Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 18

Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Baráttan fyrirfullveldi Ís-lands var meðal þess sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti ræddi við setningu Alþingis í gær. Forsetinn minnti á mikilvægi fullveldis þjóðarinnar og að baráttan fyr- ir því hefði varað lengi þegar lýðveldi var stofnað á Þingvöll- um hinn 17. júní 1944. Hann minnti einnig á að sagan geymdi fjölmörg dæmi þess að fullveldisréttur smárrar þjóðar gæti ráðið úrslitum um örlög hennar. Nefndi hann sem dæmi að fullveldið hefði verið for- senda þess að útfærsla land- helginnar tókst og hefði einnig verið „úrslitavopn þegar bandalag Evrópuríkja reyndi að þvinga Íslendinga til að axla skuldir einkabanka“. Þá benti forsetinn á að stjórnskipun Íslands væri „helguð af þessum fullveldis- rétti, ákvæðum sem leiðtogar sjálfstæðisbaráttunnar töldu meðal dýrmætustu ávinninga í réttindabaráttu þjóðarinnar“. Hann hélt áfram og sagði: „Um þessar mundir er hins vegar boðað í nafni nefndar, sem ræðir stjórnarskrána, að hið nýja þing þurfi á næstu vik- um að breyta þessum horn- steini íslenskrar stjórnskip- unar; tíminn sé naumur því nýta þurfi vegna sparsemi og hagræðis forsetakosningar á næsta vori. Efnisrökin eru hvorki til- vísun í þjóðarheill né ríkan vilja landsmanna, heldur almennt tal um alþjóðasamstarf, laga- tækni og óskir embættismanna. Íslandi hefur þó allt frá lýð- veldisstofnun tekist vel að stunda fjölþætt alþjóða- samstarf á vettvangi Samein- uðu þjóðanna, Norðurlanda- ráðs, NATO, EFTA og fleiri bandalaga, eiga gjöful og marg- þætt tengsl við ríki, stór og smá, í öllum álfum án þess að þörf væri að breyta fullveldis- ákvæðum lýðveldisins; hinum helga arfi sjálfstæðisins. Sé það hins vegar ætlun þingsins að fara nú að hreyfa við þessum hornsteini í stjórn- arskrá lýðveldisins, ber að vanda vel þá vegferð, gaum- gæfa orðalag og allar hliðar málsins; efna til víðtækrar um- ræðu meðal þjóðarinnar um af- leiðingar slíkrar breytingar, umræðu í samræmi við lýðræð- iskröfur okkar tíma og þá þakk- arskuld sem við eigum að gjalda kynslóðunum sem í hundrað ár helguðu fullveldis- réttinum krafta sína.“ Forsetinn ræddi einnig að stjórnarskrárnefnd hefði boðað tillögur um þjóðaratkvæða- greiðslur og þjóð- areign á auðlind- um. Slíkar hug- myndir hefðu oft verið ræddar en vandaverk væri „að velja orðalag slíkra greina í stjórnarskrá, einkum þegar ljóst er að ágreiningur er bæði innan þings og utan um hve langt eigi að ganga, hve víðtækur rétturinn til að krefj- ast þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök lög eigi að vera sem og hve afdráttarlaust eignarréttur þjóðarinnar á auðlindum verði skilgreindur í stjórnarskrá; hvað muni í reynd felast í orða- lagi nýrra ákvæða.“ Forseti sagðist telja að greinar um þjóðareign og at- kvæðagreiðslur ættu erindi í stjórnarskrá, en að samning þeirra væri vandaverk og „hvorki þröng tímamörk né sparnaðarhvöt mega stofna gæðum verksins í hættu“. Þá varaði hann við tengingu við forsetakosningar næsta vor og sagði hana jafnvel and- lýðræðislega: „Að tengja veru- legar breytingar á stjórnarskrá landsins við kosningar á forseta lýðveldisins er andstætt lýð- ræðislegu eðli beggja verkefn- anna og gæti því aðeins komið til farsællar framkvæmdar ef breið og almenn sátt næst, bæði innan þings og utan, um stjórnarskrárbreytingarnar, að þær verði ekki sérstakt deilu- efni í umræðum og baráttu við forsetakjörið.