Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 15
Í Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og Grýtubakkahreppi
búa um 3.300 manns, en samanlögð stærð sveitarfélag-
anna er rúmlega 2.800 ferkílómetrar. Á þessu svæði eru
atvinnuvegir fjölbreyttir, s.s. landbúnaður og þjónusta
en við ströndina byggir mest á sjósókn.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
„Þetta er allt saman í ákveðnu
ferli og er nú unnið hörðum hönd-
um að því að skila inn umsóknum
um tilskilin leyfi,“ segir Búi Vil-
hjálmur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Eldisrannsókna, og
vísar í máli sínu til áforma fyr-
irtækisins um að hefja kónga-
krabbaeldi á Hauganesi.
Kóngakrabbi er afar stór
krabbategund og geta dýrin orðið
allt að 10 kíló að þyngd, en hann á
uppruna sinn í norðurhluta
Kyrrahafs við Kamtsjatka-skaga.
Um kóngakrabbaeldi gilda
strangar reglur enda getur hann
valdið talsverðri röskun á lífríki
sjávar. Hefur krabbategundin
meðal annars valdið usla við
strendur Norður-Noregs.
Matgæðingar líta kóngakrabb-
ann hins vegar öðrum augum því
að kjötið af honum þykir algert
lostæti. Þá fá framleiðendur einn-
ig ágætt verð fyrir krabbann.
Fluttir spriklandi úr landi
Búi Vilhjálmur segir fyrirtæki
sitt stefna að því að flytja mestan
hluta framleiðslunnar á markaði
erlendis. „Við ætlum að selja
hann lifandi á mörkuðum erlend-
is,“ segir Búi Vilhjálmur. „Er-
lendis er þetta með dýrara sjávar-
fangi – svo ekki sé minnst á þegar
dýrin eru lifandi.“
Hér á landi hafa menn ekki
ræktað kóngakrabba áður. „Þetta
hefur verið reynt í Rússlandi en
þá mistókst það algerlega. Við
teljum okkur búna að finna lausn
á þeim vanda sem þeir glímdu
við,“ segir hann.
Krabbaeldið mun fara fram í
landi og tekur framleiðsluferlið
um fjögur ár. khj@mbl.is
Vilja hefja kóngakrabbaeldi hér á landi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eldi Áformað er að rækta kóngakrabba á þessum stað á Hauganesi.
Krabbar nema
land á Hauganesi
Myndirnar sem Eygló málar á
steina og strákústa eru sem fyrr
segir ansi fjölbreyttar. Hefur hún til
að mynda málað myndir af tröllum
baða sig í trébala, torfbæjum, hest-
um og landslagi svo fátt eitt sé nefnt.
Á steinunum má sjá myndir af álf-
um, dvergum, fiskimönnum í sjó-
klæðnaði og fólki í þjóðbúningum.
Vinsælustu steinarnir eru hins veg-
ar þeir sem bera myndir af uglum.
„Uglurnar hafa alltaf verið vin-
sælastar og í raun einnig þeir stein-
ar sem sýna fólk í íslenskum þjóð-
búningi,“ segir hún. „Ég fæ pantanir
alls staðar að af landinu. Það er þó
einn hængur þar á og það er send-
ingarkostnaðurinn. Hann getur ver-
ið talsverður. Þegar fólk pantar kúst
rukkar pósturinn fyrir lengdina en
ef viðkomandi pantar stein er það
þyngdin sem spilar inn í.“
Fjölbreytt Hversdagslegir steinar geta tekið á sig hinar ýmsu myndir eftir að Eygló hefur meðhöndlað þá.
Námskeið Það getur verið vandasamt verk að skreyta og mála steina.
Eygló Kristjánsdóttir, áhugalistakona á Grenivík, segir
það mikla vinnu að halda námskeið í steinamálun.
„Fyrir námskeiðið útvegaði ég alla þá steina sem not-
aðir voru og fékk manninn minn til þess að saga neðan
af þeim. Það er frekar frábrugðið þeim námskeiðum
sem ég hef sjálf sótt, en þá þurftu allir að útvega stein-
ana sjálfir,“ segir Eygló og bendir á að hún hafi sótt
grjótið niður í fjöru og borið það heim í hús. Áhugamálið
er hins vegar að hennar sögn afar skemmtilegt. „Og það
skiptir mestu máli.“
Talsverð undirbúningsvinna
ÚTVEGAÐI SJÁLF ALLT EFNI
VANDAÐUR
vinnufatnaður
frá BULLDOG
á góðu verði
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Öryggisskór
Sýnileikafatnaður
Vinnufatnaður
Vinnuvettlingar
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
mangóvefju sem hefur verið öll árin
og er alltaf til, en hún hefur notið sí-
felldra vinsælda.“
Betri eftir mál en fyrir
Grænmeti er í sviðsljósinu á Silva,
en Kristín segir heilsusamlegt
mataræði aðalsmerki staðarins.
„Við veljum og notum hráefni með
það að leiðarljósi að það geri sem
mest fyrir líkama og sál. Við hugs-
um alltaf um það hvort hráefnið hef-
ur jákvæða eiginleika sem veita
fólki bætta heilsu og aukna orku.“
Fræðagrunninn sem Kristín
byggir eldamennskuna á sækir hún
í nám sitt í Heilsumeistaraskóla Ís-
lands. Þar lagði hún stund á lækn-
ingafræði og lifandi fræði, en í dag
kennir hún þessi sömu fræði fyrir
skólann.
Auk veitingastaðarins selur
Kristín brauð og ýmislegt sætt í
verslanir Fisk Kompaní, Átaks og
Flóru á Akureyri, en hún selur líka
beint það sem hún kallar fljótandi
fæði.
„Þetta er hugsað sem eitthvað
meira en bara venjulegur safakúr
því að úr þessu færðu öll þau nær-
ingarefni sem þú þarft. Svo er þetta
líka svo gott á bragðið!“ bso@mbl.is
Ljósmynd/Kristín Lind Jónsdóttir
Kokkurinn Kristín í eldhúsinu með
útsýnið yfir sveitina að baki.