Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 24

Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 ✝ Guðni FrímannGuðjónsson fæddist 13. júlí 1944 í Sandgerði. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu þann 26. ágúst 2015. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Magnússon vél- stjóri, f. 19.1. 1921, d. 26.1.1978, og Al- dís Fríða Magnúsdottir, f. 5.7. 1923. Bróðir Guðna var Sig- urður Hafsteinn Guðjónsson, f. 26.9. 1949, d. 2.10. 2006, kvænt- ur Sigríði Arný Árnadóttur, f. 20.12.1950. Guðni kvæntist 27.12. 1969 Öldu Guðrúnu Friðriksdóttur handlistakennara, f. 3.2. 1938. Þau eignuðust eitt barn, Friðrik Guðjón Guðnason, f. 7.12. 1973, giftur Önnu Soffíu Gunnlaugs- dóttur, f. 3.12. 1970 og eiga þau unar ríkisins, sem síðar varð Íbúðalánasjóður, og starfaði þar við hönnun bygginga, um- sagnir, úttektir og eftirlit allt þar til hann lét af störfum og settist í helgan stein 2011. Á starfsferli sínum tók Guðni reglulega þátt í ýmsum nám- skeiðum á vegum Endurmennt- unarstofnunar Háskóla Íslands fyrir verkfræðinga og tækni- fræðinga auk þess að sækja ým- is tölvunámskeið, m.a. hjá Tölvufræðslunni sf., Stjórn- unarfélagi Íslands, Tölvuskóla Íslands, IBM skólanum o.fl. 1984 tók hann þátt í orkusparn- aðarátaki á vegum iðnaðar- ráðuneytisins og 1998 öðlaðist hann leyfi frá félagsmála- ráðuneytinu til að gera eigna- skiptayfirlýsingar. Guðni var tónelskur maður og spilaði á margvísleg hljóðfæri, svo sem harmóniku, trompet, píanó og orgel. Hann nam orgelleik um árabil í Tónskóla Þjóðkirkj- unnar auk þess að syngja í kirkjukór Digraneskirkju og síðar í Karlakór Reykjavíkur. Útför Guðna fer fram fra Há- teigskirkju í dag, 9. september 2015, kl. 13. tvö börn, Guðna Viðar, f. 23.7. 2006, og Gunnlaug Dan, f. 4.10. 2009. Guðni stundaði nám í húsasmíði hjá Guðmundi Skúlasyni húsa- smiðameistara 1961-65. Hann tók lokapróf frá Iðn- skólanum í Kefla- vík 1963 og í kjöl- farið sveinspróf í húsasmíði í Keflavík 1965 og lokapróf frá Meistaraskóla Iðnskólans í Reykjavík 1967. Hann stofnaði Trésmíðaverkstæðið Þrist sf. ásamt Ágústi Eyjólfssyni og Guðmundi Einarssyni og starf- aði þar 1967-70. Útskrifaðist sem byggingatæknifræðingur 1975 frá Tækniskóla Íslands. Starfaði hjá Teiknistofunni Óðinstorgi sf. um tíma en réð sig í kjölfarið til Húsnæðisstofn- Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Nú þegar sumri tekur að halla og haustið tekur við í allri sinni litadýrð langar mig að minnast elskulegs tengdaföður míns, sem var tekinn frá okkar litlu fjölskyldu allt of snemma. Ég kynntist Guðna þegar við hjónin byrjuðum að búa því þá voru tengdaforeldrar mínir, Guðni og Alda, mætt galvösk á staðinn tilbúin að hjálpa okkur að standsetja íbúðina okkar. Guðni var einstaklega geðgóður maður og að sama skapi bóngóð- ur og segja má að hann hafi ver- ið trausti kletturinn í fjölskyld- unni. Það var sama hvert verkefnið var, það var til lausn á öllu, það þurfti bara aðeins að liggja yfir lausninni. Guðni og Alda voru sérstaklega samhent hjón og það kom berlega í ljós þegar við þurftum á hjálp þeirra að halda. Ekkert verk var of stórt né of erfitt. Guðni var mjög tónelskur, söng í kórum og spilaði á mörg hljóðfæri. Notalegt var að koma í Dísarásinn þegar hann sat við orgelið og spilaði. Hann vakti einnig aftur áhuga hjá Friðriki, syni sínum, á píanóleik með því að gauka að honum