“ Mikilvægt er að þingið gæti þess í vetur að láta ekki undan kröfum um vanhugsaðar breyt- ingar á stjórnarskrá en taki þess í stað tillit til varnaðar- orða á borð við þau sem vitnað er til hér að framan. Þá er rétt að hafa í huga að engin sterk krafa er uppi um að gera þær breytingar sem ræddar hafa verið í stjórnarskrárnefnd og að fjarstæðukennt er að ætla að berja þær í gegn vanreifaðar og vanhugsaðar. Í því sambandi má til dæmis vísa til könnunar sem MMR gerði fyrir ekki alls löngu um það hversu hlynnt eða andvígt fólk væri því „að stjórnarskrá Íslands verði breytt þannig, að Alþingi verði heimilað að fram- selja hluta íslensks ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana.“ Mikill meirihluti, 69%, var andvígur slíkri breytingu, en aðeins 14% hlynnt framsalinu. Augljóst er að ekki er unnið að fyrrnefndum breytingum vegna sterkrar kröfu meiri- hluta þjóðarinnar, heldur miklu frekar vegna þrýstings lítils minnihluta eða jafnvel vegna utanaðkomandi þrýstings. Fyr- ir Alþingi er ekki boðlegt að láta undan slíkum þrýstingi. Full ástæða er fyrir þingið að taka tillit til varnaðarorða forseta Íslands} Standa þarf áfram vörð um fullveldi landsins Þ að bar við í vikunni að 22 ungir karlmenn í toppformi reyndu hvað þeir gátu að koma leður- tuðru í gegnum tvo markramma í níutíu mínútur en tókst ekki við mikinn fögnuð áhorfenda. Fögnuðurinn var þó ekki einskorðaður við viðstadda, heldur barst hann um land allt og um allan heim reyndar þar sem einn Íslendingur eða fleiri komu saman. Þeim fögnuði er ekki lokið, allt tekur kipp uppávið; bjartsýni eykst og kaup- gleði og væntingarvísitalan hækkar snarlega. Hvernig er hægt að amast við því sem eykur hagvöxt? (Ekki má gleyma aukinni þjóðar- samstöðu, en það er nefnilega í lagi að gleðj- ast yfir að vera Íslendingur ef maður er að tala um fótbolta, en annars er það þjóðernis- remba.) Það mun svo enn auka hagvöxtinn þegar menn hefj- ast handa um að reisa milljarða „þjóðarleikvang“ í Laugardalnum og það sem fyrst. Málið er nefnilega að þó alvaran hefjist vissulega í Frakklandi næsta sumar verður hún enn meiri veturinn 2018 og þá þarf að vera alvöru yfirbyggður völlur í samræmi við tilefnið og fjölgun þjóðarinnar (við erum semsé tvöfalt fleiri en var 1957 þegar Laugardalsvöllurinn var vígður og því þarf væntanlega tvöfalt fleiri sæti – úr 8.800 í 17.600). Nú máttu ekki skilja þessi orð svo að ég sé á móti fót- bolta, kæri lesandi, því fer fjarri. Ég horfði til að mynda á fjóra fótboltaleiki um helgina og skemmti mér hið besta í rigningunni, þó ég hafi ekki náð að horfa á jafnteflið í Laugardalnum. Ekki vil ég heldur gera lítið úr því að Íslendingum skuli hafa tekist að komast á Evrópumót í boltaíþróttum í fimmtánda sinn. (Einu sinni í körfubolta karla, níu sinnum í handbolta karla og tvisvar í handbolta kvenna. Já og svo komst íslenska kvennalandsliðið á Evr- ópumótið í fótbolta tvisvar, en það voru bara konur.) Það var þrekvirki fyrir þessi íslensku landslið að ná svo langt og sýnir hverju má áorka með miklu skipulagi, þrotlausri vinnu og gríðarlegri einbeitingu, en árangurinn ber ekki síður vitni góðri undirstöðu í íþróttaiðkun barna og unglinga, pilta og stúlkna. Að vísu sýnist mér sem mönnum hafi fundist það mesta þrekvirkið að karla- landsliðið í fótbolta hafi náð svo langt, enda man ég ekki eftir öðrum eins hamagangi þegar kvennalandsliðið í fótbolta náði þessum árangri tvívegis, eða var þá rætt um þjóðarleikvang? Þessi merkilegi og vissulega magnaði árangur karl- anna okkar („strákarnir okkar“ er frátekið) gefur kost á ýmsu öðru en fagnaðarlátum, því hann bregður einnig upp spegli þar sem birtist sama gamla sagan um það að allt sem karlar gera er sjálfkrafa merkilegra en það sem konur gera, eða það finnst körlum í það minnsta. Og þá er í lagi að kaupa nýtt (karl)þjóðarleikfang. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Karlarnir okkar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Gert er ráð fyrir því að fram-kvæmdastjórn Evrópu-sambandsins kynni í dagtillögu sína um sameigin- lega stefnu aðildarríkjanna sem fæli í sér að ríki yrðu skikkuð til að taka við ákveðnum fjölda flóttamanna. Mikill ágreiningur hefur verið meðal ESB- ríkjanna um málið og líklegt er að til- lagan dugi ekki til að leysa mesta flóttamannavanda í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni. Í tillögunni er gert ráð fyrir því að ESB-ríki taki við 120.000 flótta- mönnum sem eru nú staddir í Grikk- landi, Ungverjalandi og á Ítalíu. Þýskaland á að taka við 31.443 flótta- mönnum (26,2% af heildarfjöldanum), Frakkland 24.031 (20%) og Spánn 14.931 (12,4%) á næstu tveimur árum. Þessar tölur eru ekki háar í ljósi umfangs vandans, m.a. frétta um að 20.000 flóttamenn hafi farið til Þýska- lands frá Ungverjalandi um síðustu helgi og vísbendinga um að flóttafólk- inu í Evrópu eigi eftir að fjölga til mikilla muna á næstu mánuðum. Ríkisstjórn Þýskalands telur t.a.m. að alls komi um 800.000 flóttamenn og aðrir hælisleitendur þangað í ár, en það samsvarar um 1% af íbúa- fjölda landsins. Þegar kvóti hvers lands er ákveðinn er miðað við verga lands- framleiðslu þess (vægi hennar er 40% við úthlutunina), íbúafjölda (40%), at- vinnuleysi (10%) og fjölda hælis- umsókna sem hafa þegar verið skráð- ar í landinu. Gert er ráð fyrir því að ríki sem ekki vilja taka við flóttafólki í samræmi við kvótann verði beðin um að leggja í staðinn fram fé til aðstoðar við flóttafólk frá Sýrlandi og fleiri átakasvæðum. Samkvæmt sátt- málum ESB þurfa Bretland, Dan- mörk og Írland ekki að taka þátt í þessu kvótakerfi. Reynt að jafna byrðarnar Flóttamennirnir sem verða flutt- ir milli ESB-landa geta ekki valið hvert þeir fara og þurfa að vera um kyrrt í því landi sem þeir verða sendir til. Löndin fá 6.000 evrur, jafnvirði tæpra 870.000 króna, fyrir hvern flóttamann sem þau taka við, sam- kvæmt tillögunni. Framkvæmdastjórnin vill að þetta kvótakerfi verði varanlegt og bindandi, þannig að leiðtogar Evrópusambandsins þurfi ekki að semja um dreifingu flóttamanna í hvert skipti sem sambandið stendur frammi fyrir nýrri flóttamannakrísu. Það er þó líklega óskhyggja, m.a. vegna mikillar andstöðu í sumum landanna við móttöku margra flótta- manna og óttast er að flótta- mannakvótinn verði vatn á myllu þjóðernisöfgamanna í álfunni. Meginmarkmiðið með kvóta- kerfinu er að jafna byrðarnar og fá ríki sem hafa tekið við fáum flótta- mönnum til þessa til að leggja sitt af mörkum. Fjöldi flóttamannanna er nú mestur í Ungverjalandi ef miðað er við höfðatölu, en öll önnur lönd í austanverðri Evrópu, auk Spánar og Portúgals, hafa tekið við tiltölulega fáum flóttamönnum. Aðeins fyrsta skref í átt að lausn vandans Umdeild tillaga » Leiðtogar Ungverjalands og fleiri ríkja hafa gagnrýnt til- löguna um flóttamannakvót- ann og sagt að hún ýti undir enn meiri straum flóttamanna til Evrópu frá Sýrlandi og fleiri stríðshrjáðum löndum. » Stuðningsmenn tillög- unnar segja að þótt þetta sé mesti flóttamannavandi álf- unnar frá síðari heimsstyrjöld sé hann lítill í samanburði við vanda Tyrklands, Jórdaníu og Líbanons, sem hafa tekið við milljónum flóttamanna. Hælisleitendur í ESB-löndum Fjöldi hælisleitenda í löndum Evrópusambandsins á hverja 10.000 íbúa á tímabilinu júní 2014 til maí 2015. 87,8 74,6 45,7 35,7 29,4 19,6 14,2 11,4 26,1 19,2 13,9 11,1 9,8 7,9 7,6 4,8 1,8 1,6 1,1 1,4 0,7 4,5 1,7 1,5 0,8 1,3 0,6 0,4 Heimildir: Eurostat, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Ungverjaland Svíþjóð Austurríki Malta Þýskaland Danmörk Búlgaría Lúxemborg Belgía ESB,meðaltal Ítalía Holland Frakkland Grikkland Finnland Bretland Írland Lettland Pólland Spánn Eistland Slóvenía Litháen Tékkland Rúmenía Króatía Portúgal Slóvakía

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.