Morgunblaðið - 09.09.2015, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Guðbjartur berst við krabbamein
2. Tíu skiptust á að nauðga stúlku
3. Samkennd Íslendinga bjargaði …
4. Ól eitt barn en eignaðist tvö
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hvað er svona merkilegt við það?,
heimildarmynd Höllu Kristínar
Einarsdóttur, verður sýnd á stutt- og
heimildarmyndahátíðinni Nordisk
Panorama sem stendur yfir frá 18.-
23. september í Malmö í Svíþjóð.
Myndin verður sýnd í keppnisflokk-
inum Best Nordic Documentary, eða
Besta norræna heimildarmyndin,
ásamt 13 öðrum myndum. Hvað er
svona merkilegt við það? hlaut Einar-
inn, aðalverðlaun Skjaldborgar-
hátíðarinnar, í vor og er hún framhald
annarrar myndar Höllu, Konur í rauð-
um sokkum, sem hlaut sömu verð-
laun árið 2009. Í myndinni er fjallað
um kvennaframboðin sem birtust á
stjórnmálasviðinu á Íslandi á níunda
áratug síðustu aldar í kjölfar hinnar
róttæku kvennabaráttu áratugarins á
undan, eins og því er lýst í tilkynn-
ingu.
Hvað er svona merkilegt við það?
verður sýnd í íslenskum kvikmynda-
húsum í október.
Mynd Höllu í keppni
á Nordisk Panorama
Sellóleikarinn Maja Bugge frá
Vesterålen í Noregi og gítarleikarinn
Svanur Vilbergsson frá Stöðvarfirði
halda tónleika 10. og 11. september á
heldur óvenjulegum tónleikastöðum;
í gömlu bræðslunni á Djúpavogi og
gömlum olíutanki á Eskifirði. Þau
munu flytja nútímatónlist og bera
tónleikarnir yfirskriftina „Endurómur
– Etterklang“. Markmið
þeirra er að skapa tónlist
tengda rýmum þar sem
tónleikar eru yfirleitt
ekki haldnir og að
kanna hvernig tónlist
getur endurvakið
eldri sagnir og
hljóm þeirra.
Leika í gömlu bræðsl-
unni og olíutanki
Á fimmtudag Suðaustan 13-20 m/s, hvassast SV-til. Þurrt N-
lands, annars rigning og talsverð úrkoma SA-til. Hlýjast á N-landi.
Á föstudag Sunnan 3-8 m/s og smáskúrir, en yfirleitt léttskýjað
N-lands. Hiti 8 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir, sunnan 8-13 síðdegis, hvessir í kvöld.
Áfram vætusamt á sunnanverðu landinu, úrkomulítið fyrir norðan.
VEÐUR
Firnasterkt lið Serba var of
stór biti fyrir íslenska karla-
landsliðið í körfuknattleik
sem mátti þola 29 stiga tap í
Berlín eftir að hafa látið silf-
urliðið frá HM hafa mikið fyrir
hlutunum í fyrri hálf-
leiknum. Í kvöld mætir
Ísland svipuðum and-
stæðingum, geysilega
öflugu liði Spánverja og að-
stoðarþjálfari Íslands segir að
þeir séu eins og díselvél sem
sé að hitna. »1, 3
Eins og díselvél
sem er að hitna
Strákarnir í 21-árs landsliðinu í knatt-
spyrnu gerðu slysalegt jafntefli við
Norður-Íra á Fylkisvell-
inum í gær, í undan-
keppni Evrópumóts-
ins, og misstu þar af
tveimur dýrmætum
stigum. Þeir
nýttu ekki
dauðafærin
og fóru því
aðeins út af
veginum eftir
frábæra byrj-
un á mótinu
þar sem þeir
höfðu unnið tvo
fyrstu leiki
sína. »2
Strákarnir fóru aðeins
út af veginum
Júlían J. K. Jóhannsson varð heims-
meistari ungmenna í kraftlyftingum
um síðustu helgi og náði auk þess
þeim stóra áfanga að lyfta einu tonni
samanlagt. „Með vinnusemi og hörku
hef ég sótt í mig veðrið með hverju
árinu og bætt mig jafnt og þétt,“ seg-
ir Júlían sem verður í Prag í vetur þar
sem hann nemur sagnfræði og æfir
með einum af þeim bestu. »4
Hef bætt mig með
vinnusemi og hörku
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Sami læknirinn og hjúkrunarfræð-
ingurinn hafa staðið vaktina á
heilsugæslunni í Vík í Mýrdal nánast
allan sólarhringinn síðustu 30 ár.
Það sem meira er; hjúkrunarfræð-
ingurinn Helga Þorbergsdóttir og
læknirinn Sigurgeir Már Jensson
eru hjón.
