Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 15

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 15
15 beina íhlutun sinnir Sigríður m.a. ýmiss konar ráðgjöf og situr reglulega teymisfundi með foreldrum, kennurum og utanaðkomandi ráðgjöfum. Þær fjórar sem fóru suður hafa einnig prófað nokkra vinnustaði. Antonía vann í nokkur ár á Barna- og unglingageðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss (BUGL) en þar vann hún bæði á unglingadeild og göngudeild við að meta, þjálfa, veita viðtöl og ráðgjöf til barna og unglinganna sjálfra og fjölskyldna þeirra. Hún starfaði einnig í tvö ár sem yfiriðjuþjálfi og sinnti þá stjórnunarlegum skyldum, ásamt þverfaglegri skjólstæðingsvinnu. Antonía starfaði einnig sem sjálfstætt starfandi iðjuþjálfi fyrir Regnbogabörn. Árið 2009 flutti Antonía til Danmerkur ásamt fjölskyldu sinni. Þar vinnur hún á stað sem kallast Autismecenter Nord- Bo, en þar eru sértilboð fyrir unga einstaklinga (15­25 ára) með einhverfu eða skyldar raskanir, s.s. Asperger og/eða aðra samskiptaerfiðleika. Megináhersla er lögð á að undirbúa einstaklinginn sem best fyrir lífið. Tilboðin eru einstaklingsmiðuð með áherslu á vitsmunalega, félagslega, líkamlega og hagnýta færni sem gefur einstaklingnum betri lífsgæði, ásamt því að hjálpa til með að finna út úr framtíðar náms-, atvinnu-, frístunda- og búsetumöguleikum. Ásbjörg starfaði sem iðjuþjálfi á Æfingastöðinni við afleysingar en fór svo að vinna í Þjónustu- miðstöð Sjálfsbjargarheimilisins. Í dag vinnur hún hjá Heimaþjónustu Reykjavíkur. Verkefni iðjuþjálfa er m.a að meta þörf fyrir þjónustu, fara í heimilisathuganir og veita ráðgjöf um hjálpartæki og heimilisbreytingar til að einstaklingurinn geti verið lengur heima. Einnig þarf að huga vel að starfsfólki Heimaþjónustu Reykjavíkur og er það hlutverk iðjuþjálfa að reyna að gera vinnuskilyrði starfsmanna eins góð og hægt er. Ráðgjöf og kennsla til starfsmanna sem og aðstandenda eru einnig hluti af starfinu. Erla byrjaði að vinna hjá Geðhjálp og skipti svo yfir á Geðdeild Landspítalans á Hringbraut. Haustið 2010 byrjaði hún að vinna á Æfingastöðinni þar sem starf hennar felst m.a í að meta, þjálfa, útvega hjálpartæki og veita ráðgjöf til barnanna sjálfra, aðstandenda og kennara með það að markmiði að efla þátttöku og lífsgæði barnsins og fjölskyldunnar. Þá sinnir hún einnig ráðgjöf og þjálfun í Klettaskóla tvo morgna í viku. Svanhildur starfaði frá útskrift til ársins 2011 á Reykjalundi. Þar prófaði hún að starfa á nokkrum sviðum, eins og verkjasviði, taugasviði og lungnasviði. Svanhildur sá um að veita ráðgjöf og fræðslu, ADL mat, ADL ráðgjöf, mat á hjálpartækjum og að útvega þau. Einnig er hlutverk iðjuþjálfa á Reykjalundi að auka sjálfsbjargargetu, þátttöku í daglegu lífi og lífsgæði. Farið er í heimilisathugun og vinnustaðaathugun. Svana tók þátt í kennslu í lungnaskólanum og verkjaskólanum auk þess að vera með hópa í slökun og streitustjórnun. Svanhildur var sviðsstjóri á lungnasviði frá 2006 til 2011 þegar hún ákvað ásamt fjölskyldu sinni að flytja til Noregs þar sem hún vinnur núna á leikskóla. Þessi hópur hefur sannarlega tekið að sér mismunandi verkefni eftir útskrift. Við höfum tekið að okkur nema frá Háskólanum. Við höfum verið við ýmis störf innan Iðjuþjálfafélagsins, bæði í stjórn, kjaranefnd, ritnefnd og fræðslunefnd. Nokkrar hafa farið í áframhaldandi nám. Svanhildur bætti við sig námi í hómópatíu. Antonía tók meistaragráðu í lýðheilsuvísindum með sérstaka áherslu á geðheilsu barna og unglinga og áhrif forvarna og heilsueflingar til að draga úr geðrænum vanda hjá börnum og unglingum. Álfheiður og Inga Dís tóku kennsluréttindi í framhaldsskóla frá Háskólanum á Akureyri. Margar erum við með réttindi á A-ONE, AMPS og einnig eru Sigríður og Valdís að vinna í að fá ART- réttindi, þar sem unnið er með félagsfærni, sjálfsstjórn og eflingu siðgæðisþroska hjá börnum og unglingum. Hafdís er í meistaranámi í heilbrigðisvísindum með áherslu á fötlun og endurhæfingu og Álfheiður er í eins árs námi í hugrænni atferlismeðferð við Endurmenntun HÍ. Nokkrar hafa verið stundakennarar við iðjuþjálfabrautina við Háskólann á Akureyri og aðrar verið gestafyrirlesarar. Fyrir utan það að vera iðjuþjálfar eru við mæður, eiginkonur, vinkonur, bændur, meðhjálpari, sveitastjórnarmenn, kv en­ félags meðlimir, formenn for eldafélaga, crossfittarar, hlauparar, handa vinnu- konur, matgæðingar og svona mætti lengi telja. Við erum einnig sérlega duglegar að búa til glæsileg börn. Þegar við byrjuðum í skólanum voru 4 börn í hópnum. Á meðan við vorum í skólanum fæddust 6 börn og núna samanstendur hópurinn af 31 barni, hundum og nokkrum kúm. Sameiningartákn okkar er FITL sem stendur fyrir Frábærir Iðjuþjálfar og Trylltir meðLimir. Við hittumst alltaf fyrstu helgina í október ár hvert og höfum gert núna í 11 ár. Við höfum hist á ýmsum stöðum á milli Reykjavíkur og Akureyrar og höfum jafnvel verið á Mývatni. Við hittumst yfir eina helgi þar sem makar okkar fá að koma með. Síðustu ár hefur venjulega eitt og eitt barn komið með, annaðhvort í móðurkviði eða ennþá á brjósti. Í fyrstu hittumst við yfir eina nótt en í dag dugar ekkert annað en heil helgi þar sem við skiptumst á að undirbúa samkvæmið. Það er alltaf jafn gaman hjá okkur enda getum við endalaust spjallað, hlegið og leikið okkur. Tvær af þeim myndum sem fylgja með greininni eru teknar í umræddum ferðalögum okkar. Önnur frá Mývatnssveit 2007 og hin núna í haust þar sem við hittumst á Steinsstöðum í Skagafirði og lýsir vel þeirri stemmingu sem er í hópnum. Fyrsta myndin er tekin 15. júní 2002 þegar við útskrifuðumst sem iðjuþjálfar. Iðjusystur ásamt mökum við Steinstaðaskóla tekin haustið 2013

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.