir að tala um Laugardals- völl sem þjóðarleikvang. Það er hann ekki samkvæmt skilgrein- ingu, en hjá ríkinu liggur tillaga starfshóps Katr- ínar Jakobsdótt- ur, fyrrverandi menntamálaráð- herra, um að hann verði slík- ur. Verði af því myndi ríkið taka yfir rekstur hans af borg- inni. Eins segir hann að vel sé hægt að taka undir ályktun íþróttafélaga í Reykjavík um að ekki verði frekara fé varið frá borginni til uppbyggingu áhorf- endaaðstöðu. „Borgin hefur setið uppi með mikinn framkvæmdar- og rekstrarkostnað. Við erum tilbúin að ræða ýmislegt en íþróttafélögin í Reykjavík, eða ÍBR, hafa ályktað skýrt um að það muni ekki koma frekari peningar til áhorfendaaðstöðu,“ segir Dag- ur. „En þessi umræða er á nokkru frumstigi og við munum heyra hugmyndirnar og setjast niður með ríkinu, en ég tek undir með íþróttafélögunum um að það sé ekki sjálfgefið að meira fé sé sett í Laugardalsvöll frá borginni,“ segir Dagur. Aðstæður í Laugardal séu til sóma Spurður hvort hann telji farsæl- ast að ríkið taki yfir rekstur þjóð- arleikvanga á borð við Laugardals- völl þá telur hann slíkt ótímabæra umræðu. „Það þarf fyrst að fá hugmyndir fram áður en hægt er að taka af- stöðu til þess. Mér finnst ekki al- veg skýrt hvað ríkið ætlar sér en ég geri ráð fyrir að frumkvæðið [að byggingu nýs Laugardalsvall- ar] liggi hjá því. Ég tek samt fram að mínar dyr standa opnar til þess að ræða þessa hluti. Borgin fer líka með skipulagsvald og viljum passa upp á að aðstæður í Laug- ardal séu til sóma,“ segir Dagur. vidar@mbl.is Dagur B. Eggertsson Frumkvæðið sé hjá ríkinu  Dagur B. Eggertsson segir ekki sjálfgefið að borgin setji meira fé í Laugardalsvöll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.