Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
Hljómsveitin kimono heldur tón-
leika á Húrra í kvöld kl. 20.30 með
bandaríska tónlistarmanninum Ari
Russo. Russo lék með einum liðs-
manna kimono, Gylfa Blöndal, í
hljómsveitum í Bandaríkjunum
undir lok síðustu aldar og er tón-
skáld að mennt, nam við New
York University og býr sjálfur til
allan þann hugbúnað sem hann
semur og flytur sína tónlist með.
Þá þykir myndefni sem hann býr
til og sýnir á tónleikum sínum
mikið sjónarspil.
Platan var lengi í vinnslu
Gylfi segir kimono verða með
lengri efnisskrá en venjulega og
segir hana stútfulla af nýjum lög-
um sveitarinnar af væntanlegri
plötu hennar, This Is Going To
Hurt.
Gylfi segir hljómsveitina vera að
leggja lokahöndina á plötuna sem
er fjórða hljóðversplata kimono.
Hann segir plötuna hafa verið
lengi í vinnslu, lengur en fyrri
plötur kimono. Hvers vegna skyldi
það vera? „Margt spilar þar inn í.
Ég og Alison unnum fyrir íslenskt
tónlistar-sprotafyrirtæki og tók
það tíma okkar frá 2009 til 2014
alveg frá okkur. Aukinheldur fór
Alison í gegnum kynbreytingu,
var áður Alex MacNeil og tók sinn
tíma að vinna úr því, þá meina ég
fyrir okkur kimono að finna rétta
tóninn eftir þetta,“ segir Gylfi.
Alison syngi á plötunni um erfið-
leika sem fylgi hjónaskilnaði, kyn-
breytingu og „aðrar klassískar
frústrasjónir“.
Aðgengilegri
„Við tókum snemma þá stefnu
að okkur langaði að gera aðgengi-
legri plötu, hvað sem það nú þýðir
og skipti ég t.d. nær alveg um frá
baritone-gítar yfir á bassa til að
einfalda hljóðheiminn og gera
hann þéttari, fyllri. Fyrir vikið
verður platan einfaldari, en samt
lagskipt,“ segir Gylfi um plötuna.
helgisnaer@mbl.is
Stútfull af nýjum lögum
Ljósmynd/Valdís Thor
Plötugerð Hljómsveitin kimono er skipuð Gylfa Blöndal, Alison McNeil og
Kjartani Braga Bjarnasyni. Fjórða hljóðversplata kimono er væntanleg.
Kimono heldur tónleika með bandaríska tónlistarmann-
inum Ari Russo á Húrra Lög af væntanlegri plötu leikin
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sænski básúnuleikarinn og söngv-
arinn Nils Landgren heldur tón-
leika með djasstríóinu Hot Eski-
mos í salnum Kaldalóni í Hörpu á
föstudaginn kl. 20. Landgren er
einn af virtustu djasstónlist-
armönnum heimalands síns og
nýtur einnig vinsælda víða um
heim enda bæði hæfileikaríkur
tónlistarmaður og líflegur á sviði.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu
sem Landgren og Hot Eskimos
halda saman og segir píanóleik-
arinn Karl Olgeirsson, sem skipar
Hot Eskimos ásamt trommuleik-
aranum Kristni Snæ Agnarssyni
og kontrabassaleikaranum Jóni
Rafnssyni, að það sé mikill fengur
að því fá Landgren til landsins.
„Hann er svakalegur listamaður,“
segir Karl og lofar skemmtilegum
tónleikum.
Höfðar til fjölbreytts hóps
En hvað er það sem gerir Land-
gren svona frábæran? „Hann
höfðar til fjölbreytts hóps, er mik-
ið í því að taka þekkt lög, popplög,
og djassa þau upp. Hann er ekki
of djassaður og syngur líka og
höfðar til margra. Hann er feiki-
góður básúnuleikari, það er eng-
inn afsláttur gefinn af því,“ segir
Karl og bætir við að Landgren sé
líka með frábæra söngrödd.
Karl segir Landgren bæði
semja tónlist og flytja verk eftir
aðra. Þá sé hann með mörg járn í
eldinum, leiki með ólíkum hljóm-
sveitum, stórsveitum jafnt sem
poppuðum djasssveitum. Land-
gren leiki líka hefðbundinn djass
og hafi unnið mikið með banda-
rískum tónlistarmönnum. „Síðustu
plötur sem hann hefur gefið út
hafa náð platínusölu í Þýskalandi
og víðar þannig að hann er enginn
venjulegur djassari,“ segir Karl.
– Og margverðlaunaður...
„Já, já, verðlaunaður í bak og
fyrir,“ segir Karl.
– Hvað ætlið þið að spila á tón-
leikunum? Blöndu af djössuðum
popp- og rokklögum og stand-
ördum, eða hvað?