ýmsum áhugaverðum nótum. Hann var mjög barngóður maður og börn hreinlega löð- uðust að honum í öllum veislum og samkomum sem við fórum í. Hann var okkar strákum ein- staklega góður afi og átti til endalausa þolinmæði handa þeim. Ýmislegt var brallað með afa og ekki síst í sumarbústaðn- um i Skorradalnum. Ég sé hann fyrir mér standa í tröppunum á Dísarásnum veif- andi til okkar þar sem við keyr- um burt. Því alltaf beið hann eft- ir að við færum upp í bílinn, sama hve langan tíma það tók að koma okkur fyrir og keyra burt. Alltaf stóð hann í dyragættinni og veifaði brosandi til okkar. Ég kveð elskulegan tengda- föður minn með kæru þakklæti og góðum minningum. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjótast inn. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veginn þinn. (G.Ö.) Þín tengdadóttir, Anna Soffía Gunnlaugsdóttir. Stórfjölskyldunni okkar hefur verið greitt þungt högg, hinn góði drengur, umhyggjusami fjölskyldufaðirinn og hvers manns hugljúfi, Guðni Frímann, var fyrirvaralaust hrifinn burtu, en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu að kvöldi 26. ágúst. Alda hringdi í okkur hjónin þá um kvöldið og sagði okkur hvað gerst hefði. Þetta var hreinlega óraunverulegt og gat bara ekki verið satt, það var ekki auðvelt að trúa því, að hann Guðni væri horfinn sjónum. Blákaldur raunveruleikinn varð ekki umflúinn, Alda Guð- rún mágkona og systir hefur misst ljúfan og traustan lífsföru- naut sinn. Einkasonurinn, Frið- rik Guðjón, og Anna Soffía, kona hans, hafa séð á bak ástríkum föður og tengdaföður. Drengirn- ir ungu, Guðni Viðar og Gunn- laugur Dan, hafa misst kæran afa sinn. Aldís Fríða Magnús- dóttir, öldruð móðir Guðna, verður nú að horfa á bak eldri syni sínum en yngri sonur henn- ar lést einnig skyndilega og fyr- irvaralaust tæplega 47 ára gam- all og Guðjón Magnússon, maður hennar og faðir þeirra bræðra, lést aðeins 57 ára. Nú höfum við öll, þar sem Guðni var, misst sannan og traustan vin og félaga og verðum að horfa á bak honum en dýrmætar minningarnar eigum við eftir og minningin um ljúfan og góðan dreng mun lifa með okkur. Söknuður fyllir hugann sem reikar nær hálfa öld aftur í tím- ann og í hugann koma minn- ingar frá þeim tíma, er leiðir þeirra Öldu og Guðna lágu sam- an. Strax kom í ljós, að í sam- hentan hópinn hafði bæst vel gerður, félagslyndur og glað- sinna félagi en samheldni stór- fjölskyldunnar hefur ævinlega verið mikil. Guðni var alltaf sama ljúfmennið, glaður og hress, með góða skapið, það var stutt í gamansemina og hlátur- inn. Hann hafði sterka réttlæt- iskennd, var skipulagður með af- brigðum í verkum sínum og einstakt snyrtimenni í allri sinni vegferð. Húsið þeirra hjóna í Dís- arásnum og umhverfi þess ber merki þess að þar var ekki kast- að til höndunum. Þau hjónin Alda og Guðni tóku við því fok- heldu á sínum tíma og fullgerðu það algjörlega, yst sem innst. Allar innréttingar smíðaði Guðni sjálfur og þau hjónin voru þarna ævinlega bæði að verki. Svo var líka með sælureitinn þeirra í Skorradal sem bar vandvirkni og smekk þeirra beggja fagurt vitni. Þau Alda og Guðni voru einstaklega samrýnd og sam- hent í öllu sem þau tóku sér fyr- ir hendur. Í löngu starfi sem skoðunar- maður og matsmaður hjá Hús- næðisstofnun og síðar hjá Íbúða- lánasjóði var hann réttur maður á réttum stað. Heiðarlegur og sanngjarn gagnvart öllum hlut- aðeigandi í