Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 ✝ Unnur ÓskJónsdóttir fæddist 29. febrúar 1928 í Garðastræti 45 í Reykjavík. Hún lést á Landspítala- num Fossvogi 26. ágúst. Foreldrar Unnar voru Jón Magnús Magnússon, f. á Svalbarði í Bessa- staðahreppi 16.5. 1897, d. 9.9. 1943, sjómaður í Reykjavík, og k.h., Ólafía Ólafs- dóttir, f. í Saurbæ í Ölfusi 2.11. 1899, d. 25.8. 1969, húsfreyja. Systkini Unnar eru Þór Guð- mundur, f. 1920, d. 1994, Ólafur, f. 1921, d. 2003, Magnús Björg- vin, f. 1924, d. 1996, Margrét Burt, f. 1925, d. 1982, Guðbjörg, f. 1930, Gunnar Sigþór, f. 1931, d. 1998, Jóhanna Ólöf, f. 1934, d. 1941, Eygló Svava, f. 1935, Ágúst Grétar, f. 1937, d. 2000, og Óli Garðar, f. 1939. Unnur ólst aðallega upp á Grímsstaðaholtinu, á Fálkagötu og Garðavegi, en flutti að heim- an 15 ára gömul árið 1943, eftir að faðir hennar lést. Hún vann fyrir sér næstu árin í vist, í bak- aríi og á kaffihúsi. Árið 1946, 18 ára gömul, fluttist hún í nokkur ár til Bandaríkjanna til Mar- grétar systur sinnar og starfaði meðal annars við barnagæslu fyrir næturklúbbasöngvara og ferðaðist með þeim vítt og breitt um Bandaríkin. Eftir heimkom- una vann hún á kaffihúsinu Prik- urgerði 2 í Reykjavík þar sem þau bjuggu í rúm 40 ár. Börn Þorvarðar og Unnar eru 1) Jón Kristján, f. 23. júlí 1954, stærðfræðikennari og rithöf- undur, sambýliskona hans er Anna Daníelsdóttir tannlæknir. Börn Jóns og Þórunnar Snorra- dóttur: Snorri B.S. í jarðeðlis- fræði og Unnur Agnes lögfræð- ingur, maður Steingrímur Arnar Finnsson hagfræðingur og eiga þau þrjú börn. Börn Önnu eru Valgerður Rós læknanemi, hún á tvær dætur, og Daníel Freyr og Kristján Jökull háskólanemar. 2) Sigrún, f. 25. júní 1960, ís- lenskufræðingur og ljósmyndari, eiginmaður hennar er Eggert Ólafsson, tækni- og stjórnsýslu- fræðingur. Dóttir Sigrúnar og Guðmundar Kristins Ingvars- sonar er Signý Kristinsdóttir við- skiptafræðingur, búsett í Kaup- mannahöfn með Anders Linde stjórnmálafræðingi, eiga þau eina dóttur og fyrir átti Signý eina dóttur. Dætur Sigrúnar og Eggerts eru Unnur Ósk tækni- teiknari, á hún tvo syni, og Þor- björg Ósk tónlistarmaður og há- skólanemi. Dætur Eggerts eru Eva Björk flugfreyja, á hún þrjú börn, og Elísabet flugmaður, á hún fjögur börn, eitt af þeim lát- ið. 3) Jóhann, f. 21. september 1962, MS í fjármálahagfræði og reikningshaldi, dóttir hans Júlía, andvana fædd árið 2002. 4) Helgi, f. 17. júlí 1966, verk- fræðingur, kona hans er Svan- hvít Loftsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, börn þeirra eru Stefán Már og Thelma Dís nemar. Útför Unnar fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 9. september 2015, og hefst athöfn- in kl. 13 inu á Laugavegi og á heimili móður- systur Þorvarðar, verðandi eigin- manns síns, á Öldu- götu og bjó hún þar. Þorvarður var þá að ljúka mennta- skólanámi og kenndi börnum þessarar móður- systur sinnar stærð- fræði. Unnur Ósk giftist 14.8. 1953 Þorvarði Birni Jónssyni, f. 16. okt. 1928 á Ísafirði, d. 23. okt. 2013, rafmagnsverkfræðingi, framkvæmdastjóra fjarskipta- sviðs hjá Póst- og símamála- stofnun. Foreldrar Þorvarðar voru Jón Kristjánsson, f. í Neðri- Miðvík í Aðalvík 22.9. 1890, d. 22.11. 1972, bókbindari og tré- smíðameistari á Ísafirði og í Reykjavík, og k.h., Þorbjörg Valdimarsdóttir, f. í Heimabæ í Hnífsdal 18.4. 1894, d. 29.5. 