Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 6

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 6
6 Fötlunarfræði er fræðigrein sem fæst við hugtakið fötlun. Í fötlunarfræðum sameinast margar og ólíkar nálganir sem eiga það þó sameiginlegt að hafna því að einblína á einstaklinginn og skerðingar hans. Þess í stað er athyglinni beint að áhrifum efnahagslegra, menningarlegra og ekki síst félagslegra þátta í að móta líf, aðstæður og möguleika fatlaðs fólks. Fræðin hafa þó ekki einvörðungu verið notuð til að lýsa ástandi heldur beinlínis til að koma á breytingum og bæta þannig stöðu fatlaðs fólks. Ísland er aðili að alþjóðasáttmálum og hér gilda lög sem eiga að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Reglugerðir segja til um hversu breið dyraop skulu vera og finna má viðmiðanir um æskilegan halla á römpum. Slíkt gefur þó afar takmarkaða mynd af því hver dagleg reynsla fólks er af því að búa í þessu samfélagi. Markmiðið með meistararannsókn minni var að kynnast og öðlast skilning á reynslu fólks sem notar hjólastól, meðal annars í þeim tilgangi að leggja til úrbætur sem auðvelda hreyfihömluðu fólki aðgang að samfélaginu og þátttöku í því. Viðtöl voru tekin við 10 einstaklinga, sex konur og fjóra karla, á aldrinum tuttugu til níutíu ára, sem af ýmsum ástæðum nota handknúna hjólastóla dags daglega. Fjölskylduaðstæður viðmælenda voru misjafnar, sumir bjuggu einir, aðrir voru í sambúð. Sumir áttu börn, aðrir ekki. Að auki voru gerðar þátttökuathuganir með hluta viðmælenda en þátttökuathugun er, líkt og viðtal, aðferð til þess að afla rannsóknargagna. Þar var áhersla lögð á að taka þátt í hversdagslegum athöfnum, s.s. að fara í strætisvagn og í heimsókn til ættingja. Nöfnum allra viðmælenda var breytt. En hvaða þættir er varða aðgengi eru þeir sem skipta máli? Og hver er reynsla fólks sem notar hjólastól af þátttöku í samfélaginu? Viðmót er hluti af aðgengi Aðgengi er víðfeðmt hugtak og í huga viðmælenda vísar það til fleiri þátta en bara aðgengis að mannvirkjum. Eitt af því sem þeir nefndu var óaðgengilegt viðmót. Þetta viðmót lýsir sér í því að ókunnugt fólk hefur fyrirfram mótaðar hugmyndir um fólk sem notar hjólastól, eins og þá að það sé ósjálfbjarga, geti ekki svarað fyrir sig eða haft sjálfstæðar skoðanir. Dæmi um þetta er þegar spurt er yfir hausamótunum á fólki sem þó er á staðnum: „Hvernig hefur hann það?“ „Hvað vill hún?“ Sigþrúður nefndi sem dæmi að hún hafi verið stödd í verslun þegar afgreiðslukona kom til hennar, lagði hendurnar á stólinn og spurði: „Ertu ein hérna, vinan?“ Viðmót sem þetta er aðgengishindrun þegar kemur að þátttöku í samfélaginu. Hver er dómbær? Hugtakið aðgengi á líka við þegar kemur að hjálpartækjum og það var mörgum hugleikið. Ýmsar takmarkanir eru á því hvaða búnaður fólki stendur til boða af hálfu ríkisins en í umsókn um hjálpartæki skal ávallt koma fram mat heilbrigðisstarfsmanns á þörf hins fatlaða umsækjanda fyrir tækið. Viðmælendum sárnaði að þeim sjálfum væri ekki treyst til að hafa vit á því hverskonar hjálpartæki séu þeim nauðsynleg, heldur geri kerfið ráð fyrir því að ófatlað fagfólk viti það best. Því miður eru notandinn og fagfólkið ekki alltaf sammála um þörfina fyrir tiltekin hjálpartæki. Halldóra þurfti t.d. að beita lækninn sinn fortölum til að fá hann til að skrifa upp á umsókn um bíl með lyftu svo hún þyrfti ekki að reyna jafnmikið á axlir og herðar við að toga sig inn í bíla. Lækninum fannst hún nefnilega eiga næga krafta eftir í höndunum. Þó svo að heilbrigðisstarfsmaður skrifi upp á umsókn um hjálpartæki er það engin trygging fyrir því að hún verði samþykkt. Þorsteinn tók dæmi um þetta, en hann er í þeirri stöðu að skerðingar sinnar vegna þarf hann að hafa stuðning við hliðar og arma, ásamt góðum stoppurum aftan á stólnum sínum. Það er til þess að tryggja að hann fari ekki alveg aftur fyrir sig ef stóllinn sporðreisist. Hann sagðist hins vegar geta gert stólinn sinn meðfærilegri með því að hafa undir honum önnur dekk en þau sem fylgdu sem staðalbúnaður frá Steinunn Þóra Árnadóttir lauk MA námi í fötlunarfræðum frá Háskóla Íslands árið 2013. Lokaverkefni hennar fjallaði um reynslu fólks sem notar hjólastól af aðgengismálum og samfélagsþátttöku. Þessi grein byggir á niðurstöðum þeirrar rannsóknar. „Ertu ein hérna, vinan?“ -reynsla fólks sem notar hjólastól

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.