Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 3

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 3
3 www.unak.is 2 ára meistaranám eða 1 árs diplómanám Hefur þú áhuga á að efla þig og vinna þvert á ólík svið heilbrigðisvísinda? Þá er þverfaglegt diplóma- eða meistaranám í heilbrigðisvísindum eitthvað fyrir þig. Meistaranám í heilbrigðisvísindum við HA miðar að því að því að fólk geti stundað nám með vinnu. Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum MS Einn skemmtilegasti hluti námsins er að hitta heilbrigðisstarfsmenn úr ýmsum fagstéttum og ræða málin. Námið krefst mikils af nemendum og góð skipulagning er nauðsynleg. Unnur Pétursdóttir, MS í heilbrigðisvísindum og formaður Félags sjúkraþjálfara Kæru lesendur Með batnandi veðri og hækkandi sól fer flest að vakna til lífsins úr vetrardvala og svo er einnig um blaðið okkar. Ritnefndin var sammála um að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi þegar vangaveltur hófust varðandi efnistök í blaðið. Meðlimir ritnefndar búa ýmist á landsbyggðinni eða á höfuðborgarsvæðinu og hafa fundir því gjarnan farið fram í gegnum Skype. Ótal tölvupóstar hafa gengið á milli ritnefndarkvenna, ásamt því að stofnað var „Dropbox“ til að auðvelda utanumhald á aðsendu efni og yfirlestrum. Eins og fram kom á síðasta aðalfundi víkkar starfssvið iðjuþjálfa stöðugt og er það vel. Að sama skapi fjölgar þeim sem hafa reynslu af samstarfi og/eða þjónustu iðjuþjálfa. Víða hefur því verið leitað fanga og að þessu sinni var leitað út fyrir raðir iðjuþjálfa eftir greinum. Má þar nefna; grein sem byggir á mastersrannsókn varðandi reynslu notenda af aðgengismálum, greinar sem fjalla um samstarf við iðjuþjálfa, bæði frá notanda þjónustu og samstarfsmanni í þverfaglegu samstarfi, viðtal við starfandi iðjuþjálfa, ásamt því að útskriftarárgangur Háskólans á Akureyri gefur innsýn í reynslu sína. Markmið þessa blaðs var fjölbreytni og að fá sýnishorn af margbreytilegum starfsvettvangi iðjuþjálfa. Á loka­ sprettinum barst svo beiðni um að ritrýnd grein kæmist í blaðið en hún náði því miður ekki að vera tilbúin í tæka tíð og ekki fyrirsjáanlegt hvenær ritrýningu lyki svo við vonumst eftir henni í næsta blaði. Ritnefndin þakkar öllum þeim sem sem lögðu hönd á plóginn við útgáfu þessa blaðs. Að lokum viljum við hvetja hinn glæsilega hóp íslenskra iðjuþjálfa til að setjast við tölvuna og skrifa greinar um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta og telja að eigi erindi í fagblaðið okkar allra. Góðar stundir og óskir um gleðilegt sumar. Ritnefnd Iðjuþjálfans Stjórn IÞÍ Ósk Sigurðardóttir formaður Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir varaformaður Sigríður Pétursdóttir gjaldkeri Berglind Indriðadóttir ritari Anna Alexandersdóttir meðstjórnandi Sigurbjörg Hannesdóttir varamaður Sunna Kristinsdóttir varamaður Umsjón félagaskrár Þjónustuskrifstofa SIGL Ritnefnd (ritnefnd.ii@sigl.is) Agnes Ýr Sigurjónsdóttir Erla Alfreðsdóttir Inga Guðrún Sveinsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir Sólrún Ásta Haraldsdóttir Ritstjóri Erla Alfreðsdóttir Prófarkalesari Arnór Hauksson Forsíðumynd Göngustígur að Dettifossi Ljósmyndari: Nanna Bára Birgisdóttir Umbrot Emil Hreiðar Björnsson, Grafíker ehf. Prentun Prenttækni Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta og færa til betri vegar. Vitna má í texta blaðsins ef heimildar er getið. Efnisyfirlit Pistill formanns .....................................4 „Ertu ein hérna, vinan?“ ­reynsla fólks sem notar hjólastól .......6 Leiðbeinandi, kostir og gallar ..............8 Iðjuþjálfun í grunnskóla .......................9 Aðgengi að vörum og þjónustu er réttindamál ................ 10 Annar útskriftarárgangur iðjuþjálfa frá HA................................. 13 Þeir hugsa og framkvæma í lausnum!............................................. 16 Gæti valdefling og geðrækt breytt viðhorfum eldra fólks? .......... 19 Að endurvekja lífsneistann hjá fólki með heilabilun. Iðjuþjálfun og hugmyndafræði Lífsneistans ....... 21 Umfjöllun um siðareglur ................... 23 Aðgengi ­ hefur fólk með hreyfihömlun sama aðgang að samfélaginu og aðrir? ......................... 25 Iðjuþjálfun og Gæfusporin hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands .... 27 Að undirbúa jarðveginn fyrir atvinnulífið .................................. 29 Forsíðumynd: Myndina tók Nanna Bára Birgisdóttir. Myndin er tekin á göngustígnum sem liggur að Dettifossi.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.