Hinn 1. september síðastliðinn
voru 30 ár liðin frá því þau keyrðu
að norðan og tóku við starfinu í Vík,
sem þau hafa sinnt óslitið síðan. Af
því tilefni þakkaði sveitarfélagið
þeim fyrir vel unnin störf á 30 ára
starfsafmælinu. Íbúar Víkur þurfa
þó ekki að örvænta, því þau eru ekki
að hætta.
Hjón og traustir vinir
„Þetta er lífsstíll, við vinnum náið
saman og búum við hliðina á heilsu-
gæslunni. Þetta er eins og á sveita-
bæjunum þar sem hjón vinna saman
úti og inni,“ segir Helga. Ágætlega
gengur að sögn Helgu að halda
vinnunni og fjölskyldulífinu aðskildu
en vissulega þurfi þau oft að ræða
vinnuna þótt það sé ekki gert við
eldhúsborðið.
„Við notum hvort annað sem
stuðningsaðila því það er gott að
hafa hvort annað til að vinna úr erf-
iðum hlutum tengdum vinnunni. Við
tengjumst íbúunum bæði á sorgar-
og gleðistundum, sem er í senn
krefjandi og gefandi.“
Hlakka til að mæta í vinnuna
Helga segir að þau hafi í raun
hlakkað til að mæta í vinnuna í 30
ár. Annars hefðu þau ekki enst jafn
lengi og raun ber vitni í starfinu.
Á heilsugæslunni í Vík starfa auk
hjónanna læknaritari og sjúkrabíl-
stjórar. Helga er einn sjúkraflutn-
ingamanna í Vík og er því oft á vakt.
Héraðið sem heilsugæslan þjónar
er í Vestur-Skaftafellssýslu og í
Rangárvallarsýslu. Störfin eru fjöl-
breytt, allt frá ungbarnavernd til
öldrunar- og bráðaþjónustu og allt
þar á milli.
Hjónin gerðu upphaflega ráð
fyrir að stoppa í Vík í ár, en hvor-
ugt þeirra er þaðan; Helga er Bol-
víkingur og Sigurgeir er borinn og
barnfæddur Reykvíkingur. „Okkur
líður afskaplega vel hér og erum
ákaflega þakklát fyrir þennan tíma
sem við höfum átt með góðu fólki.
Við höfum alið upp fjögur börn sem
öll hafa sterka tengingu við svæðið.
Svo er þetta einstaklega fallegt
hérað,“ segir Helga.
Í litlu samfélagi þekkjast allir vel
og segir Helga það kosti og allir
þurfi að vera virkir í samfélaginu.
Hún hefur sjálf gegnt hinum ýmsu
hlutverkum í samfélaginu, verið í
sveitarstjórn og gegnt embætti
oddvita. „Fyrst hafði ég áhyggjur
af því að það færi ekki saman að
sinna báðum störfunum því það
þurfti að taka óvinsælar ákvarðanir
en þetta gekk upp.“
Innviðir ferðaþjónustunnar
Mesta breytingin á seinni árum
er gríðarleg fjölgun ferðamanna til
Víkur og kemur þessi fjöldi fram í
heilbrigðisþjónustunni, að sögn
Helgu. Vík og nágrenni er þriðji
vinsælasti viðkomustaður ferða-
manna. „Þegar talað er um upp-
byggingu innviða í ferðaþjónust-
unni þarf ekki að einblína eingöngu
á stíga og klósett heldur einnig
heilbrigðisþjónustuna. Hún er einn
af þessum innviðum sem þarf að
hlúa vel að,“ segir Helga. Spurð
hvort fjölga þyrfti starfsfólki í heil-
brigðisþjónustunni í Vík segir hún
að það mætti skoða.
Í starfi sínu sem sjúkraflutninga-
maður þarf Helga oft að fara upp
um fjöll og firnindi til að koma fólki
til hjálpar. Í sumar þurfti hún til að
mynda að fara nokkrum sinnum
upp göngustíginn hjá Skógafossi.
Spurð hvort hún væri ekki í fanta-
formi sagði hún það vera „fínt“.
Helga, sem er 56 ára, bætti því við
að hún hreyfði sig reglulega, „ann-
að gengur ekki upp“. Hún syndir á
hverjum morgni og er í hópi vaskra
kvenna sem hittast á hverjum
morgni í sundi.
Taka þátt í gleði og sorg íbúanna
30 ára starfs-
afmæli samhentra
hjóna í Vík
Hjón Sigurgeir Már Jensson læknir og Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og sjúkraflutningamaður, hafa starfað saman í Vík í 30 ár.
Heiðruð Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, og Ásgeir Magnússon
sveitarstjóri gáfu hjónunum blóm 1. sept sl. á 30 ára starfsafmæli þeirra.
Ljósmynd/Pablo Carcamo
Ljósmynd/Ómar Sigurvin Gunnarsson