Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Side 8

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Side 8
8 Ég var beðin um að segja frá reynslu minni af því að hafa verið leiðbeinandi í iðjuþjálfun í 14 ár. Ég mun leitast við að draga fram bæði kosti og galla, þótt ég sé kannski ekki rétta manneskjan til að gera það, vegna þess að ég naut þess mjög að vera leiðbeinandi og á erfitt með að sjá nokkuð neikvætt við það. Kostir: • Ég fékk hvatningu til að fylgjast með þróun innan minnar starfs­ greinar. • Ég fékk tækifæri til að læra um nýja strauma með því að fara á námskeið og ræða við, bera un­ dir og skiptast á skoðunum við nemendur og kennara í skóla­ num. • Að bera ábyrgð á að leiðbeina nemanda varð til þess að ég þurfti að átta mig á og móta mér skýrar hugmyndir um hvað ég var að gera á hverjum degi sem iðjuþjálfi, t.d. hvers vegna ég val­ di þessa sérstöku nálgun og gerði þessa sérstöku áætlun en ekki eit­ thvað annað. • Hver nemandi var ný áskorun sem opnaði huga minn og hjál­ paði mér að finna mismunan­ di leiðir til að útskýra hvernig iðjuþjálfar vinna og koma með rök fyrir mínum aðferðum. • Að hafa nemanda hjálpaði mér með tímastjórnun. • Ég kynntist mörgum skemmtile­ gum einstaklingum sem voru að feta sín fyrstu spor í faginu, eins­ taklingar sem með opnum huga fylgdust með mínum daglegu störfum af áhuga, gagnrýninni hugsun og sem höfðu mis­ munandi bakgrunn og viðhorf í farteski sínu. • Það eykur sjálfstraust, því ég hafði áhrif á þróun fagsins og mótunaráhrif á nemandann, átti minn þátt í að efla með nemend­ unum áhuga á þeim aðferðum sem ég hafði trú á. • Það var gefandi og ég fékk svö­ run frá nemunum mínum að ég væri að standa mig. Gallar: • Það kostar undirbúning og þ.a.l. meiri vinnu. • Ef þú vinnur einn er erfitt að vera með nemanda á fyrsta eða öðru vettvangstímabili. • Ef vinnufélagar þínir eru ekki tilbúnir að aðstoða nemanda á vinnustað af því að þeir telja það vera þitt einkamál. • Stundum þurfa nemendur meira en faglegar leiðbeiningar, t.d. aðstoð vegna persónulegra mála. • Það er álag að leiðbeina og fyl­ gjast með því hvernig nemanda tekst að fást við faglega þætti og hvernig honum líður í starfinu. Að vera leiðbeinandi hefur hjálpað mér að vaxa sem fagmaður og manneskja. Það var auðvitað ekki sama upplifun að taka fyrsta nema og þann síðasta. Það er alltaf erfitt að takast á við eitthvað sem maður hefur aldrei gert áður. Við höfum öll rétt til að læra og prófa okkur áfram. Það táknar ekki að ég hafi verið verri leiðbeinandi með fyrsta nemann , en það tók mig meiri tíma að undirbúa mig og ég var ekki jafn sjálfsörugg og síðar varð. Nýr leiðbeinandi verður að hafa í huga að hann mun alltaf vita meira en neminn. Leiðbeinandi er á heimavelli, hann hefur í það minnsta tveggja ára reynslu í starfi. Klárasti nemandinn í skólanum hefur ekki reynslu af starfinu sem slíkur, þótt hann hafi allar kenningar á hreinu. Vettvangsnám snýst um að hjálpa nemanum að tengja akademískar kenningar sem hann lærir í háskóla við starf á vettvangi. Leiðbeinandinn er sérfræðingur á sínum vinnustað. Annað sem er gott að hafa í huga er að flestir leiðbeinendur starfa ekki einir. Það er hægt að fá samstarfsfólk til að taka nemann með sér til að leyfa honum að upplifa fleiri hliðar vinnustaðarins. Það skiptir t.d. ekki máli, ef neminn fer á teymisfundi, hvort leiðbeinandi hans er viðstaddur eða ekki. Það er hægt að vera í hópastarfi án þess að leiðbeinandinn stjórni. Það er hægt að fara og skoða önnur úrræði með öðru starfsfólki eða nemum sem vinna á sömu stofnun. Leiðbeinandi þarf alls ekki að vera átta klst. með nemann sinn í fanginu. Það hefur gerst að nemi hefur vitað um ný matstæki eða úrræði sem ég vissi ekki um. Að vera með nema er einmitt góð leið til að læra eitthvað nýtt. Leiðbeinandi, kostir og gallar Sylviane Pétursson, iðjuþjálfi

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.