1968, húsfreyja. Unnur og Þorvarður fluttu til Kaupmannahafnar árið 1953 og bjuggu þar til 1958 en Þorvarður lauk þar verkfræði- námi og Unnur vann í Hellesen rafhlöðuverksmiðju, en árið 1954 eignuðust þau frumburð sinn. Eftir heimkomuna bjuggu þau á Klöpp á Seltjarnarnesi en byggðu síðan ásamt fleirum blokkarhúsið að Sólheimum 27 í Reykjavík, þangað sem þau fluttu í íbúð sína árið 1961 og bjuggu þar til 1972, er þau fluttu í nýbyggt einbýlishús sitt í Aust- Ég varð hluti af fjölskyldu Unnar og Þorvarðar árið 1988 þegar við Sigrún tókum saman. Þau tóku mér einstaklega vel og aldrei bar skugga á sam- band okkar. Unnur var lista- kokkur og ófáar eru veislurnar sem þau hjónin héldu börnum sínum og barnabörnum um jól- in og á öðrum hátíðisdögum. Þau Unnur og Þorvarður voru líka mjög rausnarleg í gjöfum til barnabarna sinna og barna þeirra, þar á meðal dætra og barnabarna minna frá fyrra hjónabandi. Frá fyrsta degi tóku þau á móti þeim sem væru þau sínir eigin afkomendur og hluti af fjölskyldunni. Fyrir það verð ég þeim ætíð þakklátur. Unnur hafði miklar mætur á íslenskri náttúru og flestu því sem íslenskt var og naut þess að ferðast um landið. Í einni hringferð Unnar og Þorvarðar um landið fóru dætur okkar Sigrúnar með þeim, þá 10 og 12 ára, það var vel heppnuð ferð sem er dætrum okkar minn- isstæð og jók mjög áhuga þeirra og virðingu fyrir land- inu, auk þess að tengja þau öll betur saman. Unnur tengdamóðir mín var um margt sérstakur persónu- leiki sem stundum gustaði af. Hún var glettin, kallaði mig t.d. ávallt uppáhalds tengdasoninn sinn, enda þótt ekki væri öðr- um til að dreifa. Þá hafði hún mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekki á þeim þegar svo bar und- ir. Töluvert dró af Unni síðustu misserin vegna blindu og heilsuleysis en þó var alltaf gott að heimsækja hana á Grund, þar sem hún bjó í góðu yfirlæti síðustu tvö árin, gam- ansemin var enn til staðar. Blessuð sé minning hennar. Eggert Ólafsson. Ég vil kveðja elsku ömmu Unni Ósk. Ég á ófáar minningar um hana ömmu. Það var alltaf svo notalegt að koma í heimsókn til ömmu. Ég og Þorbjörg systir gist- um oft hjá henni og afa og amma sá til þess að okkur liði vel á meðan. Í seinni tíð var alltaf notalegt að koma í heim- sókn til ömmu og afa og fá hjá þeim ristað brauð og te eða appelsínudjús. Eitt af því sem ég sakna mest er jólaboðin hjá ömmu og afa. Jólaboðið var alltaf á jóla- dag, í hádeginu, og amma sá um allan matinn, forrétt, aðal- rétt og desert. Amma var svo klár bæði að elda góðan mat og að búa til fallegar og gómsætar kökur. Amma og afi fóru tvisvar með okkur Þorbjörgu systur hringinn í kringum landið og það eru skemmtilegar minning- ar. Þau sýndu okkur ófáa foss- ana, fjöll og fjörur. Ég á eftir að sakna ömmu mikið, en nú fær hún að hvíla í friði og vonandi er hún komin til afa. Langar að láta fylgja með vísu sem amma fór oft með fyr- ir okkur systurnar þegar við vorum yngri. Augun mín og augun þín ó! þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. Langt er síðan sá ég hann, sannlega fríður var hann. Allt, sem prýða má einn mann mest af lýðum bar hann. Trega eg þig manna mest mædd af tára flóði, ó, að við hefðum aldrei sést, elsku vinurinn góði. