Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 20

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 20
20 vinna í anda valdeflingar. Stöðugt þarf t.d. að veita stjórnvöldum aðhald m.t.t. framfærslu og lífsgæða. Eitt er víst að öll munum við yfirgefa svæðið, þó að gátan um hvað taki við sé enn óráðin. En hvers vegna forðumst við að tala um dauðann og þau viðhorf, og jafnvel „menningu“ sem um dauðann hefur skapast? Er fólk sem komið er af léttasta skeiði hrætt við dauðann og vill því ekki tala um hann? Vill það ekki hugleiða þennan síðasta þátt, og þá hafa skoðun á því hvernig það kysi að hafa aðstæður þegar dauðann ber að? Viðhorf mótast á löngum tíma og stundum höldum við í löngu úreltar hefðir. Valdefling snýst m.a. um að taka stjórn á eigin lífi, en hvað með dauðann? Sumt fólk vill hafa meira vald yfir lífi sínu, og þar með dauða, og hvernig hann skuli bera að, sé þess kostur. Valdefling meðal aldraðra myndi leiða saman fólk með sameiginlega hagsmuni. Það myndi skoða ástæður ríkjandi viðhorfa og siða, og hvaða áhrifafólk kynni að hafa hag af óbreyttu ástandi. Í Hollandi, Lúxemborg, Sviss, Kanada og nokkrum ríkjum Bandaríkjanna hafa stjórnvöld gefið fólki val um að ráða dauðastund við ákveðnar aðstæður (Dignitas, e.d.). Íslendingar eru ekki lengur einsleitur hópur, hvorki í trúarlegum skilningi né menningarlegum, og völd lækna eru smám saman að breyt ast. Þeir sem vinna sam kvæmt valdeflingu deila valdi sínu með skjólstæðingunum. Þeir styðja þá við val á viðeigandi meðferð og meta hvernig hún muni hafa áhrif á lífið, lífsgæðin og dauðann (Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2009b, 2011). Ég fékk óbeint að fylgjast með óhefð­ bundnu vali samstarfskonu minnar og dauðvona eiginmanns hennar. Það sló mig hve miklar hindranir menningin hefur sett okkur og mótað viðhorf og uppbyggingu kerfisins. Ekki eru virtar mismunandi óskir. Sjúkdómsferlið var þekkt. Líf mannsins myndi fjara hægt út. Hann skipti það mestu máli hvernig fjölskyldan myndi minnast hans. Hann vildi verja síðustu stundum ævi sinnar með fullri reisn og vitund. Til að koma til móts við þessa ósk varð hann að fá að ráða dánarstundinni. Þessa leið mun fjöldinn aldrei velja, en stjórnvöld eiga engu að síður að leyfa fólki að hafa val. Þessi heiðurshjón létu hindranirnar ekki stoppa sig þótt það kostaði bæði erfitt og langt ferðalag til annars lands og rífleg fjárútlát. Þessi fjölskylda valdi ekki auðveldustu leiðina, þau völdu að ryðja brautina fyrir okkur hin og sýndu í verki að dauðinn þurfi ekki að vera feimnismál og að hægt sé að hafa ólíkar hugmyndir og útfærslur. Nærtækara dæmi er útfararþjónusta. Útfarir hafa breyst lítillega undanfarin ár, í takt við mismunandi óskir fólks. Fyrir aðeins áratug hefði verið nær óhugsandi að prestur væri ekki við útför. Ég er þakklát fyrir það frelsi sem við systkinin fengum þegar foreldar okkar kvöddu þetta jarðlíf. Jarðneskar leifar þeirra eru nú hluti af hafsbotni og duftkerið fyrir löngu uppleyst. Foreldar mínir hafa engan áþreifanlegan legstað. Mismunandi litir í sólarlaginu sjá um að halda minningu þeirra á lofti sem ég mun skýra út fyrir afkomendunum. Presturinn hélt utan um athöfnina og var ekki endilega í aðalhlutverki. Aðstandendur tóku fullan þátt miðað við hæfileika, áhuga og getu. Hvers vegna látum við enn smíða vandaðar og rándýrar kistur til að láta þær rotna, eða nota sem eldivið? Útfararþjónustur eiga, sem aðrir, að bjóða val. Hver ákvað að allir þyrftu að vera í kistu? Fjölskyldur hljóta að mega ráða útfærslunni upp að vissu marki en til þess þarf stuðning löggjafans. Kynslóðin sem nú elst upp mun gera aðrar kröfur varðandi líf og dauða en þær sem gengnar eru. Ef þjónusta sem kostuð er með almannafé temur sér í auknum mæli að vinna í