Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
Bergsveinn Ólafsson fagnar 23 ára afmæli sínu í dag. Hann seg-ist ekki ætla að gera mikið úr deginum, enda sé hann ekkert sérstaklega mikið afmælisbarn. Hann og kærastan ætla þó að
gera sér dagamun og fara á Sushi Samba þar sem sushi er einn uppá-
haldsmaturinn.
„Ég er ekkert svakalegt afmælisbarn, en það er samt gaman að
njóta þess að vera ennþá ungur, þó manni líði stundum eins og maður
sé svolítið gamall,“ segir hann.
Bergsveinn er nemi í sálfræði í Háskólanum í Reykjavík en að auki
leikur hann knattspyrnu og er fyrirliði Fjölnis sem leikur í efstu deild.
Kærasta Bergsveins heitir Hildur Sif Hauksdóttir og leikur knatt-
spyrnu með Breiðabliki. Til gamans má geta þess að hún fagnaði Ís-
landsmeistaratitli með liðinu í fyrradag og kveðst Bergsveinn eðli-
lega stoltur af henni.
Bræður Bergsveins eru handboltamenn og heita Þorgrímur og Lár-
us. Foreldrar hans eru þau Ólafur Lárusson og Ásgerður Hallgríms-
dóttir, kennarar. Aðspurður segir Bergsveinn að sálfræðinámið hjálpi
honum í boltanum. „Maður lærir gagnrýna hugsun á sjálfan sig, á þá
hluti sem maður er að gera,“ segir Bergsveinn. Spurður um áhuga-
málin segir Bergsveinn að ekkert komist að nema fótbolti. „Ég lifi
fyrir fótbolta, það er klárlega það besta sem maður gerir. Ég geri
voða lítið annað en að æfa mikið, vera í skólanum og hitta fjölskyldu
og vini. Það er gott líf,“ segir Bergsveinn. vidar@mbl.is
Kærustuparið Bergsveinn og Hildur Sif eru bæði á fullu í boltanum.
Fótbolti það besta
sem maður gerir
Bergsveinn Ólafsson er 23 ára í dag
G
rímur Þórisson er fædd-
ur 9. september 1965 á
Ólafsfirði, í heimahúsi
á Ægisgötu 22. „Þar
var ég mikið að veiða
og þvældist um. Ég var týndur í
hverju hádegi og leitað var að
manni og fjörur gengnar.“
Grímur gekk í Barnaskólann og
gagnfræðaskólann á Ólafsfirði og
einnig í framhaldsdeildina sem þar
var. Hann vann í fiski frá 13 ára
aldri hjá Sigvalda Þorleifs. „Svo fór
ég 1984 í Iðnskólann í Reykjavík í
hárskurðarnám, kláraði sveinsprófið
og síðan meistarann í maí 1992.“
Rekur stofu í Grímsbæ
Grímur fór að vinna á Hársnyrti-
stofu Dóra á Langholtsveginum hjá
Halldóri Sigfússyni frá 1985 til
1991. „Svo var hringt á stofuna einn
Grímur Þórisson (Grímur rakari) hárgreiðslumeistari – 50 ára
Vaskir piltar Golfsveit Golfklúbbs Ólafsfjarðar frá 2013 en þá var sveitin í efstu deild. Grímur er annar frá hægri.
Skeggtískan er bóla!
Fjölskyldan Ferming dótturinnar frá því í fyrra, frá vinstri: Hrafnhildur
Jakobína, Anna Ingileif, Grímur og Erlendur Karl.
Kópavogur Viktoría Ósk fæddist 1.
mars 2015 kl. 16.06. Hún vó 4.230 g
og var 53 cm löng. Foreldrar hennar
eru Kristbjörg Baldursdóttir og
Bernharð Kristinn Ingimundarson.
Nýr borgari
Anja Sæberg og Hrafney María
Reynaga söfnuðu 345 krónum á
tombólu, sem þær afhentu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is