Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 TWIN LIGHT GARDÍNUR Láttu sólina ekki trufla þig í sumar Betri birtustjórnun Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 10-18 Meira úrval Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Skúli Þorvaldsson, fjárfestir og einn ákærðu í Marple-málinu svonefnda, segir að hann hafi treyst Magnúsi Guðmundssyni, fyrrum forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, fullkom- lega og þess vegna trúað því að hann væri eigandi félagsins Marple, þegar Magnús sagði Skúla að hann ætti það. Skúli hefur aftur á móti þrætt fyr- ir það við dómsmálið að vera eigandi félagsins og vísar hann til þess að ekki hafi verið gerður kaupsamning- ur um umrætt félag, kláruð vinna við afsal til hans, eða gengið frá stofnun í takt við reglur í Lúxemborg, þar sem félagið er skráð. Skúli er ákærð- ur fyrir hylmingu og til vara fyrir peningaþvætti með því að hafa sem eigandi Marple tekið við og geymt ávinning af auðgunarbroti. „Ekki lagt krónu“ í Marple Þegar tekin var skýrsla af Skúla við aðalmeðferð málsins í gær sagð- ist Skúli ekki hafa „lagt krónu í þetta félag“. Þrátt fyrir það átti félagið hluti í Exista á sínum tíma, mikið magn skuldabréfa sem Kaupþing hafði gefið út og allskonar gjald- miðlaskiptasamninga. Við réttarhöldin hefur komið fram að Magnús hafi tekið ákvarðanir um félagið, það staðfesti m.a. Þórður Emil Ólafsson, fyrrverandi við- skiptastjóri hjá Kaupþingi í Lúxem- borg og viðskiptastjóri Skúla og fé- laga hans. Skúli var eftir sem áður skráður hluthafi í hlutafélagaskrá í Lúxem- borg í júní 2007, en hann svaraði spurningum um efnið að því lútandi að það hefði ekki verið í samræmi við lög í Lúxemborg. Sagðist hann hafa ætlað að stofna félag í Lúxemborg, en fyrir átti hann fjölda annarra slíkra. Hann hafi seinna meir komist að því að Kaupþing hafi þess í stað skráð hann fyrir eldra félagi. Saksóknari fór yfir ýmis skjöl sem tengdust Marple, m.a. fundargerðir stjórnar og umboð sem Skúli hafði skrifað undir. Áður hafði hann vé- fengt að þetta væru hans undir- skriftir, en eftir staðfestingu rit- handarsérfræðings sagði hann að þær hlytu að vera sínar, en sagðist aftur á móti ekki muna eftir þeim. Í máli Eggerts Jónasar Hilmars- sonar, fyrrum framkvæmdastjóra Kaupþings, sem kallaður var fyrir dóminn sem vitni í gær, kom hins vegar fram að Kaupþing í Lúxem- borg hafi stundum komið fram fyrir hönd viðskipta sinna sem hluthafi í eigendaskrá í Lúxemborg ef óskað var eftir því. Bankinn hafi þá farið með eignar- hald en raunverulegur eigandi komið fram í samningum milli bankans og viðskiptavina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Héraðsdómur Skúli Þorvaldsson segist ekki hafa verið eigandi félagsins Marple sem var skráð í Lúxemborg. Þrætir fyrir það að vera eigandi Marple  Skúli Þorvaldsson stóð í þeirri trú að hann ætti félagið Samtök starfsmanna fjármálafyrir- tækja (SSF) og Samtök atvinnulífs- ins skrifuðu í gær undir kjarasamn- ing sem gildir til ársloka 2018. Undirskriftin er með fyrirvara um samþykki félagsmanna SSF. Launahækkanir á samningstím- anum fyrir þá sem hófu störf fyrir 1. janúar 2015 og eru enn í starfi við undirritun kjarasamnings eru 16,5 til 22,2 prósent. Þeir sem voru með lægstu launin hækka mest sem er í anda þeirrar launastefnu sem stéttarfélög á almennum vinnu- markaði hafa undirritað í sumar. Um mánaðamótin hækka því öll laun í launatöflu SSF um 25.000 krónur og desemberuppbót fer úr 78 þúsundum í 89 þúsund á samn- ingstímanum. Kjarasamningurinn hvílir á þremur meginforsendum, að kaup- máttur launa aukist á samningstím- anum, að launastefna samningsins verði stefnumótandi fyrir