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. Beztan veit eg blóma þinn, blíðu innst í reitum. Far vel Eyjafjörður minn, fegri öllum sveitum. (Vatnsenda-Rósa) Unnur Ósk Eggertsdóttir. Elsku amma mín. Það er skrítið að ímynda sér að ég muni aldrei sjá þig aftur, aldrei spjalla um daginn og veginn og segja þér hvernig fötum ég er í. Þú varst vön að spyrja mig, eft- ir að þú varðst blind, í hverju ég var og svo hlustaðirðu af mikilli athygli á lýsingarnar. Þú hafðir alltaf mikinn áhuga á því hvernig hlutir litu út, þú elskaðir Íslenska landslagið og ég man eftir mörgum ferðum um landið þar sem þú lagðir mikla áherslu á að ég og Unnur systir lærðum nöfnin á fjöll- unum og fossunum. Þú hafðir einnig mikinn áhuga á arkitekt- úr og ég man að þú sagðist hafa vilja verða arkitekt þegar þú varst yngri. Þú hefðir eflaust orðið frábær arkitekt, húsið þitt var alltaf svo fallegt og hreint, öllu var raðað af kost- gæfni og mér fannst þú eiga fínustu húsgögn sem ég hafði séð. Þú eldaðir án efa besta mat- inn og þegar ég og Unnur gist- um hjá þér vaktirðu okkur allt- af með því að elda hafragraut og við hlaupum upp um leið og þú sagðir að hann væri tilbúinn. Ég á margar góðar minn- ingar frá því að gista heima hjá þér og afa, þú útbjóst leikher- bergi fyrir okkur barnabörnin og áttir alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir okkur gera. Eins og dúkkulísur til að klæða í mismunandi föt, og púsluspil. Þú áttir svo mörg púsluspil og þú hafðir gaman af því að púsla með okkur. Það sem stendur líka upp úr er að þú hafðir alltaf gaman að því að syngja fyrir okkur og man ég sérstaklega eftir laginu Blátt lítið blóm eitt er, sem varð uppáhaldslagið mitt. Þú elskaðir íslensk tónskáld og gömul Íslensk ljóð sem stóðust tímans tönn. Ég gæti rifjað upp fjölda- mörg falleg ljóð sem þú sagðir að ég ætti að læra, en ég þyrfti nú samt að glugga í textana. Þú varst vön að segja „þú ert nú meiri kellingin“ og það var aldrei langt í húmorinn hjá þér, jafnvel fram á síðustu daga. Eftir því sem ég varð eldri standa heillaráðin upp úr. En þú varst alltaf að gefa mér ráð, um gildi og metnað, hvernig er best að gera hlutina og hvernig á að fara í gegnum lífið. Þó að ég hafi ekki alltaf verið sam- mála þér hugsa ég oft til þess- ara ráða, og þegar ég geri það finn ég að þú vildir mér alltaf það besta. Elsku amma, þú hefur skilið mikið eftir. Heillaráð þín og húmor standa eftir í minning- unni um þig. Ástrík amma sem vildi barnabörnum sínum það besta. Ég læt fylgja með textann af uppáhaldslagi okkar ömmu, sem við sungum svo oft saman. Ég elska þig amma. Blátt lítið blóm eitt er, ber nafnið: Gleymdu ei mér. Væri ég fleygur fugl flygi ég til þín. Svo mína sálu nú sigraða hefur þú, engu ég unna má öðru en þér. (Þýsk þjóðvísa.) Þorbjörg Ósk. Elsku amma mín, nú hefurðu fengið frið. Það er engu að síð- ur sárt að kveðja og ég fer ósjálfrátt að hugsa til þeirra hluta sem ég hefði átt að spyrja þig um. Þrátt fyrir að ég vissi svo margt um þitt líf og æsku voru aðrir spennandi kaflar í lífinu þínu sem ég vissi ekki mikið um. Þú varst fagurkeri, dugnað- arforkur, listakokkur og ævin- týramanneskja. Þú hafðir einn- ig skemmtilega sterkar skoðanir eða varst kannski bara svo hreinskilin, ég mun að minnsta kosti taka þann eig- inleika mér til fyrirmyndar. Takk fyrir að sýna mér og Birtu áhuga og umhyggju. Ég er líka svo þakklát fyrir að þú náðir að heyra rödd litlu Söru áður en þú kvaddir þennan heim, þá sá ég bros þitt í síð- asta skipti. Ég var oft þakklát fyrir mitt þegar ég heyrði sögur um barn- æsku þína, sem var ekki alltaf dans á rósum. Ég vildi óska þess að þú hefðir vaxið upp á tíma þegar menntun stóð öllum til boða, ætli þú hefðir þá ekki lært arkitektúr og notið þín vel við að starfa á því sviði. En amma, við afkomendur þínir eigum öll líf okkar þér að þakka, við höldum ferð þinni áfram. „Dauði okkar er ekki endir ef við lif- um áfram í börnum okkar og yngri kynslóðinni. Því að þau eru við; lík- amar okkar eru aðeins sölnuð lauf á tré lífsins.