Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 14

Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 DALVÍKURBYGGÐ OG NÁGRENNI2015 Á FERÐ UM ÍSLAND Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Á Grenivík er búsett áhugalista- konan Eygló Kristjánsdóttir og er hún eigandi handverksgallerís sem nefnist Gallery Glóu. Er um að ræða nokkuð óvenjulegt en um leið skemmtilegt handverkstæði sem notið hefur talsverðra vinsælda und- anfarin ár. „Upp á síðkastið hef ég reynt að mála meira á striga, en mest hef ég þó málað á steina og strákústa eftir pöntunum,“ segir Eygló í samtali við Morgunblaðið. „En ef fólk biður um eitthvað annað mála ég líka á það, eins og til dæmis á flöskur, krukkur, gips og keramik.“ Bílaviðgerðir hafa tekið yfir Handverkshúsnæði hennar er þrískipt. Öðru megin má finna geymslurými en í hinum enda húss- ins er vinnustofa og lítil verslun þar sem gestum og gangandi gefst kost- ur á að kynna sér listmuni. Það rými hefur nú hins vegar verið yfirtekið um stund af eiginmanni Eyglóar, sem nýtir það til bílaviðgerða. „Starfsemin hefur legið aðeins niðri um tíma, þar sem maðurinn minn er hálfpartinn búinn að yfir- taka galleríið,“ segir Eygló og bætir við að þau hjónin séu nú í leit að nýju húsnæði sem hýst geti handverk- stæðið. „Handverk og bílaviðgerðir fara nefnilega ekki vel saman.“ Það var fyrst árið 2006 sem Eygló hóf að mála og skreyta steina. Með tímanum tók áhugamál hennar hins vegar nokkrum breytingum þegar fólk fór í auknari mæli að leggja inn pöntun fyrir listmunum. „Í upphafi gerði ég þetta til þess að hafa eitthvað að gera hér heima. En fljótlega jókst nú eftir- spurnin eftir þessum munum. Eftir hrun, þegar ég hélt að þetta myndi leggjast af, hefur verið nokkuð mikið að gera og myndaðist um tíma bið- listi eftir hlutum,“ segir hún. Aðspurð segir Eygló Íslendinga jafnt sem erlenda ferðamenn mjög áhugasama um listmuni hennar. „Íslendingarnir hafa einnig ver- ið mjög duglegir við að kaupa af mér og farið með vörurnar úr landi. En allt kemur þetta þó í hollum. Eina stundina eru steinarnir mjög vinsæl- ir en þá næstu eru það kústarnir sem slá í gegn,“ segir hún. Vel sótt handverksnámskeið Í tvígang hefur verkalýðs- félagið Eining-Iðja fengið Eygló til þess að halda námskeið í steina- málun. „Það kom góður hópur hátt í 20 kvenna og skemmtum við okkur mjög vel,“ segir hún, en námskeiðin voru haldin yfir helgi. „Ég bjóst nú ekki við svo mörgum, en maður veit nú aldrei út í hvað er farið þegar haldin eru námskeið,“ segir hún og bætir við að ekki sé útilokað að fleiri námskeið verði haldin síðar. Ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum enn. Ljósmyndir/Gallery Glóu Í galleríinu Eygló Kristjánsdóttir, áhugalistakona á Grenivík, hefur vakið athygli fólks með verkum sínum. Skreytir strákústa, flöskur og steina  Í litlu galleríi á Grenivík lifnar hversdagsleikinn við  Í Ungó, leikhúsi Dalvíkurbyggðar, má finna hið ríflega 70 ára gamla Leikfélag Dalvíkur. Kristján Guð- mundsson, formaður leikfélagsins, segir bæjarbúa mega eiga von á „stórri sýningu“ eftir áramót. „Það er nú ekki alveg búið að ákveða þá sýningu, en leikfélagið er einnig í samstarfi við Dalvíkurskóla að fara að setja upp aðra sýningu,“ segir hann í samtali við Morgun- blaðið og bætir við að áhugamanna- leikfélagið setji þannig að jafnaði upp tvær sýningar á ári hverju. Spurður hvort bæjarbúar séu iðnir við að sækja sýningar leikfélagsins kveður Kristján já við. „Við fáum vanalega um eittþúsund manns á sýningar, sem er ansi gott enda jafn- gildir það um helmingi bæjarbúa.“ Leikfélagið hefur verið starfrækt allt frá árinu 1944 og var í fyrra hald- in afmælissýning á leikritinu Full- komið brúðkaup. khj@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ungó Leikfélag Dalvíkurbyggðar hefur starfað frá 1944 og nýtur vinsælda. Helmingur bæjarbúa sækir áhugamannaleikfélagið heim  Í ágúst var haldin í 23. sinn Hand- verkshátíð í Eyjafjarðarsveit. Stefán Árnason, skrifstofustjóri hjá sveitar- félaginu, situr í stjórn hátíðarinnar og segir um 15-17 þúsund manns hafa sótt hátíðina í sumar. „Það má segja að þetta sé samfélagsverkefni. Sveitarfélagið hefur umsjón með verkefninu en ábyrgðin og reksturinn er í raun í höndum félagasamtaka í sveitinni,“ segir hann. Þetta fyrir- komulag varð til eftir að sverfa tók að fjárhagi sveitarfélagsins eftir hrun en því hefur þóst takast vel upp síðan og hátíðin dafnað. Stefán telur allt að 200 manns koma að sýningunni á einhvern hátt. „Þetta verkefni gerir mikið fyrir samfélag okkar og gerir öll þessi fé- lög sjálfbærari og betur í stakk búin til þess að vinna að góðum málum fyrir íbúa sveitarfélagsins.“ Ljósmynd/Karl Frímannsson Vagg og velta Tinna Bjarnadóttir var verðlaunuð fyrir besta sölubásinn í ár. Jákvæð afleiðing hrunsins Að Syðra-Laugalandi í Eyjafjarðar- sveit rekur Kristín Kolbeinsdóttir veitingastaðinn Silva hráfæði á sumrin. „Þetta var fjórða sumarið sem við erum með veitingahúsið og sumarið í ár gekk ágætlega,“ segir Kristín. „Það vantaði íslensku ferða- mennina eins og alls staðar á Norð- urlandi en það kom fleira heimafólk og túristar. Hráfæðið er ákveðin sérgrein hússins en það er algengur misskiln- ingur að sögn Kristínar að hráfæði sé það eina sem er á boðstólum. „Við bjóðum upp á hráfæði sem einn af kostunum. Við erum mest með grænmeti sem er bæði eldað og hrátt, hristinga, kaffi og kökur. Það halda margir að þetta sé bara hrá- fæði en það er ekki raunin.“ Það sem helst virðist vekja at- hygli gesta er nýjar útfærslur af gömlum og góðum réttum, ef dæma má af sölutölum. „Vinsælasti og eig- inlega flottasti rétturinn á matseðl- inum er hnetusteikin en við bjóðum líka upp á hráfæðispítsu, sem er vin- sælasta hráfæðið. Svo erum við með Grænmetisvin í Eyjafjarðarsveit  Pítsur, steikur og vefjur vinsælastar Ljósmynd/Silva hráfæði Girnilegt Grænmetisborgarinn með kasjúsósu sem sést hér er einn þeirra rétta sem Kristín hefur boðið upp á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.