aðra kjarasamninga og að ríkisstjórnin standi við sína yfirlýsingu. Öll laun hækka um 25 þúsund krónur Lára Halla Sigurðardóttir Benedikt Bóas Sjósundskapparnir Ásgeir Elíasson og Árni Þór Árnason komust báðir yfir Ermarsundið til Frakklands á mánudag.Var Árni 21 klukkustund á leiðinni en Ásgeir fór leiðina á 17 klukkustundum. Aðstæður voru erfiðar á leiðinni, töluvert rok og mikil ölduhæð. Þeir félagar börðust þó í gegn frá Dover í Englandi til Frakklands og þurfti Ásgeir að skríða síðustu metrana með fjörubotninum. Á leiðinni glímdi hann meðal annars við tognun, sjór- inn færði hann af og til í kaf og gerði hann sér fljótlega grein fyrir því að hann gæti ekki farið fram og til baka yfir sundið líkt og hann hafði vonað. Fyrstu tíu klukkustundirnar gengu ágætlega en seinni hlutinn var mjög erfiður að sögn Ásgeirs, sérstaklega síðustu tvær klukku- stundirnar. „Það var stöðugur öldu- gangur og ég byrjaði að togna þar sem lærin festast við mittið og það pirraði mig,“ sagði Ásgeir við mbl.is í gær. Sjóveikin var ekki langt undan en Ásgeir fann þó ekki verulega fyrir henni fyrr en hann náði botni í fjör- unni við Frakklands. „Þegar ég fór að ganga í land hrundi ég niður, ég gat ekki gengið,“ segir Ásgeir en þá var hann illa haldinn af sjóriðu. Samkvæmt reglum sundsins má sundfólkið ekki þiggja aðstoð og því varð hann að koma sér sjálfur upp í fjöru. Brá Ásgeir á það ráð að skríða eftir botninum og smám saman tókst honum að koma sér í land. Íslendingarnir komust báðir yfir til Frakklands  Rok og ölduhæð á leiðinni yfir Ermarsund  Skreið síðustu metrana Ásgeir Elíasson Árni Þór Árnason Kerfi Reiknistofu bankanna réð ekki við þær upphæðir sem þurfti að millifæra innan Kaup- þings vegna einnar af þeim millifærslum sem saksóknari tengir við Marple-málið. Við yfirheyrslur yfir vitnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær kom fram að skipta hafi þurft rúmlega þriggja milljarða færslu upp í fjóra hluta. Fjórir starfsmenn bókhalds- deildar bankans komu fyrir dóminn í gær og voru spurðir af saksóknara um verkferla innan deildarinnar, millifærslur og skjalageymslu. Var m.a. spurt út í millifærslu sem ákærða, Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrr- verandi fjármálastjóri bankans, óskaði eftir. Upphæðin nam rúmlega þremur milljörðum króna og var hún millifærð í fjórum milli- færslum. Tæpur milljarður var millifærður þrisvar sinnum, og afgangurinn í þeirri fjórðu. Of há fjár- hæð fyrir RB FJÓRAR MILLIFÆRSLUR „Menn vilja fara að síga af stað, við þorum ekki að bíða mikið lengur,“ segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi í Skarði í Þykkvabæ. Margir kartöflubændur hafa seink- að uppskerustörfum vegna þess hvað kartöflurnar hafa sprottið illa í sumar, og viljað nýta haustið til að reyna að fá þær stærri. Kartöflugrös hafa ekki fallið í Þykkvabæ, eins og fyrir norðan og austan, og því hafa bændur talið óhætt að bíða aðeins með uppskeru- störf. Nú er hins vegar allra veðra von og ekki eftir neinu að bíða. Miklar rigningar geta tafið upp- skerustörf. Bæði er það að bændur vilja síður taka upp í regni vegna slæmra áhrifa á afurðina og vél- arnar, og hitt að erfitt getur verið að komast út á akrana í mikilli bleytu. Sigurbjartur segir að enn hafi ekki rignt það mikið að til vandræða horfi. Það geti hins vegar breyst fljótt. Ekki þurfi nema einn mikinn rigningardag til að allt fari á flot. helgi@mbl.is Þora ekki að bíða leng- ur með kartöflurnar  Uppskerustörf að hefjast í Þykkvabæ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Uppskera Sigurbjartur Pálsson vill fara að taka upp af fullum krafti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.