anda geðræktar, valdeflingar og lífsþarfa á saga Helga Hóseassonar ekki að þurfa að endurtaka sig, því hann barðist einn. Helgi Hóseasson var hugsjóna- og baráttumaður. Hann hóf baráttu sína við stjórnvöld árið 1962 og er einna þekktastur fyrir að hafa slett skyri á skrúðgöngu biskups, forseta og alþingismanna. Það eina sem hann fór fram á var að rift yrði skírnarsáttmála hans, sem auðvitað var gerður án hans samþykkis, enda oftast ungbörn skírð. Helgi barðist í rúma hálfa öld en fékk aldrei kröfum sínum framgengt (Helgi Hóseasson, e.d.). Heimildir: Blair, S., Hume, C. og Creek, J. (2008). Occupational perspective on mental health and well-being. Í J. Creek og L. Lougher (ritstj.), Occupational Therapy and Mental Health (4. útgáfa) (bls. 17- 30). Edinburgh: Churchill Livingstone. Borg, M. (2006). Arbeid, Aktivitet og Mening. I Almvik, A. & Borge, L (ritstj.), Psykisk helsearbeid i nye sko (bls.53­71). Bergen; Fagbokforlaget. Chamberlin, J. (1997). A working definition of empowerment. Psychiatric Rehabilitation Journal, 20, 43-46. Dignitas (assisted dying organisation) (e.d.). Sótt 16. febrúar 2014, frá http://en.wikipedia.org/wiki/Dignitas_ (assisted_dying_organisation). Elín Ebba Ásmundsdóttir (2007). Geðrækt geðsjúkra: Að ná tökum á lífinu. Iðjuþjálfinn 2, 13­21. Elín Ebba Ásmundsdóttir (2008). Geðrækt geðsjúkra: Útihátíð í miðbæ Reykjavíkur. Iðjuþjálfinn 2, 19-27. Elín Ebba Ásmundsdóttir (2009a). Geðræktarkassinn. VR blaðið, febrúar 2009. Elín Ebba Ásmundsdóttir (2009b). Creation of new services: Collaboration between mental health consumers and occupational therapists. Occupational Therapy in Mental Health, 25, 115­ 125. Elín Ebba Ásmundsdóttir (2011). Geðrækt geðsjúkra – raunveruleiki eða hugarburður. Geðvernd. 1;18­23. Elín Ebba Ásmundsdóttir og Sólrún Óladóttir (2011). Iðjuþjálfun fullorðinna II: Geðheilsa . Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Egilsson (ritstj.), Iðja, heilsa og velferð – iðjuþjálfun í íslensku samfélagi (bls. 175-192). Háskólinn á Akureyri: Háskólaútgáfan. Fríða Björnsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Guðbjörg Daníelsdóttir (2010). Lagt í vörðuna – Geðræktarverkefni fyrir miðstig grunnskóla. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. Reykjavík: Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Sótt 27. júlí 2011, frá http://netla.khi.is/ greinar/2010/019/index.htm. Hanna Björg Sigurjónsdóttir (2006). Valdefling. Glíma við margþætt hugtak. Fötlun hugmyndir og aðferðir á nýju fræðasviði. Í Rannveig Traustadóttir (ritstj.). Fötlunarfræði: Nýjar íslenskar rannsóknir (bls. 66- 80). Reykjavík: Háskólaútgáfan. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið (2005). Evrópsk aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Leitað lausna á brýnum verkefnum. Sótt 13. september 2005, frá http://www. heilbrigðisraduneyti.is/media/frettir/ adgerdaaatlun_i_gedheilbrigdismalum_i_ Evropu.pdf. Helga Björg Barðadóttir (2009). Geðorðin 10 og geðræktarkassi. Aðferð til að bæta samskipti nemenda og starfsfólks grunnskólas. B. Ed. lokaverkefni í grunnskólafræðum við Háskóla Íslands. Sótt 23. ágúst 2010, frá http://skemman.is/is/stream/ get/1946/3733/6786/1/HelgaBjorg_ lokaverkefni_fixed$005b1$005d.pdf. Helgi Hóseasson (e.d.). Sótt 16. febrúar 2014, frá http://is.wikipedia.org/wiki/Helgi_ Hóseasson. Rosenfeld, M. (2000). Spiritual agent modalities for occupational therapy practice.OT Practice, 17­21. Rosenfeld, M. (1993). Wellness and Lifestyle Renewal: A Manual for Personal Change. Bethesda, MD: AOTA, Inc. WHO, (2005). Mental health: Facing the challenges, building solutions. World Health Organization Europe. Report from the WHO European Ministerial Conference.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.