„Já, við ætlum að taka eitthvað
af okkar lögum, við höfum líka
verið að gera þetta,“ segir Karl og
á þar við að Hot Eskimos hafa
sett þekkt rokk- og popplög í
djassbúning. „Ég hugsa að við
tökum eitthvað eftir Ásgeir
Trausta t.d. og einhver þjóðlög.
„Krummi svaf í klettagjá“ og ein-
hver sænsk þjóðlög líka,“ segir
Karl og vonar að Landgren taki
básúnuna í sundur á meðan hann
leikur sóló. Landgren er þekktur
af slíkum sólóum sem enda eðli-
lega á því að hann er með munn-
stykkið eitt til að leika á. „Hann
er líka skemmtikraftur en ég legg
áherslu á að hann er frábær tón-
listarmaður. Það er hægt að vera
bæði,“ segir Karl og hlær.
Ríða hvítabjörnum
Hot Eskimos gaf út plötuna
Songs from the top of the world
fyrir fjórum árum og hafði hún að
geyma íslensk tökulög í djassbún-
ingi. Önnur plata tríósins er vænt-
anleg og ber skondinn titil, We
Ride Polar Bears, eða Við ríðum
hvítabjörnum. Karl segir plötuna
framhald þeirrar fyrri þó finna
megi á henni tvö frumsamin lög
og eitt eða tvö erlend. En hvaðan
skyldi titillinn koma? Er tríóið að
ala á ranghugmyndum um Íslend-
inga? „Já, einmitt,“ segir Karl
kíminn. „Þetta sagði Örn Clausen
í viðtali við BBC þegar hann fór á
Ólympíuleikana 1948. Hann var
eitthvað að djöflast í blaðamönn-
um,“ segir Karl og bætir því við
að honum hafi þótt það fyndið.
Hot Eskimos Karl Olgeirsson, Jón Rafnsson og Kristinn Snær Agnarsson skipa tríóið.
„Hann er enginn
venjulegur djassari“
Nils Landgren leikur með Hot Eskimos í Kaldalóni
Vinsæll Básúnuleikarinn og söngv-
arinn sænski Nils Landgren.
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 12/9 kl. 19:00 3.k. Fim 24/9 kl. 19:00 7.k. Sun 4/10 kl. 19:00 11.k
Sun 13/9 kl. 19:00 4.k. Fös 25/9 kl. 19:00 8.k. Fös 9/10 kl. 19:00 12.k
Fös 18/9 kl. 19:00 5.k. Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k
Sun 20/9 kl. 19:00 6.k. Lau 3/10 kl. 19:00 10.k
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Fim 10/9 kl. 20:00 1.k. Mið 23/9 kl. 20:00 4.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k.
Fös 11/9 kl. 20:00 2.k Lau 26/9 kl. 20:00 5.k.
Lau 19/9 kl. 20:00 3.k. Fim 1/10 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar í september
At (Nýja sviðið)
Fös 18/9 kl. 20:00 1.k. Fim 24/9 kl. 20:00 4.k. Lau 3/10 kl. 20:00 7.k.
Sun 20/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 5.k. Sun 4/10 kl. 20:00 8.k.
Mið 23/9 kl. 20:00 3.k. Mið 30/9 kl. 20:00 6.k.
Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 20/9 kl. 13:00 1.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k.
Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Sun 11/10 kl. 13:00 5.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k.
Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k.
Haustsýningar komnar í sölu
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 11/9 kl. 20:00 1.k. Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k.
Lau 19/9 kl. 20:00 2 k. Lau 10/10 kl. 20:00 4.k.
Kenneth Máni stelur senunni
Mávurinn (Stóra sviðið)
Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k.
Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k.
Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k.
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Lau 12/9 kl. 20:00 1.k. Sun 20/9 kl. 20:00 3.k. Sun 27/9 kl. 20:00 5.k.
Fös 18/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 4.k.
Aðeins þessar sýningar!
Sókrates (Litla sviðið)
Fim 1/10 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 Sun 11/10 kl. 20:00
Fös 2/10 kl. 20:00 Fim 8/10 kl. 20:00
Lau 3/10 kl. 20:00 Fös 9/10 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k.
Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k.
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Mið 9/9 kl. 19:30 fors. Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn
Fim 10/9 kl. 19:30 fors. Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn
Fös 11/9 kl. 19:30 Aðalæ. Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn
Lau 12/9 kl. 19:30 Frums. Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn
Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn
Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn
Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn
Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Fös 11/9 kl. 19:30 3.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn
Lau 12/9 kl. 19:30 4.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 10.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn
Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn
Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn
Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Fim 10/9 kl. 19:30 Frums. Mið 16/9 kl. 19:30 3.sýn
Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 20/9 kl. 19:30 4.sýn
DAVID FARR
HARÐINDIN