mati sínu og umsögn um menn og málefni. Hann var vandaður til orðs og æðis, vinnu- samur og iðinn, vandvirkur lista- smiður sem sjaldan féll verk úr hendi og vandað var til allra verka af nákvæmni og smekk- vísi. Að leiðarlokum á sorgar- stundu, vottum við tengdafólk og vinir Guðna, Öldu og fjöl- skyldunni innilega samúð okkar og biðjum góðan Guð að styrkja hana þessa dimmu daga og að blessa minningu þessa horfna vinar okkar og félaga. Skúli Jón og Sjöfn. Við hjónin vorum stödd á Spáni þegar okkur barst sú Guðni Frímann Guðjónsson HINSTA KVEÐJA Í minningu um elsku, besta afa okkar, sem kenndi okkur þessa fallegu bæn. Kristur minn, ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gakktu hér inn og geymdu mig, Guð í faðmi þínum. (Höf. ók.) Guðni Viðar og Gunnlaugur Dan. ✝ Halldóra Ólafs-dóttir fæddist í Reykjavík 9. októ- ber 1932. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Ísafold, Strikinu 3, Garðabæ, 31. ágúst 2015. Foreldrar henn- ar voru Klara Jóna Guðjónsdóttir verslunarmaður, f. 24. mars 1902, d. 30. september 1975, og Ólafur Júní- us Gunnlaugsson kaupmaður, f. 11. júní 1900, d. 6. mars 1963. Önnur systkini voru Jóhanna Ólafsdóttir, f. 10. maí 1928, d. 1931. Halldóra eignaðist soninn Em- il Gunnar Einarsson, f. 17. febr- október 2005, og Ásgeir Óla Ás- geirsson, f. 16. nóvember 2006. Áður átti hún Gerði Dóru Aðal- steinsdóttur, f. 20. september 1993. Halldóra ólst upp í Hildi- brandshúsinu, Garðastræti 13, sem afi hennar hafði byggt. Það var stórt og mikið heimili og mik- ill gestagangur og oft mjög glatt á hjalla þar sem heimsins mál voru rædd eða leyst. Á sínum yngri árum ferðaðist Halldóra mikið og þá aðallega til Kaup- mannahafnar sér til fróðleiks og skemmtunar. Fljótlega eftir að Halldóra lauk barnaskólaprófi sótti hún nám í Húsmæðraskóla Reykjavíkur og lauk þar námi ári síðar. Að námi loknu stundaði hún ýmis verslunarstörf í Reykjavík. Halldóra bjó lengst af í Garðabænum og þá sem hús- móðir. Síðustu árin dvaldi hún við góða umönnun á Hjúkrunar- heimilinu Ísafold í Garðabæ. Útför Halldóru fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi, í dag, 9. september 2015, kl. 15. úar 1958, og er kona hans Halla Þórisdóttir, f. 6. júní 1963. Saman eiga þau Halldór Ragnar Emilsson, f. 19. september 1986, Heiðar Atla Emils- son, f. 14. mars 1990, og Katrínu Klöru Emilsdóttur, f. 15. janúar 1993. Halldóra giftist síð- ar Óla Þorbirni Haraldssyni Schou, f. 18. nóvember 1919, d. 30. jan. 1987, og eignuðust þau Ólöfu Hönnu Schou Óladóttur, f. 8. maí 1969. Maður hennar er Ás- geir Kristján Mikkaelsson, f. 27. desember 1961, og eiga þau tvö börn, Auði Ásgeirsdóttur, f. 15. Elsku hjartans fallega mamma mín. Ég er þegar farin að sakna þín. Við vorum alltaf mjög háðar hvor annarri og eyddum miklum tíma saman í gegnum árin. Þú komst nánast alltaf með mér, alveg sama hvert ég fór. Þú heimsóttir mig margsinnis þegar ég bjó í fjögur ár erlendis. Þú fórst með okkur í hvert ferðalagið á fætur öðru, bæði innanlands og utan. Þú flaugst til mín þegar ég dvaldi tvö sumur á Seyðisfirði og stoppaðir alltaf lengi, sem ég er afar þakklát fyrir. Þú varst nán- ast alltaf með okkur í Steintúni, jörðinni sem við áttum í Skaga- firði. Þegar ég var heima í Hafn- arfirði varstu alltaf komin í heim- sókn og sagðir oft „Nú stoppa ég stutt, ég verð að fara heim og gera hitt og þetta“, en endaðir á