Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári Blessað barnalán Matthildur t.v. umkringd sínum börnum, Jóhanni Inga, Eddu og Elvu. T.h. er Ingunn Ásta með sín börn, Silvíu, Anítu og Ívar Inga. um. Þar sem flestir kusu að svara í einkaskilaboðum fannst okkur aug- ljóst að þörf væri á fámennum fræðslunámskeiðum.“ Fyrsta námskeiðið sem þær bjóða upp á, Barnið komið heim, hvað svo? er ætlað verðandi foreldrum með sitt fyrsta barn og byggist að mörgu leyti á þessum könnunum. Markmiðið er að varpa ljósi á þá veg- ferð sem hefst við fæðingu barns og að efla sjálfstraust foreldra. Andleg líðan, parasamband, umönnun barns, hagnýtar upplýsingar og raunhæf verkefni eru leiðarstefin. Þær gera ráð fyrir sjö til tíu pörum á hverju námskeiði en segja einstaklinga vita- skuld líka velkomna, sem og foreldra sem eigi börn fyrir. „Við kappkostum að námskeiðið sé bæði hagnýtt og skemmtilegt. Þótt dúkkur verði stað- genglar barna fá verðandi foreldrar raunhæf verkefni í umönnun þeirra, auk þess sem við förum yfir ýmis lagaleg atriði og sendum svo þátttak- endur heim með gott veganesti – langan lista af góðum ráðum.“ Veraldlegu hlutirnir Á námskeiðinu verða samband og samskipti verðandi foreldra einnig í brennidepli. Þeim finnst gríðarlega mikilvægt að pör hlúi sérstaklega að sambandinu sín á milli þegar barn er í vændum. „Það er ekki nóg að huga bara að veraldlegu hlutunum; kaupa fínasta fatnaðinn, vögguna, bílstólinn, barnavagninn og þvíumlíkt áður en barnið fæðist. Eftir fæðinguna verða miklar breytingar sem oft reyna á parasambandið og skapa jafnvel tog- streitu. Margir eru óöruggir í nýju hlutverki og smeykir við að gera mis- tök eða leita sér aðstoðar ef eitthvað kemur upp á. Ekki er sjálfgefið að ný- bökuðum foreldrum líði vel þótt barn- ið sé heilbrigt. Þar sem ríkjandi við- horf eru á þann veg að tíminn með nýfædda barninu eigi að vera svo dásamlegur og skemmtilegur geta foreldrar fyllst sektarkennd ef tilfinn- ingar sem ekki eru 100% jákvæðar láta á sér kræla. Þeir eru oft undir mikilli pressu að gera allt rétt og fá vel meint ráð héðan og þaðan; ekki láta barnið nota snuð, endilega að mauka allan mat handa barninu og þar fram eftir götunum. Önnur pressa er að standa sig vel í brjósta- gjöfinni, hafa barnið minnst sex mán- uði á brjósti og síðast en ekki síst er mikill þrýstingur á mæður að vera komnar í form strax eftir fæðingu.“ Innsæið og mömmuhjartað Ingunn Ásta og Matthildur hafa reynt þetta allt saman á eigin skinni – þrisvar sinnum hvor – og þar sem þær eru líka vel lesnar í uppeldis- fræðunum telja þær sig vel í stakk búnar að greina kjarnann frá hisminu og leiðbeina öðrum. Í stórum dráttum eru þær á því að affarasælast sé að láta eigið innsæið ráða, eða einfald- lega mömmuhjartað eins og stundum er sagt. Börn þrífist ágætlega þótt þau séu ekki eins lengi á brjósti og handbækurnar kveði á um, noti snuð og fái ekki heimamaukaðan mat. „Það er krefjandi að eignast sitt fyrsta barn og vissulega verður fólk öruggara í foreldahlutverkinu eftir því sem börnin verða fleiri. Samt má ekki gleyma að hvert barn er einstakt og hverju barni fylgja nýjar áskor- anir. Fyrsta barn reynir þó yfirleitt mest á samband foreldranna, lítilfjör- legur ágreiningur um verkaskiptingu getur blossað upp, einnig afbrýðisemi hjá föðurnum því að öll orka móður- innar kann að fara í að sinna barninu, svo nokkur dæmi séu tekin. Sam- bandið situr á hakanum og þótt í bí- gerð sé að fara kannski út að borða getur slíkt dregist von úr viti. Stund- um gleymist alveg ástæða þess að parið ákvað upphaflega að eignast barn – sem væri þó vel þess virði að rifja upp á erfiðum stundum.