Morgunblaðið - 09.09.2015, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
mbl.is/askriftarleikur
Þann 22. október drögum við út
heppinn áskrifanda sem hlýtur að gjöf
sjálfskiptan Suzuki Vitara GLX sportjeppa
að verðmæti 5.440.000 kr.
í áskriftarleik Morgunblaðsins.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst í
dag og stendur til og með 12.
september. Hátíðin verður formlega
sett í Norræna húsinu kl. 17. Þá
flytja rithöfundarnir Teju Cole og
Steinunn Sigurðardóttir erindi. Cole
er fæddur í Nígeríu en býr í Banda-
ríkjunum og rís stjarna hans hátt í
bókmenntaheiminum um þessar
mundir, að því er fram kemur á vef
hátíðarinnar. Hann hefur gefið út
tvær skáldsögur og er auk þess virt-
ur ljósmyndari. Steinunni þarf vart
að kynna, einn af þekktustu rithöf-
undum Íslands.
Fjöldi þekktra erlendra rithöf-
unda sækir hátíðina, m.a. Helle
Helle, Dave Eggers og Lena
Andersson, auk margra íslenskra.
Þeir munu kynna sig og verk sín og
fyrir utan hefðbundna dagskrá í
Norræna húsinu og Iðnó verður boð-
ið upp á sérstaka viðburði sem tengj-
ast skrifum og lestri. Þá verða tvær
ljósmyndasýningar settar upp í
tengslum við hátíðina, annars vegar
sýning um Thor Vilhjálmsson í Nor-
ræna húsinu og hins vegar á ljós-
myndum Teju Cole í Eymundsson í
Austurstræti. Bókaballið, einn af
vinsælustu viðburðum hátíðarinnar,
fer fram í Iðnó á laugardaginn kl.
22.30 og boðið verður upp á fjölda
pallborðsumræðna. Þeirra á meðal
eru pallborðsumræður sem fram
fara í Norræna húsinu á morgun kl.
13 sem bera yfirskriftina „Sannar
sögur og falsaðar“. Þar munu rithöf-
undarnir Lena Andersson, Jón
Gnarr og Oddný Eir Ævarsdóttir
ræða við Gunnþórunni Guðmunds-
dóttur um hvað geri sjálfsævisögur
spennandi og hlutverk minnis og
sannleika í slíkum verkum.
Eitthvað spennandi
Blaðamaður ræddi við Jón Gnarr í
gær um efni pallborðsumræðnanna
og væntanlega bók hans, Útlaginn,
sem er sú þriðja sem hann byggir á
æviminningum sínum, en þær fyrri
eru Indjáninn (2006) og Sjóræning-
inn (2012).
„Það er náttúrlega að eitthvað
spennandi sé að gerast,“ svarar Jón
og hlær sínum mjög svo smitandi
hlátri þegar hann er spurður að því
hvað honum finnist gera sjálfs-
ævisögur spennandi. „Heiðarleiki og
innri átök finnst mér persónulega
alltaf spennandi vegna þess að
manneskjan er svo oft í mikilli mót-
sögn við sjálfa sig. Við erum oft í svo
mikilli þversögn og þegar það stríð
er sýnilegt finnst mér það alltaf
spennandi, það er einhver barátta
sem maður veit ekki alltaf hvernig
lýkur. Að sagan sé heiðarleg eða
heiðarlega sögð, einlæg. Mér leiðast
svona „þá sagði ég“ ævisögur eins og
stjórnmálamenn skrifa. Mér finnst
þær ofboðslega leiðinlegar. Svona
„enginn vissi neitt og enginn skildi
þetta og ég kom á fundinn og þá
sagði ég og þá önduðu allir léttar“,“
segir Jón kíminn.
Minnið á sama stað og sköpun
-Þið munuð líka ræða hlutverk
minnis og sannleika. Það er auðvitað
lykilatriði í sjálfsævisögu að sá sem
skrifar hana sé minnugur?
„Já, en samkvæmt rannsóknum á
heilanum er minnið á sama stað og
sköpun og alltaf þegar við rifjum
eitthvað upp erum við ekki að sækja
það á einhvern ákveðinn geymslu-
stað í heilanum heldur raða því sam-
an úr mörgum litlum brotum héðan
og þaðan, á svipaðan hátt og í ein-
hverju skapandi ferli þegar við fáum
svokallaða hugmynd,“ segir Jón og
spyr hvað sé sannleikur og hvað
raunveruleiki. Hann nefnir sem
dæmi gömul hjón að segja sögu af
ferðalagi sem þau fóru í saman. „Þau
geta ekki sagt söguna því þau eru
alltaf að leiðrétta hvort annað. Ég
held að margir kannist við þetta, þau
hafa tvær sögur að segja af sama at-
vikinu en hvorugt þeirra er þó að
ljúga,“ segir Jón.
-Þannig að það er enginn einn
sannleikur, í rauninni?
„Það er enginn einn sannleikur og
mér finnst svo þunn lína þarna á
milli að ég sé yfirleitt aldrei neinn
mun. Laxness sagði að sá sem lifir í
skáldskap lifir ekki á þessari jörð og
mér finnst svo mikið til í því af því að
tilvera okkar og tilvist er svo mikill
skáldskapur, svo mikil upplifun,“
segir Jón og bætir því við að hann
vilji ekki vera skilgreindur sem ævi-
sagnaritari. „Ég er mjög heillaður af
skáldævisöguforminu, þar sem
mörkin á milli sk. skáldskapar og sk.
sannleiks eru óljós því þau eru það í
alvörunni. Það að skilgreina eitthvað
sem skáldskap og eitthvað annað
sem sannleika er í rauninni blekk-
ing, að mörgu leyti. Ef þú lest endur-
minningar stjórnmálamanna í svona
„þá sagði ég“-bókum er þetta allt
meira og minna lygi, meira og minna
skáldskapur,“ segir Jón og skelli-
hlær.