því að gista yfir helgi og jafnvel í viku, 10 daga. Árið 2012 var þó dvölin hjá okkur farin að lengjast og að lok- um varstu hjá okkur samfleytt í hálft ár, en þá varstu líka orðin of lasin til að búa ein. Vorið 2013 fékkstu pláss á Ísafold hjúkrun- arheimilinu í Garðabæ, þar leið þér mjög vel. Mikið gátum við nú oft skemmt okkur saman. Það var stundum hlegið og fíflast út í eitt, alltaf stutt í grín og glens þegar þú varst annars vegar. Skemmti- legast þótti okkur að gera at í fólki. Síðasta símaatið okkar var árið 2012 þegar þú varst orðin 79 ára gömul. Þá eyddum við heilu kvöldi í að spjalla við fólk og reyndum að selja því undrakrem- ið mikla. Ég vil þakka þér, mamma mín, fyrir allar góðu stundirnar okkar. Ég vil líka þakka þér fyrir þau dýrmætu orð sem þú hvíslaðir að mér rétt áður en þú kvaddir. Þú sagðir „Ég elska þig“ og þegar ég knúsaði þig og kyssti sagðir þú „Ahh, þetta var gott“. Þú vissir alveg að þú varst að fara að kveðja. Guð geymi þig og varðveiti, elsku mamma mín. Ég elska þig út af lífinu. Þegar mér sígur svefn á brá síðastur alls í heimi, möttulinn þinn mjúka þá, móðir, breiddu mig ofan á, svo sofi ég vært og ekkert illt mig dreymi. (Einar Ólafur Sveinsson.) Þín dóttir, Ólöf Hanna. Ég minnist Halldóru tengda- móður minnar með miklum sökn- uði. Hún var einstök og skemmti- leg kona sem ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast. Við vorum miklir vinir og stundum þegar henni fannst að dóttir sín væri að tuska mig eitt- hvað aðeins of mikið til sagði hún „blessaður vertu ekkert að hlusta á hana núna, hún jafnar sig á þessu“. Sögurnar sem hún sagði mér frá fyrri tímum mun ég varðveita í hjarta mínu. Ég hafði unun af því að hafa hana með okkur fjölskyldunni í sumarfríum og á eftir að sakna hnyttnu tilsvaranna hennar þeg- ar við sátum saman og spjölluð- um. Hún var alltaf til í að spjalla og fannst gaman að hlusta á sögur, sérstaklega ef þær voru krass- andi. Henni leið best ef ég gaf mér tíma til að taka þátt í smá símaati með henni og þá veltist hún um af hlátri þegar fólkið sem við hringdum í var búið að átta sig á hrekknum. Takk, elsku Halldóra mín, fyr- ir þann tíma sem við áttum sam- an, ég mun varðveita fallegu minningarnar um þig og segja litlu börnunum mínum sögurnar af þér og þær sem þú sagðir mér frá Garðastræti 13. Guð varðveiti þig, elsku vin- kona, og ég hlakka til að hitta þig þegar þar að kemur. Ásgeir Mikkaelsson. Elsku amma. Það kom okkur í opna skjöldu þegar okkur bárust þær fréttir að þú hefðir veikst mikið og værir mögulega að fara að kveðja. Eftir að við fengum þær fréttir vorum við hjá þér Halldóra Ólafsdóttir www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898 5765 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS JÚLÍUSAR VIGGÓSSONAR. . Sonja Johansen og fjölskylda. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR ÁRMANN GUÐMUNDSSON, bóndi, Brimnesi, Fáskrúðsfirði, lést þann 6. september 2015 á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 19. september kl. 14. . Hulda Steinsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir, Björn Líndal, Vilborg Eiríksdóttir, Einar Guðbjartsson, Guðmundur Eiríksson, Steinn Hrútur Eiríksson, Albert Eiríksson, Bergþór Pálsson, Halldóra Eiríksdóttir, Árdís Hulda Eiríksdóttir, Erling Örn Magnússon, afabörn, langafabörn og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.