“ Sértæk vandamál Þær segja ekki nóg að afla sér upplýsinga með því að gúggla ýmis vandamál sem upp kunna að koma, enda séu þau yfirleitt sértæk og kalli á sértækar lausnir, eins og þær orða það, og því sé mikilvægt að foreldrar geti leitað sér persónulegrar ráð- gjafar. Þær eru að þróa alls konar námskeið en vilja ekki fara nánar út í þá sálma að sinni, upplýsa þó að upp- eldisnámskeið fyrir foreldra ungra barna sé á döfinni. „Flestir standa sig alveg prýði- lega í foreldrahlutverkinu og við ætl- um svo sannarlega ekki að fara að ýta undir frammistöðukvíða. Námskeið- inu Barnið komið heim, hvað svo? er þvert á móti ætlað að ráðast að rótum kvíðans og styrkja foreldra í nýju hlutverki. Við vonumst til að geta fljótlega verið í fullu starfi í nýja fyrirtækinu okkar þar sem við bjóð- um upp á námskeið af ýmsu tagi og veitum jafnframt viðtöl eftir pöntun. Miðað við viðtökurnar eru við bjart- sýnar.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Safnaðu litlum listaverkum Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Ámorgun 10. september gefur Íslandspóstur út tvær frímerkjaraðir og eina smáörk. Myndefni frímerkjanna eru Elliðaeyjar- ogÆðeyjarvitar og gamlar byggingar. Myndefni smáarkarinnar er tileinkað alþjóðlegu jarðvegsári Sameinuðu þjóðanna 2015 og sýnir gróður- og jarðvegseyðingu. Ingunn Ásta Sigmundsdóttir er 36 ára uppeldis- og menntunarfræð- ingur og starfar sem kennari við unglingadeild Háteigsskóla í Reykja- vík. Hún lauk BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði og er með kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskólum. Hún stundar meistara- nám í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf við HÍ. Ingunn Ásta á þrjú börn, sem eru fædd á árunum 2008, 2009 og 2011. Matthildur Jóhannsdóttir er 34 ára félagsráðgjafi. Hún lauk BA- prófi í félagsráðgjöf árið 2012 og meistaranámi til starfsréttinda árið 2014. Matthildur á þrjú börn, sem fædd eru á árunum 2009, 2011 og 2014. Samstarfskonur EIGENDUR EIKAR Það kemur í ljós, eða Becoming Visible nefnist sýning á listaverkum úr þæfðri ull eftir finnsku listakonuna Karoliina Arvilommi sem verður opnuð í dag kl. 16 í Hannesarholti, Grundarstíg 10. Karoliina er stödd hér á landi ásamt manni sínum Roderick Welch vegna blautþæfingarnámskeiðs sem haldið var á vegum Heimilisiðnaðarfélags Ís- lands undir leiðsögn þeirra. Karoliina er þekkt textíllistakona í Finnlandi. Æskan mótaði hana sem listakonu, en hún ólst upp á eyjunni Kuorsalo í Eystra- salti þar sem lífið var rólegt og ein- falt, hvorki rafmagn né rennandi vatn en náttúran, litirnir og birtan heillandi. Karoliina lærði vefnað og hönnun en hefur um nokkurt skeið helgað sig þæf- ingu. Listformið veitir henni það frelsi sem hún sækist eftir í formum og lita- blöndun. Verkin, sem eru litrík og flest óhlutbundin, vísa mörg hver í þjóðsög- ur og sagnir en önnur eru innblásin af landslagi og litum náttúrunnar. Karoliina notar eingöngu ull sem hún vinnur sjálf. Kindurnar eru af sjald- gæfum finnskum fjárstofni frá lífrænt vottuðum býlum. Karoliina þvær ullina og litar og kembir í stórri 100 ára gam- alli þýskri kembivél. Karoliina hefur haldið einkasýningar í Finnlandi og tekið þátt í fjölda sam- sýninga utan Finnlands. Nánari upplýs- ingar um Karoliinu og verk hennar eru á heimasíðunni: www.liinalommi.com Sýningin stendur til sunnudagsins 25. október. Það kemur í ljós – Heimilisiðnaðarfélag Íslands Litrík listaverk úr þæfðri ull sem vísa í þjóðsögur og sagnir Listaverk Verk Karoliinu eru innblásin af landslagi og litum náttúrunnar. Karoliina Arviloomi Friðardagur verð- ur haldinn í Móðurhofi á Stokkseyri n.k laugardag 12. september. Eins og nafnið vísar til verður áhersla lögð á kyrrð og frið. Boðið verður upp á mjúkt jóga, slökun, hug- leiðslur og gönguferð á ströndinni á Stokkseyri með Unni Arndísardóttur, jógakennara og seiðkonu, í farar- broddi. Unnur kennir öndun, slökun og hugleiðslu sem eiga að gagnast fólki í amstri hversdagsleikans og færa því frið og ró. Nánar tiltekið er friðar- dagur ætlaður þeim sem vilja öðlast nánari tengsl við sjálfa sig og sinn innri frið, anda að sér andartakinu og finna friðaruppsprettuna innra með sér. Skráning og nánari upplýsingar á netfanginu: uni@uni.is Stokkseyri Stokkseyri Kyrrð og friður í bæ. Unnur Arndísardóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Friðardagur í Móðurhofi Skráning á námskeið: Eik ráðgjöf á Facebook og net- fangið: eikradgjof@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.