Sérkennilegar aðstæður
-Ævi þín hin síðustu ár er nánast
eins og lygasaga...
„Já, hún hefur eiginlega alltaf
verið það og ég hef haft þann metnað
í lífinu að reyna að upplifa og kynn-
ast eins miklu og ég mögulega get.
Það hefur náttúrlega sett mig í alls
konar sérkennilegar aðstæður sem
mig hefur langað að prófa og það er
líka leikarinn í mér, að prófa að vera
einhver annar en ég er. Að prófa að
vera í draggi og prófa að vera ein-
hver valdaaðili í samfélaginu. Mig
hefur alltaf langað að prófa allt.“
-Nú ertu búinn að skrifa tvær
bækur sem byggðar eru á minn-
ingum þínum frá æsku fram á full-
orðinsár. Sú þriðja er ekki komin út
þannig að þú mátt kannski ekki
segja mjög mikið um hana en get-
urðu sagt mér í stuttu máli hvaða
hluta ævinnar þú tekur fyrir í henni?
„Já. Hún gerist frá því ég er um 14
ára þangað til ég er 19 ára. Hún
byrjar á því þegar ég fer á Núp í
Dýrafirði þar sem ég var í tvo vetur
og síðan segir hún frá lífinu eftir að
ég kem aftur til Reykjavíkur. Hún
heitir Útlaginn og á ákveðinn hátt er
ég sendur í útlegð frá Reykjavík á
Núp og svo aftur í rauninni þegar ég
kem frá Núpi aftur til Reykjavíkur.
Ég las Gísla sögu Súrssonar þegar
ég var þar og hún gerist á þessum
slóðum, gerist þarna í Dýrafirði, og
ég fann mikla meðlíðan með Gísla.
Svo gerði hann Ágúst Guðmundsson
sína ágætu kvikmynd sem byggð er
á Gísla sögu og kallaði hana Útlag-
ann. Þannig að mér fannst það góður
titill og passa við Indjánann og Sjó-
ræningjann.“
Erfið bók að skrifa
Jón segir Útlagann allt öðruvísi
bók en hinar tvær. „Hún er meira
fullorðins og það var mjög erfitt að
skrifa hana. Mér fannst það ákaflega
íþyngjandi og frústrerandi að skrifa
þessa bók,“ segir Jón.
-Var það út af sárum minningum?
„Já, bæði út af því og mér fannst
það líka bara erfitt. Erfitt að útskýra
þetta eða koma þessu til skila og
bókin tók svolítið stjórnina af mér.
Þetta er eins og þegar fólk verður
alkóhólistar, byrjar að drekka sér til
ánægju og áður en það veit af er það
löngu hætt að drekka sér til ánægju,
farið að drekka af einhverri kvöð.
Það var svolítið þannig með bókina,
eins og ég hefði byrjað að nota dóp
eða eitthvað og væri orðinn háður
því og það farið að stjórna mér.“
-Það hefur þá verið léttir að senda
bókina frá sér?
„Já, það var svolítið eins og ég
væri búinn að fara í meðferð og væri
laus undan fíkn. Jú, það var gríðar-
lega mikill léttir,“ segir Jón.
Meðlíðan með Gísla Súrssyni
Jón Gnarr tekur þátt í pallborðsumræðum um sjálfsævisöguleg skrif á Bókmenntahátíð í Reykja-
vík sem hefst í dag Heiðarleiki og innri átök gera sjálfsævisögur spennandi að mati Jóns
Vígalegur Jón Gnarr tók þessa prýðilegu ljósmynd af sér fyrir Bók-
menntahátíð í Reykjavík. Hann tekur þátt í pallborðsumræðum á morgun.
Jón Gnarr
var ráðinn
ritstjóri
innlendrar
dagskrár-
gerðar hjá
365 miðl-
um í sumar
og segist
hann vera
að ljúka
skrifum á
handriti sjónvarpsþátta sem
heita Borgarstjórinn. Þættirnir
fjalla um mann sem er borgar-
stjóri í Reykjavík og mun Jón
leika hann og Pétur Jóhann Sig-
fússon aðstoðarmann hans.
„Ég held að þetta verði í
fyrsta skipti í sögunni sem fyrr-
verandi borgarstjóri leikur
borgarstjóra í sjónvarps-
þáttum,“ segir Jón. Þættirnir
muni brjóta blað í íslenskri
sjónvarpsþáttagerð því þeir
verði þeir fyrstu sem fjalli um
stjórnmál og stjórnsýslu. „Við
förum í tökur á þeim í febrúar
og þeir verða sýndir á Stöð 2
næsta haust,“ segir Jón. „Þetta
er svona realísk tragíkómedía,“
segir Jón um þættina og bætir
því við að aðstoðarmaðurinn
sem Pétur Jóhann leikur eigi
eftir að rísa hátt í persónugall-
eríi íslenskrar sjónvarpssögu.
Jón leikur
borgarstjóra
SKRIFAR ÞÆTTI UM BORG-
ARSTJÓRA REYKJAVÍKUR
Pétur Jóhann
Sigfússon
Vefur Bókmenntahátíðar í Reykja-
vík: bokmenntahatid.is.