“ (Albert Einstein) Hvíl í friði, elsku amma. Signý Kristinsdóttir, dótturdóttir. Unnur Ósk Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Sæl, móðir mín. Þakka þér fyrir allt það góða sem þú gafst mér og varst mér. Þakka þér fyrir að vera börnum mínum ætíð góð amma. Þakka þér fyrir að gefa mér frábæran föður. Skáldið, þremenningur móður þinnar, orti þetta ljóð um lífið: Á þessu nesi í þessu túni stóð bær. Brúnklukka í mýri? Nei, ekki meir. En altær lind og ilmur af reyr. Og þegar þú deyr þá lifir reyr á þessu nesi við þessa lind í þessu túni þar sem stóð bær: Lind Reyr – (Halldór Kiljan Laxness) Vertu blessuð, móðir mín. Sigrún Þorvarðsdóttir. ERFIDRYKKJUR AF ALÚÐ Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta Sími: 525 9930 • hotelsaga@hotelsaga.is • www.hotelsaga.is Alúðarþakkir fyrir sýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar HENRIKS PÉTURS BIERING, Miðleiti 7, Reykjavík. . Þóra Biering, Jón Snorrason, Sveinn Biering Jónsson, Brynja H. Þorsteinsdóttir, Vilhelm Pétur Biering, Henrik Biering Jónsson, Sigurbjörg S. Valdimarsd. Elskulegur faðir okkar, afi og langafi, GEIR GRÉTAR PÉTURSSON, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þriðjudaginn 1. september verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 12. september kl. 12.30. . Grétar Pétur Geirsson, Heimir Freyr Geirsson, Sævar Helgi Geirsson, Anna Lea Geirsdóttir. Þann 4. septem- ber var Sæmundur Óskarsson kvaddur af fjölskyldu, vin- um, starfsfélögum og fjölmörg- um öðrum sem hann þekktu. Stjórn Skíðadeildar Ármanns vill á þessum tímamótum minn- ast hans og þakka það mikla framlag sem hann lagði til skíðahreyfingarinnar og ekki síst til starfsemi skíðadeildar- innar. Í raun má segja að skíða- baktería fjölskyldunnar hafi tekið sér bólfestu á skíðanám- skeiði í Kerlingarfjöllum sum- arið 1971, en þá var undirrit- aður svo heppinn að fá að kenna fjölskyldunni á því námskeiði. Veturinn eftir mætti Sæmundur svo með fjölskylduna í Bláfjöll og tók eftir það virkan þátt í starfsemi skíðadeildar Ármanns í mörg ár. Var það upphafið að ákaflega skemmtilegu og gef- andi tímabili að ég hygg bæði fyrir fjölskyldu Sæmundar og ekki síst fyrir skíðadeild Ár- manns. Við flutning skíðadeildar Ár- Sæmundur Óskarsson ✝ SæmundurÓskarsson, fæddist 25. janúar 1930. Hann lést 22. ágúst 2015. Útför Sæmundar fór fram 4. september 2015. manns úr Jóspsdal í Bláfjöll var Sæ- mundur einn af máttarstólpum deildarinnar. Lagði hann ómælda vinnu við uppbyggingu aðstöðunnar í Blá- fjöllum og ekki síst vann hann ötullega að tilverurétti skíðadeildarinnar á þessu nýja skíða- svæði sem ekki var sjálfgefið á þeim tíma. Sæmundur var framsýnn maður og hvatti bæði stjórn og félaga skíðadeildar- innar til dáða á þessum mikil- væga uppbyggingartíma deildarinnar. Ég hygg að allir sem tóku þátt í því starfi hafi skynjað vel mikilvægi Sæmund- ar á þeim tíma. Auk sjálfboða- starfa sinna hjá Ármanni tók Sæmundur einnig að sér for- mennsku í Skíðaráði Reykjavík- ur og Skíðasambandi Íslands og vann mikið brautryðjendastarf á þeim vettvangi. Fyrir hans mikla framlag til skíðahreyfing- arinnar þakkar núverandi stjórn skíðadeildar Ármanns heilshugar. Jafnframt sendir stjórnin innilegar samúðar- kveðjur til fjölskyldu Sæmund- ar við hans fráfall. Hans verður lengi minnst í hlíðum Bláfjalla. F.h. skíðadeildar Ármanns, Tómas Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.